Morgunblaðið - 29.08.2008, Síða 29

Morgunblaðið - 29.08.2008, Síða 29
Morgunblaðið |29 Ég hef búið á Indlandimjög lengi og átti þarheima sem barn,“ segirSigurlín Guðjónsdóttir heilsuráðgjafi. „Vera mín í Indlandi beindi at- hygli minni að ayurveda, sem eru forn indversk heilsufræði sem er oft nefnd lifandi vísindi. Orðið ayur- veda merkir: Ayur sem þýðir líf og veda sem þýðir þekking. Að þekkja lífið – þitt líf! Þessi 5.000 ára þekk- ing sem á rætur sínar að rekja til gömlu veda-fræðanna er enn við lýði sérstaklega í Indlandi og er orðin mjög vinsæl víða um heim.“ Hvað merkja þessi fræði? „Samkvæmt ayurveda eru allar lífverur samsettar úr frumefnunum 5: lofti, vatni, eldi, jörð og rými (eter). Frumefnin 5 skiptast í 3 svo kall- aðar dósjur (dosha) eða 3 stólpa lífsins sem kallast vata, pitta og kapha. Vata, pitta og kapha skapa síðan mismunandi líkamsgerðir (prak- ruti). Allar lífverur hafa í sér vata, pitta og kapha en misjafnlega mikið hlutfall af hverju. Maður getur t.d. verið „ríkjandi“ vata með svolitlu hlutfalli af pitta og kapha. Eins get- ur pitta verið ráðandi eða kapha með minna hlutfall af hinum tveim o.s.frv. Að finna sína náttúrulegu líkams- gerð /samsetningu (prakruti) Vata: samanstendur af lofti og rými en hefur ögn af eldi, vatni og jörð (frumefnin 5). Einkenni vata eru: þurr, köld, létt, hreyfanleg, óregluleg, hrjúf, fínleg, viðkvæm. Þeir sem hafa vata-einkenni eru oftast grannvaxnir en líkamsbygg- ing getur verið „óregluleg“. Persónulegir eiginleikar þess fólks er frjósamt hugmyndalíf, næmi, fjör og félagslyndi. Þetta fólk er skemmtilegt, hrífandi, upp- örvandi og listrænt þegar það er í jafnvægi! Pitta samanstendur aftur af eldi og vatni en hefur ögn af lofti, rými og jörð (frumefnin 5). Einkenni pitta-fólks eru: heit, ör- lítið olíukennd, áköf, rök, lyktandi, flæðandi. Líkamsbygging þeirra er í með- allagi. Persónulegir eiginleikar pitta- fólks eru framtakssemi, öryggi og skýrleiki. Það er spennandi, vin- gjarnlegt, glaðlegt og drenglynt þegar það er í jafnvægi Kapha samanstendur af jörð og vatni en hefur ögn af lofti, rými og eldi (frumefnin 5). Kapha-fólk er þungt, olíukennt, stöðugt, teygjanlegt, þétt, mjúkt, hægfara. Líkamsbygging er sterk, það er þrekvaxið og samanrekið. Persónulegir eiginleikar: traust, þolinmæði, rólyndi, hlýleiki, það hlustar, gefur öryggi og kærleika þegar það er í jafnvægi!“ Blandast þetta ekki eitthvað? „Jú, hver og einn er misjöfn blanda af vata, pitta og kapha og þarf að gera sér grein fyrir hvaða dósja (samsetning eiginleika) er ríkjandi! Með því að kynna sér ein- kenni vpk má greina rétta samsetn- ingu og hvað er ríkjandi hjá ein- staklingnum því að matarval verður að vera í samræmi við hvaða dósja er ráðandi í líkamsgerðinni (prak- ruti).“ Hvernig má greina þetta? „Slík greining getur átt sér stað hjá leiðbeinanda eða með lestri góðra ayurvedíska bóka. Sama samsetning (vpk) í líkama og mat- arræði fer ekki saman sé ójafnvægi til staðar því þá erum við farin að ofbjóða líkamsgerðinni okkar af sömu frumefnunum og þegar eru ráðandi fyrir og myndum þar af leiðandi ójafnvægi! Matur er andlegur – hugurinn nærir líkama og sál. Ef við höfum alltaf ofboðið lík- ama og sál í mataræði, hegðun og lífsstíl er augljóst að við myndum ójafnvægi sem hefur gífurleg áhrif á boðsendingar heilans sem svo leiðir til allskonar sjúkdóma sem við þekkjum í samfélagi okkar í dag s.s. offitu, þunglyndi, annorexíu, stress o.fl. Með mataræði sem hentar þinni líkamsgerð er hægt að hafa áhrif á þessar boðsendingar og hjálpa lík- amanum að lagfæra það sem hefur orðið sjúkt! Líkamsgerð sem er ekki lengur ofboðið og því ekki að streitast á móti og nærist í sam- ræmi við sína líkamsgerð (prakruti) fer að vinna á allt annan máta. Jafnvægi og vellíðan kemur í stað stress og græðgi og hægt og rólega myndast næði í líkama og sál til að rétta og laga kvilla og sjúkdóma sem hafa myndast vegna ójafn- vægis í líkamsgerð. Hreinsunarleiðir ayurveda Ýmsar ítarlegar hreinsunarleiðir er að finna í ayurveda fyrir utan breyttar matarvenjur. Má þar nefna: föstur, nudd, húðburstun, gufuböð, heilbrigða hreyfingu, jóga, hugleiðslu sem er hægur aðgangur að hér á landi. Mest þekktasta hreinsunarleiðin hins vegar er panchakarma sem þýðir 5 aðgerðir. Panchakarma er ítarleg aðferð til að hreinsa eitur- efni úr líkama. Sérunnar olíur fyrir viðkomandi líkamsgerð eru notaðar bæði inn- vortis og útvortis. Þessar olíur eru blandaðar ólikum jurtum fyrir ólík- ar líkamsgerðir (prakruti) einnig er tekið tillit til sjúkdóma eða kvilla. Byrjað er á olíuinntöku sem er oftast ghee (skírt smjör) í nokkra daga síðan tekur við olíunudd/ meðferð með tilheyrandi jurtum í samræmi við líkamsgerð. Tilgang- urinn er að mýkja dósjurnar (dosha) svo að eiturefnin losni og auðveldara sé að beina þeim að úr- gangslosunarlífærum líkamans. Þegar að þessu stigi er komið þarf að hjálpa líkama að losa sig að fullu en slíkt er oftast gert með stólpípu (basti) eða jurtablöndu í olíu. Einn- ig er notuð svitameðferð er þar los- ar líkaminn sig við eiturefni í gegn- um svitakirtla. Panchakarm er gerð undir leiðsögn ayurveda-læknis. Ayurvedískar heilsubótarstöðvar finnast um allan heim má nefna England, Þýskaland, Svíþjóð, Bandaríkin sem dæmi fyrir utan Indland.“ Þess má geta að Sigurlín hefur aðstoðað Íslendinga á meðferð- arstað á Indlandi. „Það að þekkja sína líkamsgerð (prakruti) – að hlusta á sína líkams- gerð og sinna í framhaldi þessu dýrmæta farartæki sem okkur hef- ur verið gefið, stuðlar að andlegri og líkamlegri vellíðan, skýrari hugsun, betri ákvörðunartöku, meira frelsi, stöðugleika, góðum aga og betri tengingu við sjálfið.“ Lifandi vísindi Indversk heilsufræði er vinsæl, enda er þessi heilsufræði mörgum uppsprettulind hvað andlega og líkamlega heilsu snertir. Sigurlín Guðjóns- dóttir hefur lagt sig mjög eftir þessum fræðum. Morgunblaðið/Frikki Lifandi vísindi „Vera mín í Indlandi beindi athygli minni að Ayurveda,“ segir Sigurlín um forn indversk heilsufræði. Leitaðu ráða hjá lækninum þínum um nýjar aðferðir til að hætta að reykja Ís le ns ka VT R 38 74 3 08 .2 00 7

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.