Morgunblaðið - 05.05.2008, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.05.2008, Blaðsíða 30
30 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ GUÐMUNDUR Gísli Ingólfsson, lögfræðingur úr fyrsta útskriftar- árgangi laga- deildar Háskól- ans í Reykjavík, hlaut í mars síð- astliðnum lög- mannsréttindi í New York-ríki í Bandaríkjum. Guðmundur hefur verið við nám og störf í New York síðan 2006 en þangað fór hann til að taka LL.M- próf í hugverkarétti ásamt því að ljúka samhliða ML-ritgerð sinni af alþjóðasviði við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Guðmundur starfar nú fyrir fastanefnd Íslands hjá Sam- einuðu þjóðunum. Í fréttatilkynningu kemur fram að til öflunar lögmannsréttinda í Bandaríkjunum þurfa lögfræðingar, með íslenskt lagapróf, fyrst að út- skrifast með gráðu frá viðurkennd- um bandarískum lagaskóla. Í nám- inu fer m.a. fram kennsla í ákveðnum grunnfögum bandarísks réttarfars. Að því loknu þarf við- komandi að standast málflutnings- próf, svokallað „bar exam“. Lög- mannsréttindi eru veitt við opinbera athöfn áfrýjunardómstóls ríkisins þar sem verðandi lögmenn sverja til þess gerðan eið og skrá nafn sitt í bók lögmanna. Að því loknu bera þeir starfsheitið „attorney at law“ og geta starfað í ríkinu að lögfræði- störfum og lögmennsku. Málflutn- ingsprófið í New York þykir erfitt og er fallhlutfall almennt hátt. Lögfræðingur frá HR fær lögmannsréttindi í New York Guðmundur Gísli Ingólfsson Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand GEISP! MAMMA VÆRI STOLT EF HÚN VISSI AÐ HÚN HEFÐI ALIÐ UPP UNDIRSKÁL ÉG VERÐ AÐ FINNA TEPPIÐ, KALLI ÉG ÆTLA AÐ GRAFA OG GRAFA ÞANGAÐ TIL ÉG FINNA ÞAÐ ALLT Í LAGI LÍSA VILL EKKI SEGJA MÉR HVAR HÚN GRÓF ÞAÐ, SVO ÉG VERÐ AÐ FINNA ÞAÐ HEFUR ÞÚ SÉÐ SKÓNA MÍNA? ÉG ER VISS UM AÐ ÉG SÉ BÚIN AÐ NÁ Í ÞÁ SKÓNA ÞÍNA? VEIT EKKI ÞEIR VORU HÉRNA RÉTT ÁÐAN! ÉG ER VISS UM ÞAÐ! VIÐ ERUM AÐ VERÐA SEIN ÉG KEMST EKKERT ÁN ÞESS AÐ VERA Í SKÓM! HJÁLPAÐU MÉR AÐ LEITA ÞAÐ VERÐUR SKO ENGIN BARNAPÍA Í KVÖLD HVAÐ ER AÐ ÞÉR NÚNA, HRÓLFUR? ÉG GET EKKI SOFNAÐ Á NÓTTUNNI ÉG LIGG BARA MEÐ AUGUN OPIN TÍMUNUM SAMAN ÞAÐ ER VANDAMÁLIÐ! ÞÚ VERÐUR AÐ LOKA AUGUNUM TIL AÐ GETA SOFNAÐ TAKK KÆRLEGA, HERRA GUTENBERG... ÁTTU HANA NOKKUÐ Í NÝJU ÞÝÐINGUNNI? ÉG SKEMMTI MÉR TÖLUVERT BETUR HÉRNA EN ÉG BJÓST VIÐ MIKIÐ AF FÓLKINU HÉRNA HEFÐI EKKI SVO MIKIÐ SEM LITIÐ VIÐ MÉR ÞEGAR ÉG VAR Í SKÓLANUM... EN NÚNA ERU ALLIR MJÖG ALMENNILEGIR ÞAÐ HEFUR SAMT ENGINN AF ÞEIM BEÐIÐ MIG AFSÖKUNAR NÓTTIN ER ENNÞÁ UNG... MARY JANE PARKER VERÐUR FANGINN MINN EÐA ÉG BREYTI PETER PARKER Í AÐAL FRÉTT MORGUNDAGSINS M.J., KOMDU ÞÉR Í BURTU Á MEÐAN VÖRÐURINN SÉR UM... SÉR UM HVAÐ? dagbók|velvakandi Þjóðlegar íslenskar afreksíþróttir eru hollari fyrir börn og unglinga en skák OFMAT á skák sem „íþrótt“ fyrir börn og unglinga tröllríður nú um- ræðu í fjölmiðlum – þrátt fyrir að áratugir hafi liðið án þess að merkj- anlegur árangur Íslendings í skák hafi náðst á alþjóðlegum mæli- kvarða. Þó mun enn svo vera að ís- lenska ríkið greiði föst stórmeist- aralaun án þess að það bæti árangur íslenskra skákmanna á heimsvísu. Á sama tíma greina heilsufarslæknar og íþróttafræð- ingar íslensku þjóðinni frá því að börn og unglingar hafi aldrei verið í verra líkamsásigkomulagi. Ég hef nú sjálfur stundað alvöru afreksíþróttir í áratugi og það verð- ur stöðugt mun sjaldgæfara en áð- ur fyrr, svo sem á frjálsíþrótta- æfingum, að börn eða unglingar með mikla líkamlega íþróttahæfi- leika komi á sínar fyrstu æfingar og sýni afburðahæfni í íþróttum. Það er hollara fyrir börn og ung- linga að stunda æfingar í þjóð- legum íslenskum afreksíþróttum, svo sem frjálsum íþróttum, kraft- lyftingum, lyftingum (snörun og jafnhending), glímu og sundi frem- ur en að sitja inni, langa daga og nætur, grá og guggin yfir skák- borði. Þjálfarar barna og unglinga í raunverulegum, líkamlegum og ekki síður andlegum afreksíþrótt- um eiga nú að fá stuðning mennta- málaráðherra og Íþrótta- og ólymp- íusambands Íslands til þess að efla heilsufar barna og unglinga við þjálfun á afreksíþróttum byggðum á íslenskum þjóðlegum grunni. Halldór Eiríkur S. Jónhildarson, þjóðréttar- og lögfræðingur og situr í varastjórn Kraftlyftinga- sambands Íslands. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is KRÖFUGANGA á Akureyri 1. maí. Gengið var suður Skipagötu, frá Al- þýðuhúsinu, norður Hafnarstræti (göngugötuna) og þaðan út í Sjalla þar sem fram fór hátíðarsamkoma. Aðalræðumaður dagsins var Pétur Sig- urðsson, fyrrverandi verkalýðsforingi á Vestfjörðum. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Akureyringar í kröfugöngu FRÉTTIR HAFDÍS Rafnsdótt- ir og Berglind Hólm Birgisdóttir, sölufulltrúar hjá fasteignasölunni RE/MAX Torg, af- hentu Krabba- meinsfélagi Íslands nýlega um eitt hundrað þúsund krónur sem framlag til baráttunnar gegn brjósta- krabbameini. Um var að ræða ágóða af sölu hinnar bleiku slaufu Krabbameinsfélagsins sem og hluta söluþóknunar októbermán- aðar 2007. Með framlagi sínu vilja Hafdís og Berglind styðja forvarnarstarf félagsins og vekja athygli á mik- ilvægi þess að allar konur fari reglulega í brjóstamyndatöku hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins. Þetta er í annað sinn sem Hafdís og Berglind leggja þessu málefni lið en þær stefna að því að gera það árlega. Vert er að geta þess að Hafdís og Berglind eru afkasta- mestu sölufulltrúar RE/MAX- fasteignasölukeðjunnar á Íslandi. Krabbameinsfélagið metur stuðning þeirra mikils. Sölufulltrúar REMAX afhenda Krabbameinsfélagi styrk Styrkur Hafdís Rafnsdóttir sölufulltrúi, Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, og Berglind Hólm Birgisdóttir sölufulltrúi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.