Morgunblaðið - 29.08.2008, Side 30
30|Morgunblaðið
Árið 1939 var Guðmunda Elíasdóttir19 ára nemandi í Det KongeligeKonservatorium í Kaupmanna-höfn. Sumir skólafélagar hennar
þar voru grænmetisætur og voru afskaplega
ánægðir með að vera svona „hreinir“ að
innan.
„Ég vildi líka verða svona „hrein“ að inn-
an og ákvað að prófa að verða grænmet-
isæta,“ segir Guðmunda og hlær.
Hún hafði verið samskipa frá Íslandi Olav
og Sigríði Madsen, sem bjuggu í Jægers-
borg í útjaðri Kaupmannahafnar. Þangað
lagði Guðmunda á sig að hjóla til þess að
sækja gulrætur en af þeim áttu hjónin nóg.
Hún fór svo með gulræturnar í körfu á hjól-
inu sínu inn í borgina og þótti þetta mikil
búbót.
Sauð gulræturnar á prímus
„Gulræturnar sauð ég á steinolíuprímus
og lifði svo lengi á þessari fæðu nær ein-
tómri að ég var farin að kasta upp. Ég verð
að viðurkenna að enn í dag þykja mér gul-
rætur ekki góðar.
Ég hafði auðvitað kynnst gulrófum heima
á Íslandi, stolið þeim villt og galið úr görð-
um og sé ekki eftir því. „Gulrófur eru sí-
trónur norðursins,“ sagði fyrirlesari einn
sem fjallaði um grænmeti í Kaupmannahöfn
í fyrirlestri sínum. En annað grænmeti var
torfengið á Íslandi á mínum uppvaxt-
aráum,“ segir Guðmunda.
En það var ekki fyrr en hún var gift
Henrik Knudsen, gullsmiði sem hún bjó
með í Holte í Kaupmannahöfn og var búin
að eignast eitt barn með, að hún kynntist
Kristine Nolfi.
„Ég var slæm í maga og mér datt í hug
að reyna að fara til Nolfi læknis, sem mikið
var látið af og lét sjúklinga sína borða hrá-
fæði. Hún rak endurhæfingarstöðina Hum-
legaarden, þangað langaði mig að fara en
miklar biðraðir voru og það var dýrt svo ég
lét nægja að sækja mér ráð til Nolfi og þau
dugðu mér vel.
Hún ráðlagði mér að borða sem mest hrá-
fæði, þar á meðal malað korn með rifnum
eplum og mjólk út á. Einnig var hún mjög
hrifin af hvítlauk og sagði mér að skera
hann smátt, taka niðursaxaðan hvítlaukinn
á hnífsblaðið og hafa við höndina glas af
ískaldri mjólk, skella svo í mig lauknum og
mjólkinni strax á eftir og þá kæmi engin
lykt. Þetta gerði ég.
Grænmetisskrímslið
Ég hef átt frá unglingsárum vanda til að
fá dofa um allan líkamann stöku sinnum og
ráð Nolfi dugðu mér til að halda þessu
niðri. Þetta allt saman átti sér stað í miðri
heimsstyrjöldinni síðari.“
Annað barn Guðmundu fæddist haustið
1947.
„Það þótti sérstakt að ég nærðist ein-
göngu á grænmeti meðan ég gekk með
hann,“ segir Guðmunda.
„Mumma, ef þú hættir ekki að éta þetta
grænmeti veður barnið skrímsli,“ sögðu ís-
lenskir vinir hennar við hana.
„En grænmetisófreskjan reyndist hraust-
ur og myndarlegur drengur og ég hélt mín-
um næringarvenjum og mjólkaði vel. Þegar
hann hætti á brjósti var hann einnig gerður
að grænmetisætu og óx vel og dafnaði.
Maðurinn minn var hins vegar ekki hrifinn
af grænmetinu, hann vildi kjöt. En Nolfi
hvatti mig til að saxa grænmeti á brauðið
sem hann hafði með sér í vinnuna. Svo kom
hann eitt sinn til mín og bað um fleiri sneið-
ar með „þessu niðursaxaða“, „strákarnir
borða þetta frá mér“, sagði hann.
Ég saxaði enn meira grænmeti fyrir hann
með glöðu geði.
Ég hef alltaf meira og minna verið á
grænmetisfæði síðan ég fór til Kristine
Nolfi, hún hafði mikil áhrif á mataræði mitt
og það til góðs,“ segir Guðmunda.
Humlegaaraden Heilsuhæli danska læknisins Kristine Nolfi, þar fengu margir bót meina sinna. Nolfi hélt fram að rangt matarræði ætti nokkra
sök á ýmsum sjúkdómum, ekki síst því sem við köllum menningarsjúkdóma, svo sem sykursýki, ýmsa meltingarsjúkdóma og jafnvel gigt.
Frumkvöðull Kristine Nolfi var í frum-
kvöðlasveit lækna sem töldu að grænmeti,
einkum hrámeti, læknuðu fólk af ýmsum sjúk-
dómum og kæmu í veg fyrir veikindi. Eftir
hana kom út hér 1951 bókin Lifandi fæða,
þýdd á íslensku af Birni L. Jónssyni lækni.
Á hráfæði Kristine Nolfi
Hress Guðmunda Elíasdóttir söngkona hefur
lifað mikið á grænmeti og um tíma á hráfæði
að tilvísan læknis.
Sumir eru grænmetisætur en
fæstir þeirra borða eingöngu
hráfæði. Guðmunda Elías-
dóttir söngkona lifði sem ung
talsverðan tíma á hráfæði að
tilvísan danska læknisins
Kristine Nolfi.
1. Hugsaðu jákvætt, það er léttara
2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um
3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir
4. Lærðu af mistökum þínum
5. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina
6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu
7. Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig
8. Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup
9. Finndu og ræktaðu hæfileika þína
10. Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast
GU
TE
NB
ER
G
31
21
5
GEÐORÐIN 10
holar@simnet.is
Bók sem
hefur hjálpað
mörgum til
betra og
heilsusamlegra
lífs.
Heilsu-
átak
dr. Gillian
McKeith
Mataræði
sem veitir þér vellíðan
allt til æviloka
AR
HEILSUÁTAK
Inniheldur 22 valin bætiefni,
12 vítamín og 10 steinefni.