Morgunblaðið - 29.08.2008, Síða 22

Morgunblaðið - 29.08.2008, Síða 22
22|Morgunblaðið Það er þess virði að losna viðaukakílóin,“ segir ÞórarinnÞórhallsson, fram-kvæmdastjóri Heilsu ehf. „Þeir sem eru 5-10 kílóum yfir kjörþyngd geta auðveldlega aukið lífsgæðin verulega með því að breyta um lífsstíl og ná kjörþyngd. Aukakílóin geta orsakað ýmsa sjúkdóma svo sem hjartasjúkdóma, heilaæðasjúkdóma og slag- æðasjúkdóma. Á markaðnum eru hundruð aðferða til að grennast. Oft er um einhvers konar töfralausnir að ræða, megrunarkúra sem eiga að gera kraftaverk – en eftir kúrinn fer allt í sama farið. Fyrir þá sem eru í þessari stöðu er auðveldast og ódýr- ast að breyta um lífsstíl,“ segir Þór- arinn. Nýr lífsstíll og hjálpartæki Þegar breytt er um lífsstíl tekur það nokkurn tíma þar til árangur fer að sjást en þá verður í flestum til- vikum um varanlegan árangur að ræða að sögn hans. „Skyndilausnir gefa yfirleitt að- eins skammtímaárangur og valda því oft vonbrigðum. Til að megra sig þarf fyrst og fremst að huga að tveimur þáttum; að draga úr neyslu og auka hreyfingu,“ segir Þórarinn. „Það getur oft verið erfitt að taka fyrstu skrefin og breyta um lífsstíl. Ein góð leið til þess er að hefja átakið með smáhreinsun. Biotta-helg- arpakkinn er þriggja daga hreinsik- úr sem samanstendur af grænmetis- og ávaxtasafa. Safinn er í kassa með íslenskum leiðbeiningum þar sem nákvæmlega er farið yfir það hvern- ig haga skuli hreinsuninni. Á þessum þremur dögum gefst góður tími til að endurskoða neysluvenjur og skipu- leggja framhaldið. Eitt af því mik- ilvægasta við að ná árangri í breytt- um lífsstíl er að ná valdi á sykur- og eða matarlöngun (milli-máltíða- neyslu). Eitt af því mikilvægasta er að borða reglulega morgunmat, há- degismat og kvöldmat og borða e.t.v. ávexti og grænmeti milli mála. Einn- ig er mikilvægt að uppfylla þarfir lík- amans fyrir fitu.“ Hvað er best að nota í því skyni? „Að mínu mati er ein besta varan á markaðnum í dag til þess olíublanda frá Udo’s Choice, þ.e. ómega 3-, 6- og 9-blanda með sérstaklega völdum ol- íum. Hún er góð til að uppfylla þarfir líkamans fyrir ómega 3- og 6- fitusýrur. Þessi fita inniheldur meðal annars hörfræsolíu og hefur sýnt sig að auk þess að hafa góð áhrif á blóð- fitu og hjarta- og æðakerfi dregur hún úr löngun í fituríka fæðu. Í henni er og kókosolía sem er talin hjálpa til við brennslu. Önnur vara sem ég mæli með er „ofurfæðan“ Beyond greens, en hún inniheldur 45 bestu tegundir af fáanlegu grænmeti og auk þess trefjar, meltingarensím og andoxunarefni sem eru undirstaða heilsusamlegs mataræðis. Með því að taka Beyond greens samhliða reglulegum máltíðum er mögulegt að draga verulega úr sykurlöngun um leið og nauðsynlegra bætiefna er neytt,“ segir Þórarinn. En hvað er heppilegt að borða? „Æskileg fæða er grænmeti, ávextir, fiskur og magurt kjöt. Sér- staklega heppilegar eru einnig korn- vörur, lítið unnar og úr heilu korni, t.d. sykursnautt múslí og grjón eða flögur úr heilu korni, svo sem hveiti, rúgi, höfrum, byggi, hrísgrjónum og hirsi. Út á morgunkornið er best að hafa sojamjólk, hrísmjólk, fjörmjólk eða möndlumjólk. Sem meðlæti með mat er mjög gott að nota hýðishrís- grjón, heilt bygg, hirsi, kínóa og heil- hveitikúskús. Skynsamlegt er að snæða tvær til þrjár grænmetismál- tíðir á viku.“ Hvað á að forðast? „Sykur, harða fitu og transfitu. Feitt kjöt, gosdrykki, kex og kökur, feitar mjólkurafurðir, mikið steiktan eða djúpsteiktan mat. Einnig er gott að draga úr neyslu á áfengi þrátt fyr- ir að rauðvín og hvítvín geti verið gott í hófi. Nauðsynlegt er að hreyfa sig, æfa eða að ganga hraustlega hálftíma á dag. Þá minnkar meðal annars um- talsvert hættan á blóðtappa, syk- ursýki, beinþynningu, of háum blóð- þrýstingi, ristilkrabba og þunglyndi. Auk þess sem aukin brennsla minnk- ar fitu. Sérfræðingar segja að um 12% allra ótímabærra dauðsfalla verði fyrst og fremst rakin til hreyf- ingarleysis.“ Bætiefnin Gera bætiefni gagn í baráttunni við aukakílóin að þínu mati? „Það eru ekki mörg náttúruleg efni á markaðnum sem raunverulega geta hjálpað fólki í baráttunni gegn offitu, það er fyrirbyggt fitusöfnun í fituvef. Efnin Citrimax, L-karnitín (carnitine) og Króm-píkólínat (cromium picolinat) geta verið hjálp til að snúa við óæskilegri þróun og hjálpa til við megrun.“ Hvað með of háan blóðþrýsting, kanntu ráð við því? „Hár blóðþrýstingur er oft fylgi- fiskur aukakílóa. Draga má úr vægum háþrýstingi með hjálp bætiefna. Nýjar rannsóknir hafa sýnt að rauðrófur eða rauðrófusafi hefur mjög góð áhrif á blóðþrýsting. Auk þess er gott að taka hvítlauk, Q10, ómega-fitusýrur, steinefni (kalk og magnesíum). Skortur á trefjum og of mikil saltneysla er slæm. Almennt er svo nauðsynlegt að stunda hreyfingu reglulega fyrir þá sem glíma við há- þrýsting.“ Hvað með blóðfituna? Blóðfita er mörgum lífshættuleg og til eru góð lyf til að ná henni niður en sumir vilja láta reyna á breytingu á mataræði og svokölluð náttúrulyf. Hvernig á fólk að lækka blóðfituna á þann hátt að mati Þórarins? „Minnka verulega neyslu á harðri fitu og forðast transfitu og hitaða ol- íu. Taka nægjanlegt magn af góðri fitu og er þá t.d. gott að taka ómega- blöndu sambærilega og Udo’s choice Omega 3 6 9. Einnig hafa nokkur bætiefni og jurtir gefist vel, svo sem Guggul Plex sem er unnið úr ind- versku jurtinni múkkul, trefjar, B3- vítamín (níasín) og ómega 3 – og svo er það hreyfingin. En ég mæli með því að þeir sem hafa áhuga á að reyna að ná árangri á þessu sviði með aðstoð nátt- úrulegra vara ráðfæri sig við starfs- fólk apóteka og heilsubúða og fái þannig nánari ráðleggingar um hvað hentar hjá fagfólki. Og auðvitað er nauðsynlegt að hafa lækni ávallt með í ráðum.“ Morgunblaðið/Frikki Framkvæmdastjóri Þórarinn Þórhallsson er mjög fróður um ýmis efni sem bæta líðan fólks. Baráttan við aukakíló og háa blóðfitu Safar og olía Hreinsikúr, safar og olía sem koma líkamanum vel Æði margir berjast við aukakílóin og neyta ým- issa bragða. Blóðfitan er líka of há hjá mörgum, sem og blóðþrýstingurinn. Þórarinn Þórhallsson lumar á góðum ráðum gegn þessum vanda. Einfaldur í notkun, öflugur og fyrirferðarlítill nuddpúði. Bæði heima og í bílnum. 588 2580 661 2580 logy@logy.is www.logy.is MaxiWell II Nuddarinn þýsk nákvæmni og hugvit NÝTT! 12 TOMMU BACALAO PIZZA, TIL Á LAGER ALLTAF FYRSTIR MEÐ NÝJUNGAR Í SALTFISKI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.