Morgunblaðið - 17.09.2008, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 7. S E P T E M B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
254. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
Leikhúsin
í landinu >> 37
REYKJAVÍKREYKJAVÍK
ALLSHERJARGLÓSU-
BÓK UM ANIMAL FARM
DAGLEGTLÍF
Hvernig er tískan
í hjólahjálmum?
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
BJÖRGUNARSVEITIR sinntu víða útköllum í
gærkvöldi vegna óveðurs sem gekk yfir sunnan-
og vestanvert landið. Því fylgdi mikill vindur og
úrkoma. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins veitti í
gærkvöldi aðstoð vegna vatnsleka og foks. Þá
fauk óbundin lítil flugvél á girðingu á Reykjavík-
urflugvelli. Veðrið hafði ekki truflandi áhrif á
millilandaflug í gær.
Snarvitlaus veður var komið í Ólafsvík í gær-
kvöldi, rok og úrhellisrigning. Þar var vindhrað-
inn talinn ná a.m.k. 30 m/s í verstu hviðunum. Á
Hellissandi var beðið um aðstoð björgunar-
sveitar vegna þakplatna sem voru að fjúka. Þar
var sunnanstormur og fóru vindhviðurnar í 31
m/s. Nokkrar beiðnir um aðstoð bárust á Suð-
urnesjum vegna foks á þakplötum og lausum
munum. Á höfuðborgarsvæðinu bárust björg-
unarsveitum hjálparbeiðnir úr Hafnarfirði,
Reykjavík og Kópavogi. Þar voru að fjúka m.a.
þakplötur, vinnupallur, laust dót og tjald forn-
leifafræðinga í Aðalstræti, samkvæmt upplýs-
ingum Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands sagði að
veðrið yrði harðast til að byrja með vestan til á
landinu. Vindstrengurinn átti síðan að færast
austur yfir landið. Lægðin sem olli óveðrinu var
djúp og fylgdi henni mjög mikil úrkoma. Leifar
fellibylsins Ike, sem gerði mikinn óskunda vest-
anhafs á dögunum, slógu sér saman við lægðina.
Veðurfræðingurinn sagði viðbúið að meðalvind-
hraði næði 20-25 m/s nokkuð víða meðan versta
veðrið gengi yfir. Þá mætti búast við úrhellis-
rigningu á Suður- og Vesturlandi.
Vindur átti að snúast í SV 13-18 m/s með skúr-
um í dag vestan til. Austanlands átti að verða
heldur hægara.
Víða útköll vegna foks og flóða
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Ólafsvík Vitlaust veður var í Ólafsvík í gærkvöldi og þar treystu menn landfestar báta sinna. Björgunarsveitir höfðu í nógu að snúast.
Vitlaust veður á Snæfellsnesi í gærkvöldi Veðrið gengur austur yfir í dag
Ný rannsókn á þátttöku barna
innflytjenda í íþrótta- og tóm-
stundastarfi í Breiðholti hefur leitt
í ljós að þau taka síður þátt í slíku
starfi en önnur börn.
Ýmsar ástæður eru nefndar s.s.
tungumálaörðugleikar. Sumir for-
eldrar vildu gjarnan að börnin
tækju þátt en þau vissu ekki hvert
þau ættu að snúa sér.
Rannsóknin leiddi sömuleiðis í
ljós að miklar brotalamir eru á
skráningu innflytjendabarna, bæði
í íþróttafélögum og í skólakerfinu
og það reyndist rannsakendum örð-
ugt að fá nákvæmar tölur um fjölda
innflytjendabarna í hverfinu. » 20
Taka síður þátt í íþróttum
Íransk-banda-
ríski listamaður-
inn Shirin Nesh-
at hlýtur í ár
verðlaun fyrir
framúrskarandi
listræna kvik-
myndasýn á
RIFF. Listasafn
Íslands mun einnig halda sýningu á
myndverkum hennar meðan á há-
tíðinni stendur. „Myndir hennar
bera með sér svo sterkan og áhrifa-
ríkan boðskap að maður getur ekki
annað en heillast,“ segir Hrönn
Marinósdóttir, stjórnandi hátíðar-
innar. » 38
Neshat heiðruð á RIFF
og í Listasafni Íslands
Gengi hlutabréfa deCODE, móð-
urfélags Íslenskrar erfðagrein-
ingar, hefur hrunið á bandaríska
Nasdaq-markaðnum það sem af er
vikunni. Í fyrradag lækkuðu bréfin
um nærri 19% og í gær um 27,54%.
Þá var gengi þeirra orðið aðeins 50
sent og hafði aldrei verið lægra.
Bréf deCODE voru skráð á
Nasdaq í júlí árið 2000 að undan-
gengnu útboði þar sem útboðsgengi
var 18 dalir á hlut. Fyrsta daginn á
Nasdaq fór gengið upp í 31,5 dali.
DeCode lækkar
ERLENDAR skuldir heimilanna
hafa hækkað um 129% á einu ári
og eru nú um 245 milljarðar
króna. Á sama tíma hefur gengi
krónunnar fallið um 43% og er
genginu því ekki einu um að
kenna hvernig komið er.
Í september 2007 námu erlend-
ar skuldir heimilanna hjá innlend-
um bankastofnunum tæpum 110
milljörðum króna, en voru í júlí
um 230 milljarðar. Miðað við
breytingar á gengi krónunnar frá
þeim tíma hafa ríflega 15 millj-
arðar lagst ofan á skuldabyrði
heimilanna.
Ásta S. Helgadóttir, forstöðu-
maður Ráðgjafarstofu um fjármál
heimilanna, segir þeim hafa fjölg-
að mikið sem leita sér aðstoðar
hjá stofunni. Starfsmanni hefur
verið bætt við, en samt er bið-
listinn töluvert langur, að sögn
Ástu.
Hún segir að áberandi sé hve
mikið af mjög skuldsettu fólki
sæki til sín nú. „Það eru verðbólg-
an, erlend lán og umframeyðsla
sem helst hafa áhrif á greiðslu-
byrði fólks. Þá eru vextir á lánum
mjög háir. Margir okkar skjól-
stæðinga tóku erlend lán, m.a. til
bílakaupa.“ Ásta segir nú svo
komið að jafnvel þótt fólk vilji
selja eignir til að minnka
greiðslubyrði sitji það oft eftir
sem áður uppi með töluverðar
skuldir finnist yfirhöfuð kaupandi
að eigninni. „Höfuðstóll skuldar-
innar er þá orðinn hærri en verð-
mæti eignarinnar,“ segir Ásta.
bjarni@mbl.is
Stöðugt fleiri leita að-
stoðar vegna skulda
Erlend lán heimila hafa hækkað um nærri 130% á einu ári
INNLÁNSREIKNINGAR íslensku
bankanna á Bretlandseyjum, Ice-
save hjá Landsbankanum og Kaup-
thing Egde hjá Kaupþingi Singer
Friedlander, hafa gildnað síðustu
daga eftir að ótti greip um sig meðal
breskra sparifjáreigenda. Þannig
var hinn svarti mánudagur sá fjórði
besti frá upphafi hjá Kaupþingi.
„Sparifjáreigendur í Englandi
urðu þá eitthvað hræddir um sína
banka og settu peningana inn til
okkar,“ segir Guðni Aðalsteinsson,
framkvæmdastjóri fjárstýringar hjá
Kaupþingi, en á mánudag féll hluta-
bréfaverð í bönkum eins og HBOS
og Barclays. Guðni segir Kaupþing
ekki hafa orðið vart við neikvæð við-
brögð við umfjöllun erlendra miðla
um áhættusækna íslenska banka.
Bankarnir hafa lokið endurfjár-
mögnun þessa árs upp á 820 millj-
arða króna og eru langt komnir með
fjármögnun næsta árs, en þá koma
langtímalán á gjalddaga að andvirði
um 6,6 milljarða evra, eða um 850
milljarðar króna á núvirði. Nú þegar
markaðir með skuldabréf eru nánast
lokaðir leggja bankarnir aukna
áherslu á innlánareikningana.
bjb@mbl.is
Treysta íslensku
bönkunum betur
Mánudagurinn góður hjá Kaupþing Edge
Banki Höfuðstöðvar Kaupþings.
89,2
Gengi evru fyrir ári
130,5
Gengi evru nú
109,3
milljarðar
Erlendar skuldir heimila fyrir ári
246,8
milljarðar
Erlendar skuldir heimila nú
Bankakreppa | 12-13