Morgunblaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 13
>% #
!"
# ! !
%! ! &"
'
%
!
! %
(
(
) *
%
+ !
NÝLEGA var gengið frá samn-
ingi Tryggingamiðstöðvarinnar við
Bifreiðar og landbúnaðarvélar
(B&L), Ingvar Helgason og ALP
bílaleigu um vátryggingaviðskipti
og náið samstarf á sviði forvarna
og fræðslumála. Samningurinn er
til tveggja ára. Meðfylgjandi mynd
var tekin við undirritun samnings
en frá vinstri eru Íris B. Ansnes,
fjármálastjóri B&L, Þóroddur Sig-
fússon, forstöðumaður atvinnu-
rekstrar og erlendra viðskipta hjá
TM, Jóhannes G. Jónsson, fjár-
reiðustjóri Ingvars Helgasonar, og
Eyjólfur Sigurðsson, vátrygg-
ingaráðgjafi hjá Trygginga-
miðstöðinni.
TM tryggir fyrir
B&L, IH og ALP
áður m.a. við bókhald og starfs-
mannamál hjá Festi auk ýmissa
skrifstofustarfa með námi. Dómhild-
ur stundaði mastersnám í mannauðs-
stjórnun við HÍ og Viðskiptaháskól-
ann í Kaupmannahöfn 2005-2006,
útskrift frá HÍ 2007.
Benedikt Krist-
jánsson er for-
stöðumaður inn-
kaupasviðs í
ferskvöru. Hóf störf
hjá Samkaupum
sem verslunarstjóri
árið 1999, tók síðar
við starfi inn-
kaupastjóra og
rekstrarstjóra Strax verslana og frá
2007 einnig rekstrarstjóri Úrvals
verslana Samkaupa. Benedikt er
kjötiðnaðarmaður að mennt, starfaði
sem slíkur til 1985 er hann gerðist
kaupmaður og rak eigin verslanir til
1999.
Stefán Guð-
jónsson er for-
stöðumaður inn-
kaupa- og
markaðssviðs.
Hóf störf hjá
Samkaupum 12
ára gamall og
starfaði hjá félag-
inu öll sumur með námi. Tók árið
1997 við starfi verslunarstjóra Kaskó
í Keflavík, að loknu viðskiptafræði-
prófi frá Bifröst tók hann aftur við
sömu stöðu í Keflavík og rak versl-
unina í tæp tvö ár. Í lok árs 2005 tók
Stefán við rekstrarstjórastöðu Nettó
og Kaskó og gegndi
henni til 1. apríl sl.
Haukur Bene-
diktsson starfar að
markaðsmálum á
innkaupa- og mark-
aðssviði. Hóf störf
hjá Samkaupum í
febrúar 1999 sem
verslunarstjóri á
SAMKAUP gerðu nýverið breyt-
ingar á skipuriti fyrirtækisins sem
felast m.a. í samþættingu innkaupa-
og markaðsmála, sem áður voru á
tveimur sviðum, auk þess sem störf
rekstrarstjóra fyrir hverja verslun-
artegund voru lögð niður. Í staðinn
var stofnað sérstakt rekstrarsvið fyr-
ir allar verslanir auk nýs stjórn-
unarsviðs.
Samkaup reka á fimmta tug mat-
vöru- og ferðamannaverslana víða um
land undir merkjum Kaskó, Nettó,
Samkaupa-Úrvals, Samkaupa-Strax,
Krambúðar, Hólagarðs og Hyrn-
unnar. Hjá fyrirtækinu starfa nú um
800 manns.
Sturla Eðvarðs-
son er fram-
kvæmdastjóri Sam-
kaupa. Hann
starfaði hjá fyrir-
tækinu frá 1994 til
2000 en þaðan fór
hann til Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar.
Starfaði þar fyrst sem forstöðumaður
verslunarsviðs og síðar fram-
kvæmdastjóri Fríhafnarinnar frá
2002-2006. Sturla lauk rekstrarfræða-
prófi frá Samvinnuskólanum á Bifröst
árið 1992.
Þorvarður Sig-
fússon er fjármála-
stjóri Samkaupa.
Hann starfaði sem
fjármálastjóri hjá
Búri árin 1998-2007.
Kom til starfa hjá
Samkaupum í des-
ember sl. eftir nokk-
urra mánaða starf hjá DHL Hrað-
flutningum sem fjármálastjóri.
Þorvarður er viðskiptafræðingur frá
HÍ og stundaði einnig framhaldsnám í
fjármálum í Danmörku.
Kjartan Már Kjartansson er stað-
gengill fram-
kvæmdastjóra og
forstöðumaður nýs
stjórnunarsviðs. Hóf
störf hjá Samkaup-
um í mars 2007, var
áður svæðisstjóri
Latabæjar í Þýska-
landi og þar áður
starfsmanna- og
gæðastjóri hjá IGS, dótturfélagi Ice-
landair. Kjartan Már lauk meistara-
prófi í viðskiptafræðum og stjórnun,
MBA, frá HÍ árið 2002 og kennara-
prófi frá Tónlistar-
skólanum í Reykja-
vík 1983.
Dómhildur Árna-
dóttir er starfs-
mannastjóri Sam-
kaupa, á stjórnunar-
sviði. Hún hóf störf
hjá fyrirtækinu í
mars 2007, starfaði
Ísafirði. Starfaði síðar sem verslun-
arstjóri í Keflavík og Njarðvík.
Haukur lauk diplomanámi í versl-
unarstjórnun frá Bifröst 2004.
Kristjana S.
Pálsdóttir stýrir
Vöruhúsi Sam-
kaupa á innkaupa-
og markaðssviði.
Hóf störf hjá Sam-
kaupum við sam-
runa þurrvöruhluta
Búrs og inn-
kaupadeildar Sam-
kaupa í mars 2007. Hefur starfað við
innkaup frá 1989, þar af hjá Búri árin
1996-2007. Kristjána lauk stúdents-
prófi af listasviði FB árið 1989.
Þorgeir Jónsson
er innkaupastjóri
sérvöru á innkaupa-
og markaðssviði.
Hóf störf hjá Sam-
kaupum í september
2006. Starfaði áður
sem rekstrarstjóri
DAC, dótturfélags
Lyfja og heilsu, og
innkaupastjóri hjá Intersport. Þor-
geir hefur lokið diplomanámi í versl-
unarfræðum og -stjórnun frá Bifröst.
Gunnar Egill
Sigurðsson er for-
stöðumaður nýs
rekstrarsviðs. Hóf
störf hjá Sam-
kaupum í sept-
ember 2003 sem
verslunarstjóri.
Lauk B.Sc.námi í
viðskiptafræði frá
Bifröst árið 2003 og tók hluta af nám-
inu í skiptinámi í Japan.
Gísli Gíslason er
svæðisstjóri á Vest-
ur- og Norðurlandi
og starfar á rekstr-
arsviði. Hóf störf
hjá Samkaupum við
samruna Matbæjar
og Samkaupa, fyrst
sem innkaupastjóri
og síðar rekstrar-
stjóri Úrvals og Strax verslana til
ársins 2007. Gísli útskrifaðist frá
Samvinnuskólanum á Bifröst árið
1976.
Sigrún Anna
Guðmundsdóttir er
svæðisstjóri á höf-
uðborgarsvæðinu og
Suðurlandi og starf-
ar á rekstrarsviði.
Hóf störf hjá Sam-
kaupum við sam-
runa Matbæjar og
Samkaupa árið 2002, fyrst sem versl-
unarstjóri hjá Strax í Kópavogi og
síðar hjá Úrval í Hafnarfirði. Áður
starfaði hún sem verslunarstjóri hjá
Kaupási og síðar Matbæ.
Breytingar hjá Samkaupum
Samkaup Úrvalsverslun á Blöndu-
ósi var tekin í gegn í vetur.
Starfsmenn um 800 í nærri 50 verslunum um allt land
ÁRLEGT viðskiptaþing EBRD,
Endurreisnar- og þróunarbanka
Evrópu, verður haldið í Kiev í Úkra-
ínu 18. og 19. maí næstkomandi.
Björgvin G. Sigurðsson viðskipta-
ráðherra, sem í aðalstjórn bankans
fyrir hönd Íslands, verður í forsvari
fyrir opinbera sendinefnd frá Íslandi
á viðskiptaþingið.
Í tilkynningu frá Útflutningsráði
kemur fram að einnig sé stefnt að því
að halda kynningu á íslenskum fyr-
irtækjum og atvinnulífi ef þátttaka
íslenskra fyrirtækja í þinginu verður
góð.
Þá segir að þetta viðskiptaþing sé
einn stærsti árlegi viðburðurinn er
varðar fjárfestingu og viðskipti í
Austur-Evrópu, Rússlandi og Mið-
Asíu. Þar gefist því einstakt tæki-
færi til að hitta á einum stað hátt-
setta aðila í fyrirtækjum og stjórn-
kerfi þessara landa.
Viðskiptaþingið er haldið í
tengslum við aðalfund EBRD og á
sama stað fer fram sérstakt fjár-
festaþing um Úkraínu.
Fyrirtæki á borð við Citigroup,
DaimlerChrysler, HSBC, Deutsche
Bank, RAO UES og Shell Interna-
tional hafa tekið þátt í viðskipta-
þinginu, auk margra annarra, þ.m.t.
íslenskra fyrirtækja með viðskipti í
A-Evrópu.
Íslensk sendinefnd
fer á þing EBRD
FINNAIR hefur selt sex Boeing-
flugvélar af gerðinni MD-80 til
bandaríska lággjaldafélagsins
Allegiant Air, sem er með höf-
uðstöðvar sínar í Las Vegas.
Umræddar vélar hafa verið í
leigu hjá FlyNordic, sænsku lág-
gjaldafélagi sem Finnair átti þar til
á miðju síðasta ári er Norwegian
Air Shuttle keypti. Verða þær
áfram í leigu út þetta og næsta ár,
áður en þær verða teknar í notkun í
Bandaríkjunum.
Finnair selur
sex flugvélar
ÖSSUR hf. hefur samið við Saga
Capital fjárfestingarbanka að annast
viðskiptavakt með hlutabréf Össurar
fyrir eigin reikning Saga Capital. Í
samningi um viðskiptavakt felst að
Saga Capital setur daglega fram
kaup- og sölutilboð í hlutabréf Öss-
urar í því skyni að markaðsverð
skapist á hlutabréfunum og verð-
myndun verði með skilvirkum og
gagnsæjum hætti. Tilboðin eru sett
fram í viðskiptakerfi Nasdaq OMX-
kauphallarinnar.
Saga vaktar
fyrir Össur
Kynntu þér Tvennu á www.nb.is
Við tryggjum þér bestu vextina!
Nýjung sem sameinar kosti verðtryggðra
og óverðtryggðra reikninga
TB
W
A\REYKJAVÍK\
SÍA