Morgunblaðið - 29.08.2008, Page 23
Morgunblaðið |23
Nýtt og spennandihelgarnámskeið er aðhefjast í október.Námskeiðið byggir á
samspili hreyfingar í gegnum jó-
gadans og hugleiðslu og mynd-
rænnar tjáningar.
„Markmiðið er að tengjast
sjálfum sér og opna fyrir sköp-
unarkraftinn sem býr í okkur
öllum. Með því losnar úr læðingi
aukin lífsorka og gleði og fólk
getur fundið aukið jafnvægi sem
nýtist á öllum sviðum lífsins,“
segir
Þórey Viðarsdóttir sem er
leiðbeinandi í jógadansi, en í
október verður haldið námskeið
um jógadans, hugleiðslu og
sköpun á vegum hennar og Sól-
eyjar Katrínar Jónsdóttur.
„Jógadansinn byggir á heim-
speki jógafræðanna í gegnum
einfaldar jógastöður og öndun.
Dansað er út frá orkustöðvunum
og eiginleikum þeirra. Tækifæri
skapast til að kanna þær tilfinn-
ingar sem koma upp og heilun
getur átt sér stað. Dansinn
hjálpar við að liðka og styrkja
líkamann, losar um spennu og
eykur orkuflæði líkamans. Jóga-
dansinn felur í sér létt dansspor
í sambland við frjálst flæði, þar
sem hver og einn finnur sinn
takt og upplifir frelsi til að tjá
sig og losa um höft,“ segir Þór-
ey.
Sólveig Katrín er listmeð-
ferðarfræðingur og nýtir nálgun
myndsköpunar til að hjálpa fólki
að tengjast sínum innri kjarna
og eiginleikum.
„Sköpunin opnar fyrir teng-
ingu við undirmeðvitundina og
hjálpar einstaklingnum að upp-
götva sig í víðara samhengi.
Einnig getur myndsköpunin opn-
að dyr að ókönnuðum þáttum
innra með fólki sem bíða eftir að
koma fram,“ segir Sólveig.
„Einstaklingurinn er skapandi
vera og það að tengjast þessum
grunneiginleika okkar er frels-
andi tilfinning. Engin þörf er á
kunnáttu í myndsköpun, ein-
göngu opnum huga og sköp-
unargleði.
Það er kröftug blanda að opna
fyrir lífskraftinn með dansinum
og tónlistinni, slaka á og leiða
hugann að sinni innri vitund í
gegnum hugleiðslu og að lokum
að opna fyrir frjálst flæði með
litum og formum í myndsköp-
uninni.
Unnið verður með ákveðin
þemu yfir helgina sem tengjast
eiginleikum hverrar orkustöðv-
ar, eins og t.d.: jarðtenging, ör-
yggi, sjálfstraust, kærleikur og
fleira.“
Tvö námskeið verða í boði á
vegum þeirra Þóreyjar og Sól-
veigar helgarnar 18.–19. okt. og
1.–2. nóv. Nánari upplýsingar
veittar í síma 696 3343 og 692
6920.
Samstiga F.v. Þórey Viðarsdóttir og Sólveig Katrín Jónsdóttir
Jógadans, hug-
leiðsla og sköpun
Ashtanga vinyasa jóga ~ byrjenda og framhaldstímar
Mysore style jóga
Vinyasa jógaflæði ~ byrjenda og framhaldstímar
Jógaflæði ~ byrjendanámskeið með Billa
Yoga nidra ~ djúpslökun
Hatha jóga ~ mjúkir og rólegir tímar
BlessStress
Bakmeðferð með jóga
~ Erlendir gestakennarar
Ingibjörg
Talya
Ægir
Addý
Gummi
www.yogashala.is
Engjateig 5, 2.hæð
sími 5530203
Styrkur ~ jafnvægi ~ vellíðan
ALLIR LIÐIR MUN
HREYFANLEGRI
Náttúrulegt
fyrir liðina
„Líður miklu betur! Upplifi
mig minnst 10 árum yngri
en áður.“
Mats Lilienberg
„Eftir nokkrar vikur á
NutriLenk fann ég hvernig
allir liðir voru orðnir mun
hreyfanlegri og mýkri!“
„Ég hafði alltaf verið mjög
duglegur að hreyfa mig
og hreinlega elska alla
hreyfingu. En fyrir nokkrum
árum byrjaði ég að vera
aumur, stífur og stirður
sem varð til þess að ég
setti fótboltaskóna og
tennisspaðann í geymsluna.
Það bætti ekki líðan mína
á neinn hátt. Starf mitt er
mjög líkamlega krefjandi, ég
þarf að lyfta þungum hlutum,
og ég var þess fullviss að það
væri orsökin fyrir kvölum
mínum. Kroppurinn væri bara
orðin slitinn og þreyttur eftir öll
átökin og ekkert væri við þessu
að gera.“
Hreyfði sig minna
„Ég var hálfleiður en allir eldast
og slitna og það taldi ég bara
eitt af því sem maður yrði að
sætta sig við. Ekkert annað
væri í stöðunni en að hægja á
sér. Líkaminn væri ekki með á
nótunum eins og áður.
Fótbolti og tennis var ekki lengur
inni og ég byrjaði að stunda golf
til þess að hreyfa mig eitthvað
en það varði ekki lengi og að
lokum reyndist það of erfitt og
kvalafullt. Maður þarf að geta
sveigt líkamann vel til þess ná
góðu höggi og beygja sig eftir
kúlunni og þar sem það var mér
svo erfitt missti ég alla löngun til
að spila golf.“
Líður miklu betur
„Tengdadóttir mín ráðlagði mér
að prófa NutriLenk. Eftir aðeins
mánaðar inntöku dró ég fram
tennisspaðann og golfsettið úr
geymslunni og geri nú tilraunir
með að stunda hvorttveggja
nokkrum sinnum í viku.
Mér líður miklu betur! Upplifi
mig minnst 10 árum yngri en
áður. Að geta hreyft líkamann
eðlilega á ný gerir hvern dag
ánægjulegan. Nýlega vann ég
strákinn minn á golfvellinum
sem var mjög skemmtilegt. Nú
er málið að keppa líka við hann
í tennis,“ segir Mats að lokum
kátur í bragði.
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111