Morgunblaðið - 29.08.2008, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 29.08.2008, Qupperneq 28
Valinn hefur verið vinnings-hafi verðlaunasamkeppn-innar „Reyklaus 2008“ semReyksíminn og Lýðheilsu- stöð stóðu að. Samkvæmt upplýsing- um frá Lýðheilsustöð var óskað eftir góðri sögu frá þeim sem væru tilbúnir að hætta að reykja eða væru þegar hættir, sem gæti verið hvatning fyrir aðra í baráttunni gegn tóbaki og vekja athygli á úrræðum til hjálpar eins og reyksímanum og reyklaus.is. Vinningshafinn er Rut Sigurð- ardóttir. Verðlaunasamkeppnin er hluti af „European Smoke Free Awards 2008“ sem Evrópuráð reyksíma stendur að. Aðalverðlaun fyrir vinn- ingshafann á Íslandi eru ferð til Amsterdam, á evrópsku verðlaunaaf- hendinguna, ásamt 100.000 krónum í gjaldeyri. Rúmlega 450 reynslusögur bárust og af þeim komust 36 í úrslit. Eftir skemmtilega og fróðlega lesningu komst dómnefndin að þeirri nið- urstöðu sex sögur væru áhrifamestar en þar væri saga Rutar Sigurð- ardóttar sú sem ætti verðlaunin skil- in. Rut verður því fulltrúi Íslendinga í hópi 11 vinningshafa í evrópska verk- efninu Smokefree Award 2008 í Amsterdam. Þar á hún einnig mögu- leika á að vinna ferðaávísun að and- virði 15.000 evrur. Vinningssaga Rutar Upphafið að því að ég hætti að reykja var að ég hitti yndislegasta mann á jarðríki, varð yfir mig ást- fangin og ákvað að eyða ævi minni með öðrum einstaklingi. Hann reykti ekki og einhvern veginn truflaði það mig alltaf að reykja í kringum hann. Tala nú ekki um að smella á hann kossi eftir að hafa reykt, ég fann að honum fannst það ekkert voðalega huggulegt, þó svo að hann segði aldrei neitt. Hann var þó búinn að nefna það við mig að honum þætti voða vænt um ef ég hætti að reykja. Það væri ekki síst mín vegna sem hann óskaði þess, þetta væri bara svo helv... óhollt og ógeðslegt. Jú, ég var nú farin að leiða hugann að þessu stuttu eftir að við fórum að vera saman en einhvern veginn var ég ekki alveg til í þetta strax. Hafði alltaf sagt að ég myndi hætta að reykja einn daginn og það yrði alveg öruggt að ég myndi hætta þegar ég yrði ólétt. Reykingar höfðu slæm áhrif En svo fann ég smám saman að reykingar mínar voru farnar að hafa áhrif á líf okkar beggja. Hann þurfti sífellt að vera að taka tillit til mín og minna þarfa í kringum reykingar. Hann var farinn að benda mér á ljót- an hósta sem ég var komin með, mað- ur tekur ekki alltaf eftir því einn með sjálfum sér. Hann hefur gaman af úti- veru og gönguferðum sem ég hafði mun minna úthald í að sinna en hann. Fannst það mjög leiðinlegt og sífellt ágerðist sú hugsun að ég þyrfti að fara að hætta þessu. Auk þess sat fast í mér setning sem afi minn sagði við mig þarna um sumarið „Rut mín, hættu nú þessum óþverra á meðan þú hefur tækifæri til. Ekki viltu enda eins og ég.“ Og afi minn er með lungnaþembu og mjög veikur, sem rekja má til reykinga. Svo kom að því að tækifærið til að hætta fyrir fullt og allt kom. Ég fékk að vita það að ég væri á leið í háls- kirtlatöku og ég sá það nú að ekki gæti ég reykt í nokkurn tíma eftir þá aðgerð. Ég ákvað því að ég myndi hætta að reykja eftir aðgerðina. Og það var nú ekkert lítið sem maðurinn minn varð ánægður og já, allir aðrir í kringum mig. Kom mér á óvart hversu jákvæð og góð viðbrögð ég fékk frá fólki í kringum mig. Ástin er yndisleg Þannig að ef við drögum þetta að- eins saman þá er það þrennt sem hafði áhrif á ákvörðun mína að hætta að reykja. 1. Ástin er yndisleg og er manni ómetanlegur stuðningur þegar maður vill hætta að reykja. Allt fyrir ástina :) 2. Þurfti að fara í aðgerð og til að eiga möguleika á betri bata var ekki annað í stöðunni en að hætta að reykja. Ef ég gat hætt í 2 vikur þá var það alveg ljóst að ég hlyti að geta hætt þessu alveg. 3. Varnarorð afa míns sem þjáist af ýmsum kvillum sem rekja má til reyk- inga. Ég hætti að reykja 23. september 2007 og hafði þá reykt í 11 ár. Hafði einu sinni áður reynt að hætta, fyrir um fimm árum síðan og það entist í um viku“. Ástæða reykinga? „Uhmm, það er svolítið erfitt að svara þessari spurningu, svona þegar maður er hættur að reykja og sér til- gangsleysið í þessum ósið. En hjá mér var það að mörgu leyti félagslegt, vinahópurinn reykti, skemmtilegt fólk í vinnunni sem reykti, hægt var að nota þetta sem afsökun fyrir ýmislegu eins og t.d. pásum í vinnunni. Einnig fannst mér bara rosa gott að reykja.“ Hvaða aðferð beittir þú til að hætta reykingum? „Eins og fram hefur komið fór ég í hálskirtlatöku sem kom í veg fyrir að ég gæti reykt í nokkra daga. Aðrar aðferðir notaði ég ekki, engin lyf eða neitt svoleiðis. Hrósið varð að mínu nikótíni Stuðningur fólksins og jákvæð við- brögð gerði mikið fyrir mig. Ég sagði öllum í kringum mig að ég væri hætt að reykja og hrósið sem ég fékk varð að mínu nýja nikótíni. Finnst þér líf þitt hafa breyst frá því þú hættir? Vá, hvílíkar breyting- ar, maður getur nú ekki sagt annað. Maður hefur meiri tíma. Áður snerist allt um næstu sígó, hvenær var tími og tækifæri fyrir það. Hádegismat- urinn í vinnunni varð skemmtilegri, maður þurfti ekki að gúffa í sig matn- um til að hafa tíma til að fara niður að reykja. Og ég stóð alltaf í þeirri trú að það væri svo félagslegt að reykja, en ef maður pælir í því þá er mun félags- legra að reykja ekki. Maður eyddi meiri tíma með þeim vinnufélögum sem reykja ekki, það er miklu stærri hópur en þeir sem reykja. Eftir að reykingabannið tók gildi á veitinga- og skemmtistöðum finnst mér líka voðalega huggulegt að geta bara verið inni en þurfa ekki að hírast úti í kuld- anum og vetrarhörkum til þess eins að fá mér smók og koma svo inn með ský af vondri lykt í kringum mig. Matur varð betri á bragðið, hefði ekki geta trúað því áður. Hóstinn hvarf, þolið jókst mjög fljótt. Ég fór að kyssa manninn minn meira og gerði það án þess að hugsa um hversu óaðlaðandi honum fyndist að kyssa mig. Peningar, peningar og aftur pen- ingar – ég hætti að reykja þá sem bet- ur fer. Með viljann að vopni Hvernig getur saga þín hvatt aðra til að hætta að reykja? „Mér tókst þetta með viljann að vopni, það er allt hægt ef maður ætlar sér það. Ég ætla ekki að sjá eftir þeim árum sem ég reykti eða ímynda mér hvað ég hefði getað gert fyrir pen- ingana sem ég lét fuðra upp. Ég tók þessa ákvörðun á þessum tíma og er ótrúlega stolt af henni. Þetta var erf- itt á köflum, ég neita því ekki, en með svona yndislegt fólk í kringum mig, sem studdi mig áfram og sagði mér endalaust hvað það væri stolt af mér, var ótrúlegur styrkur. Ég hefði ekki getað trúað þeim breytingum sem þetta hafði í för með sér. Maður veit að þetta er ekki hollt né gott fyrir mann en það er svo margt annað sem fylgir og ég nefndi hér í dálknum að ofan. Svo er það náttúrlega maðurinn í mínu lífi sem er svo stór partur af þessu hjá mér. Að mörgu leyti er það honum að þakka að ég hætti, hann var þó aldrei að pressa eða tuða í mér að hætta. Gaf mér tíma til þess að átta mig á því sjálf hversu mikilvægt það væri fyrir mig að hætta. Ómeðvitað fékk hann mig til að vilja hætta sjálf. Ástin færir manni ekki aðeins hamingju og gleði heldur einnig heilbrigðari lífsstíl og líf án reykinga. Je minn hvað mér líður vel í dag og hlakka til að takast á við framtíðina reyklaus og alsæl. Ég er heldur ekki lengur með þessa afsökun í farteskinu: „hætti að reykja þegar ég verð ólétt“ – ég er reyklaus og miklu betur í stakk búin líkamlega til að verða ólétt sem vonandi hlotnast okkur hjónum einn daginn. Mér finnst líka voðalega gott að vita til þess börnin mín alist upp í reyklausu umhverfi.“ Morgunblaðið/Golli Hætt Liðin er sú tíð að Rut Sigurðardóttir kveiki sér í sígarettu. Stuðning hinn nánustu í umhverfinu segir hún sérlega mikilvægan. Allt fyrir ástina Vinningshafi Rut Sigurðardóttir hætti að reykja fyrir ástina sína. Valinn hefur verið vinn- ingshafi verðlauna- samkeppninnar „Reyk- laus 2008“ sem Reyk- síminn og Lýðheilsustöð stóðu að. Rut Sigurð- ardóttir varð með sögu sinni hlutskörpust 450 sögumanna. 28|Morgunblaðið AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111 MFM MIÐSTÖÐIN Meðferðar og fræðslumiðstöð vegna matarfíknar og átraskana Brautarholti 8, 105 Rvk, sími 568 3868 www.matarfikn.is Esther Helga Guðmundsdóttir B.M. ráðgjafi. Átt þú í vanda með mat og þyngd? Ef þú hefur, þrátt fyrir mikinn vilja, ekki getað viðhaldið eðlilegri þyngd, þá gætir þú átt við matarfíkn og/eða átröskun að stríða. Hjá MFM miðstöðinni færð þú: Greiningu, fræðslu, ráðgjöf, einstaklingsmiðaða meðferð og stuðning.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.