Morgunblaðið - 05.05.2008, Side 36

Morgunblaðið - 05.05.2008, Side 36
36 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ YFIR 18.000 ÁHORFENDUR - Páll Baldvin Baldvinnsson Fréttablaðið eee - Sigurjón M. Egilsson Mannlíf eeee Stefán Birgir Stefánsson sbs.is - S. V. Morgunblaðið eee Sýnd í kringlunni VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA Sýnd í álfabakka,kringlunni, keflavík, akureyri og SelfoSSi / KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA IRON MAN kl. 6D - 9PD - 10D B.i. 12 ára DIGITAL IRON MAN kl. 9PD B.i. 12 ára POWERDIGITAL OVER HER DEAD BODY kl. 5:50 - 8 B.i. 7 ára P2 kl.10:10 B.i. 16 ára STÓRA PLANIÐ kl. 6D - 8D B.i. 10 ára DIGITAL IRON MAN kl. 5:30D - 8D - 10:40D B.i. 12 ára DIGITAL IRON MAN kl. 5:30D - 8D - 10:40D LÚXUS VIP MADE OF HONOUR kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ DRILLBIT TAYLOR kl. 5:40 B.i. 10 ára IN THE VALLEY OF ELAH kl. 8 - 10:40 B.i. 16 ára FORGETTING SARAH M. kl. 8 - 10:20 B.i.12 ára SHINE A LIGHT kl. 8 - 10:40 LEYFÐ FOOL´S GOLD kl. 5:40 B.i.7 ára UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl. 5:40 LEYFÐ Sýnd í álfabakka eeee - H.J., MBL BÍÓTAL KVIKMYNDIR.IS eeee - V.J.V., Topp5.is/FBL „atH SérStakt leyniatriði er að mynd lokinni (eftir leikara/credit liStanum)“ eeee - V.J.V., Topp5.is/FBL Í SÍÐUSTU viku kom út leikurinn sem lang- flestir leikjaáhugamenn hafa beðið spenntir eft- ir, eftir sex mánaða seinkun sem mátti rekja til vandræða með Playstation 3-kerfið. Grand Theft Auto 4: Liberty City er nýjasta afurðin í þessari seríu sem er ein sú vinsælasta í heimi en jafnframt ein sú umdeildasta. Leikja- áhugamenn hafa al- veg misst sig yfir þessum leik og strax er hann orð- inn einn af þeim sem fengið hafa hæstu einkunn gagnrýnenda. Langar raðir mynduðust fyrir utan verslanir og menn hafa lokað sig inni dögum saman til þess að spila æv- intýri innflytjandans Niko Bellic í Liberty City. Nico er ólöglegur innflytjandi sem kemur frá Serbíu til þess að upplifa ameríska drauminn, sem frændi hans Roman hefur logið að honum. En í staðinn fyrir risavillur, konur og peninga á Roman lítið leigubílafyrirtæki sem er stórskuld- ugt og Nico flækist inn í vef glæpagengja sem berjast innbyrðist, með tilheyrandi blóðbaði. Nico er óhræddur að framfylgja þeim verk- efnum sem honum eru lögð fyrir og myrðir and- stæðinga sína án þess að blikna, svo framarlega sem honum er borgað fyrir verknaðinn. Grunnsagan fjallar um fortíð Nicos í Serbíu og svik rússnesku mafíunnar en megnið af leiknum snýst um að ná fótfestu í stæstu glæpa- klíkunum í borginni og forðast laganna verði. En á milli þess að framfylgja erindagjörðum glæpamanna getur maður einnig ferðast um borgina að vild, upp að vissu marki það er að segja, og dúllað sér við að rannsaka hvern krók og kima þessa gífurlega stóra heims. Liberty City er byggð að stórum hluta á hverfum New York-borgar og nágrannahverfum í New Jersey og það er alveg ótrúlegt hvað framleiðendum hefur tekist að troða inn í þennan heim. Borginni er skipt niður í hverfi þar sem ýmsir þjóðarflokkar halda sig frekar en annars staðar; þarna er rússneskt hverfi, ítalskt, Kínahverfi, Jamaica-hverfi, viðskiptahverfi og fólkið sem gengur á götunum breytist eftir því. Það er virkt lestarkerfi í borginni og einnig getur maður tekið þyrlu eða kláf yfir á næstu eyjar ef svo liggur á manni. Það er flott að með leiknum fylgir lestarkort og kort yfir borgina þannig að maður getur skoðað hverja götu fyrir sig og hver þeirra hefur nafn. Hægt að hlusta á 18 útvarpsstöðvar Talað hefur verið um að það taki mann allt að 100 klst. að klára leikinn, sem er gífurlega lang- ur tími ef miðað er við að venjulegan tölvuleik tekur oftar en ekki u.þ.b. 8 til 9 klst. að klára. Opna leikjakerfið í leiknum gerir kleift að spila hann eins og manni sýnist. Sagan fylgir ekki ákveðinni línu og maður getur kosið fyrir hverja maður vinnur og hvaða verkefni maður tekur að sér. Það er samt þessi grunnsaga sem birtist á ákveðnum tímapunktum sem leiðir þann sem leikur að enda sögunnar en á milli getur hann gert nánast hvað sem er. Það er ekki skrítið að leikurinn skuli vera tal- inn sá dýrasti sem gerður hefur verið, því vinn- an sem lögð hefur verið í heim GTA er gífurleg. Í Liberty City er hægt að hlusta á 18 útvarps- stöðvar á meðan ekið er um en yfir 200 lög eru notuð í leiknum, allt frá hipp hoppi yfir í kántrí og nýaldartónlist. Glöggir spilendur taka vafa- laust eftir því að Íslandsvinurinn og Evróvisjón- sigurvegarinn Ruslana kemur fyrir í leiknum, bæði sem tónlistarmaður og útvarpsþulur. Einnig er hægt að horfa á sjónvarp tímunum saman ef manni leiðist, sjónvarpsþætti og fréttatíma sem allir eru í þessum ofur ýkta stíl sem leikirnir eru þekktir fyrir. Einnig er hægt að spila pool, keilu og fara í pílukast. Smáatriðin eru ótrúleg og flest af þeim fara vafalaust framhjá leikendum því að oftar en ekki eru þeir að einbeita sér að akstri, að því að forða sér frá löggunni eða eltast við þrjóta. En ef maður tekur sér tíma í það að staldra við og njóta umhverfisins sést hversu rosaleg vinna hefur verið lögð í smáatriðin. Verður þreytandi Ég hef aðeins einu sinni spilað GTA leik áður, GTA 3 minnir mig og missti ég áhugann frekar snemma á honum. Eftir allt umtalið og hrósið sem GTA 4 hefur fengið er maður vitaskuld spenntur að fá að spila hann og upplifa þessa „snilld“ sem allir eru að tala um. En ég verð að segja að leikurinn er talsvert ofmetinn. Jú, um- gjörðin er stórkostleg, grafík, hljóðvinnsla og allt það, en leikurinn sjálfur verður þreytandi eftir smástund, því að í raun er maður að gera það sama aftur og aftur. Svarar símhringingu, ekur á fund, fær verkefni, ekur á staðinn þar sem á að framkvæma verkefnið; annaðhvort drepur maður einhvern eða á að elta einhvern og svo drepa. Svona gengur þetta aftur og aftur og það verður að segjast eins og er að þetta missir ákveðinn ljóma eftir 10-15 skipti. Það er eins og framleiðendur hafi lagt meira í heiminn en leikinn sjálfan og stóli á að spilendur finni sér eitthvað að gera á milli verkefna. Það að aka um borgina, borða hamborgara eða pylsu og fara á strípiklúbb er ekkert sérlega spennandi í mín- um augum. En ef þátttakendur geta lifað sig inn í hann er leikurinn væntanlega algjör snilld – en það á ekki við mig. Bardagakerfið í leiknum er ágætt en samt ekki nógu gott. Núna geta spilarar falið sig á bak við hluti til þess að forðast það að verða skotnir en það er samt klaufalegt og erfitt að komast hjá því að verða fyrir skoti og oftar en ekki skemmir myndavélin fyrir með því að fara of nálægt. Miðunarkerfið er slappt því ekki er hægt að miða þangað sem maður vill heldur læsist miðið á næstu manneskju. Að aka bíl getur verið algjör martröð þegar verið er að eltast við einhvern eða þegar maður er að forðast lögregluna. Bílarnir eru of mjúkir á veginum og kastast til og frá við minnstu hreyfingu; að nota handbremsuna til þess að beygja fyrir horn verður oftar en ekki til þess að maður snýst í fullan hring eða endar uppi á gangstétt. Ég mæli ekki með því að fá sér mót- orhjól því að það er nánast ómögulegt að aka því. Ef til vill er maður of vanur stjórnuninni í Burnout-leikjunum, sem hafa nánast full- komnað bílastjórnun. Hver bíll hefur sína eig- inleika og gott að geta stolið hvaða farartæki sem er en maður verður að læra á eiginleika hvers farartækis til þess að geta komið sér út úr vandræðum án þess að mauka hundruð vegfar- enda og valda gífurlegu tjóni, sem eykur hætt- una á því að lögreglan nái manni. Þar sem leikurinn er svo stór og mikið að ger- ast í bakgrunninum er grafíkin dregin aðeins niður til þess að auðvelda fyrir mjúkum hreyf- ingum og koma í veg fyrir hikst í rennslinu. Þrátt fyrir það er hún alveg stórgóð í leiknum sjálfum en svolítið kjánaleg í atriðum á milli verkefna. En það er skiljanlegt og varla hægt að væla yfir því. Grafíkin nær að framkalla gott andrúmsloft og leikurinn breytir einnig um veð- urfar, frá sól og sumaryl yfir í þoku, rigningu og þrumuveður. Allt verður þetta til þess að heim- urinn virðist meira lifandi og náttúrulegri. Út- varpsstöðvarnar og sjónvarpstöðvarnar hjálpa einnig við það að vekja heiminn til lífsins. Og það er ekkert verið að spara neitt við gerð þessa efnis. Leikararnir eru frábærir og mjög sann- færandi og öll vinnslan er látin líkjast alvöru út- varpsefni eins vel og þeir geta. Mun vekja umtal fyrir ofbeldið Það er hægt að spila leikinn í gegnum netið þar sem hópur spilara getur unnið saman eða farið í feluleik með byssur og sprengiefni. Þá opnast borgin alveg upp á gátt. Eftir nokkra mánuði mun Microsoft bjóða netspilurum sín- um upp á aukaborð, sem aðeins verður boðið Xbox 360-eigendum, og er sagt að þau borð verði nánast jafn löng og grunnleikurinn sjálfur þannig að eldheitir Xbox-eigendur ættu ekki að sjá til sólar í nokkrar vikur í viðbót. Miðað við um neikvæða umræðu um útlend- inga hér á landi undanfarna mánuði þá á þessi leikur ekki eftir að hjálpa mikið til, því að sagan leikur sér með staðalímyndir sem sést hafa í kvikmyndum og öðrum miðlum. GTA-leikirnir hafa nánast alltaf vakið upp umræðuna um áhrif tölvuleikja á ungmenni og þessi á örugglega eft- ir að vekja upp hina árlegu tölvuleikja-ofbeldis- umfjöllun fjölmiðla. Þessi leikjasería á metið í lögsóknum og sölubannsáróðri því að leikurinn sýnir heim þar sem menn geta komist upp með allan fjandann. Leikurinn gerir spilurum kleift að framkvæma hryllileg ofbeldisverk, sem fara eflaust fyrir brjóstið á mörgum. Leikurinn gengur samt ekki út á það og það er algerlega á valdi spilandans að komast hjá því að fremja glæpi utan verkefnanna. Það er bara meira spennandi að krydda aðeins tilveruna sem getur verið alveg skelfilega leiðinleg á milli verkefna. Það er ekkert skrítið að þessir leikir veki svona mikið umtal. Auðveldlega mætti segja að GTA 4 sé rasískur, siðlaus, hómófóbískur og með kvenfyrirlitningu á háu stigi en hann er einnig settur fram sem ádeila á bandarískt þjóð- félag. Á sama tíma getur maður spurt sig hvort að þetta sé rétta leiðin til þess. Flestir sem spila þennan leik hugsa ekki um ádeilur eða skot á hina og þessa, heldur velta sér upp úr ofbeldi, fordómum og siðleysi vegna þess að það er töff. Það er samt svolítið fyndið að framleiðendur leiksins ákváðu að þessi kaldrifjaði morðingi, Nico Bellic, skyldi ekki drekka áfengi eða neyta eiturlyfja. Maður verður víst að draga línuna einhvers staðar. Þessi leikur á mikið hrós skilið þegar kemur að sjálfri umgjörðinni. Allt er í toppstandi hvað grafík og hljóð varðar en þegar kemur að spil- uninni og leiknum sjálfum er hann algerlega of- metinn. Endurtekningin er of mikil og að stóla á það að spilendur finni sér eitthvað að gera svo þeim leiðist ekki verður fljótlega þreytandi. Ég met leiki meira út frá skemmtun en útlit og hversu mikið er blótað í honum. Þess vegna mun þessi leikur sennilega falla í gleymsku frekar fljótt hjá mér, nema að maður taki aftur upp þráðinn þegar aukaefnið frá Microsoft kemur á markaðinn. Borg óttans Grafík bbbbb Hljóð bbbbb Spilun bbbnn Ekki fullkominn Grand Theft Auto IV fjallar um ævintýri innflytjandans Niko Bellic. TÖLVULEIKIR PS3 og Xbox 360. bbbnn Grand Theft Auto IV: Liberty City Ómar Örn Hauksson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.