Morgunblaðið - 17.09.2008, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Sigríður Guð-mundsdóttir frá
Einarsnesi fæddist
að Valbjarnarvöll-
um í Borgarhreppi
11. desember 1916.
Hún lést á Hjúkr-
unarheimilinu Sól-
túni 8. september
síðastliðinn. Hún
var dóttir Guð-
mundar Jónssonar,
bónda, oddvita og
hreppstjóra að
Valbjarnarvöllum,
og Þórunnar Jóns-
dóttur húsfreyju. Sigríður átti einn
yngri bróður; Agnar, f. 1920, en
hann lést aðeins 24 ára gamall.
Sigríður giftist 27. maí 1939 Sig-
þóri Karli Þórarinssyni, bónda og
hreppstjóri í Borgarhreppi, f. 28.
janúar 1918, d. 23. janúar 1981.
Sigríður og Sigþór áttu sjö börn.
Þau eru: 1) Þórarinn tannlæknir.
Hans kona er Ragnheiður Jóns-
dóttir danskennari. Fyrri kona
hans var Kristín Þorsteinsdóttir
kennari. Þau skildu. 2) Guð-
mundur landbúnaðarhagfræð-
ingur og skrifstofustjóri, kvæntur
Ölvaldsstöðum í Borgarhreppi þar
sem þau bjuggu í eitt ár. Árið 1947
festa þau kaup á jörðinni Einars-
nesi í Borgarhreppi og þar bjuggu
þau alla sína búskapartíð. Árið
1988 fluttist Sigríður búferlum til
Reykjavíkur og bjó um nokkurra
ára skeið í íbúð á Nönnugötu,
ásamt Sigríði dóttur sinni og eig-
inmanni hennar Hallmari. Árið
1994 keypti hún sér íbúð að Lind-
argötu 57, í þjónustuíbúðum aldr-
aðra. Á Lindargötunni átti hún
heimili þar til hún flutti á Hjúkr-
unarheimilið Sóltún í júní sl.
Sigríður starfaði ötullega að fé-
lagsmálum alla tíð, meðal annars
innan Kvenfélags Borgarhrepps
og var þar formaður um árabil.
Hún starfaði að jafnréttismálum
og sat ársþing Kvenréttindafélags
Íslands um nokkurra ára skeið.
Hún sat í byggingarnefnd Dvalar-
heimilis aldraða í Borgarbyggð frá
upphafi og vann að fjáröflun til
uppbyggingar þess í Borgarnesi.
Sigríður sat sem fulltrúi íbúðareig-
anda í hússtjórn Lindargötu í
Reykjavík eftir að hún fluttist
þangað, fram á síðasta dag. Sigríð-
ur var tónelsk og var þáttakandi í
kórstarfi alla tíð. Hún söng síðustu
árin með Kór eldri borgara í
Reykjavík.
Útför Sigríðar verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13. Jarðsett verður
að Borg á Mýrum.
Herborgu Árnadótt-
ur viðskiptafræðingi.
3) Helga, cand.
oceon., gift Þórði S.
Gunnarssyni hæsta-
réttarlögmanni og
forseta lagadeildar
Háskólans í Reykja-
vík. Fyrri maður
hennar var Guð-
mundur Ingólfsson
hljómlistarmaður.
Þau skildu. 4) Jó-
hanna blaðamaður,
áður gift Baldri
Kristjánssyni, Th.M.
Þau skildu. 5) Þór lyfjafræðingur
og forstjóri, kvæntur Guðnýju
Björgu Þorgeirsdóttur myndlista-
manni. 6) Óðinn, bóndi í Einars-
nesi, formaður Landssambands
veiðifélaga, kvæntur Björgu Karit-
as Jónsdóttur verslunarmanni. 7)
Sigríður arkitekt, gift Hallmari
Sigurðssyni leiklistarfræðingi og
leikstjóra. Barnabörnin eru 23 og
barnabarnabörnin eru 27.
Þau Sigþór hófu búskap að Val-
bjarnarvöllum árið 1941 er þau
tóku við búi foreldra Sigríðar. Þau
seldu jörðina árið 1946 og fluttu að
Elskuleg tengdamóðir hefur
kvatt þennan heim. Óhikað og ein-
arðlega gekk hún sína lífsgöngu.
Fumlaust með móðurkærleikann að
leiðarljósi ól hún manni sínum 7
mannvænleg börn, þrjár stúlkur og
fjóra drengi. Saman ólu þau hópinn
upp á fegursta stað á Íslandi, þar
sem fjöllin rísa hátt í suðri, áin
rennur breið og oft straumhörð
meðfram bæjarhólnum og engjarn-
ar teygja sig frá austri til vesturs.
Á þessum stað var líf Sigríðar Guð-
mundsdóttur og Sigþórs Karls Þór-
arinssonar bundið sterkum böndum
við störf og leik. Hún húsfreyja á
stóru heimili, hann bóndi og hrepp-
stjóri.
Sterkir stofnar stóðu að hús-
freyjunni í Einarsnesi. Móðurfólkið
frá Galtarholti og föðurfólkið frá
Valbjarnarvöllum. Þessar ættir
hafa búið í Borgarhreppi, eins og
hann hét forðum, allt frá landnáms-
öld. Hún var einkadóttir Þórunnar
Jónsdóttur húsfreyju og hússtjórn-
arkennara og Guðmundar Jónsson-
ar, hreppstjóra og organista. Upp-
eldið á einkadótturinni bar merki
um einstaka hæfileika foreldranna
að miðla henni þekkingu og færni á
flestum sviðum mannlífsins. Heim-
ilishaldið var eins og á besta hús-
mæðraskóla þar sem allt var unnið
eftir kúnstarinnar reglum. Fata-
saumur, prjónaskapur, sláturgerð,
bakstur, allt eftir bókinni. Hvergi í
heiminum voru eins góðar pönnu-
kökur og kleinur bakaðar.
Húsfreyjan í Einarsnesi var ekki
að tvínóna við hlutina og hana mun-
aði ekkert um að vera í forsvari
fyrir kvenfélag um árabil eða í und-
irbúningsnefnd fyrir byggingu
Dvalarheimilis aldraðra í Borgar-
nesi, en þessi störf vann hún bæði
af alúð og áræði. Hún tók í arf frá
foreldrunum að vera einstaklega
tónelsk. Hún lék á orgel og píanó
og hafði mjúka og fallega sópr-
anrödd. Þessum hæfileikum miðlaði
hún til barna og barnabarna. Það
var varla sú samverustund í Ein-
arsnesi, að ekki væri gripið í hljóð-
færi og hafinn upp söngur.
Árið 1981 urðu mikil kaflaskil í
lífi Sigríðar þegar ástkær eiginmað-
ur féll frá um aldur fram eftir erfið
veikindi. Hans var sárt saknað. Þau
20 ár sem hún bjó í Reykjavík voru
hennar annað blómaskeið í lífinu.
Umkringd börnum, tengdabörnum,
barnabörnum, barnabarnabörnum,
vinum og vinkonum, söngfélögum
og dansfélögum, ferðafélögum og
spilafélögum átti hún yndislegar
stundir. Heimsóknir á Lindargöt-
una voru tíðar, því fjölskylda og
vinir sóttu í félagsskap hennar.
Á síðustu árum deildum við
tengdamæðgurnar sameiginlegu
áhugamáli, tónlistinni. Það var ynd-
islegt að fara með henni á tónleika,
óperusýningar og galakvöld. Það
var til þess tekið, hvað hún var
ætíð stórglæsileg á mannamótum
og mikil heimsdama. Það eru for-
réttindi að hafa átt hana að tengda-
móður og yndislegri vinkonu.
Þegar heilsu fór að hraka, var
hún svo lánsöm að eignast sitt síð-
asta heimili á hjúkrunarheimilinu
Sóltúni. Þar naut hún allrar þeirrar
alúðar og umhyggju sem hægt er
að óska sér frá hjúkrunarfólki
heimilisins. Nú er hún lögð af stað,
ótrauð og hiklaust á vit nýrra æv-
intýra í nýju lífi á nýjum stað. Með
mikilli elsku og þakklæti fyrir allt
kveður
þín tengdadóttir,
Björg Karítas.
Tengdamóðir mín Sigríður Guð-
mundsdóttir er fallin frá. Hún bjó
lengst af í Einarsnesi í Borgar-
byggð með manni sínum Sigþóri
Karli Þórarinssyni og áttu þau sjö
börn. Hópur afkomenda þeirra er
orðinn stór. Sigríður lét sér mjög
annt um fjölskyldu sína. Hún tók
alla tíð virkan þátt í félagsmálum.
Sorgin sækir nú heim stóran skara
af vinum og vandamönnum sem
misst hafa mætan samferðarmann
og dyggan vin.
Sigríður missti manninn sinn
eftir erfið veikindi 1981. Fáum ár-
um síðar brann heimili hennar í
Einarsnesi og hún flutti til Reykja-
víkur. Keypti hún íbúð á Nönnu-
götu með dóttur sinni og mér og
hélt með okkur heimili í nokkur ár,
þar til hún keypti sér íbúð á
Lindargötu. Kynni okkar Sigríðar
urðu því náin eftir að hún flutti
suður.
Ég var nítján ára og yngsta dótt-
ir þeirra, unnusta mín, ári yngri
þegar ég kom fyrst í heimsókn til
verðandi tengdaforeldra minna. Ég
man að þau voru við búverkin úti í
fjósi þegar okkur bar að garði. Þar
gengu þau samhent til verka líkt og
í öllu sem þau tóku sér fyrir hend-
ur. Þeim búnaðist líka vel eins og
raun bar vitni. Þessi samstaða átti
vafalaust sinn þátt í að börnin
þeirra sjö komust svo vel til manns.
Það hefði ekki alls staðar þótt jafn-
sjálfsagt að svo stór barnahópur
yrði háskólagenginn. Sigríður og
Sigþór mátu sitt barnalán mikils,
settu markið hátt fyrir hönd
barnanna sinna.
Alla tíð var mikið menningar-
heimili í Einarsnesi. Hjónin léku
bæði á hljóðfæri og það gera börnin
þeirra líka. Í minningum mínum frá
Einarsnesi ómar þar allt af söng.
Tengdamóðir mín situr við píanóið
og syngur með sinni fallegu sópr-
anrödd. Hún átti ekki langt að
sækja tónlistarhæfileikana. Var af
tónlistarfólki komin. Afar hennar,
Jón í Galtarholti og Jón á Valbjarn-
arvöllum, tóku sig á sínum tíma
saman um að kaupa fyrsta orgelið
sem kom í þá sveit. Faðir hennar
var organisti í sveitinni, spilaði í
danshljómsveit og kenndi hljóð-
færaleik. Félagsmálaáhuginn var
Sigríði líka í blóð borinn. Henni var
mjög eiginlegt að vinna að fram-
gangi félagslegra hagsmuna og var
tamt að setja sig í spor annarra.
Hún átti auðvelt með að koma auga
á jákvæða þætti í fari fólks en var
ekki gjarnt að dæma. Henni lá
ávallt gott orð til samferðafólksins
og hún gat oft glaðst yfir litlu. Hún
sagði mér það, bara nokkrum vik-
um fyrir andlátið, að henni hefði
aldrei leiðst einn einasta dag í sínu
lífi. Meðan hún sinnti bústörfum
heima í Einarsnesi hefur hún ef-
laust þurft að skipuleggja tíma sinn
vel til að eiga sér tómstundir. Eftir
að hún var orðin ekkja og flutt til
Reykjavíkur tók hún áfram virkan
þátt í félagsstörfum. Hún var svo
virk í menningarlífi almennt að
manni hætti til að gleyma því hve
aldurinn færðist yfir hana.
Með tengdamóður minni kveð ég
góðan vin og ég er viss um að kynni
mín af henni hafa gert mig að örlít-
ið betri manni en ella. Mig langar
að fá að láni eitt erindi úr erfiljóði
eftir Steingrím Thorsteinsson, en
tengdamóðir mín hafði á honum
miklar mætur:
Þú gerðir löngum bjart á vegum vorum,
þú varst í kvennahópnum prýði sönn;
sem liljur greri’ hið góða í þínum sporum
af göfgi, tign og þýðri kærleiks önn.
Sigríður
Guðmundsdóttir ✝Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
EINAR J. EGILSSON,
Vogatungu 103,
Kópavogi,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð sunnu-
daginn 14. september.
Ásgerður Ólafsdóttir,
Ásdís Einarsdóttir,
Þórunn Einarsdóttir, Erling J. Sigurðsson,
Sigurður Egill Einarsson, Elva Stefánsdóttir,
Birgir Einarsson, Fanney Sigurðardóttir,
Egill Einarsson, Berglind Tulinius,
afabörn og langafabörn.
✝
Sonur minn, bróðir og frændi,
ÍSLEIFUR H. GUÐMUNDSSON,
Háaleitisbraut 123,
Reykjavík,
varð bráðkvaddur á heimili sínu mánudaginn
8. september.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
19. september kl. 13.00.
Guðmundur F. Jónsson,
Jón Guðmundsson, Renate Gudmundsson,
Gunnar B. Guðmundsson,
Guðmundur Chr. Jónsson,
Juliane Gudmundsson.
✝
Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
NÍELS KRÜGER
skipasmiður,
Byggðavegi 136a,
Akureyri,
lést miðvikudaginn 10. september.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn
22. september kl. 13.30.
Kristjana Krüger Níelsdóttir, Sigurður Pálmi Randversson,
Haraldur Krüger, Bryndís Benjamínsdóttir,
Þorsteinn Krüger, Guðrún Heiða Kristjánsdóttir,
Auður Stefánsdóttir, Herbert B. Jónsson
og afabörnin.
✝
Bróðir okkar,
HILMAR INGJALDSSON,
lést á Vífilsstöðum fimmtudaginn 4. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Ólöf Ingjaldsdóttir,
Garðar Ingjaldsson,
Svandís Ingjaldsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
ÁRNI I. MAGNÚSSON,
Nönnugötu 16,
Reykjavík,
andaðist föstudaginn 12. september.
Útför fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 18. september kl. 15.00.
Guðfinna Gissurardóttir,
Jón Arnar Árnason og fjölskylda,
Halla Margrét Árnadóttir og fjölskylda.