Morgunblaðið - 17.09.2008, Síða 29

Morgunblaðið - 17.09.2008, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 29 Um leið og ég flyt aðstandendum Sigríðar og vinum mína dýpstu hluttekningu er mér þakklæti í huga fyrir allar dýrmætu minning- arnar sem hún lætur okkur eftir. Drottinn blessi minningu hennar. Hallmar Sigurðsson. Í dag er kvödd ættmóðir okkar, Sigríður frá Einarsnesi. Amma var afskaplega aðlaðandi kona. Hún var með eindæmum geðprúð og hafði einstakt lag á öllum í kringum sig. Það var gott að vera í návist henn- ar enda var hún sjaldan ein. Það er að vonum stórt skarð sem hún amma skilur eftir sig en þá er gott að orna sér við minningar um hvern mann hún hafði að geyma. Hún skilur eftir sig margar og góð- ar minningar. Amma skipti sjaldan skapi, enda þótt við barnabörnin sem dvöldumst hjá henni, oft sum- arlangt, reyndum stundum á þolrif- in í henni. Mér er minnistætt þegar ég og frænkur mínar, Salvör og Jóhanna, dvöldumst í sveitinni hjá ömmu eitt sinn. Við vorum þá barnungar. Amma sem alltaf var virk í félags- störfum fór á kvenfélagsfund að kvöldi til en afi Sigþór átti að gæta okkar. Okkur langaði að gera vel við ömmu og fengum þá hugmynd að þrífa allt húsið hjá henni. Þroski okkar var ekki meiri en svo að við notuðum til verksins eldhúsrýjuna, en með henni strukum við sam- viskusamlega af öllum húsgögnum, póleraða píanóinu og öðrum inn- anstokksmunum. Ömmu biðum við svo með mikilli eftirvæntingu. Nú þegar ég er kominn til vits og ára, dáist ég að þeirri stillingu sem hún sýndi þegar hún kom heim. Ég man ekki eftir að hún hafi reiðst okkur. Hún kenndi okkur hins vegar að nota hreinar tuskur í verkin, enda horfðum við á hana þrífa húsið að nýju hátt og lágt næstu daga. Hún tók viljann fyrir verkið. Amma hafði alltaf tíma fyrir fólk- ið sitt. Þótt hún væri virk í fé- lagslífinu þá gat hún alltaf fundið sér tíma fyrir okkur. Hún fylgdist með okkur af miklum áhuga og stóð á bak við fólkið sitt í blíðu og stríðu. Í ömmu áttum við okkar besta vin. Með virðingu og þakk- læti kveð ég ömmu Sigríði í Ein- arsnesi. Herdís Hallmarsdóttir. Þegar ég hugsa til ömmu Sigríð- ar þá minnist ég sterkrar konu sem bjó yfir miklum persónuleika. Hún hafði mikið skopskyn og góða nær- veru, var barnelsk og hlý. Amma var félagslynd að eðlisfari, henni fannst ekkert skemmtilegra en að hafa fólk í kringum sig og var mjög gestrisin. Þegar ég kom í heimsókn var alltaf hitað kakó í potti úr ekta súkkulaði og boðið gotterí með. Svo var sest yfir veitingarnar og farið yfir nýjustu fréttir úr stór- fjölskyldunni og spjallað um allt milli himins og jarðar. Amma bjó lengi vel í Einarsnesi. Á mínum yngri árum var ég því svo lánsöm að geta verið mikið samvistum við hana. Mér fannst alltaf ríkja mikil dulúð yfir gamla bænum í Einarsnesi og var hann mér eins og ævintýraland sem ég var svo heppin að fá að njóta sem barn Ömmu leið vel í sveitinni, en henni leið ekki síður vel í höf- uðborginni þangað sem hún fluttist eftir að gamli bærinn brann. Hún hafði alltaf eitthvað spennandi fyrir stafni. Amma er og verður fyr- irmynd mín þegar ég tekst á við nýja hluti, því við það var hún hvergi smeyk og má með sanni segja að hver dagur hafi verið henni tilhlökkun. Síðustu mánuði sína dvaldi amma á Sóltúni og þangað var mjög notalegt að heimsækja hana og yndislegt að sjá hversu vel var hugsað um hana þar. Þrátt fyrir að hafa verið mikið veik síðasta ár sitt þá var amma ávallt jákvæð og kveinkaði sér ekki þótt oft væri ástæða til. Þó svo að líkaminn hafi gefið sig smátt og smátt var hug- urinn alltaf sterkur. Ég hugsa til elsku ömmu minnar með miklum söknuði. Hún mun ávallt lifa í minningu minni og hjarta sem hún svo sannarlega snerti. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesú, í þína hönd. Síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Sigríður Þóra Óðinsdóttir. Sigríður Guðmundsdóttir í Ein- arsnesi var minnisstæð og merki- leg kona. Hún var tengdamóðir mín um árabil og rækti það hlut- verk sitt miklu betur en ég átti skilið. Það var gott að koma í Ein- arsnes til þeirra hjóna Sigríðar og Sigþórs Þórarinssonar, hins mæta manns hennar, sem féll frá allt of snemma. Stráknum var tekið opn- um örmum. Það var gott að sitja þar í eld- húsinu eða stofunni – það var ekki nóg með það að maður þægi rausn- arlegar veitingar án þess að þakka nokkurn tímann nægilega vel fyrir sig – heldur fékk maður fyrirlestra um aðskiljanlegustu málefni frá frú Sigríði. Sigríður var nefnilega mjög fróð og rökvís og engin tilviljun að börn þeirra hjóna héldu öll í lang- skólanám. Það var eins gott að hafa áhuga á umræðuefninu sem maður bryddaði upp á því að frú Sigríður setti á mann langar ræður ef henni fannst vanta upp á að allt væri tekið með í reikninginn og hinu röklega samhengi væri ábóta- vant. Við fráfall hennar nota ég tæki- færið og minnist með þakklæti góðra stunda í Einarsnesi með þeim hjónum og vináttu þeirra og hjálpsemi meðan beggja naut við og frú Sigríðar eftir fráfall Sigþórs. Baldur Kristjánsson. Hlýtt viðmót, nærgætni og höfð- ingsskapur er það fyrsta sem í hug- ann kemur er ég minnist Sigríðar Guðmundsdóttur frá Einarsnesi. Hverjum þeim er henni kynntist varð strax ljóst að þar fór kona sem gat borið höfuð hátt og það þótt líf- ið hafi á stundum verið annasamt við bústörf og barnauppeldi, en hún var svo lánsöm að hafa eignast stóran hóp hæfileikaríkra barna. Það lætur að líkum að oft hlýtur hún að hafa átt langan vinnudag og gengið þreytt til náða. En glaðlyndi og jákvætt lífsviðhorf, umhyggja og umburðarlyndi skipuðu henni á fremsta bekk meðal jafningja. Ég var svo lánsamur að kynnast Sigríði, fyrst sem veitulli húsmóður og gleðigjafa á gestrisnu heimili þeirra hjóna í Einarsnesi, hennar og Sigþórs Karls Þórarinssonar. Kynni okkar Sigþórs voru skemmri en skyldi vegna veikinda hans og fráfalls. En kynni okkar Sigríðar urðu lengri þar eð hún var síðar í sambýli við þau hjónin Sigríði dótt- ur sína og Hallmar son minn. Sigríður var fjölfróð, sagði skemmtilega frá. Mér eru í minni stundir við morgunverðarborðið í Nönnugötunni. Þá gaf hún mér inn- sýn í „gömlu Reykjavík“ sem hún var gagnkunnug og sagði skil- merkilega frá. Ég dáðist að því hve hlýlega hún minntist horfinna sam- ferðafélaga. Þá eru mér líka minnisstæðar stundirnar sem við áttum við spila- borðið, en Sigríður var snjall bridgespilari. Aldrei gat ég fundið að henni mislíkaði þótt ég spilaði góðu spili af mér. Alltaf fann hún ástæðu til að sætta okkur við orð- inn hlut. Hin síðustu ár hrjáðu hana erfið veikindi, en ætíð bar hún með sér gleði og höfðingskap hvar sem hún fór. Enginn fann sig minni í návist hennar. Með henni var gott að gleðjast og þótt hún hefði aðeins barnaskólanám að baki, var hún mörgum langskólagengnum mennt- aðri. Hún var hæfileikarík, listelsk og hafði góða söngrödd. Mér hlýnar við minninguna um hana. Hjartans þakkir fyrir samfylgdina Aðstandendum sendi ég samúð- arkveðjur okkar hjóna. Sigurður Hallmarsson. ✝ Kær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓHANNES PÁLL JÓNSSON frá Sæbóli, Aðalvík, Herjólfsgötu 40, Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 9. september. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði fimmtudaginn 18. september kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð MND-félagsins. Sólveig Björgvinsdóttir, Björg Jóhannesdóttir, Sigurður Skagfjörð Steingrímsson, Signý Jóhannesdóttir, Magnús Ingi Óskarsson, Sif Jóhannesdóttir, Ingólfur Arnarson og afabörnin. ✝ Hjartkær sonur okkar, bróðir og unnusti, SVERRIR FRANZ GUNNARSSON, Birtingakvísl 14, Reykjavík, sem lést mánudaginn 8. september, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 19. september kl. 13.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á að láta Hjartaheill njóta þess. Fyrir hönd aðstandenda, Gunnar Kristján Sigmundsson, Guðný Sverrisdóttir, Ari Þór Gunnarsson, Vala Hrönn Guðmundsdóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR, Hraunvangi 7, Hafnarfirði, áður til heimilis að Suðurgötu 61, Hafnarfirði. Vilborg Pálsdóttir, Þráinn Kristinsson, Katrín Pálsdóttir, Anna María Pálsdóttir, Per Landrö, Páll Gunnar Pálsson, Ólína Birgisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, mágkona, amma og langamma, STEINUNN JÓHANNA HRÓBJARTSDÓTTIR, Kambaseli 54, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 9. september. Útförin fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 19. september kl. 13.00. Hróbjartur Jónatansson, Valgerður Jóhannesdóttir, Pjetur Einar Árnason, Unnur Hansdóttir, Agnar Þór Árnason, Lára Ingólfsdóttir, Áslaug Árnadóttir, Sigurður Páll Harðarson, Luther C.A. Hróbjartsson, Kolbrún Helgadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN JÚLÍUSSON bóndi, Breiðabóli, Svalbarðsströnd, verður jarðsunginn frá Svalbarðskirkju, föstudaginn 19. september kl. 14.00. Ásta Sigurjónsdóttir, Hilmar Stefánsson, Elín Valgerður Eggertsdóttir, Vignir Stefánsson, Kristín G. Pálsdóttir, Heimir Stefánsson, Gísley G. Hauksdóttir, Aðalheiður Stefánsdóttir, Þorgils Jóhannesson, Svala Stefánsdóttir, Þröstur Óskar Kolbeins, Alda Stefánsdóttir, Bjarni Pálsson, Linda Stefánsdóttir, Gylfi Halldórsson, Jón Haukur Stefánsson, Guðrún Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, LJÓTUNNAR JÓNSDÓTTUR, áður Holtsgötu 37, Reykjavík. Pálmi Jónsson, Reynir Guðmundsson. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLA KRISTRÚN JAKOBSDÓTTIR, Seljalandi 7, Reykjavík, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni mánu- daginn 8. september, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 18. september kl. 13.00. Friðrik Eiríksson, Sigurborg Sigurbjarnadóttir, Pétur P. Johnson, Herdís Ólöf Friðriksdóttir, Guðmundur Þór Guðbrandsson, Jakob Sigurður Friðriksson, barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hve- nær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvað- an útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar Björg Hansdóttir,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.