Morgunblaðið - 17.09.2008, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.09.2008, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is SÁ vandi sem nágrannaríkið Írland á við að etja vegna hælisleitenda er gíf- urlegur og þótt það geti vafist fyrir íslenskum yfirvöldum að greiða úr málum hælisleitenda, er vandinn hérlendis lítill miðað við nágranna- löndin að mati Jóhanns R. Bene- diktssonar, lögreglustjóra á Suð- urnesjum. Hann tekur dæmi um að rétt fyrir árið 2000 hafi álíka fjöldi hælisleitenda sótt til Írlands og Ís- lands. En árið 2005 hafi hælisleit- endur á Írlandi verið orðnir 20 þús- und og skapað gífurlegan vanda. „Þótt fjöldi hælisleitenda hafi sveiflast hérlendis varð hann aldrei viðlíka og í nágrannalöndunum,“ bendir hann á. Þetta má m.a. skýra með reglu sem nefnd er fyrstalandsregla, þ.e. að hælisleitendur þurfa að hafa farið í gegnum Evrópuland áður en þeir koma til Íslands og eru því sendir til annars Evrópuríkis ef tekst að bera kennsl á þá, en þar stendur reyndar hnífurinn oft í kúnni. Jóhann segir að Íslendingar hafi þrátt fyrir allt ekki lent í jafnalvarlegum vanda og ná- grannaþjóðirnar – en það gæti breyst á einni nóttu. „Ef beint flug kemst á milli Ís- lands og Brasilíu, Rússlands eða Kína, þá er komin upp allt önnur staða,“ segir hann. Forðast „innstæðulausar“ húsleitarkröfur Hin víðtæka húsleit hjá hælisleit- endum á fimmtudag hefur vakið mik- ið umtal, ekki síst vegna þess að pen- ingar voru teknir af hælisleitendum auk þess sem fíkniefna var leitað á tveimur stöðum. Brögð eru að því að hælisleitendur feli skilríki sín fyrir yfirvöldum og það leiddi til aðgerð- anna á fimmtudag. Ekki er farið fram á heimildir til húsleitar nema fyrir liggi rökstuddur grunur um að eitthvað ólöglegt kunni að finnast á staðnum. Að mati sér- fræðinga hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum er mjög áríðandi fyrir embættið og fagmennsku þar á bæ, að samband embættisins við dóm- stóla skaðist ekki af „innstæðulaus- um“ húsleitarkröfum. Eyjólfur Kristjánsson, fulltrúi lögreglustjóra, segir að trúverðugleiki og vönduð vinnubrögð – þegar kemur að íþyngj- andi afskiptum af fólki sem húsleit óneitanlega er – séu lykilatriði í starfi lögreglunnar svo dómstólar fái ekki á tilfinninguna að lögreglan sé að vaða fram með látum eins og hverjir aðrir kúrekar. Til að varpa ljósi á umgjörð þess máls sem komst í hámæli á fimmtu- dag í hinni umfangsmiklu húsleit, skal nefnt að í gildi er sérstakur samningur milli Útlendingastofn- unar og félagsþjónustunnar í Reykjanesbæ um uppihald og að- stöðu fyrir hælisleitendur. Dvalar- Staðir hælisleitenda eru á Fitjum og ýmsum gistiheimilum í bænum. Í að- gerðinni var húsleitarúrskurða ekki aflað í tilviki þeirra hælisleitenda sem áður höfðu framvísað gildum ferðaskilríkjum. Húsleit hjá þessum einstaklingum var hins vegar gerð með þeirra samþykki og hefðu þeir neitað hefði lögreglan þurft að snúa á braut, eða fá dómstól til að sam- þykkja leitarheimild. Enginn í þess- um flokki hælisleitenda neitaði lög- reglunni um inngöngu, að sögn Eyjólfs. „Meðal hælisleitenda er nefnilega fólk sem hefur raunverulega pappíra í höndunum og sýnir samvinnu við lögreglu og hefur ekkert að fela,“ bendir hann á. „Af þessu má álykta að um raunverulega hælisleitendur sé að ræða.“ Fíkniefnahundur var notaður í að- gerðinni, en engin efni fundust. Var hann aðeins notaður á tveim dvalar- stöðum þar sem fyrir lá rökstuddur grunur um að efni kynnu að finnast. Hundurinn var ekki á öðrum stöðum því ekki var grunur um fíkniefni þar. Að mati Eyjólfs sýnir þetta ákveðna atriði meðalhóf með því að lögreglan vandar sig við framkvæmd af þessu tagi. Í útlendingalögum segir að ef út- lendingur neitar að gefa upp hver hann er, rökstuddur grunur er um að hann gefi rangar upplýsingar um hver hann er eða hann sýnir af sér hegðun sem gefur til kynna að af honum stafi hætta er heimilt að handtaka hann og úrskurða í gæslu- varðhald samkvæmt reglum laga um meðferð opinberra mála, eftir því sem við á. Einnig getur lögregla lagt fyrir hann að tilkynna sig eða halda sig á ákveðnu afmörkuðu svæði. Meginreglan er sú að hneppa óþekkta hælisleitendur í gæslu- varðhald en það var undantekning fyrir breytingar á útlendingalögum 1. ágúst. Tvívegis á liðnum vikum hefur lögreglan á Suðurnesjum farið með hælisleitendur í gæsluvarðhald, en þetta úrræði er erfitt í fram- kvæmd eins og staðan er í fangelsis- málum, bendir Eyjólfur á. „Gæslu- varðhald er mjög íþyngjandi þvingunarráðstöfun sem við beitum eins hóflega og okkur er unnt, þrátt fyrir áherslur löggjafans um beit- ingu gæsluvarðhalds.“ Fólki líður ekki vel í óvissunni Heimildir herma að almenningi á Suðurnesjum líði ekki vel yfir því að ókunnugir einstaklingar, hverra for- tíð er með öllu ókunn, fari út í sam- félagið á meðan yfirvöld eru að átta sig á því hvern um ræðir svo hægt sé að afgreiða hælisumsókn. Hælisleit- endur eru skjólstæðingar Útlend- ingastofnunar og er þeim útvegað húsnæði á Suðurnesjum og tals- verður hópur af hælisleitendum fell- ur í þann flokk að enginn veit neitt um þá. Það sem lögregla og Útlend- ingastofnun eiga við að etja er því mikil óvissa í þessu samhengi. Hver er maðurinn og hver er fortíð hans? Útlendingastofnun þarf fyrst og fremst að fá svar við þeirri grund- vallarspurningu, áður en lengra er haldið með hælisumsókn. Lögreglan bendir á að óvissan um hvaða fólk sé að blanda sér inn í samfélagið á Suðurnesjum sé bæði mjög óþægi- leg fyrir fólkið sem þar býr og þá sem eiga að halda uppi lögum reglu. Ljósmynd/Víkurfréttir Aðgerðir 58 lögreglumenn tóku þátt í húsleitinni miklu í Reykjanesbæ. Hælisleitendur voru sumir mjög óánægðir en lögregla fann sönnungargögn sem kölluðu fangelsisdóm yfir Indverja í gær. Trúverðugleiki lykilatriði  Lögreglan vill ekki æða fram eins og kúrekar gagnvart hælisleitendum en taldi óhjákvæmilegt að hafa íþyngjandi afskipti  Vandi vegna hælisleitenda gæti snögglega stóraukist að mati lögreglustjóra Í HNOTSKURN »Lögreglan á Suðurnesjumhefur vakið athygli alls- herjarnefndar Alþingis á því að menn kynni sér þá leið sem dönsk yfirvöld hafa farið þeg- ar um óþekkta hælisleitendur er að ræða. Þar í landi eru sér- stakar greiningarstöðvar sem hælisleitendur eru hafðir í þangað til búið er að ganga úr skugga um að þeir séu ekki hættulegir. Fyrr er þeim ekki hleypt inn í samfélagið. »Björn Bjarnason dóms-málaráðherra bendir á álit allsherjarnefndar frá því þeg- ar breytingar á útlendingalög- unum voru til umræðu í þinginu, þess efnis að nauð- synlegt sé að hnykkja á þeirri meginreglu að þeir útlend- ingar sem ekki liggur fyrir hverjir eru, eða sýna af sér hegðun sem bendir til þess að af þeim stafi hætta, eiga ekki rétt til að ganga lausir hér á landi. Segir Björn að því hafi verið tekin alveg skýr afstaða til þess í lagatextanum að menn eigi ekki skýlausan rétt til að ganga lausir við þessar aðstæður. »Rökrétt framhald þessanýmælis í lögum sé að koma á fót sérstakri gæslu- varðhaldsaðstöðu á Suður- nesjum í stað þess að vista þessa menn á Litla-Hrauni. ÞEGAR allt að ein milljón króna finnst í reiðufé á dvalarstað hæl- isleitenda sem hafa skrifað undir plagg um að þeir séu allslausir vakna grunsemdir yfirvalda um að ekki sé allt með felldu. Neyðar- aðstoð við þá felst í uppihaldi sem nemur 7 þúsund kr. á dag auk vasa- peninga, 3 þús. kr. á viku. Það er Útlendingastofnun sem lögum samkvæmt er skylt að sjá um framfæri hælisleitenda þangað til ákvörðun stofnunarinnar liggur fyrir; veita dvalarleyfi eða senda fólkið úr landi. Til að hægt sé að af- greiða hælisumsókn þarf þó fyrst að bera kennsl á hælisleitandann. Og það eitt getur tekið óhemjutíma, mánuði og jafnvel ár. „Það sem kom í ljós við húsleit- irnar á fimmtudag var að ólögleg vinna meðal hælisleitenda er tals- vert meiri en menn héldu,“ segir Haukur Guðmundsson, forstjóri Út- lendingastofnunar. Hann segir að fyrrnefnd yfirlýsing sem hælisleit- endur undirrita sé ekki á neinn hátt skuldaviðurkenning. „En hæstu fjárhæðirnar sem teknar voru virka á mann eins og gróf misnotkun á þessu úrræði, að minnsta kosti þangað til maður fær aðrar og skyn- samlegri útskýringar.“ Fyrir hönd hælisleitenda sem felldu sig engan veginn við fram- göngu lögreglunnar á fimmtudag hafa íranski hælisleitandinn Farzad Rahmanian og fleiri mótmælt við lögreglu og óttast hann stimplun samfélagsins í kjölfarið. Lögreglan hefur þegar staðfest að heiðarlegir hælisleitendur séu í meðferð hér- lendis og skilja má vonbrigði þeirra í ljósi atburða. Haukur segir eðli málanna mjög mismunandi en gróf- ast hljóti að teljast þegar evrópskt vegabréf fannst hjá einum hælisleit- andanum. „Það verður auðvitað for- gangsmál að taka mál hans fyrir og spyrja hvort vegabréfið sé ófalsað – og ef svo er, hvort viðkomandi hafi fallið frá hælisbeiðni,“ segir hann. Haukur segir að mikill meirihluti hælisleitenda komi hingað til lands án skilríkja og gefi sínar skýringar á því. „Í sjálfu sér þarf skilríkjaleysi ekki að vera mjög grunsamlegt þeg- ar um er að ræða fólk sem flúið hef- ur stríðsástand með skömmum fyr- irvara. En þetta er metið ásamt öðru og fer eftir því hvaðan fólk kemur.“ Staðfest að heiðarlegir hælis- leitendur séu í meðferð hér Ljósmynd/Ingigerður Sæmundsdótti Mótmæli Hælisleitendur í Reykjanesbæ voru óánægðir með lögregluna. Í ATHUGASEMDUM við frumvarp til útlendingalaga segir að mjög hafi færst í vöxt að útlendingar komi til landsins án þess að hafa nokkur skilríki eða þeir framvísi fölsuðum skilríkjum. „Margir farga skilríkjum sínum og gera stjórn- völdum þannig erfitt um vik að ganga úr skugga um hverjir þeir raunverulega eru. Miðað er við að útlendingur, sem ekki framvísar tilskildum skilríkjum, fái ekki land- göngu. Hins vegar þykir nauðsyn- legt að gengið sé úr skugga um að útlendingur fái landvist á réttum forsendum, ekki síst með hliðsjón af þeirri grundvallarreglu að stjórnvöld skulu við úrlausn máls gæta samræmis og jafnræðis í lagalegu tilliti. Þá telst það vera andstætt þjóðfélagshagsmunum að í landinu sé búsettur fjöldi ein- staklinga sem ekki er vitað hverjir raunverulega eru.“ Margir farga skilríkjunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.