Morgunblaðið - 17.09.2008, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Bankakreppa í Bandaríkjunum
"
"
$
$
"
"
$
$
"
"
$
$
"
"
$
$
"
"
$
$
% % % % %
&'( &'( &'( &'( &'( )
*+
, -+
. +-
)."
/."
*+
, -+
. +-
$$
""#
*+
, -+
. +-
)#)
/)
*+
, -+
. +-
"/
"$
*+
, -+
. +-
#./$#
#.#
#. /. ). $. . .. . ". #. . . #. /. ). $. . .. . ". #. . . #. /. ). $. . .. . ". #. . . #. /. ). $. . .. . ". #. . . #. /. ). $. . .. . ". #. . .
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
BETUR fór en á horfðist á banda-
rískum hlutabréfamörkuðum, en
Dow Jones-vísitalan hækkaði um
1,19% eftir 4,40% lækkun á mánu-
dag. Ástandinu á mörkuðum hefur
hins vegar verið lýst sem hinu
versta frá kreppunni miklu. Enn
verður vart eftirskjálfta eftir að
fjárfestingarbankinn Lehman
Brothers bað um greiðslustöðvun
og samningar náðust um kaup Bank
of America á Merrill Lynch.
Dagurinn í gær snerist hins veg-
ar um framtíð tryggingarisans Am-
erican International Group, átjánda
stærsta fyrirtækis heims. Fyr-
irtækið hefur átt við alvarlegan
lausafjárvanda að stríða og lækkun
lánshæfiseinkunna þess gerði lausa-
fjárstöðu AIG að spurningu um líf
eða dauða. Slík lækkun þýðir að fé-
lagið þarf að leggja fram auknar
tryggingar fyrir skuldum sínum, en
AIG hafði ekki nægt fé til þess.
Gerðu stjórnendur sitt besta yfir
helgina og í gær til að afla lausafjár
með einhverjum leiðum. Hremm-
ingar Lehman og Merrill Lynch
höfðu hins vegar fælt frá það litla af
lánsfé sem fyrir var á mörkuðum og
hafði AIG því ekki erindi sem erfiði.
Á mánudag lækkaði gengi bréfa
félagsins um 74% og var óttast hvað
gerast myndi í gær. Svo fór að
gengi AIG lækkaði um 21,2%, sem
er vissulega umtalsverð lækkun á
einum degi, en ekkert í líkingu við
spár svartsýnustu manna.
Það voru helst fréttir MSNBC-
fréttastofunnar um að bandarísk yf-
irvöld gætu komið tryggingarfélag-
inu til bjargar, sem komu í veg fyrir
frekari lækkun bréfanna. Síðar um
daginn sagði í frétt Bloomberg að
aðkoma ríkisins myndi hugsanlega
ekki verða fjárhagslega, heldur að
rekstur félagsins yrði tekinn yfir.
Bandarísk yfirvöld hafa þegar tekið
yfir rekstur íbúðalánasjóðanna
Fannie Mae og Freddie Mac.
Mikil viðskipti urðu með bréf
AIG í gær og námu þau 12% allra
viðskipta í kauphöllinni í New York.
Var velta með bréf félagsins 30
sinnum meiri en meðalvelta.
Viðskiptabankarnir taka við
Hugsanleg aðkoma ríkisins eða
seðlabanka Bandaríkjanna skiptir
fjárfesta höfuðmáli, en lausafjárþörf
AIG er metin á um 75 milljarða
dala, andvirði um 6.900 milljarða
króna. Alls er óvíst hvort félaginu
tekst að afla svo hárrar upphæðar í
tæka tíð.
Á mánudag setti seðlabankinn
ákveðið fordæmi þegar hann neitaði
að koma Lehman Brothers til að-
stoðar og má telja víst að bankinn
verði tregur til að ganga gegn því
fordæmi svo skömmu eftir að það
var sett. Útlitið er því fremur dökkt
fyrir fjármálamarkaði, bandaríska
sem í öðrum löndum. Í frétt Wall
Street Journal er haft eftir Brett
Hammond, sérfræðingi í eignastýr-
ingu, að ástandið hafi ekki verið
verra síðan á fjórða áratug síðustu
aldar þegar kreppan mikla hrjáði
hagkerfi heimsins. Annar viðmæl-
andi lýsir atburðum síðustu daga
sem einu geysistóru veðkalli. Er
ekki gert ráð fyrir því að viðsnún-
ingur geti orðið á næstu vikum eða
mánuðum.
Hafa sumir gengið svo langt að
segja að tími fjárfestingarbankanna
sé liðinn. Gamaldags viðskipta-
bankar muni á ný verða mikilvæg-
ustu stofnanir fjármálakerfisins.
Bank of America hækkaði að
minnsta kosti um 11,3% í við-
skiptum gærdagsins og annar við-
skiptabanki, Washington Mutual,
hækkaði um 18%. Eru slíkar stofn-
anir nú álitnar mun traustari fjár-
festing.
Ástandið vestra jafnast
á við kreppuna miklu
Reuters
Lækkanir Þungbúinn miðlari í kauphöllinni í Frankfurt fylgist með þróun mála meðan hann sinnir viðskiptavini í
gegnum símann. Evrópskar hlutabréfavísitölur lækkuðu mikið í gær og var lækkunin mest meðal tryggingafélaga.
!"# !
$% &&'( )*+% % ' , - . $
! # & / . &- !&
. ! 012 %! !& . , &/
!
" #
"
$#
%
!$
%" &"'
(
) $#
*
%
+,$'$
#-
.#-
&
$&$
/
#
-
!
#-
-$
% -
012
#
#-
$
Framtíð American International Group, átjánda stærsta fyrirtækis heims, er enn sem fyrr mjög óljós
Í HNOTSKURN
» Þrátt fyrir að hækkunyrði á bandarískum hluta-
bréfamörkuðum í gær lækkaði
breska FTSE-vísitalan um
3,43%.
» Þá lækkaði þýska DAXum 1,63% og franska CAC-
vísitalan um 1,96%.
» Í Asíu lækkaði Nikkei-vísitalan um 4,95% og
Hang Seng um 5,44%.
» Mesta lækkunin varð hinsvegar í Rússlandi, eða
11,47%.
SEÐLABANKAR í Evrópu og
Bandaríkjunum gripu til umfangs-
mikilla aðgerða í gær til að auka
flæði fjármagns á mörkuðum. Bank-
ar og fjármálastofnanir hafa und-
anfarna daga keppst við að draga til
sín það litla fjármagn sem fæst, en
framboðið er lítið sem ekkert. Yfir-
vofandi gjaldþrot Lehman Brothers,
yfirtakan á Merrill Lynch og lausa-
fjárvandi tryggingarisans AIG hefur
slegið fjárfesta óhug og eru þeir fáir
sem vilja hætta fé sínu við núverandi
aðstæður.
Seðlabankar Evrópu, Bretlands
og Bandaríkjanna skutu samtals um
17.000 milljörðum króna inn á pen-
ingamarkaði í gær til að létta undir
með fjárþyrstum fjármálastofn-
unum. Evrópski seðlabankinn lét frá
sér 70 milljarða evra, Englands-
banki 20 milljarða punda og seðla-
banki Bandaríkjanna 50 milljarða
dala.
Aðgerðir evrópsku seðlabankanna
dugðu þó ekki til að koma í veg fyrir
áframhaldandi lækkanir á hluta-
bréfamörkuðum eða stilla titring á
peningamörkuðum. Gengi bréfa
HBOS, stærsta skráða íbúða-
lánafyrirtækis Bretlands lækkaði
um 21,7% og evrópskar hlutabréfa-
vísitölur lækkuðu umtalsvert.
Breska FTSE-vísitalan lækkaði um
3,48% og hefur ekki verið lægri síð-
an í júní 2005.
Engin vaxtalækkun vestra
Þrátt fyrir að bandaríski seðla-
bankinn hefði ákveðið að halda stýri-
vöxtum sínum óbreyttum virðist
sem þarlendir hlutabréfamarkaðir
hafi jafnað sig að einhverju leyti á
því áfalli sem yfir þá reið í gær.
Hækkaði Dow Jones vísitalan um
1,19% og S&P 500 vísitalan um
1,77%. Ástæða þess að bankar og
fjármálastofnanir þurfa á auknu
lausafé að halda í kjölfar greiðslu-
stöðvunar Lehman er einföld.
Lehman skuldar þessum fjármála-
fyrirtækjum gríðarmikið fé og alls
er óvíst hvort það fæst greitt. Til að
geta staðið við aðrar skuldbindingar
sínar þurfa fyrirtækin því að afla sér
fjár með öðrum leiðum.
Vextir á millibankamörkuðum
hafa hækkað mikið í vikunni og fóru
Libor millibankavextir upp í 6,79% í
gær og hafa ekki verið hærri í sjö ár.
Seðlabankar heimsins reyna
að róa hlutabréfamarkaði