Morgunblaðið - 29.08.2008, Síða 32

Morgunblaðið - 29.08.2008, Síða 32
32|Morgunblaðið Núna hinn 18. októberheldur Íslenska fitness-félagið stórt alþjóðlegtIFF Evrópumeist- aramót Fit Kid og Fitness Woman. „Um 80 þátttakendur eru vænt- anlegir frá 12 þátttökuþjóðum auk þjálfara og aðstandenda,“ segir Krisztina G. Ageuda, formaður Ís- lenska fitnessfélagsins, IFF. „Um er að ræða glæsilegt sjón- arspil þar sem þessar keppnir líkj- ast á margan hátt frekar stór- tónleikum en íþróttakeppnum. Sjónvarpað verður frá keppninni í öllum helstu þátttökulöndum,“ segir Krisztina. En hvað er Fit Kid? „Fit Kid er alþjóðlegt heilsuefl- ingarkerfi fyrir börn frá 6-16 ára og byggist á fjölbreyttri íþrótt sem sameinar dans, fimleika, þolfimi og styrktaræfingar. Markmið Fit Kid er að beina börnum inn á braut heilbrigðra lífs- hátta án öfga eða staðlaðrar líkams- myndar og bæta þannig bæði lífs- gæði þeirra og sjálfsmynd til framtíðar. Nýtt af nálinni á Íslandi Fitkid hefur verið í stöðugri út- breiðslu síðastliðin 10 ár og er vel þekkt erlendis þrátt fyrir að vera nýtt af nálinni á Íslandi. Fit Kid námskeið eru haldin í Hreyfilandi, Reykjavík, og í Átaki á Akureyri en öllum íþróttafélögum og líkamsræktarstöðvum stendur til boða að taka þátt í Fit Kid- kerfinu.“ Er mikill áhugi fyrir þessu starfi? „Já, æfingakerfið er ætlað börn- um og þau eru mörg sem taka þátt, en mótið í Laugardalshöllinni er fyrir alla aldursflokka. Yngsti kepp- andinn er frá Íslandi, hann er sjö ára.“ Kemur frá Ungverjalandi Hvaða er þetta kerfi upprunni? „Það er frá Ungverjalandi, barst til Spánar 2003 og síðustu fimm ár- in hefur það borist til æ fleiri landa. Sjálf er ég frá Ungverjalandi og lærði þetta kerfi þar og í tengslum við það kom ég til Íslands og starfa nú hjá Íslenska fitnessfélaginu. Þess má geta að fimm íslensk börn tóku þátt í sumarbúðum í Ung- verjalandi í þessu æfingakerfi og tókst það mjög vel og ráðgert að sumarbúðir þessar áfram en móti næsta alþjóðamót IFF verður hald- ið á Spáni á næsta ári.“ Hvetur börn til að hreyfa sig Á hvað leggur þetta kerfi mesta áherslu? „Að hvetja börnin til að hreyfa sig og temja sér heilbrigðan lífsstíl. Lagt er áhersla á að börnin læri að hreyfa sig og njóti sín í hreyfing- unni við tónlist og þetta líka viðbót við íþróttakerfið á Íslandi. Allir sem stunda íþróttir eru velkomnir til að taka þátt í þessu æfingakerfi okkar. Mig langar að geta þess að við eru ennþá að leita að fullorðnum konum sem vilja vera fulltrúar Ís- lands á umræddu alþjóðamóti IFF í október.“ Gólfæfingar Áhuginn leynir sér ekki og börnin eru fótfim. Áhugasöm Börnin eru dugleg að æfa sig og tileinka sér nýjungar. Alþjóðlegt stórmót í Laugardalshöll Morgunblaðið/G.Rúnar Kröftug Krisztina G. Ageuda for- maður Íslenska fitnesfélagsins IFF. Fyrirmynd „Fyrstu árin skipta máli fyrir framtíð barnsins, í hvernig um- hverfi það er alið upp og við hvers konar venjur,“ segir Krisztina G. Agueda leikfimikennari og eigandi Hreyfilands. Ákveðin Þessi litla stúlka lætur ekki sitt eftir liggja í æfingunum. Hinn 18. október næst- komandi er á dagskrá stórviðburður í Laug- ardalshöll. Í fyrsta skipti á Íslandi heldur Íslenska fitness- félagið, IFF, stórt al- þjóðlegt mót að sögn Krisztinu G. Ageuda, formanns félagsins. Samvera Hreyfiland er engin venjuleg heilsuræktarstöð heldur er hún hönnuð með yngstu kynslóðina í huga og samveru yngri sem eldri. Dans, lifandi tónlist og ósvikin afrísk stemmning. Frábær hreyfing fyrir síunga og yngri. Gerðu líkamsræktina að þinni bestu skemmtun. Verðum með opna afrótíma í Baðhúsinu á mánudögum og miðvikudögum kl. 19:40. Kennsla hefst 15. sept. Verðum reglulega með sérstaka tíma fyrir þá sem vilja læra meira. Trommunámskeiðin hefjast um miðjan september. Bjóðum einnig uppá sérsniðin námskeið og staka tíma fyrir alla aldurshópa ásamt heimsóknir í leikskóla, skóla o.fl. Nánari upplýsingar: Afróskólinn: missgrendal@hotmail.com Sími: 849 6554 (Sigrún) Kennararnir Sigrún, Agnes og Cheick hafa stundað langt og strangt nám í afródönsum og trommuslætti í Gíneu. Þau hafa kennt saman um árabil og staðið fyrir námskeiðum og ýmsum uppákomum víða um lönd. KRAFTGANGA Í ÖSKJUHLÍÐ • Frískt loft eykur ferskleika • Útivera eykur þol Alhliða líkamsþjálfun jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna Boðið verður upp á tvenns konar tíma. Byrjendatímar og tímar fyrir þá sem eru vanir líkamsþjálfun. Haust- og vetrarstarfsemi hefst þann 1. september nk. sjá tímatöflu á kraftganga.is Skráning og fyrirspurnir sendist á netfangið kraftganga@kraftganga.is eða í síma 899 8199. Frekari upplýsingar á www.kraftganga.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.