Morgunblaðið - 29.08.2008, Síða 18
18|Morgunblaðið
Dansskóli Jóns Péturs ogKöru býður upp á fjöl-breytt og ný námskeið oghefst kennsla í byrjun
september.
Fyrir yngstu nemendurna 4 til 5
ára er boðið upp á dans, söng og leik.
Kenndir eru dansar þar sem þau
hreyfa sig í takt við tónlistina,
syngja og leika. Einnig eru kenndir
sígildir barnadansar, s.s. fugladans-
inn, fingrapolki og skósmiðadansinn
svo eitthvað sé nefnt. Þessu er flétt-
að saman við tónlist svo börnin fái
útrás fyrir sína miklu hreyfiþörf.
Samkvæmisdans barna
Á dansnámskeiðum fyrir 6-9 ára
byrjendur eru kennd fyrstu sporin í
nokkrum samkvæmisdönsum, s.s.
cha cha cha, enskur vals, samba og
jive. Kennd eru fyrstu sporin af
skottís og léttir freestyle-dansar.
Einnig læra þau fjöruga partídansa.
Hjá eldri börnum og unglingum
eru kenndir almennir samkvæm-
isdansar og nokkrir af gömlu döns-
unum. Mest áhersla er lögð á suður-
amerísku dansana cha cha cha, jive
og samba.
Á framhaldsnámskeiðum fyrir
börn og unglinga er haldið áfram að
byggja upp og bæta inn fleiri döns-
um og sporum.
Þá má nefna freestyle-dans-
námskeiðið, þar eru kenndir dansar
þar sem dansað er við vinsælustu
tónlistina hverju sinni. Stigin eru
spor og dansaðar hreyfingar sem
bregður fyrir á tónlistarmynd-
böndum. Sett verður upp atriði sem
sýnt verður á nemendasýningu skól-
ans. Djass er byggður upp á gamla
Broadway-stílnum og færður til
samtímans á skemmtilegan hátt.
Þar er notuð líkamleg tjáning á nýj-
ustu tónlistinni.
Nýjasta æðið á Íslandi
Hipphoppdans er nýjasta æðið á
Íslandi í dag! Á námskeiðunum er
kennt „The old school“ og „The new
school“. Hipphoppdans snýst um að
stjórna sínum eigin líkamshreyf-
ingum þegar dansað er við hipp-
hopptónlist og tjá sig um leið og
dansað er við tónlistina.
Break gjörbreytti fátækrahverf-
um New York ásamt hipphopp-
menningunni sem varð til að klíku-
krakkarnir fóru að kljást með rappi
og dansi frekar en kylfum og sveðj-
um. Það þróaðist með James Brown-
byltingunni á 8. áratugnum en varð
fyrst vinsælt á heimsvísu gegnum
tónlistarmyndbönd og kvikmyndir
um miðjan 9. áratuginn. Breakið
tekur til sín hreyfingar úr m.a. capo-
iera, steppdansi, kung-fu, lindy-hop
og fimleikum.
Fyrir þá fullorðnu
Fyrir fullorðna verður boðið upp á
námskeið í samkvæmisdönsum. Á
námskeiðinu fyrir byrjendur eru
kenndir suðuramerískir dansar sem
nýtast á dansleikjum s.s. jive, cha
cha cha, mambó og salsa ásamt tjútti
og fleiri dönsum.
Á salsa-námskeiði er kennt LA-
style salsa með Merenge ívafi. Þetta
eru skemmtilegir dansar við hina
seiðandi suðrænu tónlist sem höfðar
svo vel til okkar Íslendinga. Einnig
eru einstaklingstímar í salsa, þá eru
sömu dansarnir og í paratímum.
Dansskólinn býður upp á styttri
og lengri námskeið fyrir sérhópa s.s.
vinnustaðahópa, saumaklúbba eða
vinahópa. Kenndir eru suður-
amerískir dansar sem nýtast á
dansleikjum. Einnig geta nám-
skeiðin verið sérstaklega hönnuð
með þarfir hópsins í huga.
Þá er boðið upp á einkatíma í
brúðarvalsinum. Þar er kenndur
enskur vals og farið yfir helstu atriði
í kringum hann. Brúðhjónin fá
geisladisk sem er með tónlist sem
þau geta síðan æft sig við og jafnvel
notað í brúðkaupinu sjálfu. Einnig
geta brúðhjón komið með sína eigin
tónlist sem þau vilja nota í brúð-
kaupinu og þau eiga sínar sérstöku
minningar um og við hjálpum við að
læra að dansa við það lag.
Stuð fyrir hópinn
Ef verið er að skipuleggja óvissu-
ferð eða einhvers konar skemmtun
fyrir hópa er tilvalið að fá danskenn-
ara til þess að hrista hópinn saman.
Hægt er að hafa einhvers konar
þema t.d. diskó, línudans o.fl.
Kenndir eru einfaldir dansar sem
allir eiga að ráða við og læra á 40-45
mínútum. Hópar geta komið í dans-
skólann og einnig er hægt að mæla
sér mót við danskennarann úti í bæ.
Nánari upplýsingar er að fá á
heimasíðu dansskólans www.dans-
skoli.is.
Morgunblaðið/Eggert
Samkvæmisdans Nokkrir krakkar taka sporiðí dansskóla Jóns Péturs Úlfljótssonar og Köru Arngrímsdóttur.
Morgunblaðið/Eggert
Kennsla Kara leiðbeinir ungum nemanda í dansskólanum
Dans til gleði og góðrar heilsu
Dansskólapar Kara og Jón Pétur stofnuðu dansskólann sinn fyrir mörg-
um árum og hafa kennt mörgum að taka sporið á dansgólfi.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Heimsmeistarar Á haustdögum 1989 var Dansskóli Jóns Péturs og Köru
stofnaður. Á 10 ára afmælinu komu þáverandi heimsmeistarar í Standard-
dönsum Marcus og Karen Hilton hingað. Nú er hefjast 20 starfsár skólans.
Eitt skemmtilegasta
form hreyfingar er
dans. Það er búið að
kenna dans á Ísland í
hartnær 100 ár og sífellt
eykst áhuginn á þessari
ágætu fótamennt.
Dansskóli Jóns Péturs
og Köru hefur lagt mik-
ið af mörkum í þessum
efnum í mörg ár.
Meira fjör, styttri
tími og skemmti-
legur félags-
skapur.
Hjá okkur færðu,
aðhald og stuðning
hvort sem þú þarft
að grennast eða
styrkjast. Regluleg-
ar líkamsmælingar
svo þú getir fylgst
með árangrinum.
Líkamsrækt fyrir konur
Betri heilsa á 30 mínútum
Hringdu og pantaðu
prufutíma og líkamsmælingu
50% afsláttur af þjónustugjaldi
Fyrir a
llar
konur
Curves, Bæjarlind 12 - Sími 566 6161 - curves@simnet.is