Morgunblaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 4
4|Morgunblaðið Þótt Íslendingar telji sig einahelstu fiskveiðiþjóð heimsþá eru því miður ekki allirlandsbúar sem geta notið hins góða fisks sem íslensku skipin veiða. „Ég má alls ekki borða fisk þá bólgnar kokið á mér upp og tungan og ég get kafnað,“ segir Hrafnhildur Ævarsdóttir kennaranemi sem orðið hefur að lifa á annars konar fæði frá 17 ára aldri, en hún er 22 ára Kópa- vogsbúi. „Þetta kom upp fyrst þegar ég var að borða túnfisksalat heima á Ritz- kexi en fyrir alvöru þegar ég borðaði fiskbollur móður minnar nokkru síð- ar. Þá var ég allt í einu að köfnun komin. Mömmu brá og hún bannaði mér að borða meira af bollunum. Í framhaldi af því var farið með mig í rannsókn og í ljós kom að ég hafði bráðaofnæmi fyrir fiski og einnig of- næmi fyrir eggjum en það er ekki eins alvarlegt,“ segir hún. „Þegar ég var 18 ára fór ég að borða á Subway og fékk heiftarlegt ofnæmi vegna krosssmits. Ég fór með þennan skyndibita heim og borðaði hann þar og mömmu, pabba og systrum mínum tveimur brá hræðilega þegar ég var allt í einu al- veg að kafna. Þau kölluðu í snarheit- um á sjúkrabíl svo þessi Subway- ferð mín endaði á sjúkrahúsi þar sem ég fékk adrenalín í æð og var þannig bjargað frá köfnun. Þetta var hræðileg reynsla. Hún olli því að ég fór ekki í fjögur ár á veitingastað, ég var svo hrædd við krosssmit og ófag- mennsku í matseldinni. Ég treysti því einfaldlega ekki að fólk notaði ekki áhöld eða borð sem áður höfðu komist í snertingu við fisk og treysti því varla ennþá.“ Fiskur var uppáhaldsmaturinn Hrafnhildur kveðst hafa búið í eitt og hálft ár í Austurríki, – en kom sér ekki illa fyrir unga námsmanneskju að geta ekki farið á veitingastaði? „Jú, það var mjög leiðinlegt að geta ekki sest út með vinum og skóla- félögum og borðað og notið lífsins eins og hinir. Mig langaði líka að smakka á þjóðarréttum ýmsum en þorði það ekki vegna fyrrnefndra ástæðna. Því miður er það svo að mér finnst fiskur mjög góður. Hann var uppáhaldsmaturinn minn þegar ég var krakki. Ég vona að ég losni við þetta ofnæmi einhvern tíma.“ Eru líkur á að þú losnir við of- næmið? „Kannski, eggjaofnæmið er væg- ara finnst mér. Ég á að fara í sér- stakt próf í september til að athuga á hvaða stigi það er. Fiskofnæmið verður svo kannað í vor.“ Eldaðir þú þá fyrir þig sjálfa í Austurríki? „Já, ég eldaði mikið kjúklinga- og pastasalat og borðaði nóg af kjöti, þá fékk ég öll þau prótein sem ég þurfti. Nú er ég flutt heim og ég passa að vera ekki heima ef það er fiskur á borðum, en faðir minn er mikill veiðimaður og stundum steik- ir hann eða grillar silung.“ En hefur eggjaofnæmið ekki verið fremur leiðinlegt líka? „Jú, það er mjög heftandi í afmæl- isveislum og öðrum veislum þar sem kökur eru á borðum. Mér finnst kök- ur góðar og leiðist að þora ekki að borða þær vegna eggjanna í þeim. Egg eru auðvitað í flestum kökum en þau eru líka í ýmsum mat og sós- um. Sumir átta sig ekki á að það eru egg í alls konar sósum sem eru al- gengar, t.d. allar sósur sem inni- halda majónes. Það eru egg í svo mörgu Ég held að það sé auðveldara að lifa með þessu ef maður fæðist með svona ofnæmi, það er erfiðara að taka út fæðutegundir sem maður hefur verið vanur að borða. En það er nauðsynlegt, þess vegna les ég vel utan á allar dósir og umbúðir um mat sem ég borða. Það eru egg í mjög mörgu. Þau eru leyndari en fiskur í ýmsum matvælum. Fiskur er uppistöðufæða en egg fremur aukaefni í margvíslegum mat. Mamma hefur fundið ýmsar upp- skriftir sem hún hefur sérsniðið að mínum þörfum og þær nota ég þegar ég elda og baka. Ég pensla t.d. með mjólk í stað eggja og svo nota ég eggjalíki fyrir bakstur sem sér- staklega er framleitt fyrir fólk með eggjaofnæmi. En gott væri að eiga möguleika á að borða alvöru egg.“ Á fólk erfitt með að skilja nauðsyn þess að þú haldir þig frá fiski og eggjum? „Nei, það verður aðallega hissa. Vinkonuhópurinn veit þetta og tekur tillit til þess en stundum gleymir fólk sér og býður mér upp á mat með fiski eða eggjum. Þá segi ég bara nei takk. Það er reyndar svo að það eru eggjakristallar og eggjahvíta í ýms- um gerðum af sælgæti, þess vegna verð ég líka að velja úr því. Það tók raunar lengri tíma að finna út eggjaofnæmið, ég fékk bara illt í magann og varð slöpp í munn- inum og einkennileg, það var óþægi- legt. En það er vel hægt að lifa ágætu lífi án fisks og eggja ef maður bara passar að borða rétt og fá vít- amín og steinefni úr öðrum fæðuteg- undum. D-vítamín fæ ég úr sólinni og A-vítamín úr gulrótum. Gróf hörfræ gefa mér ómegafitusýrur sem annars eru í fiski.“ Kjúklingasalat Kálblanda steiktir kjúklingabitar gúrka rauð og gul paprika gulrætur rauð vínber fetaostur, hella olíu af Blandið vel saman og berið fram með hrísgrjónum. Fljótlegt og einfalt. Eggjalaus terta Uppskrift: Giorgio Locatelli Bökunartími 1 klst. Ofnhiti 180° (undir- og yfirhiti, ekki blástur) Súkkulaðibotn: 450 g hveiti 6 msk kakó 2 tsk lyftiduft 2 tsk matarsódi 300 g sykur 125 ml matarolía 300 ml vatn 2 msk hvítvínsedik 2 tsk vanilludropar – Sigtið saman hveiti, kakó, lyfti- duft og matarsóda í stóra skál og blandið sykrinum saman við. – Blandið öllum blautu efnunum saman í aðra skál. – Hellið vökvanum saman við þurrefnin og hrærið þar til orðið mjúkt og kekkjalaust (getur þurft að bæta við smávatni) – Hellið deiginu í smurt og bök- unarpappírsklætt hringform (smelluform, 23 cm) og bakið í u.þ.b. 1 klst. eða þar til hægt er að stinga prjóni í kökuna og hann kemur hreinn út. – Kakan tekin úr forminu og látin kólna. – Þegar kakan er orðin köld er hún skorin í tvennt. Bananakrem: 75 g smjör 50 g flórsykur 3 marðir bananar – Allt hrært vel saman í hrærivél og sett á milli botnanna. Krem utan á: 225 g flórsykur 25 g kakó 75 g smjör 1 msk síróp 4 msk mjólk/kaffirjómi (kaffi- rjómi gerir kremið þykkara) Morgunblaðið/Golli Sjálfbjarga Hrafnhildur Ævarsdóttir er orðin vel sjálfbjarga hvað upp- skrift að eggjalausum og fisklausum réttum snertir. Salat Einfalt og afskaplega hollt Ofnæmi fyrir fiski og eggjum Þegar Hrafnhildur Ævarsdóttir var 17 ára lenti hún í skuggalegri reynslu, var að kafna þegar hún var að borða fiskbollur heima hjá sér. Í framhaldi af þessum atburði greind- ist hún með ofnæmi fyrir fiski og eggjum. Eggjalaus Þessi súkkulaðikaka er eins góð og hún falleg að sjá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.