Morgunblaðið - 17.09.2008, Page 36

Morgunblaðið - 17.09.2008, Page 36
Allur matur er smit- aður með geðdeyfð- arlyfi …39 » reykjavíkreykjavík „ÞETTA gekk ekki alveg nógu vel. Ég veit ekki hvort fólk er svona fá- tækt í dag eða hvort tímasetningin var röng en þarna voru bestu hljóm- sveitir landsins að spila,“ segir Stein- ar Jónsson, skipuleggjandi Iceland Music Fest-tónlistarhátíðarinnar sem haldin var í Tunglinu um helgina. Illa seldist á hátíðina og tók Steinar til þess ráðs að aflýsa laug- ardagskvöldinu sökum slakrar miða- sölu. „Föstudagskvöldið gekk ágætlega þó að mætingin hefði mátt vera betri og sunnudagskvölidð gekk líka hálf- brösuglega. Bæði var tæknin að stríða okkur og svo urðum við að bíða í hálftíma eftir að fyrsta hljómsveitin steig á svið. Það var hins vegar ljóst að laugardagskvöldið stefndi í tómt hús og ég ákvað bara að endurgreiða þeim sem höfðu keypt miða,“ segir Steinar sem er einungis 16 ára gam- all en hefur þó um tveggja ára skeið staðið að ýmsum uppákomum á tón- listarsviðinu, hélt sitt fyrsta tónleika- kvöld með Hrafnkeli Flóka Einars- syni (Benediktssonar) 14 ára gamall í Grafarvoginum og starfar nú meðal annars sem umboðsmaður Haffa Haff og Dabba T. Dýrt námskeið „Mér sýnist að þessi bransi sé allur að deyja út. Það segir okkur til dæm- is margt að meira að segja Einar Bárðar er hættur í þessu,“ segir Steinar og bætir við að núna hyggist hann taka því rólega í nokkurn tíma, enda peningarnir á þrotum. „Mínir vasar eru tómir eftir þetta. Ég er kominn í gjaldþrot. Kostnaðurinn af hátíðinni var um 700 þúsund krónur og það komu aðeins 200 þúsund krón- ur inn í kassann. Þetta eru stórar upphæðir fyrir 16 ára menntaskóla- nema. Þetta var dýrt námskeið sem hefði getað verið enn dýrara ef hljómsveitirnar hefðu ekki samþykkt að spila frítt,“ segir Steinar sem þó hyggst ekki leggja árar í bát fyrir fullt og allt. „Ef ég þekki sjálfan mig rétt verð ég kominn út í eitthvað svipað eftir nokkra mánuði. Það misstíga sig allir og það þýðir ekkert að gefast upp. hoskuldur@mbl.is „Mínir vasar eru tómir“ Morgunblaðið/Eggert Félagar Hrafnkell Flóki Einarsson og Steinar Jónsson, skipuleggjandi há- tíðarinnar. Steinar stefnir á að taka því rólega í vetur. 16 ára tónleikahaldari, Steinar Jónsson, fór flatt á IMF  Ásdís Rán Gunnarsdóttir fyrirsæta er nú á batavegi eftir uppskurð sem hún gekkst undir í Búlgaríu um helgina. Ásdís greindist með æxli í kviði sem rofið hafði gat á eggja- stokk en það leiddi til töluverðra innvortis blæðinga, eins og lesa mátti um í Morgunblaðinu í gær. Eitt af því sem læknar ráðlögðu Ásdísi var að taka því rólega næstu mánuði og því er ljóst að Ásdís mun ekki geta komið sér jafnskjótt í það form sem hún ætlaði sér áður en keppnin um The Million Dollar Woman hefst í Sidney í Ástralíu í upphafi næsta árs. Ásdís hefur þó sýnt og sannað að hún lætur ekki barneignir né fyrirtækjarekstur koma í veg fyrir að draumar henn- ar á fyrirsætusviðinu rætist og því má allt eins gera ráð fyrir að mót- lætið nú herði hana enn í sókninni eftir fyrsta sætinu og milljóninni sem í boði er. Ásdís Rán tekur það rólega næstu mánuði  Fréttir af ný- skipuðum fréttastjórum á RÚV og 365 vöktu athygli í gær en minna fór fyrir frétt- um af breyt- ingum á frétta- stofu Baggalúts sem sagt var frá á vef stofunnar: „Fréttastofa Baggalúts hefur verið sameinuð indversku héraðs- fréttastofunni HotHinduNews. […] Undir fréttastofuna heyra alls 104 svæðisstöðvar á Indlandi, í Fær- eyjum og á Íslandi auk ritstjórnar baggalúts.is og indiansupermonk- eybabes.tv. [...] Nokkur kergja er í fréttamönnum Baggalúts vegna málsins, en freklega þótti gengið framhjá reyndum fréttastjóra Baggalúts, Málfríði Einarz, þegar apinn Hóras, sem er indverskur að uppruna, var skipaður yfirmaður sameinaðrar fréttastofu.“ Sviptingar á fjölmiðla- markaði vekja athygli Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „MYNDIN gekk náttúrulega mjög vel á Íslandi og fékk mjög góðar viðtökur þannig að maður gat al- veg séð þetta gerast. En maður veit aldrei hvað býr í hugum fólks,“ svarar Baltasar Kormákur, spurður hvort það hafi komið hon- um á óvart að Brúðguminn skyldi verða valinn sem framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna fyrir bestu erlendu myndina á næsta ári. Þetta er í þriðja sinn sem kvik- mynd eftir Baltasar er send í for- valið, hinar tvær Hafið og Mýrin, en sú síðarnefnda var framlag Ís- lands í fyrra. „Þetta er alltaf mjög hörð keppni og margir af þessum stóru miðlum voru búnir að spá því að Mýrin ætti mikinn séns en svo kom valið í fyrra svolítið á óvart, ekki gagnvart henni endilega en ýmsum öðrum myndum,“ segir Baltasar, og nefnir sem dæmi að aðalverð- launamynd Cannes í fyrra, rúmenska myndin 4 mán- uðir, 3 vikur og 2 dagar, hafi ekki verið tilnefnd. Baltasar telur Brúðgumann höfða til víðs aldurshóps og það geti hugsanlega orðið henni til framdráttar. Hópurinn sem velji myndir til tilnefningar hjá Ósk- arsakademíunni sé í eldri kant- inum. „Það eru svona mann- eskjulegheit og stemning í henni sem gætu höfðað til hennar (aka- demíunnar) en ég er ekki maður til að spá um það,“ segir Baltasar. Heppnin ráði líka miklu. Margar að horfa á Baltasar segist ekki hafa átt von á því að ná árangri með Hafið en hafi svo frétt af því að hún hafi verið mjög nálægt því að komast í hóp tilnefndra mynda. Samkeppnin sé vissulega mikil, valnefnd þurfi að horfa á einar 90 kvikmyndir. „Stór hluti af akademíunni er fagfólk, tökumenn, klipparar og svona og það er þá kannski meira af gamla skólanum, ekki eins opið fyrir digital og vill hafa meira handverk á bakvið þetta,“ segir Baltasar um valnefnd erlendra kvikmynda hjá Óskarsakadem- íunni. Dogmamyndir og aðrar myndir í hrárri og ódýrari kant- inum hafi t.d. ekki átt upp á pall- borðið hjá nefndinni, m.a. Festen. Nóg að gera Það er nóg að gera hjá Baltasari, ekki að spyrja að því. Hann er að klippa Run for Her Life, Arnaldur Indriðason er að skrifa handrit upp úr glæpasögunni Grafarþögn sem Baltasar hyggst leikstýra og svo er Baltasar að skrifa handrit að stór- mynd byggðri á Íslendingasög- unum, með „víkingabardögum úti í vatni og öllum pakkanum“, eins og leikstjórinn orðar það. Hann segir ekki annað koma til geina en taka þá mynd hér á landi og mikill áhugi sé erlendis fyrir þeirri mynd. Þá mun Baltasar leikstýra The Bird Artist eftir sögu Howards Norman, í haust eða vetur. Auk þess segist hann hafa fengið tilboð frá leikhúsum erlendis og margt freistandi sé í boði. Allt er þá þrennt er?  Brúðguminn verður framlag Íslands til forvals Óskarsverðlaunanna  Leikstjórinn segir manneskjulegheit geta höfðað til valnefndar Leikstjórinn Mun Brúðguminn heilla Óskarsakademíuna? HINN 22. janúar 2009 verður til- kynnt hvaða erlendu myndir, þ.e. kvikmyndir á öðru tungu- máli en ensku, verða tilnefndar til Óskarsverðlauna það ár. Ís- lendingar hafa sent myndir í forvalið allt frá árinu 1980. Ein íslensk kvikmynd hefur komist í hóp tilnefndra, Börn náttúrunnar í leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar. Þá hefur stuttmynd verið tilnefnd, Síð- asti bærinn eftir Rúnar Rún- arsson, árið 2006. 2009 Brúðguminn 2008 Mýrin 2007 Börn 2006 Í takt við tímann 2005 Kaldaljós 2004 Nói albínói 2003 Hafið 2002 Mávahlátur 2001 Englar alheimsins 2000 Ungfrúin góða og húsið 1999 Stikkfrí 1998 Blossi/810551 1997 Djöflaeyjan 1996 Tár úr steini 1995 Bíódagar 1994 Hin helgu vé 1993 Svo á jörðu sem á himni 1992 Börn náttúrunnar 1991 Pappírspési 1990 Kristnihald undir Jökli 1989 Í skugga hrafnsins 1988 Skytturnar 1987 Eins og skepnan deyr 1986 Skammdegi 1985 Hrafninn flýgur 1984 Húsið 1983 Okkar á milli 1982 Útlaginn 1981 Land og synir Þrítugasta framlagið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.