Morgunblaðið - 05.05.2008, Síða 28
28 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Ferðalög
Íbúðir til leigu á Spáni
Íbúðir í Barcelona, margar stærðir.
Einnig Costa Brava Playa de Aro,
Menorca Mahon, Valladolid,
www.helenjonsson.ws.
Sími 899 5863.
Heilsa
Frelsi frá streitu og kvíða
Hugarfarsbreyting til betra lífs
með EFT og sjálfsdáleiðslu.
Viðar Aðalsteinsson,
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694 5494,
vidar@theta.is, www.theta.is.
Nudd
Nudd fyrir heilsuna
Ertu aum/ur í baki, hálsi eða höfði?
Þá er þetta rétta stofan fyrir þig.
Upphitun í japönsku saunabaði.Losun
á vöðvafestingum. Slökun og fyrir-
bæn. Upplýsingar í síma 863 2261.
Sumarhús
Finnsk og sænsk gæðahús
Fulleinangruð heilsárs-sumar- og
gestahús. Löng reynsla hér á landi.
Kynntu þér húsin á www.jabohus.is
Bjóðum einnig geymsluhús. JABO
HÚS Ármúla 36 R.vík s 581 4070
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Byrjendanámskeið fyrir fullorðna
Skemmtileg byrjendanámskeið í
tennis fyrir fullorðna í sumar. Sumar-
skráning hafin. Tíu tíma námskeið
kr. 18.900. Upplýsingar í síma
564 4030.
Tennishöllin og TFK
Til sölu
Tékkneskar og slóvenskar
handslípaðar kristal- ljósakrónur.
Mikið úrval og gott verð.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Tékkneskar og slóvenskar
handslípaðar kristal- ljósakrónur.
Mikið úrval. Frábært verð.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Þjónusta
Móðuhreinsun glerja!
Er komin móða eða raki milli glerja?
Móðuhreinsun Ó.Þ.
Sími 897 9809.
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslismælar fyrir heitt og
kalt vatn.
Boltís sf.,
símar 567 1130 og 893 6270.
Ýmislegt
Ungt og flott bikini, bh í
D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 5.990,- bu-
xur í stíl frá kr. 3.550,-
slá om" pils í stíl á kr. 4.685,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán-fös 10-18, lau 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is.
Bátar
GUL Þurrgallar-
www.gummibatar.is. Vandaðir
öndunargallar. Til í krakka, unglinga
og fullorðinsstærðum. Frábært verð
39.900. Fást einnig í R.Sigmunds.
Gúmmíbátar & Gallar S:6607570
Bílar
Vantar alla gerðir bifreiða á skrá
Netbílar.is stórlækka þinn sölukost-
nað. Verð frá aðeins 34.900 m/vsk
fyrirþitt ökutæki. Kynntu þér málið á
Netbilar.is Gerðu verðsamanburð.
Bílasalan Netbílar.is,
Hlíðasmára 2, S. 588 5300
Matator hjólbarðar
Sumar- og heilsársdekk. 15 %
afsláttur á dekkjum gegn framvísun
auglýsingar. Gildir laugardag og
mánudag.
Kaldasel ehf,
Dalvegi 16b, Kópavogi,
s. 544 4333
Jeppar
LAND ROVER FREELANDER,
árg ´03, ekinn 81.000 km. Ásett verð
1.590.000.- Lán frá Lýsingu kr.
1.036.000.- afborgun pr. mán.
20.000.-Upplýsingar í síma 896 3362.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '06 .
892 4449/557 2940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza Aero ‘08.
696 0042/566 6442.
Sigurður Jónasson
Toyota Rav4 ‘06.
Bifhjólakennsla.
822 4166.
Snorri Bjarnason
Nýr BMW 116i ´07.
Bifhjólakennsla.
892 1451/557 4975.
Vespur
Vespa árg. 2006 ekin 300 km. Svört
125 c. Verð 230 þ. stgr. Uppl. í s.
861 3840.
Til sölu nýlegur harðbotna slöngu-
bátur 6m ásamt vagni, vél 95 hö,
ársgömul. Uppl. 861 3840.
✝ Sigríður ÞyríPétursdóttir
fæddist 1. okt. 1935
og ólst upp í Stóru-
Hildisey í Land-
eyjum. Hún lést á
heimili sínu sum-
ardaginn fyrsta, 24.
apríl. Foreldrar
hennar voru hjónin
Pétur Guðmunds-
son, f. 15. júní 1893,
d. 13. febrúar 1959,
og Soffía Guð-
mundsdóttir, f. 3.
júlí 1892, d. 21.
mars 1973. Sigríður var næst-
yngst af fjórtán systkinum sem
öll komust til fullorðinsára og
eru fimm eftirlifandi.
Sigríður giftist Inga Ársæls-
syni á gamlársdag 1960. Ingi er
fæddur 2. apríl 1938 og er frá
Ljótarstöðum í Landeyjum. For-
eldrar hans voru hjónin Ársæll
Jóhannsson, f. 1. apríl 1909, d. 8.
febrúar 1988, og Pálína Aðal-
björg Pálsdóttir, f. 29. mars
1906, d. 27. október 1983. Börn
Sigríðar og Inga eru 1) Aðal-
björg, f. 1962, eiginmaður Bolli
Árnason, f. 1959, börn þeirra eru
Ingi Páll, f. 1991, Lára Borg, f.
1993, Edda Björk, f. 1993, 2) Pét-
ur, f. 1964, eig-
inkona Magna Jón-
mundsdóttir, f .
1964, börn þeirra
eru Jón Ingi, f.
1991, Kári Steinar,
f. 1993, Katrín
Hrund, f. 1998, og
Sigríður Þyrí, f.
1983, móðir Oddný
Guðnadóttir, 3)
Soffía, f. 1964, börn
hennar eru Pétur
Daníel Pétursson, f.
1985, Árný Ósk
Hálfdánardóttir, f.
1993, 4) Ársæll Ingi, f. 1967, eig-
inkona Vilborg Andrésdóttir, f.
1964, börn þeirra eru Andrés
Sverrir, f. 1985, Elín Hafdís, f.
1990, Anton Freyr, f . 1996.
Barnabarnabarn er Oddný Ósk
Jónsdóttir, f. 2004.
Sigríður lauk námi við Hús-
mæðraskólann að Laugarvatni
1957. Sigríður og Ingi fluttust til
Reykjavíkur 1959 og stofnuðu
þar heimili sitt. Lengst af var
Sigríður heimavinnandi hús-
móðir og starfaði einnig við
verslunarstörf. Í seinni tíð starf-
aði hún lengi sem dagmóðir.
Útför Sigríðar verður gerð frá
Grafarvogskirkju 5. maí kl. 15.
Í dag kveðjum við kæra skólasyst-
ur og vinkonu Siggu P., eins og við
kölluðum hana, því þær voru tvær
Siggurnar í saumaklúbbnum okkar.
Frá því við komum úr Húsmæðra-
skólanum á Laugarvatni vorið 1957
höfum við flestar sem bjuggum á
Reykjavíkursvæðinu verið saman í
saumaklúbb og haft af því margar
ánægjustundir.
Klúbburinn okkar var stofnaður
eftir dvölina á Laugarvatni og er því
50 ára um þessar mundir. Sigga P.
var mikil driffjöður í félagsskapnum,
hafði oft eitthvað að segja sem kom
líflegum umræðum af stað og oft var
glatt á hjalla. Við ásamt mökum höf-
um farið víða í gegnum árin og þá hef-
ur falleg söngrödd Siggu hljómað af
miklum krafti í hópnum. Sárt er svo
snöggt fráfall og Sigga átti margt eft-
ir ógert. Fyrir ári minntumst við þess
hvað hún var glöð að segja okkur frá
fermingu barnabarns síns sem hún ól
upp og hamingja hennar var mikil að
koma dótturdóttur sinni yfir þennan
stóra áfanga í lífinu.
Hugur okkar dvelur hjá fjölskyldu
hennar sem hefur misst mikið. Við
þökkum samfylgdina með Siggu öll
árin og þegar tími okkar kemur mun
hún taka hlæjandi á móti okkur með
smellinni kveðju eins og henni einni
var lagið. Eiginmanni hennar og
börnum vottum við innilega samúð.
Skólasysturnar á
Laugarvatni 1956-57.
Elsku tengdamamma.
Þegar ég sit hér og skrifa þessi orð
er erfitt að átta sig á því að þú ert far-
in frá okkur, þú sem áttir svo margt
eftir ógert. Svona getur lífið verið óút-
reiknanlegt og við sem eftir stöndum
finnum fyrir tómleika. Skarð hefur
myndast sem ekki verður fyllt, en við
getum ekki annað en yljað okkur við
minningarnar um þig og allt það sem
við fjölskyldan höfum gert saman í
gegnum árin.
Okkar kynni hófust fyrir um 23 ár-
um þegar ég kom fyrst inn á heimili
ykkar í Bakkaselinu. Mér varð þá
strax ljóst að þarna fór kraftmikil,
ósérhlífin kona sem aldrei féll verk úr
hendi. Þú hafðir sterka nærveru og
mikinn áhuga á því sem var að gerast á
líðandi stundu, fylgdist vel með og
hafðir skoðanir á mönnum og málefn-
um. Þegar kom að fjölskyldu þinni var
þér ekkert óviðkomandi hvort sem það
sneri að börnum þínum eða barna-
börnum en samveran við þau voru þín-
ar bestu stundir, hvort sem var á
ferðalögum bæði hér og erlendis, í
sumarbústaðnum í Grímsnesinu eða
hinar miklu grillveislur fjölskyldunnar.
Lífið var þér ekki alltaf auðvelt,
fædd í sveitinni þar sem veraldleg
gæði voru af skornum skammti. Þar
lærðir þú mikla nægjusemi sem fylgdi
þér alla tíð. Þegar börnin ykkar fóru
að heiman var uppeldishlutverki ykk-
ar ekki lokið því þið hélduð heimili
fyrir tvö barnabörn ykkar, þau Ár-
nýju Ósk og Daníel og er þeirra miss-
ir nú mikill.
Minningin um þig mun lifa áfram í
hjörtum okkur.
Ég kveð þig um sinn.
Þín tengdadóttir
Magna.
Elsku amma, það er svo ótrúlega
skrítið að hafa þig ekki lengur hjá
okkur. Við eigum svo margar
skemmtilegar og góðar minningar um
þig. Efst í huga okkar koma öll ferð-
lögin sem við fórum í. Við fórum
mörgum sinnum hringinn í kringum
landið með þér og stoppuðum alltaf
lengi í Atlavík sem var einn af þínum
uppáhaldsstöðum því þar fannst þér
svo gaman að sitja í sólinni og fylgjast
með mannlífinu og sjá broslegu hlið-
arnar á því. Við spiluðum mikið veiði-
mann og kapal við þig. Þegar þér
fannst vanta eitthvert fjör í spila-
mennskuna byrjaðir þú að svindla og
þá færðist nú aldeilis fjör í leikinn.
Það var alltaf svo mikið fjör í kringum
þig. Þú grínaðist og hlóst mikið í grill-
veislunum okkar og í öllum ferðalög-
unum sem við fórum í. Þér fannst
ofsalega gaman að syngja og allir
krakkarnir í fjölskyldunni kunna
Undir bláhimni sem er og verður allt-
af aðalfjölskyldulagið. Þú varst dug-
leg kona, amma, og við lærðum mikið
af þér. Þú varst hreinskilin við okkur
og lést okkur heyra það ef eitthvað
var ekki eins og þú vildir hafa það. Við
vissum alltaf að þú gerðir þetta til að
gera okkur að betra fólki því þú vildir
að við værum sjálfstæð og dugleg. Þú
varst líka gjafmild og laumaðir oft
pening í vasa okkar. Elsku amma, við
söknum þín mikið. Nú ertu komin til
Guðs og við vitum að þú heldur áfram
að fylgjast með okkur.
Ingi Páll, Lára Borg og
Edda Björk.
Elsku amma, ég sakna þín svo mik-
ið og á erfitt með að trúa því að þú
sért farin frá mér.
Þegar ég hugsa um okkur þá kemur
alltaf upp í hugann hvað þú varst hress
og lífsglöð og lést erfiðleika aldrei
þvælast fyrir þér. Þú varst alltaf til
staðar og bjargaðir svo oft deginum
hjá mér þegar ég kom heim úr skól-
anum og eitthvað var að sem ég þurfti
að ræða við þig um. Þú varst alltaf eins
og besta vinkona mín. Ég gat talað við
þig um allt og treyst á þig. Það eru svo
margar skemmtilegar minningar sem
ég á með þér. Ég gleymi aldrei dans-
sporunum okkar á stofugólfinu þegar
það kom skemmtilegt lag í útvarpinu
og hvað við gátum hlegið og skemmt
okkur yfir þessu. Við hlógum oft mikið
saman og það var gaman að grínast
með þér. Mér fannst þú líka syngja svo
vel og kunna svo mörg lög. Þú varst
sterkur persónuleiki og varst alltaf að
kenna mér að standa með sjálfri mér
og vera heiðarleg því þú þoldir ekki
óheiðarleika. Þú ert og verður alltaf
fyrirmynd mín í lífinu og ég veit að þú
hefðir viljað vera lengur hjá mér.
Elsku amma, ekki hafa áhyggjur af
mér. Ég veit að þú fylgist með mér og
styður mig. Hugur minn verður alltaf
hjá þér.
Árný Ósk.
Sigríður Þyrí
Pétursdóttir
Elsku Sigga amma.
Það er ótrúlegt að þú skulir
vera farin frá okkur og komir
aldrei aftur. Sigga amma sem
hafði skoðanir á öllu. En við eig-
um margar og skemmtilegar
minningar um þig um allt það
sem við vorum búin að gera
saman, öll skemmtilegu ferða-
lögin og sumarbústaðaferð-
irnar, þær minningar ætlum við
að geyma.
Takk fyrir allt, amma, og
hvíldu í friði.
Við lítum eftir afa fyrir þig.
Jón Ingi, Kári og Katrín Hrund.
HINSTA KVEÐJA