Morgunblaðið - 29.08.2008, Qupperneq 31
Morgunblaðið |31
Hreyfing eða öllu heldur hreyfingarleysi barnaog ungmenna hefur verið mikið í umræðunnisíðustu misseri og skal engan undra þar semmargar rannsóknir benda til aukinnar kyrr-
setu og lélegs mataræðis þeirra, segir Gígja Þórðardóttir
sjúkraþjálfari, faglegur deildarstjóri kennara, þjálfara og
námskeiða hjá World Class.
Alltaf þjálfari í sal
„Salurinn heitir Shokk og er að breskri fyrirmynd en
nú þegar eru fjölmargir slíkir salir víða um heiminn. Sal-
urinn er búinn flottum og fjölbreyttum æfingatækjum
með lóðum sem passa þessum aldurshópi. Það er alltaf
þjálfari í salnum sem er börnunum innan handar og leið-
beinir og fræðir börnin um hreyfingu og heilbrigði.. Til að
auka fjölbreytileikann er stundum útileikfimi, vinadagar,
stöðvaþjálfun og fleira sem hressum krökkum finnst
skemmtilegt. Það eru krakkar af öllum stærðum og gerð-
um sem sækja Shokk-salinn. Íþróttakrökkum þykir gam-
an að bæta við sig nýjum æfingum til að auka getu í þeirri
íþrótt sem þeir stunda, krakkar sem ekki finna sig í hóp-
íþróttum una sér mjög vel í salnum enda fá allir að æfa á
því álagi sem þeim hentar og flestir fá útrás og líður betur
á sál og líkama að púli loknu. Það er því fjör og fjölbreyti-
leiki í fyrirrúmi í Shokk-salnum í World Class í Laugum.
Mikilvægi samveru
Eitt atriði er vert að minnast á og það er að sífellt er
verið að minna á mikilvægi nægrar samveru foreldra og
barna og fólk talar um að erfitt sé að finna tíma fyrir
vinnu, skóla, tómstundir, hreyfingu og allt það sem fylgir
því að tilheyra fjölskyldu. Það sem við höfum orðið vör við
í Shokk-salnum er að börnin æfa á sama tíma og foreldr-
arnir og svo fara allir saman í Laugardalslaugina, fá sér
gott að borða á Laugar Café eða notfæra sér þá fjöl-
breyttu afþreyingu sem í boði er í Laugardalnum. Þá er
búið að slá tvær flugur í einu höggi, hreyfa sig og fá meiri
tíma saman og allir eru glaðir og endurnærðir.“
Gaman Lífið í Shokksalnum býður upp á margt skemmtilegt. Kapp Það er mikið kapp í ungum mönnum í Shokk salnum í World Class.
Shokk – Lífmikil líkamsrækt
Morgunblaðið/Frikki
Þjálfari Gígja Þórðardóttir kann að koma línunum í lag.
Trönuhrauni 6 • 220 Hafnarfjörður • Sími: 565 1533 • Fax: 565 3258
Útilíf Smáralind, Kringlunni og Glæsibæ // Markið // Intersport // Hreysti
Afreksvörur // Fitness Sport // Hlaup.is // Halldór úrsmiður Glerártorgi
Bowel Biotics+
Einstök formúla fyrir heilbrigði maga og ristils
- ráðlagtafmeltingarlæknumog heilsusérfræðingum
PhysilliumHusk
Prebiotica Inulin FOS
Probiotics 5 tegundir
mjólkursýrugerla
Vinsælastamagaheilsuefnið
í Bretlandi og víðar
Ummæli íslenskra neytenda:
„Það besta og fljótvirkasta sem við höfum prófað”
Bowel Biotics+ Kids Sérstaklega
samsett svo hæfimeltingu barna
Fæst í apótekum og heilsubúðum Celsus
YOGA •YOGA • YOGA
- RÉTT SLÖKUN losar um spennu í vöðvum, róar og kyrrir
hugann.
- LÍKAMLEG ÁREYNSLA Í ÆFINGUM. Þá styrkjum við vöðva,
liðbönd, liðamót, mýkjum hrygginn og örvum blóðrás.
- RÉTT ÖNDUN þýðir að anda djúpt og vel.
- RÉTT FÆÐI sem stjórnast af hófsemi og fjölbreytni.
- JÁKVÆTT HUGARFAR. Að beina huganum jákvætt að
verkefnum dagsins strax að morgni.
Morgun-, hádegis-, síðdegis- og kvöldtímar.
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, sími 588 5711 og 694 6103
www.yogaheilsa.is • yogaheilsa@yogaheilsa.is
Sértímar fyrir:
barnshafandi konur og byrjendur,
einnig sértímar fyrir lengra komna.