Morgunblaðið - 17.09.2008, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 17.09.2008, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 11 FRÉTTIR UPPSETNING hraðamyndavéla við stofnbrautir á vegum Vega- gerðarinnar er ekki byggingarleyf- isskyld samkvæmt skipulags- og byggingarlögum að því er segir í niðurstöðu Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarnefndar. Óskaði sveitarstjórn Hvalfjarðar- sveitar eftir úrskurði um tvær hraðamyndavélar sem settar voru upp í Hvalfjarðarsveit. Segir í úr- skurðinum að með uppsetningu sé verið að sinna löggæslu og vænt- anlega að sporna við hraðakstri. Ekki þörf á leyfi SÖFNUNARÞÁTTUR verður sýnd- ur í beinni útsendingu á Stöð 2 nk. föstudag til styrktar Mænuskaða- stofnun Íslands. Landsfrægir skemmtikraftar munu koma fram í þættinum auk þess sem rætt verður við mænuskaddaða einstaklinga og aðstandendur þeirra. Almenningur getur lagt málefninu lið með því að hringja í símanúmerin 904-1000, 904-3000, og 904-5000 og verður þá upphæðin sem myndar seinni hluta símanúmersins gjaldfærð af sím- reikningi þess sem gefur. Um 3,5 – 4,5 milljónir manna í heiminum lifa nú við mænuskaða vegna slysa. Mænuskaði er ólækn- andi, en á Íslandi eru rúmlega hundrað einstaklingar mænuskadd- aðir. Nær helmingur þeirra slas- aðist í umferðarslysum. Þá hlýst mænuskaði einnig af völdum íþrótta, glæpa, sjúkdóma, vinnu- slysa og ýmiskonar falli. Meðal- aldur þeirra sem skaddast á mænu er um 20 ár þannig að flestir eru mjög ungir þegar þeir verða fyrir þessari lífsreynslu. Mænuskaðastofnunin var stofnuð í desember í fyrra og er aðaltil- gangur stofnunarinnar að vekja at- hygli á vandamálinu á alþjóða- vettvangi og safna fé handa læknum, vísindamönnum og öðrum sem vinna að framförum til heilla mænusködduðum. Söfnunarátak fyrir mænu- skaddaða í beinni útsendingu FYRIR skömmu var haldið opn- unarhóf bjórsins Skælv í íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn, en bjórinn Skælv er sá sami og hinn ís- lenski Skjálfti frá Ölvisholti Brugg- húsi. Bjórinn er nú fáanlegur í Kaupmannahöfn, en í nóvember kemur svo á markað jólaöl frá Ölvisholti. Bjórinn Skælv var síðan kynntur á European Beer Festival sem hald- in var í Carlsberg verksmiðjunni í Kaupmannahöfn helgina 12.–14. september, en þar fékk bjórinn al- mennt góða dóma hjá þeim sem smökkuðu, m.a. fékk hann 6 stjörn- ur af 6 mögulegum í bjórdómi Ole Madsen í Ekstra Bladet. Ölvisholt Brugghús stefnir að því að flytja út 100 tonn af bjór til Dan- merkur á ári hverju. Þegar hefur verið gengið frá sölusamningum við þarlenda dreifingaraðila, en heildarbjórútflutningur Íslands hefur til þessa verið nálægt 50–60 tonnum á ári. Bjór Guðrún Ágústsdóttir, Árni M. Mathiesen og Valgeir Valgeirsson bruggari skáluðu í Skjálfta. Skjálfti seldur til Danmerkur ÚT er komin bókin Afbrot á Íslandi eftir Helga Gunn- laugsson prófessor. Bókin er innlegg í umræðu um ís- lenskt samfélag og þróun þess frá sjónarhorni félags- og afbrotafræðinnar. Byggt er á greinum sem sumar hverj- ar hafa birst áður en aðrar ekki. Stuðst er við viðhorfs- mælingar, opinber gögn, fréttir af ofbeldi, gögn þolenda og niðurstöðurnar túlkaðar í ljósi alþjóðlegs saman- burðar eins og kostur er. Höfundur spyr einnig spurninga. Hvernig er unnt að skýra fíkniefnavandann? Er fælingamáttur viðurlaga breytilegur eftir brotamönnum og brotaflokkum? Hvaða þættir hafa áhrif á ólögmæta hegðun í íslenskum stór- fyrirtækjum? Hvernig á hið opinbera að bregðast við vændi? Helgi Gunnlaugsson lauk doktorsprófi frá Missouriháskóla í Bandaríkj- unum þar sem hann sérhæfði sig í afbrotafræði og réttarsálfræði. Hann hefur bæði einn og í samvinnu við aðra gefið út fjölda ritverka. Afbrot á Íslandi Helgi Gunnlaugsson ALÞJÓÐAHÚS í Breiðholti var opnað formlega í Gerðubergi í gær. Tilgangur starfseminnar er að koma til móts við vaxandi fjölda innflytjenda í hverfinu sem er tæp 10% af heildaríbúatölu. Alþjóðahús var stofnað árið 2001 og fyrr á þessu ári var Alþjóðahús opnað á Norðurlandi. Starfsemin í húsinu í Breiðholti mun byggjast upp á grasrótarstarfsemi þar sem verk- efni verða þróuð og unnin í sam- vinnu við íbúa, stofnanir og félög í hverfinu. Fjórðungur erlendra ríkisborg- ara í Reykjavík býr í Breiðholti og fer þeim fjölgandi í hverfinu. sunna@mbl.is Fjórðungur býr í Breiðholti STUTT Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is ANNAÐHVORT á að styrkja krón- una til þess að nota hana til fram- búðar eða taka upp evru sem gjald- miðil á Íslandi. Hvorug leiðin er einföld og báðar krefjast fórna. Þetta er niðurstaða skýrslu gjald- miðilsnefndar Framsóknarflokksins sem kynnt var í gær og nálgast má á vef flokksins. Að mati skýrsluhöfunda krefjast báðar leiðir breytinga í stjórnun efnahagsmála þjóðarinnar. Benda þeir á að þær miklu sveiflur sem ver- ið hafi um árabil í íslensku efnahags- lífi samrýmist ekki því opna við- skiptaumhverfi sem íslenskt atvinnulíf vinni nú í. Í máli Jóhannesar Geirs Sigur- geirssonar, fyrrverandi alþingis- manns og formanns gjaldmiðils- nefndarinnar, kom fram að frá árinu 1995 hefði íslenskt þjóðfélag verið á hraðri leið frá hefðbundnu fram- leiðslusamfélagi til þjónustu- og þekkingarsamfélags. Á þeim upp- gangstímum sem ríkt hefðu á síðustu árum hefði hins vegar þurft að standa betur að hagstjórninni. Sagði hann það mat nefndarinnar að óheppilegt hefði verið að samtímis var farið í aðgerðir sem stuðluðu að aukinni þenslu, s.s. með miklu fram- boði húsnæðislána fjármálafyrir- tækja og skattalækkunum hins op- inbera, um leið og nánast hafi verið ótakmarkaður aðgangur að erlendu lánsfé á lágum vöxtum sem hafi or- sakað mikla aukningu í neyslu og framkvæmdum. Gylfi Magnússon, hagfræðingur og dósent í viðskipta- fræðideild Háskóla Íslands, sagði einsýnt að tilraunastarfsemi síðustu ára í skipulagi peningamála væri dæmd til að mistakast. Sagði hann nauðsynlegt að gerbreyta allri um- gjörð Seðlabanka Íslands. Benti hann á að aðgerðir seðlabanka virki ekki nema menn hefðu trú á þeim, óháð því hvort bankinn sé að taka réttar ákvarðanir eða ekki. Endanlega þjóðin sem velur Inntur eftir því hvernig flokksfor- ystan hygðist nýta sé niðurstöður skýrslunnar sagði Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, ljóst að útfæra þyrfti báðar leiðir en hins vegar væri það þjóðarinnar að kjósa um endanlega niðurstöðu. „Hver sem verður mynt framtíð- arinnar á Íslandi mun enginn leysa skammtímavandann í efnahagsmál- unum fyrir okkur nema við sjálf,“ sagði Guðni og gagnrýndi aðgerðar- leysi núverandi ríkisstjórnar. „Við núverandi aðstæður í ís- lensku efnahagslífi þarf ríkisstjórnin að vera vakandi. Því miður hefur hún stungið hausnum í sandinn og gjarn- an sagt að aðgerðaleysið væri best,“ sagði Guðni og kallaði eftir nýrri þjóðarsátt ríkisstjórnar, samtaka vinnumarkaðarins og bankakerfisins til þess að takast mætti á við skamm- tímavandann með sem árangursrík- ustum hætti. Stórefling krónunnar eða upptaka evrunnar Morgunblaðið/Golli Styrkari stjórn Guðni Ágústsson kallaði eftir styrkari efnahags- og pen- ingamálastjórn á hádegisverðarfundi Framsóknarflokksins í gær. Nýsköpun og sóknarfæri í þjónustu og verslun 30. september 2008, Hótel Nordica Hilton 30. september frá 8.30-12.00. Dagskrá Ávörp Björgvin Sigurðsson, viðskiptaráðherra AndrésMagnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu Þróun í verslun Jean-Jacques Vandenheede, senior retail industry analyst, A.C. Nielsen Norræn nýsköpun í þjónustu: Greining nýsköpunar- starfs hjá þjónustufyrirtækjum á Norðurlöndunum Sóley Gréta SveinsdóttirMorthens, sérfræðingur hjá greiningarsviði Rannís Nýsköpun í þjónustu Tim Jones, framkvæmdastjóri Innovaro Umræður Ráðstefnustjóri: Reynir Kristinsson, deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst Aðgangur 10.000 kr. E N N E M M / S ÍA / N M 3 5 3 9 9 Háskólinn á Bifröst og Rannsóknarsetur verslunar- innar á Bifröst halda ráðstefnu þann 30. september undir yfirskriftinni „Nýsköpun og sóknarfæri í þjón- ustu og verslun”. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Samtök verslunar og þjónustu og Capacent. Markmið hennar er að skapa umræðu um málefni þjónustu- og verslunargreina. Leitast verður við að skilgreina með hvaða hætti nýsköpun eigi sér stað á þessum sviðum, enda er forsenda þess að finna ný sóknarfæri sú að átta sig á að nýsköpunin á sér stað í þjónustu- og verslunargreinum ekki síður en í tæknigreinum. Ekki liggja fyrir ítarlegar rannsóknir á þessu sviði en nú er að ljúka samnorrænni rannsókn sem veita mun nýjar upplýsingar, m.a. um stöðu okkar í samanburði við þær þjóðir sem við berum okkur helst saman við. Þá eru á sviði smásölu stundaðar margvíslegar rannsóknir sem leitt hafa til mikillar framþróunar og enn eru þar ónýtt sóknarfæri sem áhugavert er að fræðast um. Virtir sérfræðingar á alþjóðlegum og innlendum vettvangi munu velta upp ólíkum hliðum ný- sköpunar og sóknarfæra í þjónustu og verslun. www.bifrost.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.