Morgunblaðið - 05.05.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 122. TBL. 96. ÁRG. MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
Magnaðar stundir
í leikhúsinu
Kommúnan >> 33
Leikhúsin í landinu
FRÉTTASKÝRING
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
FERÐAMENN hafa lengi sótt hálendi Ís-
lands í miklum mæli en síðustu ár hefur
þeim fjölgað verulega. Bæði hefur aukist
mjög að Íslendingar fari á eigin bílum og
einnig er áberandi hve gangandi ferða-
mönnum hefur fjölgað, sem og útlendingum
í hópferðum með leiðsögumönnum.
Þeirri spurningu hefur öðru hverju verið
varpað fram hvort takmarka þurfi aðgang
að hálendinu með einhverjum ráðum. Við-
mælendur Morgunblaðsins telja það tæp-
lega nauðsynlegt, en segja þó fyllilega sann-
gjarnt að velta því fyrir sér.
Mjög margir koma á svæðin þar sem
Ferðafélag Íslands rekur skála; í Land-
mannalaugar er t.d. algengt að 5.000 manns
komi um helgi að sumarlagi, og þangað
koma alls 100.000 manns á tveggja mánaða
tímabilið yfir hásumarið. Á sama tíma koma
60-80.000 manns í Þórsmörk. „Við teljum
ekki að setja þurfi reglur um hámarksfjölda
eða selja inn á svæðin heldur að vernda
megi náttúruna nægilega með því að auka
upplýsingar og bæta aðgengi, göngustíga
og salernisaðstöðu,“ segir Páll Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Ferðafélagsins.
Hann segir 5.000 manns hreinlega „hverfa
inn í gönguleiðirnar“ við Landmannalaugar
án nokkurra vandkvæða. „Ef gönguleiðir
eru vel merktar er hægt að komast hjá því
að valda spjöllum, en þar sem merkingar
eru ekki í lagi sjáum við að strax verður tjón
á náttúrunni,“ segir framkvæmdastjórinn.
Páll nefnir, og segir lykilatriði, að víða
þurfi að bæta stórlega salernisaðstöðu og
aðra lágmarksþjónustu við ferðamenn, sem
oft sé til skammar.
Valur Þór Hilmarsson, umhverfisfulltrúi
Ferðamálastofu, segist ekki vilja fullyrða
um ástandið á landinu en telur hvergi stór-
hættu á ferðum. Álagið sé vissulega gíf-
urlegt sums staðar en reynt sé að stýra um-
ferð ferðalanga, m.a. með því að styrkja
uppbyggingu utan hálendisins.
Nú er að hefjast rannsóknarverkefni í
Háskóla Íslands um landnýtingu og eru nið-
urstöður slíkrar vinnu álitnar besti grunn-
urinn til þess að byggja á ákvarðanir um
skipulag ferðamála á hálendinu. Reyndar
eru til þolmarksskýrslur fyrir ákveðin
svæði en enn hefur ekki verið unnið mark-
visst að skipulagi eftir þeim. Skýrsla um
Lakasvæðið liggur t.d. fyrir og er stefnt að
því að vinna fleiri slíkar fyrir miðhálendið.
Þarf að
takmarka
aðgang?
Álagið á hálendinu
er víða mjög mikið
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Vinsældir Séð yfir Landmannalaugar,
einn vinsælasta áfangastað ferðamanna.
48 KONUR hafa komið til dvalar í Kvennaathvarfinu það sem af er
árinu. Þetta eru mun fleiri konur en þangað höfðu leitað á sama tíma í
fyrra, en þá höfðu 34 dvalist þar þegar kom fram í maí. Að sögn Sig-
þrúðar Guðmundsdóttur, framkvæmdastýru Kvennaathvarfs, hefur
meðaldvöl kvenna í athvarfinu heldur lengst undanfarna mánuði.
Hún telur það skýrast að hluta til af mjög erfiðum húsnæðismark-
aði. „Konur sem fara ekki heim aftur eftir dvöl í athvarfinu eiga erfitt
með að finna sér húsnæði hér á suðvesturhorninu. Bæði er það dýrt og
erfitt að fá. Þá verðum við varar við fordóma í þá átt að fólk vill síður
leigja erlendum konum,“ segir hún.
Í Morgunblaðinu í dag er rætt við konu sem beitt var ofbeldi af
manni sínum um árabil. Hún telur að enn séu fordómar í samfélaginu
gagnvart ofbeldi gegn konum. Þeir koma m.a. fram í því viðhorfi að
konur láti lemja sig. | Miðopna
Lengri dvöl í
Kvennaathvarfi
AÐ MINNSTA kosti 350 manns
biðu bana og nær 100.000 manns
misstu heimili sín í fellibylnum
Nargis sem gekk yfir Búrma um
helgina. Þúsundir húsa eyðilögðust
í óveðrinu og stór svæði urðu raf-
magns- og símasambandslaus. Ótt-
ast var að tala látinna myndi
hækka.
Talið er líklegt að þörf sé á al-
þjóðlegri aðstoð á hamfarasvæðun-
um. Andófshreyfingar og stjórnar-
erindrekar sögðust hafa áhyggjur
af því að herforingjastjórn landsins
yrði treg til að óska eftir aðstoð
vegna einangrunarstefnu hennar
og tortryggni í garð annarra ríkja.
Tré rifnuðu upp með rótum í
óveðrinu, síma- og rafmagnsstaur-
ar brotnuðu og vatnsleiðslur
skemmdust. Ríkissjónvarpið í
Búrma, MRTV, sagði í gærkvöldi
að 109 manns hefðu beðið bana á
Haing Gyi-eyju, undan strönd
Ayeyawaddy-héraðs, þar sem felli-
bylurinn kom á land á föstudags-
kvöld.
Embættismaður í upplýsinga-
málaráðuneyti Búrma og ríkisfjöl-
miðlar sögðu að 222 til viðbótar
hefðu látið lífið í óveðrinu í Ayeya-
waddy og nítján í Rangoon (Yang-
on), stærstu borg landsins.
Um 20.000 hús eyðilögðust
MRTV sagði að um 20.000 hús
hefðu eyðilagst á Haing Gyi-eyju og
92.700 íbúar eyjunnar hefðu orðið
heimilislaus. Í einum bæja Ayeya-
waddy er talið að 75% íbúðarhús-
anna hafi eyðilagst.
Upplýsingamálaráðuneytið sagði
að sjö mannlausir bátar hefðu sokk-
ið í stærstu höfn landsins. Alþjóða-
flugvöllurinn í Rangoon var lokað-
ur vegna óveðursins en talið er að
hann verði opnaður í dag.
Um 100.000 heimilislaus
Að minnsta kosti 350 manns biðu bana í miklum fellibyl
í Búrma Óttast er að mun fleiri hafi látist í óveðrinu
!!"#!$
AP
Eyðilegging Fallin tré í Rangoon.
BIÐ EFTIR
NAGGRÍS
DÝR LEIKA Í HÖNDUM
VALGERÐAR ÓSKAR
ÁLFTNESINGUR >> 17
„BEAT“-HÁTÍÐ HJÁ
ÓLAFI GUNNARSSYNI
INNBLÁSNIR MENN >> 35
SKÁLD
Á FERÐ
KRAKKARNIR í grunnskól-
anum í Hveragerði eru ánægðir
með skólalóðina sína, en um tvö
ár eru frá því lokið var við end-
urnýjun hennar. Á lóðinni eru
fjölmargir boltavellir og leik-
tæki fyrir börnin. Guðjón Sig-
urðsson, skólastjóri grunnskól-
ans, segir að hin endurnýjaða
lóð hafi haft mjög góð áhrif á
leik barnanna í frímínútum.
Árekstrar milli barnanna séu
núorðið miklu minni en fyrr og
börnin dreifist um alla lóðina í
ýmsum leikjum.
„Lóðin er meiri háttar góð,“
segir hann.
Ekki er hægt að segja það
sama um ýmsar aðrar skólalóð-
ir. Á skólalóðum í Reykjavík eru
dæmi um að helsti leikvöllur
barnanna sé steypt plan. | 8
Leik-
gleði á
lóðinni
Misvel er staðið að leiksvæðum barna í grunnskólum
Morgunblaðið/RAX