Morgunblaðið - 29.08.2008, Side 16
16|Morgunblaðið
Matreiðsla á kartöflum ertiltölulega einföld ogkrefst ekki stórbrot-inna áhalda,“ segir
Hildur Hákonardóttir sem skrifað
hefur bókina Blálandsdrottningin
sem nýlega kom út hjá Sölku bóka-
útgáfu. Nafnið er dregið af kart-
öflutegund sem ber þetta fagra nafn
og sögð er hafa borist hingað með
Frökkum og þótt hefur bæði bragð-
góð og falleg og verið ræktuð hér af
þeim sökum.
„Kartaflan var einkum hugsuð til
mjöldrýginda í Evrópu og það hefur
ekki alltaf verið auðvelt að kynna
hana þar á sínum tíma,“ segir Hild-
ur. Í bókinni kemur fram að kart-
líka að hún læknaði gigt. Kartaflan
átti hjá sumum að koma öllu illu til
leiðar. En ég tel nokkuð öruggt, af því
ég hef persónulegar heimildir fyrir
því, að hægt sé að minnka verulega
einkenni liðagigtar með því að drekka
soð af kartöflum,“ svarar Hildur
„En þá þarf flusið að vera með,
mest af bætiefnum í kartöflum er í
því. Ég hef heyrt sögu um fólk sem
átti lítið nema kartöflur, það flysjaði
þær og gaf börnunum en át sjálft
flusið. Fullorðna fólkið komst ágæt-
lega af en börnin ekki, það er flusið
sem gefur bætiefnin, eins og raunar
á oft við um ávexti og grænmeti.
Það er mikilvægt að rækta og
matreiða kartöflur þannig að þær
komi að fullum notum. Ein listin er
geyma kartöflurnar það vel að flusið
haldi sér.“
Geymsla á kartöflum
Hildur segist geta geymt kart-
öflur það vel að hún geti borðað þær
með hýðinu á til vors.
„Ég þvæ þær strax og ég tek þær
upp, helst á sama klukkutímanum,
svo moldin nái alls ekki að þorna á
þeim. Síðan þurrka ég kartöflurnar
það vel að að hægt sé að leggja þær í
kassa. Svo lætur maður kassann í
geymslu þar sem hitinn er um 14 til
16 gráður, í eina tíu daga. Kartöflur
hjá okkur hafa stuttan vaxtartíma og
skinnið á þeim er því viðkvæmt. Með
þessari þvotta- og þurrkunaraðferð
þá þéttist skinnið og í kaldri kartöflu-
geymslu geymast þær svo eins og
nýjar fram á vor.“
Í bók Hildar, Blálandsdrottningin,
er ótrúlegan fróðleik að fá um kart-
öfluna og raunar líka mjög fjöl-
breyttan sögulega fróðleik af ýmsu
tagi.
Í bókinni eru líka uppskriftir að
ýmsum gómsætum kartöfluréttum.
Gömul amerísk
klattauppskrift án hveitis
Takið 3-4 stórar kartöflur, skrælið
og rífið niður.
Takið 2 egg, hrærið vel og bætið
rifnu kartöflunum út í.
Bætið við 4 sléttfullum msk. af
brauðmylsnu eða vel muldum fræj-
um, salti, pipar og fínt rifnum lauk.
Látið kökurnar með stórri skeið á
heita, vel smurða pönnu og fletjið
þær út svo að þær séu aðeins 1 sentí-
metri á þykkt. Berið fram með epla-
mauki.
Litskrúðugt kartöflusalat
Bláar kartöflur eru gjarnan hafðar í
salat og eru þær þá hafðar nýsoð-
anar og þeim velt upp úr jómfrúar-
ólífuolíu og sítrónu eða góðu ediki.
Síðan er margvíslegum mildum
lauk, hvítum eða grænum og smátt
skornu, grænu kryddi blandað í og
fer það eftir árstíma hvað fæst eða
finnst.
Fínast þykir að hafa litina þrjá –
rauðar, gular og bláar kartöflur
saman í salati. Leggja skal áherslu á
að litirnir njóti sín og því myndi
hvorki notuð majónsósa né balsam-
edik í svona salat.
Litskrúðugt Í þetta kartöflusalat eru hafðar bláar kartöflur m.a. Frumbyggjar Fólk í Suður-Ameríku kann að búa til góðar kartöflukökur.
Kartöflur eru holl fæða
Morgunblaðið/Kristinn
Fróð kona Hildur Hákonardóttir hefur af mikilli elju og hugmyndaauðgi kom-
ið saman frábærri bók um kartöflur sem hún nefnir; Blálandsdrottningin.
Kartöflur hafa lengi verið mikilvæg fæða hjá Ís-
lendingum. Hildur Hákonardóttir er kvenna fróð-
ust um kartöflur hér og erlendis að fornu og nýju,
enda hefur hún nú látið frá sér fara rit um sögu
kartöflunnar og nýtingu hennar.
Kartöfluseyði við gigt
En hvert er gildi kartöflunnar til
lækninga – er hún t.d. góð við gigt?
„Ég hef séð bæði að hún ylli gigt og
aflan hafi komið til Evrópu frá Suð-
ur-Ameríku kringum 1565. Árið
1743 barst hún til Danmerkur eftir
að hafa komist í ræktun á Írlandi,
Englandi og Þýskalandi.
Pilates með Ástrós!
Dýnunámsskeið hefjast 1. september
allar upplýsingar á:
astros.is
Efalex eflir einbeitingu og sjón og stuðlar
þannig að betri námsárangri.
Vönduð blanda fiski- og
kvöldvorrósarolíu sem
eflir og styrkir:
• Hugsun
• Einbeitingu
• Sjón
• Hormónajafnvægi
Einstakt gegn
lesblindu og
ofvirkni.
Hentar fólki á öllum aldri.
Fæst í fljótandi formi
og hylkjum í lyfja- og
heilsuverslunum.
Efalex er einstök samsetning úr hreinni
kvöldvorrósarolíu og fiskiolíu sem innihalda þrjár
mikilvægar fitusýrur, DHA, AA og GLA ásamt
tveimur öflugum andoxunarefnum, E-vítamíni
og tímían olíu sem vinna saman að viðhaldi
lífsnauðsynlegra fitusýra í líkamanum.
Nægt magn þessarra olía í líkamanum stuðla
að skarpari hugsun og betri einbeitingu sem
eykur færni okkar til þess að læra.