Morgunblaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 20
20|Morgunblaðið Ljósheimaskólinn er vegurtil andlegs þroska,“ seg-ir Sólbjört Guðmunds-dóttir sem heldur utan um skólahald og nám í þessum skóla sem hefur svo bjart nafn og var formlega stofnaður haustið 2005 en hafði þá verið starfræktur óformlega í nokkur ár að hennar sögn. „Ég hafði auk þess haldið fjölda styttri og lengri námskeiða í reiki, hugleiðslu og almennri sjálfsrækt frá 1997,“ segir Sólbjört. „Áhugi fólks á þessum fræðum hefur farið sífellt vaxandi sem og fjöldi þeirra sem leita innihalds- ríkara lífs og aukinnar sjálfsvit- undar. Því var afráðið haustið 2005 að setja niður formlegt 3 ára nám við Ljósheima í sjálfsrækt og vitundarvíkkun. Strax fyrsta veturinn var skól- inn vel sóttur og hefur nemendum fjölgað ár frá ári.“ Sólbjört segir námið byggt upp á fyrirlestrum, fræðslu og æfing- um. „Nemendur taka virkan þátt í tímum með hug- leiðslu, umræðum og tjá upplifun sína í orðum og litum. Auk þess vinna þeir heimaverkefni milli tíma. Hver árgangur sækir skól- ann eitt kvöld í viku frá miðjum september út maí,“ segir hún og getur þess ennfremur að þeir sem setið hafa skólann komi úr öllum stéttum samfélagsins og séu á ýmsum aldri. Forvitnir um lífið og til- veruna „Nemendur eiga það þó senni- lega allir sameiginlegt að vera forvitnir um lífið og tilveruna og hafa löngun til að vinna með sjálfa sig á jákvæðan og uppbyggjandi hátt,“ segir Sólbjört. En hvert er markmið þessa skólahalds? „Skólinn er hugsaður fyrir alla þá sem hafa áhuga á að þroska sig andlega og öðlast víðari heims- mynd. Stór hluti námsins á fyrsta og öðru ári er vinna með orku- stöðvarnar og orkuleg samskipti milli fólks almennt. Á þriðja ári fer fram enn dýpri sjálfsvinna þar sem flett er upp hinum ýmsu þáttum manneskj- unnar sem allir þurfa að takast á við. Í náminu er mikið lagt upp úr því hvernig hvert og eitt okkar getur á meðvitaðan hátt tekið ábyrgð á eigin lífi og líðan. Námið nýtist fólki á beinan og afgerandi hátt, það fær ýmis verkfæri, æfingar og nýja innsýn til að takast á við verkefni lífsins. Nemendur læra að þekkja betur styrkleika sína og veikleika. Þeir skoða hvar þeir standa vel að vígi og hvernig megi styrkja þá þætti sem vinna þarf með og stuðla þannig að auknum þroska og innihaldsríkara lífi,“ segir Sólbjört. Aðspurð kveðst hún hafa menntun í klassískri tónlist en hefur einnig lokið námi frá Ether- ikos International School of Energy Healing and Spiritual Development sem er rekinn af geðlækninum Nicholas Demetry í Atlanta, Georgíu. „Ég er reikimeistari og NLP practitioner auk þess sem ég hef sl. 13 ár sótt fjölda námskeiða tengd mínu fagi, úti um allan heim,“ bætir hún við. Þess má geta að skólinn verður kynntur áhugasömum á opnu húsi í Ljósheimum, til húsa í Brautarholti 8 hinn 7. sept- ember nk. Nánar má fræðast um þessa starfsemi á www.ljos- heimar.is. Samvinna Gleðin ræður augljóslega ríkjum í Ljósheimaskólanum og gefur lífsfyllingu. Vegur til andlegs þroska Áhugi fólks á hugleiðslu og almennri sjálfsrækt fer vaxandi að sögn Sólbjartar Guðmundsdóttur. Hún segir Ljósheimaskólann vel sóttan af þeim sem áhuga hafa á þessum fræðum. Íhugun Einbeitingin leynir sér ekki Aðsókn Sólbjört Guðmundsdóttir segir Ljósheimaskólann vel sóttan. kynnir: FitKid® námskeið Fjölbreytni og frábær skemmtun! Þolfimi, dans, fimleikar og styrktaræfingar. Besta hvatningin til heilbrigðra lífshátta! Í haust verða FitKid® námskeið í boði á eftirtöldum stöðum: Reykjavík: Hreyfiland, Stangarhyl 7, 577 2555 Akureyri: Átak Heilsurækt, Strandgötu, 461 4444 www.hreyfiland.is www.atakak.isfitk id @ fit ki d. is Námskeið við ofsakvíða • Færðu ítrekuð og fyrirvaralaus kvíðaköst? • Einkennast kvíðaköstin m.a. af örum hjartslætti, and nauð, óraunveruleikatilfinningu, svima, svita eða skjálfta? • Líður þér eins og eitthvað alvarlegt sé í þann veginn að gerast? • Ertu smeyk(ur) við að fá frekari kvíðaköst? Sex vikna námskeið er að hefjast á vegum Kvíðameðferðar- stöðvarinnar (KMS). Stuðst verður við aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar sem gefið hafa góða raun við ofsakvíða. Markmið námskeiðsins eru að þátttakendur: - öðlist innsýn í kvíða og þætti sem viðhalda ofsakvíða. - læri árangursríkar leiðir til að draga úr kvíðaköstum. Sóley D. Davíðsdóttir sálfræðingur Sigurbjörg J. Ludvigsdóttir sálfræðingur Umsóknarfrestur rennur út 31. ágúst nk. Hægt er að nálgast upplýsingar og skrá sig í síma 822-0043 eða á kms@kms.is. Hægt er að fygjast með þeim námskeiðum sem verða í boði í vetur á vegum Kvíðameðferðarstöðvarinnar á www.kms.is.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.