Morgunblaðið - 01.06.2008, Side 17

Morgunblaðið - 01.06.2008, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 B 17 Langanesbyggð Grunnskólakennarar - Tónlistarkennarar Tónlistarskólinn á Þórshöfn Kennara vantar við skólann frá og með 1. ágúst nk. Lausar eru eftirtaldar stöður við Grunnskólann á Þórshöfn frá og með 1. ágúst nk. Umsóknarfrestur er til þriðjudagsins 16. júní nk. Kennara vantar til almennrar kennslu og sérkennslu. Grunnskólinn á Þórshöfn er einsetinn skóli með 70 – 80 nemendum í hæfilega stórum bekkjar- deildum. Á Þórshöfn búa um 400 manns í sérlega fjölskylduvænu umhverfi. Gott og ódýrt íbúðarhúsnæði er til staðar. Á staðnum er öll almenn þjónusta, góður leikskóli og glæsileg íþróttamiðstöð ásamt sundlaug með aðstöðu fyrir alla aldurshópa. Fjölbreyttir útivistarmöguleikar eru til staðar í ósnortinni náttúru. Samgöngur eru góðar, m.a. er flug fimm daga vikunnar til Reykjavíkur um Akureyri. Upplýsingar gefa Heiðrún Óladóttir skólastjóri í símum 468 1164 og 893 5836, heidrun@langanesbyggd.is, og Björn Ingimarsson sveitarstjóri í símum 468 1220 og 895 1448, bjorn@langanesbyggd.is Lausar eru eftirtaldar stöður við Grunnskólann á Bakkafirði frá og með 1. ágúst nk. Umsóknarfrestur er til mánudagsins 16. júní nk. Kennara vantar í almenna kennslu, textílmennt, íþróttir og heimilisfræði. Grunnskólinn á Bakkafirði er einsetinn lítill skóli með 10 - 20 nemendum þar sem mikil áhersla er lögð á að nemendum líði vel og að allir fái nám við sitt hæfi. Á Bakkafirði búa um 100 manns í sérlega fjölskylduvænu umhverfi. Gott og ódýrt íbúðarhúsnæði er til staðar. Á staðnum er góður leikskóli og verslun auk banka- og póstþjónustu. Fjölbreyttir útivistarmöguleikar eru til staðar í ósnortinni náttúru. Í boði er mjög spennandi starf í metnaðarfullu umhverfi, þar sem starfs- aðstaða og aðbúnaður er til fyrirmyndar í alla staði, í mjög barnvænu samfélagi. Upplýsingar gefa María Guðmundsdóttir skólastjóri í símum 473 1618 og 847 6742, maria@langanesbyggd.is og Björn Ingimarsson sveitarstjóri, í símum 468 1220 og 895 1448, bjorn@langanesbyggd.is Tónmenntaskóli Reykjavíkur Tónlistarkennarar Tónmenntaskólinn óskar eftir að ráða tónmenntakennara (tónlistarkennara) frá 1. september nk. fyrir skólaárið 2008- 2009. Um er að ræða eina hlutastöðu, 50-60% sem einnig má skipta í tvo hluta. Kennslu- svið nær frá forskólakennslu 6 og 7 ára barna til hópkennslu nemenda á aldrinum 8-15 ára, en þar er um að ræða samþætta kennslu í tónfræði, tónheyrn, hlustun, sköpun o.fl. Tónmenntaskóli Reykjavíkur er einn af elstu tónlistarskólum landsins, stofnaður 1952, og er til húsa við Lindargötu. Kennsluaðstaða er góð og tækjakostur mjög góður. Þeir sem áhuga hafa á þessum störfum sendi umsókn þar sem fram koma persónulegar upplýsingar um menntun og kennsluferil. Meðmæli óskast. Umsóknir sendist í box@mbl.is fyrir 14. júní, merktar: ,, Tónlistarkennsla - 101’’. Pípulagningamenn Vegna góðrar verkefnastöðu óskum við eftir að ráða til starfa pípara vanan verkefnastjórnun. Hæfniskröfur:  Áralöng reynsla í pípulögnum  Skipulagshæfileiki til að halda utan um stór verkefni. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Pípulagnaverktaka, Langholtsvegi 109. S: 577 4142. www.pv.is pv@pv.is Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir eftirfarandi störf laus til umsóknar: Starf á skrifstofu sveitarfélagsins Um er að ræða fullt starf við almenn skrifstofustörf, færslu og ábyrgð á bókhaldi sveitarfélagsins svo og launavinnslu. Hæfniskröfur: • Starfsreynsla af bókhaldi og launavinnslu. • Nákvæmni, talnagleggni og samviskusemi. • Menntun á sviði viðskipta- eða rektrarfræði æskileg. • Frumkvæði og geta til að vinna undir álagi. • Góð almenn tölvukunnátta, kunnátta í Excel skilyrði. Starf við íþróttahúsið á Skagaströnd Um er að ræða fullt starf og vaktavinnu við umsjón með íþróttahúsi á opnunartíma þess. Daglegur vinnutími er því breytilegur. Hæfniskröfur: • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð. • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum. • Almennur áhugi fyrir æskulýðs- og íþróttastarfi. Starf við Bókasafn Skagastrandar Um er að ræða 30% starfshlutfall við bókasafnið í Fellsborg og skólabókasafnið og er vinnutími að hluta til bundinn opnunartíma bókasafnsins og stundarskrá skólans. Hæfniskröfur: • Menntun í bókasafnsfræðum kostur. • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum. • Reynsla og þekking á skráningu og skipulagi • Tölvukunnátta skilyrði. gagna er kostur. • Bóka- og bókmenntaáhugi mikill kostur. • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð. Starf húsvarðar félagsheimilisins Fellsborgar Um er að ræða umsjón með félagsheimilinu og miðast daglegur starfstími við þau umsvif sem eru í húsinu á hverjum tíma. Hæfniskröfur: • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð. • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum. • Reynsla af hliðstæðum störfum og handlagni er kostur. Bent er á að mögulegt er að sækja um starf í félagsheimili og bókasafn sameiginlega. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu sveitarfélagsins. Umsóknarfrestur er til 15. júní 2008 og skal umsóknum skilað á skrifstofu sveitarfélagsins Skagastrandar. Sveitarstjóri Markaðs- og söluráðgjafi Arctic Wear óskar eftir að ráða öflugan markaðs- og söluráðgjafa í Reykjanesbæ. Starfssvið:  Uppbygging á framsæknu fyrirtæki með nýjum eigendum  Bein og framsækin sala, úthringingar og heimsóknir  Sölusímtöl og -fundir með mögulegum viðskiptavinum • Skipulagning og gerð markaðsherferðar Hæfniskröfur:  Menntun sem nýtist í starfi  Reynsla af beinni og framsækinni sölu  Frumkvæði, dugnaður og góð tölvukunnátta  Sannfæringarkraftur, sjálfstæði og þrautseigja Arctic Wear er fyrirtæki sem sérhæfir sig í hönnun, þróun og sölu á vinnufatnaði fyrir íslenska markaðinn. Nánari upplýsingar og ferilskrár sendist til: thorey@aw.is Umsóknarfrestur er til 10. júní. Atvinnuauglýsingar • augl@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.