Morgunblaðið - 05.05.2008, Qupperneq 39
Morgunblaðið/hag
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2008 39
PÁLL Óskar Hjálmtýsson
kom, sá og sigraði á hátíð
FM957 í Háskólabíói á laug-
ardagskvöldið, þar sem
Hlustendaverðlaun útvarps-
stöðvarinnar voru afhent. Páll
Óskar var útnefndur til fimm
verðlauna og hreppti þau öll.
Hann fékk verðlaun fyrir
bestu sviðsframkomuna,
bestu plötuna – Allt fyrir ást-
ina, hann var valinn besti
söngvarinn, besti „sóló“ flytj-
andinn og fékk einnig verð-
laun fyrir besta lagið, Allt fyr-
ir ástina.
Regína Ósk var valin söng-
kona ársins, Sprengjuhöllin
var valin hljómsveit ársins og
Dalton voru nýliðar ársins. Þá
hlaut Nýdönsk sérstök heið-
ursverðlaun.
Þakklátur og auðmjúkur
„Var þetta ekki fullt hús?
sagði Páll Óskar lukkulegur í
gær, þegar blaðamaður
hringdi og spurði hvort hann
væri ekki ánægður með ár-
angurinn. Hann kvaðst samt
ekki hafa mætt á athöfnina
með það í huga að hirða öll
verðlaunin. „Það var ekki
planið. Ég kom til að
skemmta mér, sýna mig og
sjá aðra.
Ég er ennþá að jafna mig á
þessu. Þetta var svo mikið.
Tilfinningar mínar eru blanda
af þakklæti, auðmýkt og
sátt.“
– Er ekki að hlaðast aukin
pressa á þig fyrir næsta disk?
„Ég lít alls ekki þannig á
það. Hver er besta leiðin til að
þakka fyrir svona heiður? Það
besta sem ég get gert er að
fara aftur inn í stúdíó og
halda áfram að njóta þess að
skapa list, burtséð frá því
hvernig viðbrögðin verða.
Listamaðurinn ræður alltaf
hvernig listaverkið verður en
hann hefur ekkert um það að
segja hver viðbrögðin verða.
Þegar maður fær svona rosa-
lega sterk og einlæg viðbrögð
er eina leiðin að halda áfram
að skapa list.“
Heiðraðir Nýdönsk hlaut sérstök heiðursverðlaun og flutti gamla slagarann Hjálpaðu mér upp.
Heiðarlegir „Við bjuggumst alveg við því að fá þessi verðlaun, við bara bjuggumst ekki við því
að fá þau heiðarlega!“ sögðu liðsmenn Dalton sem voru valdir efnilegasti flytjandinn. Fjör Lífleg stemning var í Háskólabíói og tóku gestir lifandi þátt í tónlistarflutningi.
Aðalsveitin Sprengjuhöllin var valin hljómsveit ársins í vin-
sældarkosningunni.
Vinsæll Páll Óskar Hjálmtýsson hlaðinn verðlaunagripum.
Hlustendaverðlaun FM957
Páll Óskar var tilnefndur til
5 verðlauna og hlaut þau öll
Lagaruna Páll Óskar skeytti í einu flæði sam-
an brotum úr mörgum sinna vinsælustu laga.
Massaðir Piltarnir í Mercedes Club dilluðu sér við tónlistina.