Morgunblaðið - 17.09.2008, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
HE Pingping frá Mongólíu, minnsti maður í heimi, virtist una sér vel á milli
lengstu leggja heims er hann stillti sér upp ásamt Svetlönu Pankratóvu frá
Rússlandi á Trafalgartorgi í London í gær. He Pingping er aðeins 74,61 sm
á hæð en fætur Pankratóvu hins vegar heilir 132 sm.
AP
Methafar mætast
TJÓNIÐ af völd-
um fellibyljanna
Gústavs og Ike á
Kúbu nemur alls
sem svarar 450
milljörðum króna
og er það mesta
efnahagslega tjón
sem orðið hefur
vegna fellibylja í
sögu landsins.
Nær 450.000
íbúðir skemmdust í óveðrinu og ekki
verður hægt að gera við 63.000
þeirra. Að minnsta kosti 200.000
manns misstu heimili sín og hundruð
þúsunda til viðbótar gætu þurft að
dvelja í bráðabirgðahúsnæði þar til
endurreisnarstarfinu lýkur, að því er
fram kemur í skýrslu sem stjórn
landsins birti í gær.
Eykur vanda Castros
Talið er að eyðileggingin torveldi
mjög Raul Castro, leiðtoga landsins,
að standa við loforð sín um að bæta
lífskjörin í landinu.
Gústav herjaði á Kúbu 30. ágúst
áður en hann ógnaði New Orleans.
Ike olli miklum usla á austanverðri
eyjunni viku síðar áður en hann gekk
yfir Texas.
Fellibyljir eru algengir á Kúbu en í
skýrslu stjórnarinnar sagði að enginn
vafi léki á því að Gústav og Ike væru
skæðustu fellibyljir í sögu landsins.
Auk tjónsins á íbúðarhúsnæði ollu
Gústav og Ike miklum skemmdum á
rafveitukerfi landsins, þjóðvegum,
opinberum byggingum, höfnum,
verksmiðjum og sykurreyrsökrum.
Sem dæmi má nefna að miklar
skemmdir urðu á 300 byggingum
heilbrigðiskerfisins, m.a. 26 sjúkra-
húsum og 14 hjúkrunarheimilum.
Um 1.200 skólar skemmdust.
Nær helmingur sykurreyrsupp-
skerunnar varð fellibyljunum að
bráð. Þá eyðilögðust um 3.400 hús,
sem eru notuð við tóbaksframleiðsl-
una. Sjö hafnir eru enn lokaðar eftir
náttúruhamfarirnar. bogi@mbl.is
Skæðustu
fellibyljir í
sögu Kúbu
Tjónið nam alls 450
milljörðum króna
Miklar skemmdir
urðu í Havana.
MIKIL spenna er nú innan breska
Verkamannaflokksins en æ fleiri
áhrifamenn innan flokksins hafa
hvatt til þess að undanförnu að
Gordon Brown, leiðtogi flokksins og
forsætisráðherra, láti af embætti.
Alistair Darling, fjármálaráð-
herra Bretlands, hvatti hins vegar
samherja sína til þess í gær að fylkja
sér að baki Brown. Sagði hann eðli-
legt að fólk hefði áhyggjur vegna
ástands efnahagsmála en hann teldi
Brown vera rétta manninn til að
stjórna landinu.
Tólf þingmenn flokksins hafa farið
fram á að framboðsgögn vegna leið-
togakjörs verði send út. Fram-
kvæmdastjórn flokksins ákvað hins
vegar á fundi í gær að hafna því.
Uppreisnarmenn hrekjast burt
Fréttaskýrendur segja slakt
gengi flokksins í skoðanakönnunum
einungis skýra það hversu hart sé
sótt að Brown að hluta til. Það megi
einnig rekja til þess að hann hafi
ekki náð að tryggja sinn sess innan
embættismannakerfisins. Þannig
vinni embættismenn, sem skipaðir
voru í stjórnartíð Tony Blair, og
stuðningsmenn Brown gjarnan
hvorir gegn öðrum.
Þá er því haldið fram í The Times
að harkaleg viðbrögð Brown við
kröfum um umræður um leiðtoga-
skipti hafi veikt stöðu hans enn frek-
ar innan flokksins. Þrír áhrifamenn
innan flokksins hafa hrakist úr emb-
ætti eftir að hafa kallað eftir leið-
togakjöri á undanförnum dögum og
samkvæmt heimildum breska ríkis-
útvarpsins, BBC, eru fimm til sex
ráðherrar stjórnarinnar til viðbótar
að íhuga að segja af sér.
Á móti er bent á að uppreisn gegn
Bown sé dæmd til að mistakast þar
sem andstæðingar hans innan
flokksins minni helst á stríðsherra í
Afganistan. Þeir séu nógu margir til
að steypa honum en of sundraðir til
að geta framkvæmt það. sibb@mbl.is
Hart sótt að
Gordon Brown
Hafna kröfu um að framboðsgögn
vegna leiðtogakjörs verði send út
Reuters
Í vörn Gordon Brown, forsætisráð-
herra Bretlands, á í vök að verjast.
EVO Morales,
forseti Bólivíu,
sagði í gær að
hermenn hefðu
handtekið héraðs-
stjóra sem forset-
inn hefur sakað
um að hafa skipu-
lagt fjöldamorð.
Morales segir
Leopoldo Fern-
andez, héraðsstjóra Pando, hafa
staðið fyrir árás úr launsátri á stuðn-
ingsmenn forsetans. A.m.k. 18
manns biðu bana í árásinni og 100
særðust en ekki er vitað um afdrif 50
annarra. Fernandez neitar því að
hann hafi skipulagt fjöldamorð og
segir að stuðningsmenn forsetans
hafi fallið í átökum.
Setti herlög
Áður hafði Morales sett herlög til
að kveða niður mótmæli í Pando og
þremur öðrum héruðum í austan-
verðu landinu. Héruðin vilja aukin
sjálfstjórnarréttindi, yfirráð yfir
jarðgaslindum, og koma í veg fyrir
að Morales geti tekið hluta af
stærstu búgörðunum og úthlutað
þeim til fátækra bænda úr röðum
indíána eins og hann hefur lofað.
Mótmælin hófust eftir að Morales
tilkynnti að efnt yrði til þjóðarat-
kvæðagreiðslu 7. desember um
stjórnarskrárbreytingar sem myndu
gera honum kleift að koma stefnu
sinni í framkvæmd. Andstæðingar
Morales náðu opinberum byggingum
og flugvöllum á sitt vald og lokuðu
þjóðvegum til héraðanna fjögurra.
Bólivía er eitt fátækasta land Suð-
ur-Ameríku en þar eru miklar olíu-
og gaslindir sem eru aðallega í
austurhéruðunum. Auðugasti hluti
þjóðarinnar býr þar og myndi það
því verða reiðarslag ef austurhéruðin
slitu sig laus. bogi@mbl.is
Morales lætur
sverfa til stáls
Evo Morales
Í HNOTSKURN
» Forsetar Suður-Ameríku-ríkja hafa lýst yfir fullum
stuðningi við Evo Morales í
deilunni við leiðtoga austur-
héraða Bólivíu.
» Forsetarnir ætla að skipanefnd sem á að beita sér
fyrir viðræðum milli Morales
og andstæðinga hans.
» Morales er vinstrisinnaðurog fyrsti forsetinn í sögu
landsins sem kemur úr röðum
innfæddra indíána.
DAVID Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, ítrekaði á föstudag stuðn-
ing sinn við Gordon Brown. „Ég styð ekki það sjónarmið að tímabært sé að
efna til baráttu um leiðtogaembættið,“ sagði hann. „Ég hef áður sagt að ég
geri ráð fyrir að Gordon leiði okkur í næstu kosningum. Ég mun styðja
hann til þess.“
Afstaða Milibands er talin sérlega mikilvæg þar sem hann hefur verið
álitinn líklegasti arftaki Browns. Þá vakti það athygli er hann birti grein í
blaðinu The Guardian í sumar þar sem hann gagnrýndi stefnu Verka-
mannaflokksins. Túlkuðu margir greinina sem vísbendingu um að hann
væri að búa sig undir að gera atlögu að forsætisráðherranum.
Afstaða Milibands mikilvæg
www.si.is
Dagskrá
9.00 Bryndís Skúladóttir, Samtök iðnaðarins
Breytt lagaumhverfi og aukin ábyrgð framleiðenda
Doris Thieman, Efnastofnun Evrópu (ECHA)
Kaffihlé
REACH - Ertu ekki viss?
Fundur um nýja reglugerð um skráningu efna, mat,
leyfisveitingar og takmarkanir.
18. september í Yale salnum á RadissonSAS
Hótel Sögu kl. 09.00 - 12.00
Sigríður Kristjánsdóttir, Umhverfisstofnun
Skyldur íslenskra fyrirtækja og fyrstu skrefin
Doris Thieman, Efnastofnun Evrópu
Forskráning og leiðbeiningarskjöl
Samantekt og spurningar
Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.
Skráning á mottaka@si.is eða í síma 591 0100.