Morgunblaðið - 01.06.2008, Side 14

Morgunblaðið - 01.06.2008, Side 14
14 B SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Líflegt framtíðarstarf á fjölbreyttum vinnustað í hjarta Háskólatorgs Bóksala stúdenta er alhliða bókaverslun staðsett í hjarta Háskólatorgs. Í hartnær 40 ár hefur Bóksalan útvegað háskólafólki nauðsynlegan bókakost til náms og fræðastarfs. Sérþekking starfsfólks Bóksölunnar og yfirsýn yfir heim vísinda og fræða gera hana einstaka meðal íslenskra bókaverslana. Markmið og metnaður Bóksölu stúdenta er að vera ávallt í fararbroddi í þjónustu við íslenskt háskólasamfélag. Vilt þú leggja þitt af mörkum til að gera Bóksölu stúdenta að enn betri vinnustað? Við erum að leita að starfskrafti sem hefur lifandi áhuga á bókum og á háskólasamfélaginu, og vill hafa áhrif á og auðga umhverfi sitt. Ef þú hefur góða almenna menntun, þekkingu, tungumálakunnáttu og frumkvæði gætir þú verið einstaklingurinn sem við leitum að. Í starfinu felst afgreiðsla og ráðgjöf til kröfuharðra viðskiptavina, ásamt skyldum störfum sem varða þjónustu, vöruframboð og útlit verslunarinnar. Um fullt starf til framtíðar er að ræða. Vinsamlegast sendið skriflega umsókn til Bóksölu stúdenta Háskólatorgi, Sæmundargötu 4, 101 Reykjavík eða tölvupóst til sigurdur@boksala.is www.boksala.is Háskólatorgi Sæmundargötu 4 S. 570 0777 boksala@boksala.is Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða starfsfólk í nýja og glæsilega sundmiðstöð á Völlum, Ásvallalaug, sem opnuð verður í sumar. Þar verður aðstaða til sundiðkunar og afþreyingar með því besta sem völ er á. Í húsinu verður einnig Hress heilsurækt, félagsaðstaða Sundfélags Hafnarfjarðar og Íþróttafélagsins Fjarðar og kaffihús. Við leitum að 21 einstaklingi, konum og körlum, til að gegna 100% starfi sundlaugar- varða. Að auki leitum við þriggja vaktstjóra með stjórnunarreynslu. Um vaktavinnu er að ræða. Helstu verkefni: • Laugarvarsla • Baðvarsla • Afgreiðslustörf • Ræstingar Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingum sem búa yfir: • Ríkri þjónustulund • Eiga gott með mannleg samskipti • Vinna vel í hópi • Eru áhugasamir Væntanlegir starfsmenn fá viðeigandi fræðslu og þjálfun og þurfa að standast laugarvarðapróf. Við leitum einnig að handlögnum einstaklingi til að sinna léttu viðhaldi í húsinu. Iðnmenntun er æskileg en ekki skilyrði. Viðkomandi þarf að búa yfir sömu kostum og að ofan er talið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og hlutaðeigandi stét- tarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 6. júní 2008. Umsóknir skulu berast til þjónustuvers Hafnarfjarðarbæjar merktar "Ásvallalaug - starfsumsókn" eða í tölvupósti á netfangið bjorgs@hafnarfjordur.is. Nánari upplýsingar um störfin veitir Björg Snjólfsdóttir forstöðumaður í síma 664 5544, netfang bjorgs@hafnarfjordur.is. Forstöðumaður Ásvallalaugar ÁSVALLALAUG STARFSFÓLK bmvalla.is AÐALSKRIFSTOFA Bíldshöfða 7 :: 110 Reykjavík :: 412 5000 Flísaframleiðsla BM Vallá hf. óskar eftir að ráða starfsmann í flísaframleiðslu í starfstöð okkar í Suðurhrauni í Garðabæ. Við leitum að samviskusömum, röskum og duglegum starfsmönnum. Æskilegt er að viðkomandi hafi lyftararéttindi. Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhann Ingi Ármannsson í síma 617 5162 eða Hólmsteinn Hólmsteinsson í síma 617 5155 Í starfsstöð okkar í Garðabæ eru framleiddar húseiningar, garðeiningar, flísar, rör og múrvörur. Þar er einnig starfrækt söludeild. Það er mötuneyti fyrir starfsmenn á svæðinu. BM Vallá hf. er traust og þjónustudrifið sölu- og framleiðslufyrirtæki á byggingamarkaðnum sem leggur áherslu á að uppfylla þarfir viðskiptavina sinna á sem hagkvæmastan hátt. Fyrirtækið er með starfsemi sína á 11 starfsstöðvum víða um landið. Fjalakötturinn Restaurant, Aðalstræti 16, óskar eftir að ráða í eftirfarandi stöður: Matreiðslumann, vaktstjóra á veitingastað hótelsins Fjalakettinum. Unnið er eftir “kokka” vöktum. Kokkanema á vöktum Unnið er eftir “kokka” vöktum. Umsækjendur senda umsóknina á thorhallur@hotelcentrum.is Umsóknarfrestur er til 13. júní. A ug l. Þó rh ild a r 2 2 0 0 .4 0 7 Félagsþjónusta S E L T J A R N A R N E S B Æ R Íbúðir aldraðra Skólabraut 3-5 Seltjarnarnesi Óskað er eftir matráði til starfa í móttökueldhúsi mötuneytis hjá Íbúðum aldraðra á Seltjarnarnesi. Vinnutími er frá kl. 11.30 til 16.30. Áhugasamir hafi samband við: Þóru Einarsdóttur í síma 595-9147, 822-9110 eða thora@seltjarnarnes.is Raðauglýsingar sími 569 1100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.