Morgunblaðið - 29.08.2008, Page 37

Morgunblaðið - 29.08.2008, Page 37
Börn með ofnæmi eru oft talsvert illa stödd ídaglegu umhverfi okkar þar sem matvæliog fleiri vörur eru oft ekki nægilega velmerktar. „Mig langar að segja ykkur frá vandræðum sem ég lendi í nánast daglega. Ég á litla stelpu sem er með bráða-hnetuofnæmi ásamt því að hún er með ofnæmi fyrir soja,“ segir Hrönn Guðjónsdóttir heilsunuddari. „Þó að hnetuofnæmið geti verið mjög hættulegt er ekkert mál að forðast að hún borði vörur sem inni- halda hnetur, af því að innihaldslýsingar á þeim vörum eru orðnar mjög góðar. Það klikkar ekki að ef hnetur eru í vörum er það vandlega tilgreint,“ bætir hún við. Sojavörur illa merktar „Hins vegar þegar ég skoða innihaldslýsingar varð- andi soja er annað upp á teningnum. Mjög stór hluti af þeim matvörum sem ég kaupi gætu innihaldið soja án þess að maður viti, vegna þess að matvælaframleiðendur og birgjar eru ekki með nákvæmar innihaldslýsingar á vörum sínum. Nánast allt kex, sælgæti, kjötkraftur, unnar vörur, til- búnir kjöt- og fiskréttir, nautahakk, smjörlíki, majó- nessósur o.s.frv. eru flest með jurtaolíu eða jurtafeiti sem þýðir að olían getur verið sojaolía, sólblómaolía, repjuolía o.s.frv. Þá þarf ég að hringja eða senda tölvupóst og gera fyrirspurn til að fá nákvæma innihaldslýsingu,“ segir Hrönn. „En eitt símtal eða tölvupóstur dugar langoftast ekki. Ég bíð oft vikum saman eftir svari og þarf svo oft að ítreka þessa beiðni mína nokkrum sinnum. Stundum gefst ég hreinlega upp. Vandræði á veitingastöðum Eins getum við ekki farið með barnið á veitingastað því þar lendir kokkurinn í sömu vandræðum, hann þarf að lesa á allt hráefni og ekki getur hann staðið í því að hringja út um allt í þeirri von að fá svar um innihald strax. Ofnæmislæknirinn okkar sagði mér fyrir skömmu að nú væri komið í lög að það yrði að taka fram ef vara innihéldi soja. Hann talaði um að umhverfissvið væri með nánari upplýsingar um þetta. En svo ég segi nú frá einhverju jákvæðu líka þá eru nokkur fyrirtæki með alveg frábæra heimasíðu eins og t.d. http://myllan.is og vorur/ofnaemi.htm, þar get ég farið inn og séð nákvæmlega hvað hver vara inniheldur,“ bætir Hrönn við. Hún kveðst eðlilega beina sínum viðskiptum til slíkra fyrirtækja. „Til er listi yfir sojapróteinlaust fæði sem hægt er að fá sendan frá næringarfræðingi ef leitað er eftir því. Ég fékk slíkan lista sendan og á honum eru mjög ýtarlegar upplýsingar um matvæli sem innihalda soja,“ segir Hrönn. „Þess ber að geta að allar ósamsettar matvörur má borða frjálst, eins og grænmeti (en þó ekki sojabaun- ir), ávexti, nýtt, reykt og saltað kjöt og fisk. Það er mjög gott að vita þetta. Fyrir vikið erum við öll í fjöl- skyldunni farin að borða hollari mat.“ Barn með hnetu- og sojaofnæmi Morgunblaðið/Valdís Thor Mæðgur Hrönn og Dagný dóttir hennar þurfa á þolgæði og athygli að halda svo þær geti varast hnetu- og sojaofnæmi litlu stúlkunar. Varúð Margar tegundir af hnetum eru til og það er nauðsynlegt fyrir þá sem hafa hnetuofnæmi að varast þær allar og allan mat sem þær eru í. Sojabaunir Þær þurfa þeir að varast sem hafa ofnæmi fyrir þeim. Stundum skortir mjög á merkingar á matvælum sem innihalda ein- hverskona soja. Hnetu- og sojaofnæmi hjá barni skapar mikla umhugsun hjá for- ráðamönnum. Margt er þá að var- ast, segir Hrönn Guðjónsdóttir heilsunuddari, en telpan hennar 5 ára hefur verið greind með þess háttar ofnæmi. Morgunblaðið |37 Byggð á tilfinningavinnu og slökunaröndun. Sjálfshjálparbók. Námskeið fyrir fagfólk og aðra. Þaulreynd og árangursrík sjálfstyrking! Sjá nánar www.baujan.is Sími 699 6934 Baujan, sjálfstyrking Klassískt nudd Árangursrík olíu- og smyrslameðferð með ívafi íslenskra jurta. 25 ára reynsla Steinunn P. Hafstað félagi í FÍHN s. 586 2073, 692 0644. Geymið auglýsinguna                      Swopper vinnustóllinn www.eirberg.is  569 3100  Stórhöfða 25 Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.