Morgunblaðið - 29.08.2008, Síða 21

Morgunblaðið - 29.08.2008, Síða 21
Morgunblaðið |21 Mikil umræða er umheilsueflandi lífsstíl ífjölmiðlum og annarsstaðar í samfélaginu. Heilbrigðisyfirvöld hafa mótað stefnu um heilsueflandi lífsstíl fyrir almenning og sinnt ákveðnum þátt- um heilsueflingar. „Einstaklingum hefur ekki verið sinnt nægjanlega vel í þessu sambandi með ráðgjöf og stuðningi,“ segir María Jónsdóttir sem er sjúkraþjálfari og með meist- arapróf í lýðheilsufræðum. María starfar hjá Vinnuvernd ehf. „Mjög margir nýta sér nú þegar ýmsa lífsstílstengda þjónustu eins og á líkamsræktarstöðvum, leita sér aðstoðar við að hætta að reykja eða nýta sér ýmis óhefðbundin ráð til að bæta heilsu,“ segir hún. „Margir leita lengi að því eina rétta, fólk fer úr einni tegund af leikfimi í aðra en finnur ekki það sem hentar eða prófar hvern megr- unarkúrinn á eftir öðrum. Aðrir eiga erfitt með að breyta um lífsstíl eftir að hafa greinst með kvilla eins og of háan blóðþrýsting eða glíma við ýmsa sjúkdóma.“ Marga skortir stuðning „Telja má víst að marga vanti að- stoð, hvatningu og stuðning,“ segir María ennfremur. „Vinnuvernd ehf., sem sérhæfir sig í að þjóna starfsmönnum fyr- irtækja og stofnana, ætlar nú að mæta þessari þörf með því að hefja nýja þjónustu, Heilbrigðis- og lífs- stílsráðgjöf. Þar býðst ein- staklingum að fá ráðgjöf sérfræð- inga um bættan lífsstíl og betri heilsu. Ráðgjafar Vinnuverndar eru allir háskólamenntaðir og með reynslu af heilbrigðis- og lífsstíls- ráðgjöf, bæði innan heilbrigðiskerf- isins og utan. Unnið úr frá heilbrigðismati Í Heilbrigðis- og lífsstílsráðgjöf- inni verður unnið út frá nið- urstöðum heilbrigðismats sem lagt er fyrir í upphafi. Í kjölfarið eru ein- staklingar aðstoðaðir við markmiðs- setningu og eftirfylgni. Ein- staklingsbundið er hvaða þætti þarf að skoða hjá hverjum og einum. Meðal þeirra geta verið mataræði og þyngdarstjórnun, hreyfing og þjálfun, byrjandi einkenni lífsstíls- sjúkdóma o.fl. Samhliða ráðgjöfinni eru ákveðnar heilsufarsmælingar gerð- ar. Niðurstöður úr þeim eru notaðar til viðmiðunar í markmiðssetningu. Er þá mæld þyngd viðkomandi og þyngdarstuðull (BMI) fundinn út frá því, kviðfita/mittismál, fituhlut- fall líkamans, blóðþrýstingur og blóðfita (kólesteról). Einnig er blóð- sykur mældur ef ástæða þykir. Hvatt er til endurkomu og eft- irfylgni. Í ráðgjöfinni felst m.a. Einstaklingsmiðuð heilsufars- ráðgjöf og markmiðssetning Persónulegur stuðningur við að hrinda raunhæfri áætlun af stað og viðhalda henni til lengri tíma. Eftirfylgd er í boði ef óskað er eftir því. Ef ástæða er til er einstaklingum vísað í önnur úrræði. Með þessum hætti viljum við hvetja einstaklinga til heilbrigðari lífsstíls og fyrirbyggja frekari veik- indi ef þau eru þegar hafin. Við munum veita upplýsingar, hvetja einstaklinga og veita þeim stuðning og eftirfylgd til lengri tíma ef óskað er eftir því. Markmið okkar er að vinna að forvörnum fyrir þá einstaklinga sem til okkar leita. Heilbrigðis- og lífsstílsráðgjöfin er fyrst og fremst hugsuð fyrir ein- staklinga og er hún opin öllum. Tímapantanir og nánari upplýsingar eru í síma 578 0800. Eins bendum við á heimasíðu Vinnuverndar www.vinnuvernd.is“ Ráðgjöf hjá Vinnuvernd Sjúkraþjálfari María Jónsdóttir er í fyrirsvari hvað varðar nýja ráð- gjöf um lífstíl hjá Vinnuvernd Nýjung hjá Vinnu- vernd – heilbrigðis- og lífsstílsráðgjöf. María Jónsdóttir segir marga vanta stuðning í þess- um efnum Morgunblaðið/Frikki Markmið Ráðgjöf hjá Vinnuvernd er ætlað að vinna að forvörnum fyrir fólk svo það veikist síður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.