Morgunblaðið - 17.09.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.09.2008, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is BORVERKEFNI sem Orkuveita Reykjavíkur hefur falið Jarðbor- unum miðar að því að afla gufu til að meira en tvöfalda rafmagnsfram- leiðslu Orkuveitunnar á Hellisheiði. Orkuveita Reykjavíkur samdi við Jarðboranir hf. um verkefnið á grundvelli útboðs á Evrópska efna- hagssvæðinu þar sem Jarðboranir voru eini bjóðandinn. Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar, er eigi að síður ánægður með niður- stöðuna þar sem tilboð Jarðborana var um 90% af kostnaðaráætlun ráð- gjafa OR. Orkuveitan greiðir 13,4 milljarða kr. fyrir borun 50 holna á Hengilssvæðinu, þar af eru 35 há- hitaholur og 15 niðurrennslisholur. Samningurinn felur í sér stærsta einstaka borverkefni sem ráðist hef- ur verið í hér á landi. Boraðar verða 20 háhitaholur til að ljúka öflun gufu til tveggja nýrra virkjana; nýrrar Hellisheiðarvirkj- unar og Hverahlíðarvirkjunar, á næsta og þarnæsta ári. Áætlað er að nýja Hellisheiðarvirkjunin komist í gagnið á síðari hluta árs 2010 og Hverahlíðarvirkjun á fyrri hluta árs 2011. Hverahlíðarvirkjun er enn í skipulagsferli sem búist er við að ljúki á næstu vikum. Á sama tíma verða boraðar 12 niðurrennslisholur. Uppsett afl í Hellisheiðarvirkjun verður 213 megavött á næstunni, þegar lokið verður við uppsetningu síðustu vélarinnar þar. Nýju virkj- anir verða hvor um sig 90 MW. Orkuveitan hefur pantað hverfla fyr- ir þessar virkjanir og að auki einn hverfil sem hefur ekki verið ráð- stafað. Hugsanlegt er að hann verði settur í nýju Hellisheiðarvirkjunina og að þangað verði leidd gufa frá Gráhnjúkum. Með þessu yrði upp- sett afl nýrra virkjana 225 MW sem er heldur meira en nú er á svæðinu. Þær fimmtán holur sem Orkuveit- an mun láta bora í framhaldinu nýt- ast til öflunar gufu fyrir aukahverfil- inn og á Ölkelduhálsi ef Orkuveitan ákveður að hefja á ný undirbúning að Bitruvirkjun. Boraðar 50 nýjar hol- ur á Hengilssvæðinu Morgunblaðið/RAX Ölkelduháls Háhitaholur verða boraðar á Ölkelduhálsi ef stjórn Orkuveitu Reykjavíkur ákveður að hefja á ný undirbúning að Bitruvirkjun. Raforkufram- leiðsla tvöfölduð á Hellisheiði „VIÐ VERÐUM að leita nýrra leiða og bjóða upp á önnur úr- ræði,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, á fundi borgar- stjórnar í gær, en þá var til um- ræðu mannekla á frístundaheimilum. Hanna Birna segir það hafa verið á meðal kosn- ingaloforða allra flokka fyrir síð- ustu sveitarstjórnarkosningar að leysa úr þessum vanda, og því sé mikilvægt að borgarfulltrúar vinni vel að málum, sameiginlega. Þegar hafa verið ráðnir tveir starfsmenn til að leiða verkefni sem samþykkt var á síðasta fundi borg- arráðs. Það miðar að gerð tillagna um hvernig leysa megi manneklu og aðstöðuvanda heimilanna. Hanna Birna benti á að á einni viku hefur verið tryggt að 500 fleiri börn fái þjónustu og lofaði hún þann árangur, sem hafi breytt heil- miklu fyrir fjölmargar fjölskyldur. Hún bætti þó við að enn séu um 900 börn sem bíði eftir plássi, og því verði að vinna hratt að málum. Alls hafi 2.813 umsóknir um pláss á frí- stundaheimili borist. Meðal þess sem verður kannað er samstarf við félagasamtök og íþróttafélög. Hanna Birna sagði lykilatriði að efla samstarf milli menntasviðs og ÍTR. andri@mbl.is Nýrra leiða leitað í frí- stundamálum Hanna Birna Kristjánsdóttir BORGARSTJÓRN Reykjavíkur samþykkti í gær að gerð verði myndastytta af borgarskáldinu Tómasi Guð- mundssyni og henni komið fyr- ir á áberandi stað í borginni, t.d. í Hljóm- skálagarðinum. Borgarfulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingar sátu hjá við af- greiðslu málsins. Mengað karllægum viðhorfum Í greinargerð með tillögunni segir að í ljósi framlags Tómasar til menningarlífs í Reykjavík og þess heiðursess, sem hann skipar í hug- um borgarbúa, fari vel á því að gerð sé af honum stytta. Í bókun frá minnihlutaflokk- unum tveimur segir að tillagan sé ekki í anda nýrrar og frjórrar hugsunar um list í opinberu rými, auk þess að vera menguð karllæg- um viðhorfum. „Styttur eru hefð- bundin leið til að upphefja ein- staklinga en ekki leið til að skapa lifandi samfélag og nýta listina í þágu borgarlífsins,“ segir í bók- uninni. Einnig er bent á að til sé brjóstmynd af Tómasi og er hún geymd á Borgarbókasafninu. andri@mbl.is Fær styttu á áberandi stað Tómas Guðmundsson JARÐSKJÁLFTI upp á 3,6 á Richter, með upptökin 6,5 km NNV af Krísuvík, varð klukkan 7.24 í gærmorgun. Skjálftinn fannst víða á suðvesturhorninu, einna helst á Reykjanesi og höf- uðborgarsvæðinu en einnig Sel- fossi, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Aðeins urðu nokkrir litlir eft- irskjálftar en fundust varla. Jarð- skjálftar eru nokkuð tíðir á þessu svæði. andri@mbl.is Fannst vel á höfuðborg- arsvæðinu GEIR H. Haarde forsætisráðherra ávarpaði ráðstefnu Alþjóðaorku- málaráðsins í Lundúnum í gær. Þar fjallaði hann um árangur Íslands í nýtingu endur- nýjanlegra orku- gjafa. Einnig um hlutverk stjórn- valda í að ryðja nýrri framtíð í orkumálum braut. Geir sagði m.a. að Sjálfstæðis- flokkurinn, sem hann veitti for- ystu, hefði staðið fyrir mikilli einka- væðingu fyrirtækja í opinberri eigu undanfarin 17 ár, að undanskildum orkufyrirtækjum. Hann sagði að það myndi stríða gegn sannfæringu sinni og stefnuskrá flokksins að halda því fram að yfirráð ríkisins í orkugeir- anum væru í meginatriðum æski- legri en einkaframtakið. Engu að síður þyrfti hvert land eða landsvæði að finna heppilegt fyrirkomulag. Hann sagði að lengi hefði ríkt samstaða meðal íslensku þjóðarinn- ar um opinbert eignarhald á þessu sviði og að til skamms tíma hefði ekki verið neinn annar fjárhagslegur valkostur. Samvinna einkaframtaks og hins opinbera stundum æskileg Geir sagði að umbreytingin frá því að nota fyrst og fremst jarðefnaelds- neyti til notkunar á endurnýjanleg- um orkugjöfum á Íslandi hefði byggst á meðvitaðri stjórnmálalegri ákvörðun. Fjárfestingin á hvern þegn hefði verið mikil í upphafi en hún hefði skilað sér. Þetta hefði tek- ist með virkri þátttöku ríkis og sveit- arfélaga, aðallega vegna þess að á þeim tíma hefði enginn annar getað tekið frumkvæðið eða útvegað fjár- magnið. Geir sagði að sumir gætu haldið því fram að slík umbreyting orkukerfis þjóðar gæti aðeins orðið fyrir tilstilli ríkisstjórnarinnar, en það réðist af staðbundnum aðstæð- um og að í sumum tilvikum gæti samvinna einkaframtaks og hins op- inbera verið æskilegri. Þá sagði Geir að um leið og ís- lenska ríkið léki jafn stórt hlutverk á orkusviðinu á heimavelli hefði það einnig skapað aðstæður sem fæddu af sér vaxandi einkaframtak í end- urnýjanlegri orku utanlands. Geir rakti einnig hvernig íslensk sérþekk- ing á sviði virkjunar vatnsafls og jarðhita hefði verið flutt til annarra landa. Opinber yfirráð orku- mála ekki æskilegri en einkaframtak Geir H. Haarde Jarðboranir verða með þrjá bora að störfum á Hengilssvæðinu næstu fjögur árin og um það bil hundrað manns. Bent S. Ein- arsson, forstjóri Jarðborana, segir að samningurinn við Orkuveitu Reykjavíkur sé fyrirtækinu mik- ilvægur. Hann tryggi stöðug verk- efni næstu fjögur árin og gefi færi á skipulagningu mannahalds, tækjabúnaðar og innkaupa til þetta langs tíma. Nýjustu borar Jarðborana verða notaðir við verk- efnið en þeir eru stærstu land- borar á Norðurlöndum. Beitt verð- ur stefnuborun sem dregur úr jarðraski því unnt er að bora nokkrar holur frá sama borstað. Jarðboranir eru með fleiri verk- efni, bæði hérlendis og erlendis, og á fyrirtækið tækjakost til að sinna þeim. Hins vegar segir Bent að ef það fái fleiri verkefni hér á landi verði að fjárfesta í nýjum tækjakosti. Samningurinn sem Orkuveita Reykjavíkur gerði við Jarðboranir felur í sér stærsta borverkefni sinnar tegundar hér á landi en hann hljóðar upp á 13,4 milljarða. Sömu fyrirtæki gerðu fyrir þremur árum samning um 30 holur og var verðmæti hans 7,8 milljarðar. Var þetta metsamningur á þeim tíma. Einu og hálfu ári fyrr gerðu Orku- veitan og Jarðboranir samning upp á 2,3 milljarða króna sem þá var einnig met í slíkum verkefnum. Hundrað manns á þremur borum SÍLD er farin að veiðast rétt austan við landið. Skip fengu tvö þúsund tonna höl í fyrrinótt. Þá fóru nokkur íslensk vinnsluskip inn í norsku fisk- veiðilögsöguna um helgina og eru þar í veiði. „Við vorum að leita og hér var tog- ari. Við ætluðum ekki að fara langt heldur leita á okkar miðum,“ sagði Sigurbergur Hauksson, skipstjóri á Berki NK 122. Börkur og Margrét draga saman troll og fengu um þús- und tonn í tveimur hölum í fyrrinótt. Sigurbergur var ánægður með það en kvaðst ekki geta dæmt um hversu mikið væri af síld þarna. Hann sagði að síldin gæfi sig í myrkrinu. Á svæð- ið voru einnig komnir Þorsteinn og Júpiter sem fengu um 350 tonna hal og Ingunn sem fékk minna enda ein að toga. „Við förum í land þegar brælir í nótt. Eitthvað á að reyna að vinna þetta,“ sagði Sigurbergur. Ætlunin var að reyna áfram í gærkvöldi og fram á nótt, þar til stormurinn sem spáð var brysti á. Íslensku vinnsluskipin sem leituðu í Síldarsmugunni eru nú komin inn í norsku lögsöguna og eru að veiða í hnapp með norskum og færeyskum skipum. Íslensk skip hafa heimild til að sækja hluta kvótans þangað. Á bloggsíðu áhafnarinnar á Hákoni EA kemur fram að síldin í norsku lögsög- unni er minni en þeir eigi að venjast. Þokkaleg veiði hefur verið, að sögn Benedikts Jóhannssonar útgerðar- stjóra hjá Eskju sem gerir út Aðal- stein Jónsson SU 11. Skipið hefur verið að fá um 200 tonn á sólarhring sem Benedikt segir að sé nóg fyrir vinnsluna. helgi@mbl.is Vel veiðist af síld rétt við land                                      ! "        #! Þokkalegur afli hjá vinnsluskipunum í norskri lögsögu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.