Morgunblaðið - 17.09.2008, Síða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Atvinnuauglýsingar
Biskup Íslands auglýsir lausa til
umsóknar afleysingu fyrir
sóknarprest
í Reykhólaprestakalli,
Vestfjarðaprófastsdæmi
frá 1. nóvember 2008 til 20. febrúar 2010.
Óskað er eftir því að umsækjendur geri skrif-
lega grein fyrir menntun sinni, starfsferli og
öðru því sem þeir óska eftir að taka fram.
Umsóknarfrestur rennur út 4. október nk.
Umsóknir sendist Biskupi Íslands, Biskups-
stofu, Laugavegi 31, 101 Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar um embættið,
starfskjör, helstu lög og reglur sem um starfið
gilda, eru veittar á Biskupsstofu, s. 535 1500.
Sjá ennfremur vef Þjóðkirkjunnar,
www.kirkjan.is/biskupsstofa.
Barnaskólar
Hjallastefnunnar
Barnaskólar Hjallastefnunnar í Garðabæ,
Hafnarfirði og Reykjavík auglýsa eftir
jákvæðu og glöðu starfsfólki í eftirfarandi
störf:
Grunnskólakennara í kennslu á yngsta
stigi, almenn bekkjarkennsla.
Ýmis störf í frístundastarfi skólanna eftir
kl. 14 til 17 alla daga vikunnar.
Umsóknarfrestur er til og með föstudeginum
26. september 2008. Nánari upplýsingar
veitir Þorgerður Anna Arnardóttir í síma
824 0604 eða á netfangið thaa@hjalli.is
Raðauglýsingar 569 1100
Kennsla
Kennarar
Kennarar óskast til yfirferðar á samræmdum
könnunarprófum í 4. og 7. bekk 2008. Skilyrði
er að viðkomandi hafi kennt þessum árgöng-
um stærðfræði eða íslensku.
Umsóknarfrestur er til 1. október nk. Nánari
upplýsingar eru veittar hjá Námsmatsstofnun í
síma 550 2400 milli kl. 13:00 og 16:00 alla virka
daga þar til umsóknarfrestur rennur út.
Hægt er að sækja um á heimasíðu stofnun-
arinnar, www.namsmat.is.
Styrkir
Styrkir til kennslu grunnnáms
í listdansi
Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir um-
sóknum um rekstrarstyrki til dansskóla er
kenna listdans samkvæmt aðalnámskrá fyrir
listdansskóla. Styrkjunum er ætlað að efla
framboð grunnnáms í listdansi. Skilyrði fyrir
styrkveitingu er að skólinn hafi hlotið
viðurkenningu ráðuneytisins á starfseminni
samkvæmt viðmiðum sem ráðuneytið hefur
sett. Umsókn um rekstrarstyrk þurfa að fylgja
upplýsingar um nemendafjölda á hverju stigi
grunnnámsins, upplýsingar um kennslustunda-
fjölda og skólagjöld. Nánari leiðbeiningar um
frágang umsókna eru á umsóknareyðublaði
sem er á vef ráðuneytisins, http://www.mennta-
malaraduneyti.is/afgreidsla/sjodir-og-eydu-
blod/menntamal/nr/3665. Umsóknarfrestur er
til 15. október næstkomandi.
Menntamálaráðuneyti, 16. september 2008.
menntamalaraduneyti.is
Félagslíf
I.O.O.F. 9 189170981/2I.O.O.F. 7. 18991771/2 RK.
I.O.O.F. 18 1899178 Bk.Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Helgi Jónsson, góður
vinur og félagi, hefur
nú hafið sig til flugs á nýjar ókunnar
slóðir, svo óvænt, hljóðlega og alltof
snemma. Því langar mig að minnast
þessa vinar og höfðingja með nokkr-
um fátæklegum orðum. Ég var stadd-
ur í Ameríku er ég fékk fréttirnar um
að þú hefðir kvatt þennan heim. Hug-
urinn reikaði til fyrri ára og er mér
enn í fersku minni er ég kom fyrst á
þinn fund í gamla flugturninn fyrir
meir en 40 árum var ég þá að kanna
möguleika á flugnámi. Þú tókst mér
tveim höndum frá fyrsta degi og lauk
ég flugnámi undir þinni góðu umsjá.
Ekki nóg með það, heldur, að námi
loknu, bauðst þú mér starf sem flug-
maður hjá þér og starfaði ég hjá þínu
fyrirtæki um hríð sem gaf mér dýr-
mæta reynslu og kom að góðum not-
um fyrir framtíðina á vegum loftsins.
Helgi var gull af manni, fylgdist
með sínum nemendum áfram að
loknu námi, hjálpaði þeim eins og
hann hafði tök á, bæði að fá starf og
einnig var alltaf gott að leita til hans
og fá góð ráð. Þetta er orðinn stór
hópur og er mér nær að halda að hann
hafi vitað upp á hár hvar hver og einn
var og er ég einnig nokkuð viss um að
hann hafi litið á hópinn sem um eigin
syni og dætur væru að ræða.
Oft kom ég við í gegnum árin í kaffi
og snúð hjá Helga og Jytte á flugvell-
Kristmundur Helgi
Jónsson
✝ KristmundurHelgi Jónsson
fæddist á Neðribæ í
Selárdal, Arnarfirði,
11.2. 1938. Hann
varð bráðkvaddur á
vinnustað sínum í
lok vinnudags hinn
6. september síðast-
liðinn.
Helgi var jarð-
sunginn frá Dóm-
kirkjunni 16. sept. sl.
inum og þar var alltaf
afskaplega gott að
koma og mér tekið hlý-
lega og fagnandi eins
og öllum sem litu við.
Mikið var spáð og mál-
in rædd, ekki bara um
flug heldur hvað sem
var, þetta var hluti af
tilverunni enda mörg
lífsgátan leyst í Flug-
skóla Helga yfir kaffi-
bolla og „brúnni“.
Helgi hafði alltaf nóg-
an tíma til að hlusta og
gefa góð ráð. Ég veit
að það verður ekki slegið slöku við á
nýjum slóðum og óska þér góðrar
lendingar. Ég er þakklátur fyrir að
hafa átt þig að vini.
Kæra Jytte, Ester, Astrid, Jón og
fjölskyldur ykkar, við Helga sendum
ykkur innilegustu samúðarkveðjur.
Guð veri með ykkur.
Hermann Friðriksson.
Helga kynntist ég fyrst í kringum
1986 þegar ég kom í flugskólann hjá
honum og Jytte til þess að halda
áfram flugnámi sem ég hafði rétt
byrjað á nokkru áður. Þegar þetta var
þá var ys og þys á Reykjavíkurflug-
velli, mikið að gerast, einkaflugið í
blóma, flugskólinn iðandi af lífi og
mikið flogið.
Að koma til þeirra hjóna í nám var
mikið happaspor hjá mér.
Flugnámið var dýrt og það vildi
stundum bregðast að ég gæti greitt
mína mánaðarlegu skuld á tíma. En
það vantaði ekki skilninginn á slæm-
um fjárhag ungs flugnema og ekki
var gengið hart eftir greiðslum þó að
þeim seinkaði um mánuð eða tvo.
Eftir að hafa lokið einkaflugmanns-
prófi hjá Helga hafði ég áhuga á að
fara úr landi í atvinnuflugmannsnám.
Ég bar þetta undir Helga og það var
eins og við manninn mælt að hann
hvatti mig til dáða og sagði mér að
það myndi einungis þroska mig og
bæta að kynnast því að fljúga erlend-
is, frekar en að nema allt á Íslandi.
Það er ég viss um að aðrir skólastjór-
ar hefðu ekki gert, að benda nemum
sínum á að læra og eyða peningum
annars staðar! Það var gott vega-
nestið sem ég fór með til Kanada frá
Flugskóla Helga Jónssonar.
Nokkrum dögum eftir heimkom-
una frá Kanada, með splunkunýtt at-
vinnuflugmannsskírteini í vasanum,
hringdu þau hjón í mig og buðu mér
vinnu sem kennari og flugmaður, því-
líkur lottóvinningur sem það var. Á
þessum árum var lítið um vinnu í flug-
inu og hart barist um þau störf sem
voru í boði.
Ég vann hjá Helga og Jytte í rétt
rúm tvö ár og þeirrar reynslu hef ég
notið æ síðan. Eitt af því sem þótti
mest spennandi var flugið til Græn-
lands, en þangað stundaði Helgi í ára-
tugi bæði áætlunar- og leiguflug. Þær
eru ógleymanlegar stundirnar þar og
flugferðir með Helga, Jóni syni hans,
Birgi Erni, Þórhalli og hinum strák-
unum. Helgi var óþreytandi við að
fræða mann um Grænland, alla stað-
hætti og veðurfar.
Þegar ég er að skrifa þetta þá get
ég ekki annað en brosað þegar ég
minnist ferðanna með Helga á Bíldu-
dal, maðurinn bókstaflega þekkti
hverja þúfu, stein og símastaur á leið-
inni, þvílík unun sem það var að fá að
læra af Helga.
Það lýsir Helga vel hvað hann var
óspar við að nota sín sambönd og
hvetja unga flugmenn sem störfuðu
hjá honum að komast í störf hjá hin-
um ýmsu flugfélögum. Það var ekki
lítils virði að hafa meðmælabréf frá
Helga Jónssyni upp á vasann þegar
sótt var um vinnu.
Hann vissi hvað klukkan sló og
gerði sitt til þess að efla starfsframa
sinna manna og þeir eru orðnir ansi
margir sem áttu honum skuld að
gjalda.
Með Helga gengnum er kafla lokið í
íslenskri flugsögu. Helgi var goðsögn í
lifanda lífi og flugið á Íslandi á honum
mikið að þakka. Fjöldi þeirra sem
hafa stundað flugnám í Flugskóla
Helga Jónssonar er mikill og fyrrver-
andi nemendur Helga eru nú flug-
menn og flugstjórar víða um heim.
Kæra Jytte, ég og fjölskylda mín
vottum þér og fjölskyldu þinni okkar
dýpstu samúð og óskum þér Guðs
blessunar.
Trausti Magnússon,
flugstjóri.
Vegna mistaka
vantaði upphaf grein-
arinnar fimmtudaginn 4. september.
Hlutaðeigandi eru beðnir afsökunar.
Í huganum er sól og sumar fyrir
vestan á lognkyrrum firði þar sem
tíminn stendur í stað og sjórinn dreg-
ur andann svo hægt að spegilmynd
fjallanna gárast ekki og hafgolan bíð-
ur en kemst ekki inn, ekki í þetta
Steinunn
Brynjúlfsdóttir
✝ Steinunn Brynj-úlfsdóttir fædd-
ist í Vestmanna-
eyjum 30. septem-
ber 1948. Hún
andaðist á Landspít-
alanum, krabba-
meinsdeild, 19.
ágúst síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Vídalíns-
kirkju í Garðabæ
29. ágúst.
sinn. En fyrr eða síðar
brotnar myndin og
hverfur og kemur
aldrei aftur því öldurn-
ar má hana út. Eftir
stendur minningin ein.
En sunnan við sanda
er eyjan eina vindi bar-
in en báðir staðirnir
líkjast hvor öðrum þótt
langt sé á milli því allir
áttu sitt undir sjónum
bæði í Vestmannaeyj-
um og Ísafirði. En
hvernig kynnast ungar
sálir yfir heiðar og
höf? Forlögin myndu sumir segja og
kannski er það rétt. Við Vestfirðing-
arnir fórum flestir í Menntaskólann á
Akureyri eftir landspróf, hefðin
stýrði því og heimavistin, það sama
átti við um Eyjamenn. Menntaskóla-
árin liðu eins og örskotsstund og við
ísfirsku félagarnir héldum saman.
Steinunn kom með, bættist í hópinn
og útskriftardaginn skein sól í heiði
áður en alvara lífsins tók við og fór að
marka okkur með sorgum og sigrum.
Þótt smám saman fenni í sporin
rofna aldrei gömul tengsl og glitra
eins og stjörnur á himni. Það var ekki
heiglum hent að lesa utanskóla sum-
arlangt og stytta sér leið til þess að
útskrifast með unnusta sínum en það
gerði hún með glans, órækur vitn-
isburður ástar og gáfna. Ég man
sumarið á fyrstu búskaparárunum
þeirra fyrir vestan með elsta barnið.
Við Halldór unnum saman og steypt-
um rör á kreppuárunum seint á sjö-
unda áratug síðustu aldar er síldin
hvarf eins og dögg fyrir sólu og við
heppnir að fá vinnu. Ég vil minnast
hinna glöðu stunda er við áttum sam-
an öll fyrir norðan, á Ísafirði, og há-
skólaáranna í Reykjavík. Ferðar
norður í Fljótavík það sumar og
bjartra nátta við veiðar. Hennar
hæversku og íhygli og góðra sam-
skipta er ég átti við hana, vinnu
minnar vegna á rannsóknarstofunni
þar sem hún vann síðustu árin. Ég
votta fjölskyldu hennar mína dýpstu
samúð og veit að handan við vötnin
miklu bíða aðrar eyjar og lognsælir
staðir og hjörtu sem unnast.
Stefán Finnsson.