Morgunblaðið - 17.09.2008, Page 16

Morgunblaðið - 17.09.2008, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING ROKKABILLÝBAND Reykjavíkur heldur út- gáfutónleika í Iðnó í kvöld klukkan níu. Hljómsveitin Vax kemur einnig fram á tónleikum, en von er á plötu frá henni innan tíðar. Þá leikur Bjartmar Guð- laugsson líka á tónleik- unum í Iðnó. Plata Rokk- abillýbandsins ber nafnið Reykjavík eftir samnefndu lagi. Platan inniheldur 10 lög eftir hina ýmsu höfunda og má þar nefna Guðmund Jónsson úr Sálinni, Hreim Örn Heimisson úr Landi og son- um, Skerjaskáldið Kristján Hreinsson og Tómas Tómasson. Miðaverð er 1.500 krónur. Tónlist Rokkabillý, Vax og Bjartmar í Iðnó Reykjavík KONCERTFORENINGENS Kor frá Kaupmannahöfn held- ur tónleika í Skálholti, Akra- nesi, Reykholti og Reykjavík um helgina. Á dagskránni eru m.a. verk eftir tónskáldin Niels la Cour og Svend S. Schultz, Grieg og Báru Gríms- dóttur. Kórinn mun syngja í Skál- holti föstudaginn 19. sept- ember kl. 20, á Akranesi í Safnaðarheimilinu Vinaminni laugardaginn 20. september kl. 12 í Reykholtskirkju sama dag kl. 16 og í Hallgríms- kirkju í Reykjavík sunnudaginn 21. september, fyrst í guðsþjónustu kl. 11 og síðan á tónleikum að henni lokinni. Tónlist Danskur kór á tónleikaferðalagi Skálholtskirkja UNDIRBÚNINGUR er haf- inn að því að kveikt verði á Friðarsúlunni í Viðey hinn 9. október og í aðdragandanum verður efnt til tónleikahalds í eynni „Ást er allt sem þarf“. Fyrstu tónleikarnir verða haldnir annað kvöld í Viðeyj- arkirkju og þar koma fram Sig- urður Flosason saxófónleikari og Gunnar Gunnarsson org- elleikari. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 og verður siglt frá Skarfabakka til Viðeyjar kl. 19.45. Aðgangseyrir er 2.000 krónur fyrir ferðir og tónleika. Í Viðeyjarstofu er einnig hægt að kaupa léttar veitingar. Tónlist Friðartónleikar í Viðeyjarkirkju Sigurður Flosason Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is HINN harmræni trúður Canio mun á föstudags- kvöldið syngja Vesti la giubba, eina frægustu tenóraríuna, í Pagliacci í Íslensku óperunni; ar- íuna um það að fara í búninginn sem kætir fólk og bera hvítan litinn á andlitið. Tenórinn Krist- ján Jóhannsson verður þar í fyrsta skipti á fjöl- um Óperunnar og mun syngja sem Canio um hláturinn sem felur eitrið í hjartanu. Kristján Jóhannsson var heldur glaðari en Canio í gær, eftir ánægjulegt og gjöfult æf- ingaferli. „Ég er með kúlur á hausnum og marbletti hér og þar á skrokknum. Ég hef ekki alveg áttað mig á þrengslunum í Óperunni hér og einn og einn loftbiti er fyrir mér,“ segir hann glað- hlakkalega þegar hann er spurður út í æfing- arnar. „Starfsfólkið er afskaplega elskulegt og fagmannlegt í öllu sem það gerir, við þurfum ekki að gera annað en að einbeita okkur að söng, leik og sviðinu. Það er þröngt og allir eru hver ofan í öðrum allan daginn, en meðan félagsskapurinn er þetta góður kvartar maður ekki.“ Á hlaupum um allt húsið Kristján syngur fyrst tvær sýningar sem Can- io og síðan tvær sem Turiddu. Í einni sýningunni syngur hann þó báðar rullurnar og ekki í fyrsta skipti. „Einu sinni þegar ég var að syngja Cavalleria á Metropolitan-óperunni í New York forfallaðist hinn tenórinn, Placido Domingo. Þá voru góð ráð dýr. Þeir fengu ekki í hvelli söngvara sem þeir gátu sætt sig við þannig að ég tók þetta að mér. Í Trieste á Ítalíu fyrir þremur árum var það sama uppi á teningnum, nema enn verra, því hinn söngvarinn réð ekki við hlutverkið. Hann gekk bara út. Þá tók ég þetta einnig að mér.“ Kristján segir óperurnar tiltölulega líkar að gerð, sönglega. „Cavalliera Rusticana er pínulítið lýrískari en ef maður ætlar að syngja Canio í Pagliacci virkilega eins og ætlast er til, verður maður að henda sér í það af hjarta og sál. Heift- in og ástríðan eru svo mikil að þar þýðir ekkert að spara sig. Það gengur nærri mér að syngja Canio. Þetta er svo mannlegt stykki – hann er gjörsamlega örvinglaður. Í lok óperunnar langar mig alltaf að reyna að sýna þessa örvinglan.“ Kristján hrósar kórnum mjög, sem og hljóm- sveitarstjóranum Kurt Kopecky, og samstarfinu við leikstjórann Svein Einarsson. „Í þessu litla húsi verður að vanda leikinn, það er svo mikil nálægð við áhorfendur, maður er á hlaupum um allt húsið. Sveinn hefur lagt rækt við allt atgervi á sviðinu; allt sem maður gerir verður að hafa meiningu því ef ekki eru dýpt og tilfinning verður það hjákátlegt.“ Sólrún Bragadóttir er annar ástsæll söngvari sem sést sjaldan á fjölum Íslensku óperunnar en hún syngur nú hlutverk Neddu. Sólrún segir undirbúningsvinnuna hafa verið afar skemmti- lega og andann vera frábæran í hópnum. „Aðstæðurnar eru vægast sagt erfiðar í húsinu en það er merkilegt hvað hægt er að töfra fram við þessar aðstæður,“ segir hún. „Mér finnst undarlegt að gott óperuhús skuli ekki vera löngu risið hér, með þetta úrvalslið sem Íslendingar eiga og þennan mikla áhuga á söng.“ Sólrún syngur hlutverk Neddu í fyrsta sinn. „Þetta er mjög sterkt hlutverk, mikill leikur í því. Sveinn hefur leyft okkur að skapa mikið sjálf og koma með hugmyndir. Það hristir hóp- inn ennþá sterkar saman, þegar allir fá að vera svona skapandi.“ Morgunblaðið/Frikki Dramatík „Mig langar alltaf að reyna að sýna þessa örvinglan,“ segir Kristján Jóhannsson, sem er hér sem Canio ásamt Sólrúnu Bragadóttur sem Neddu. Sungið af hjarta og sál  Cavalliera Rusticana og Pagliacci í Óperunni  Kristján Jóhannsson í sinni fyrstu sýningu þar  Sólrún Bragadóttir segir frábæran anda í hópnum ÍSLENSKA óperan frumsýnir á föstudagskvöldið hinar sívinsælu óperur Cavalleria Rusticana, eft- ir Pietro Mascagni, og Pagliacci, eftir Ruggiero Leoncavallo. Eru þær stuttar og algengt að þær séu sýndar saman og þá oft kallaðar Cav/Pag. Um er að ræða tvær einþáttungsóperur, þar sem sjónum er beint að daglegu lífi fólks, harmi þess og gleði. Í uppfærslunni taka þátt margir kunn- ustu söngvarar þjóðarinnar, undir leikstjórn Sveins Einarssonar. Kristján Jóhannsson syngur nú í fyrsta skipti í Íslensku óperunni. Aðrir helstu söngvarar eru Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Elín Ósk Ósk- arsdóttir, Auður Gunnarsdóttir, Tómas Tóm- asson, Alina Dubik, Sesselja Kristjánsdóttir, Sól- rún Bragadóttir, Alex Ashworth og Eyjólfur Eyjólfsson. Kurt Kopecky er hljómsveitarstjóri. Tenórarnir Kristján og Jóhann Friðgeir munu skipta með sér hlutverkum Canio, í Pagliacci, og Turiddu, í Cavalleria Rusticana. Syngja þeir sitt aðalhlutverkið hvor í öllum sýningum nema einni, er Kristján syngur bæði hlutverkin. Sólrún Bragadóttir syngur hlutverk Neddu í Pagliacci á öllum sýningum, Auður Gunn- arsdóttir og Elín Ósk Óskarsdóttir skipta með sér hlutverki Santuzzu í Cavalleria Rusticana, en Tómas Tómasson syngur hlutverk Alfio í Cavall- eria Rusticana og Tonio í Pagliacci. Kristján og Jóhann Friðgeir deila tenórhlutverkunum ÁHUGAMENN um myndlist og listmarkaðinn hafa fylgst spenntir með hinum ein- stöku uppboðum sem breski stjör- nulistamaðurinn Damien Hirst stóð fyrir hjá Sotheby’s í Lond- on tvö síðustu kvöld. Listamað- urinn, sem er þegar orðinn efn- aðasti myndlist- armaður í sögu Bretlands, ákvað að fara framhjá galleríum sínum, Larry Gagosian í New York og White Cube í London, og láta Sotheby’s bjóða upp fyrir sig á þriðja hundrað verka. Tæplega 100 verkanna voru boðin upp í fyrrakvöld, sama dag og fjár- málamarkaðurinn tók dýfuna miklu og Lehman Brothers-bankinn gaf upp öndina. Því ríkti mikill spenn- ingur í uppboðssalnum, viðstaddir vissu ekki hversu mikið lausafé væri í veskjum bjóðandanna. Í ljós kom þó að umtalsvert fé skipti um hend- ur þetta kvöld og kann það að vera sönnun þess sem lengi hefur verið haldið fram, að myndlistarvísitalan sé mun öruggari og stöðugri, til langs tíma litið, en kauphalla- vísitalan. Á mánudagskvöldið seldust verk fyrir 11,5 milljarða króna, 70,5 millj- ónir punda, eða fimm milljónir punda yfir matsverðinu. Góð útkoma uppboðsins kom mörgum á óvart, en ófáir gagnrýn- endur hafa talið að Hirst væri búinn að metta markaðinn með rándýrum fljótandi skepnum og málverkum sem unnin væru af öðrum en honum sjálfum á vinnustofum hans. „Bankar hrynja en listin sigrar,“ sagði fyrrverandi ritari Royal Aca- demy við blaðamann The Guardian. Á uppboðinu í gærkvöldi voru nokkur verk í dýrari kantinum en meira um smærri verk. efi@mbl.is Enginn lausafjár- skortur Verk Hirst seldust fyrir 11,5 milljarða Damien Hirst Reuters Dýrastur Gyllti kálfurinn í formal- íni seldist á 1,69 milljarða króna. Helstu verk sem seldust á fyrra uppboði Damien Hirst: – Gyllti kálfurinn. Með gull- disk milli horna, gyllta hófa og í gylltum tanki. Talið eitt af lyk- ilverkum Hirst. Matsverð: 2 milljarðar króna. Söluverð: 1,69 milljarðar. – Konungsríkið. Stærsta nýja verkið með hákarli í formalíni. Matsverð: 1 milljarður króna. Söluverð: 1,57 milljarðar. – Brot úr paradís. Veggskápur með demöntum. Hæsta mats- verð: 246 milljónir króna. Sölu- verð: 852 milljónir. Hér í dag, farnir á morgun. Glerskápar með uppstoppuðum fiskum og beinagrindum fiska. Hæsta matsverð: 574 milljónir króna. Söluverð: 483 milljónir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.