Morgunblaðið - 29.08.2008, Qupperneq 6
6|Morgunblaðið
Styrktarfélagið Göngum saman hefur það aðmarkmiði að styrkja grunnrannsóknir ábrjóstakrabbameini.„Göngum saman á rætur sínar að rekja til
grasrótarstarfhóps kvenna sem haustið 2007 gekk eitt
og hálft maraþon í New York til styrktar rannsóknum á
brjóstakrabbameini,“ segir Guðný Aradóttir einkaþjálf-
ari sem þjálfað hefur viðkomandi gönguhóp. „Göngum
saman leggur áherslu á mikilvægi hreyfingar bæði til
heilsueflingar og til að afla fjár til styrktar grunnrann-
sóknum á krabbameini í brjóstum.
Þess bera að geta að stóra styrktargangan 2008 verð-
ur hinn 7. september nk. og hvetum við allar konur sem
geta og vilja til að koma og sameinast okkur í göngunni.
Styrktarganga 2008
Styrktarganga Göngum saman árið 2008 verður á
tveimur stöðum á landinu. Í Elliðaárdalnum í Reykjavík
og í Kjarnaskógi á Akureyri.
Mánudagsgöngur „Göngum saman“ eru hins vegar
allt árið um kring. Í Reykjavík hittumst við hjá Perlunni
og göngum um Öskjuhlíðina. Lagt er af stað þaðan kl.
20:00.
Í Borgarbyggð er gengið í fólkvanginum í Einkunn-
um sem er fallegt, skógi vaxið svæði norðan við Borg og
þar hafa verið lagðir góðir göngustígar og merktar
leiðir að undanförnu. Mæting er við íþróttamiðstöðina
klukkan 20:00.“
Allir eru velkomnir
Hvað getur þú sagt um þetta félag að öðru leyti?
„Styrktarfélagið Göngum saman er kraftmikið félag
sem starfar af bjartsýni.
Allir eru velkomnir að gerast félagar hjá okkur,
hvort sem vilji er til að gerast styrktarfélagi eða taka
þátt. Hægt er að skrá sig í félagið hér á heimasíðunni
(nýir félagar). Árgjaldið fyrir árið 2008 er 3.000 krónur
og það kostar líka 3.000 krónur að taka þátt göngunni
og það gjald rennur óskipt í rannsóknasjóð. Hug-
myndafræði „Göngum saman“ byggist á þremur hug-
tökum; grasrót, hreyfingu og grunnrannsóknum sem
tengjast innbyrðis.
Lögð er áhersla á hreyfingu sem forvörn og til heilsu-
eflingar eftir greiningu á brjóstakrabbameini. Ég þjálfa
konurnar líka í stafagöngu ekki síður en venjulegri
göngu. Félagið „Göngum saman“ er og sem fyrr kom
fram tæki til að afla fjár til umræddra rannsókna á
brjóstakrabbameini.“
Morgunblaðið/Golli
Göngum saman Gönguhópurinn leggur af stað í göngu í Öskjuhlíð.
Göngum saman til góðs
Morgunblaðið/Golli
Forvígiskonur F.v. Guðný Aradóttir þjálfari og Gunn-
hildur Óskarsdóttir formaður félagsins Göngum saman.
Göngur er eitt af mikilvægustu birt-
ingarformum samstöðu, hvort sem
er til skemmtunar, sjálfshjálpar, til
styrktar málefnum eða markmiðum.
Guðný Aradóttir segir hér frá göng-
unni „Göngum saman“, sem ætlað er
að styrkja grunnrannsóknir á
brjóstakrabbameini.
Fætur eru þýðingarmikillhluti stoðkerfisins og þvímikilvægt að hugsa velum þá,“ segir Guðrún
Svava Svavarsdóttir fótaaðgerða-
fræðingur.
„Ef fyrirbyggja á vandamál í fót-
um koma skór fyrst upp í hugann,“
segir hún. „Réttir skór eru mik-
ilvægir fyrir góða líðan í fótum og
raunar öllum líkamanum. Almennt
er talið að sólinn þurfi að vera hæfi-
lega þykkur og sveigjanlegur, tá-
kappi hár og breiður og hælkappi
þarf að styðja vel við hælinn, sér-
staklega ef hæll fer í rangstöðu við
gang eða er óstöðugur. Þótt ótrúlegt
megi virðast geta jafnvel vandaðir
íþróttaskór með of miklum högg-
deyfi reynst íþróttamönnum hættu-
legir. Því þarf að fá leiðbeningar við
val þeirra, ekki síður en við val ann-
ars skófatnaðar. Mörg fyrirtæki
framleiða góða skó, sem uppfylla
framangreind skilyrði að hluta til
eða að öllu leyti.
MBT-skór sérstakir
Fyrirtækið okkar hefur valið að
bjóða upp á MBT-skó. Þetta eru
mjög sérstakir svissneskir skór.
Þeir uppfylla fyllilega allar kröfur
sem fótaaðgerðafræðingar gera til
góðs skófatnaðar og ríflega það.
Þeir eru margháttað æfingatæki
fyrir fæturna sjálfa, stoðkerfið, jafn-
vægið og örva bláæðapumpuna. Þeir
eru frábærir fyrir þá sem standa
mikið eða ganga á hörðum gólfum,
fyrir þá sem hafa verki í stoðkerfinu,
t.d. í baki, fyrir plattfót og tábergs-
sig og ýmis önnur vandamál, sem of
langt yrði upp að telja. Við erum
mjög stolt af því að geta boðið fólki
upp á þessa snilldarskó. Þeir eru svo
sérstakir að fólk fær kennslu hjá
okkur í því hvernig það getur nýtt
sér skóna sem best.
Skór geta líka valdið skaða bæði á
sjálfum fótunum og stoðkerfinu. Ég
nefni þar til háhæla-, támjóa, þunn-
botna skó og skó úr gerviefnum. Af-
leiðingar af slíkri skónotkun geta
orðið: Tábergssig (Pes Planus
Transversus) sem líka getur verið
aldurstengt, skekkja í stórutám
(Hallux Valgus), beinvöxtur við lið
stórutánna (Ossös Disfiguration) og
auk þess sigg og líkþorn. Til að
koma í veg fyrir verki og til að
hægja á þróuninni er hægt að gera
sérstakar fótaæfingar, nota hlífar,
spelkur og innlegg. Stofan okkar
getur orðið að liði í öllum þessum
greinum. Við höfum tveggja metra
langa tölvugöngugreiningarplötu
þar sem við getum skoðað stöðu,
gang og hlaup, auk þess sem við
skoðum viðkomandi vel.
Nettur fyrir „nettar“ dömur
Við handsmíðum öll innlegg frá
grunni og steypum gjarnan um fót-
inn á fólki, því þannig verða þau
mjög þægileg. Við gerum innlegg
fyrir alla aldursflokka, jafnt fyrir
heilbrigt fólk og þá sem hafa t.d.
sykursýki eða gigtarsjúkdóma. Við
erum bærilega stolt af innleggj-
unum sem við gerum fyrir knatt-
spyrnumenn, því það er mikil áskor-
un að gera innlegg sem hjálpa í svo
þrönga skó. Við viljum líka liðsinna
konum sem vilja ekki ganga í „rétt-
um“ skóm, heldur í lokuðum stíg-
vélum, háum hælum eða nettum
skóm. Við gerum þunn og fín inn-
legg fyrir þær sem við köllum nett-
ur.
Fætur sykursjúkra viðkvæmir
Sykursjúkir ættu að hugsa sér-
staklega vel um fæturna, það er góð
fyrirbyggjandi ráðstöfun. Þeir sem
koma á stofuna okkar fá sérstaka
þjónustu. Við mælum taugaviðbrögð
einu sinni á ári og getum þannig
fylgst með framvindu mála. Þetta
hjálpar okkur til að gefa viðeigandi
ráðleggingar og er afar mikið örygg-
isatriði fyrir sykursjúka. Þessar ein-
földu athuganir geta afstýrt vand-
ræðum og jafnvel komið í veg fyrir
aflimanir. Sjálf hef ég góða æfingu í
þessu þar sem ég rak stofu í Dan-
mörku og hafði sérstakt leyfi frá yf-
irvöldum til að annast sykursjúka.
Reglulegar heimsóknir á fótaað-
gerðastofu er góð fyrirbyggjandi að-
gerð. Sérfræðingar geta aðstoðað
með svo ótalmargt.
Krem er mikilvægt fyrir fætur,
einfalt og fyrirbyggjandi fyrir alla
sem eru komnir á miðjan aldur. Það
gefur raka og fitu sem líkaminn
framleiðir ekki nóg af og heldur
húðinni teygjanlegri og mjúkri.
Krem er einkum mikilvægt við
sprungum og rifum á hælum. Hafið
krem innan seilingar í svefn-
herberginu. Notið það á hverju
kvöldi, alla daga vikunnar, allan árs-
ins hring. Munið að fætur eru mik-
ilvægir og eiga að endast allt lífið.“
Fætur eiga að endast allt lífið
Morgunblaðið/Kristinn
Fótaaðgerðarfræðingurinn - Guðrún Svava fyrir framan eitt af málverkum sínum, en hún er myndlistarkona líka.
Snyrting - Guðrún Svava er fagleg við fótsnyrtinguna.
Það er mikilvægt að
hugsa vel um fæturna á
sér, á þeim göngum við
og helst ætti það að
ganga þrautalaust.
Guðrún Svava Svav-
arsdóttir fótaaðgerða-
fræðingur segir að
vanda þurfi val á skó-
fatnaði og hirða fæt-
urna vel.
Sækjum styrk
í íslenskt náttúruafl!
www.sagamedica.is
Fæst í lyfja- og heilsuvöruverslunum
Vaknar flú oft
á nóttunni?
SagaPro er náttúruvara
úr íslenskri ætihvönn
ætlu› fleim sem flurfa oft
á salerni› á nóttunni.