Morgunblaðið - 29.08.2008, Side 12

Morgunblaðið - 29.08.2008, Side 12
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Fitjakirkja Þangað er ferð göngumóðra pílagríma í Skorradal heitið í september Er pílagrímsganga eitt-hvað fyrir þig?“ spyrHulda Guðmundsdóttir,guðfræðingur og skóg- arbóndi á Fitjum í Skorradal. Það er von hún spyrji. Á hverju hausti fá landsmenn margskonar tilboð um námskeið til að breyta um lífsstíl. Markmiðið er ávallt bætt heilsa og betri líðan. Í þessu sérblaði um heilsu og lífsstíl má t.d. finna margar ábendingar um holla hreyfingu, mataræði og ann- að sem stuðlað getur að meiri lífs- gæðum. „Ýmsir meðferðaraðilar hafa bent á að nauðsynlegt sé að líta heildrænt á hverja manneskju, þ.e. að skoða í samhengi andlegar og líkamlegar þarfir sem grund- völl lífsgæða okkar,“ segir Hulda. „Við vitum hins vegar ekki allt- af hvar á að byrja. Í hverju felast lífsgæðin, lífsfyllingin? Hvernig get ég þroskast á heilbrigðan hátt? Hver manneskja er einstök í þessu tilliti og því þarf hver og einn að líta í eigin barm til að leita svara við þessum spurn- ingum. Slík innri skoðun er mik- ilvæg til að skilgreina þau gildi sem við metum mest í lífinu. Flestir lenda í margskonar erf- iðleikum og áföllum og stundum verður lífsreynslan eins og veggur sem hamlar því að við upplifum innri gæði eða finnum leiðina að lífsfyllingunni.“ Endurvaktar pílagrímsgöngur En hvað er þá til ráða? „Ýmsir aðilar bjóða upp á við- talsmeðferðir fyrir fólk til að tak- ast á við lífsvanda sinn og þá út frá mismunandi forsendum. Innan sálgæslunnar er nú farið að nota útivist beinlínis í þessum tilgangi. Þannig hafa pílagrímsgöngur ver- ið endurvaktar, en í þeim er íhug- að út frá trúarlegum forsendum og endað á helgum stað. Til forna gengu pílagrímar með staf sinn og skreppu (ferðapoka) oftast einir síns liðs, ýmist í auð- mýkt til yfirbótar og iðrunar, en einnig til að tjá þakklæti fyrir gjafir lífsins. Hvað er betra en að gera slíkt í takti við náttúruna? Þess má geta að pílagrímsganga verður farin 20. september nk. um Síldarmannagötur með Fitjakirkju í Skorradal sem áfangastað. Gangan kallast „Lífsgangan – frá hjalla til hjalla“ og í göngunni verður landslagið notað sem grundvöllur þess „að líta yfir far- inn veg“ í innri og ytri merkingu. Þannig fá þátttakendur tækifæri til að íhuga líf sitt frá hjalla til hjalla og upplifa vatnaskil í tvenn- um skilningi. Prestshjónin Arnfríður Guð- mundsdóttir og Gunnar Rúnar Matthíasson munu sjá um leið- arstef göngunnar að þessu sinni, en markmiðið er að bjóða a.m.k. árlega upp á ferðir af þessu tagi um Síldarmannagötur.“ Þeir sem hafa áhuga á svona gönguferð ættu að setja sig í sam- band við Huldu Guðmundsdóttur sem gefur nánari upplýsingar. Pílagrímsganga um Síldarmannagötur Morgunblaðið/G.Rúnar Kirkjukonur F.h. Hulda Guðmundsóttir og Séra Kristín Þórunn Tóm- asdóttir á kirkjuþingi. Þær eru áhugasamar um réttindi kvenna. Að ganga á fjöll er göm- ul íslensk heilsurækt, komin til af brýnni nauð- syn hér áður en flokkast nú undir skemmtun og heilsubót. Hulda Guð- mundsdóttir guðfræð- ingur og skógarbóndi segir frá „lífsgöngunni frá hjalla til hjalla“. 12|Morgunblaðið VINNUVERND vellíðan í vinnu Heilsuvernd Vinnuvernd Heilsuefling Vinnuvernd ehf. Brautarholti 28 105 Reykjavík 578 0800 vinnuvernd@vinnuvernd.is www.vinnuvernd.is Þjónusta við einstaklinga Heilbrigðis- og lífsstílsráðgjöf Ferðamannabólusetningar Viðtalsmeðferð sálfræðinga Allar nánari upplýsingar er að finna á nýrri heimasíðu: www.vinnuvernd.is Þjónusta trúnaðarlækna Heilsufarsmælingar Heilsufarsmat Vinnuvistfræðileg ráðgjöf Áhættumat O.fl. o.fl. Inflúensubólusetningar Vinnustaðaúttektir Ráðgjöf sálfræðinga Þjónusta við fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.