Morgunblaðið - 17.09.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.09.2008, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BLESGÆSIN er komin til landsins í árlegu ferðalagi sínu milli varp- stöðva í Grænlandi og vetrarstöðva á Bretlandseyjum. Blesgæsin var friðuð ótímabundið árið 2006 vegna hruns í stofninum og því er óheimilt að veiða hana. Umhverfisstofnun beindi því á sínum tíma til veiðimanna að kynna sér vel einkenni blesgæsarinnar til að geta greint hana frá öðrum gæs- um. Hér á landi verður blesgæsa helst vart í Borgarfirði og á sunn- anverðu Snæfellsnesi og á láglend- inu sunnanlands allt frá Árnessýslu og austur í Skaftafellssýslur. Líkt og undanfarin ár fer fram aldursgreining á veiddum gæsum. Dr. Arnór Þ. Sigfússon (s. 843 4924, arnor@vst.is) í Reykjavík hefur aldursgreint vængi og eins Halldór W. Stefánsson (s. 471 2553, doco@mi.is) á Austurlandi. Verk- efnið er styrkt af Veiðikortasjóði og miðar að því að meta hlutfall unga frá síðasta sumri í veiðinni. Gæsaveiðimenn eru beðnir um að senda Arnóri eða Halldóri annan vænginn af veiddum fuglum og er flutningskostnaður utan af landi greiddur. Nafn sendanda og sími eða heimilisfang, veiðisvæði og hvenær var veitt þarf að fylgja með. Einnig fara þeir félagar til veiðimanna og aldursgreina ef þess er kostur. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Brynjar Gauti Bannað Blesgæsir eru friðaðar en leyft er að veiða heiðagæs, grágæs og helsingja hér á landi. Blesgæsin er komin til landsins Gæsavængir óskast Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is ÍSLAND hefur lengi vel haft það orð á sér að vera dýr ferðamannastaður. Kostnaðurinn við ferðirnar, gist- inguna og upphaldið jafnvel valdið andköfum og hneyksl- un hjá erlendum ferðamönnum. Veik staða krónunnar virðist nú hins vegar hafa snúið dæminu við. Færeyska flugfélagið Atlantic metur að minnsta kosti stöðuna slíka að nú sé lag að auglýsa ódýrar Íslandferðir. „Við erum nýbyrjuð að auglýsa pakkaferðir til Íslands sem eiga að ná yfir tímabilið 1. október til 15. desember og gerum því ráð fyrir að ná jólatraffikinni inn að ein- hverju leyti,“ segir Maria á Lofti, framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála hjá Atlantic Airways. Um er að ræða helgarferðir þar sem flogið er út á föstudegi og heim aftur á mánudegi. „Við höfum oft kannað þetta áður, en alltaf metið stöðuna svo að þetta væri of dýrt. Nú segir hins vegar í auglýsingu okkar: Ótrúlega ódýrt, komdu og verslaðu í Reykjavík.“ Jólagjafaverslun í Reykjavík í stað Kaupmannahafnar Að sögn Mariu er vinsælt meðal Færeyingar að fara utan til jólagjafakaupa og til þessa hafa margir valið Kaupmannahöfn og skosku borgina Aberdeen. „Nú ætl- um við hins vegar að senda þá til Íslands og láta Fær- eyinga eyða peningum sínum í íslenskum verslunum, til dæmis í Kringlunni,“ segir Maria og er bjartsýn á ferð- irnar verði vinsælar haldist krónan áfram lág. Hún telur landann því mögulega eiga eftir að hagnast á færeyskum ferðamönnum á næstunni. Markaðssetja Ísland sem ódýran ferðamöguleika Flugfélagið Atlantic Airways hyggst beina færeyskri jólaverslun til Íslands Í HNOTSKURN » Í ágústmánuði sl. var Ís-land á topp fimm lista yfir ódýra áfangastaði hjá banda- ríska blaðinu USA Today – hinir staðirnir voru Mexíkó, Las Vegas, Fort Lauderdale og Ohio. » Verð helgartilboðsinsfæreyska er tæplega 2.600 færeyskar krónur eða um 46.000 ísl. kr. FULLTRÚAR íbúasamtaka Lindahverfis í Kópa- vogi gengu í gær á fund Gunnars I. Birgissonar, bæjarstjóra í Kópavogi, og afhentu honum mót- mælalista íbúa. Á listunum mótmæla um 870 manns fyrirhug- uðum breytingum á deiliskipulagi lóðar númer 2 við Skógarlind (Lindir IV). Þeir skora jafnframt á skipulagsnefnd og bæjarráð að taka til baka fyrri ákvarðanir sínar um breytingu á deili- skipulagi Linda IV og óska eftir að núgildandi skipulag fyrir svæðið verði óbreytt um ókomna framtíð. Ennfremur er skorað á bæjaryfirvöld að lengja enn frekar frest til athugasemda sem auglýstur var vegna breytinga á aðalskipulagi Gustssvæðisins, en það hafa bæjaryfirvöld þegar gert. Á myndinni eru frá vinstri Gunnar I. Birg- isson, Arnar Kristinsson, Páll Liljar Guðmunds- son og Sigurður Þór Sigurðsson. Undirskriftalistar íbúa Lindahverfis afhentir bæjarstjóra Kópavogs Morgunblaðið/Frikki Fyrirhuguðum breytingum mótmælt BORGARSTJÓRN Reykjavíkur samþykkti samhljóða á fundi sínum í gær tillögu borgarfulltrúa Vinstri grænna, að láta fara fram óháða út- tekt á kynbundnum launamun hjá Reykjavíkurborg. Svandís Svavarsdóttir, borg- arfulltrúi VG, mælti fyrir tillögunni og vísaði m.a. í niðurstöður launa- könnunar meðal starfsmanna SFR. Þar kom fram að konur innan SFR hefðu 17,2% lægri laun en karlar, en sambærileg tala úr síðustu könn- un var 14,3%. Þetta sagði Svandís vera mikið áhyggjuefni og lagði því til að Reykjavíkurborg sem at- vinnurekandi léti fara fram launa- könnun hið fyrsta. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, þakkaði tillöguna og hvatti til þess að hún yrði sam- þykkt. Sama gerði Dagur B. Egg- ertsson, borgarfulltrúi Samfylking- arinnar, sem fagnaði því sérstaklega að sátt næðist um til- löguna innan borgarstjórnar. Hann benti einnig á að kynbundinn launa- munur hyrfi ekki sjálfkrafa, vinna yrði í þeim málum. andri@mbl.is Úttekt gerð á kynbundnum launamun Eftir Andra Karl andri@mbl.Is HÉRAÐSDÓMARINN Símon Sig- valdason hafnaði í gærmorgun öðru sinni kröfu Jóns Ólafssonar athafna- manns um að bæði Ragnar Að- alsteinsson hrl. og Sigurður G. Guð- jónssona verði skipaðir verjendur hans. Úrskurðurinn hefur verið kærður – á nýjan leik – til Hæsta- réttar. Við þingfestingu málsins 16. júlí sl.var Ragnar skipaður verjandi en ákæruvaldið benti á að svo kynni að fara að Sigurður yrði kallaður til vitnis í málinu og gæti þar með ekki sinnt lögmannsstörfum. Símon úr- skurðaði 23. júlí ákæruvaldinu í hag en Hæstiréttur felldi úrskurðinn úr gildi þar sem Ragnari gafst ekki tækifæri til að rökstyðja kröfu sína. Málflutningur vegna kröfunnar var í síðustu viku og í gær úrskurð- aði Símon á sama veg. Reiknað er með að Hæstiréttur kveði upp sinn dóm innan tveggja vikna. Sækjandi í málinu og saksóknari efnahagsbrota, Helgi Magnús Gunn- arsson, benti máli sínu til stuðnings á 39. gr. laga um meðferð opinberra mála, en í greininni segir að ekki megi skipa eða tilnefna verjanda sem kann að vera kvaddur til að bera vitni. Málflutningur 20. október Málið var höfðað með ákæru rík- islögreglustjóra 3. júlí sl. og er Jón Ólafsson grunaður um meiriháttar skattalagabrot við eigin skattskil og í störfum fyrir Norðurljós, Skífuna hf. og Íslenska útvarpsfélagið hf. Að auki eru ákærðir í málinu Hreggviður Jónsson, Ragnar Birg- isson og Símon Ásgeir Gunnarsson. Allir sakborningar fóru fram á frá- vísun málsins, en málflutningur vegna kröfunnar hefur tafist vegna verjendamáls Jóns. Við þinghald í gær var þó ákveðið að halda málflutning 20. október nk., svo framarlega sem Hæstiréttur hafi kveðið upp dóm sinn. Ekki er reiknað með að sá þáttur taki lengri tíma en einn dag. Kröfu hafnað öðru sinni Hæstiréttur sker úr um hvort Sigurður G. Guðjónsson fái að verja Jón Ólafsson Morgunblaðið/Árni Sæberg Verjendur og vitni Ragnar Aðalsteinsson, Sigurður G. Guðjónsson, Ragnar H. Hall og Kristinn Björnsson við þingfestingu málsins í júlí síðastliðnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.