Morgunblaðið - 17.09.2008, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 17.09.2008, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 39 Þú færð 5 % endurgreitt í SmárabíóSími 564 0000 Mirrors kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára Mirrors kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS Step Brothers kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára Tropic Thunder kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára www.laugarasbio.is eeee - Ó.H.T, Rás 2 eee - L.I.B, Topp5.is/FBL Langstærsta mynd ársins 2008 Yfir 100.000 manns! Langstærsta mynd ársins 2008 Yfir100.000 manns! Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum Make it happen kl. 4 - 6 LEYFÐ Mamma Mia kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ Grísirnir þrír kl. 4 LEYFÐ 650 kr. fyrir fullorðna - 550 kr. fyrir börn Frábæra teiknimynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali SÝND SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI Hið klassíka ævintýri um grísina þrjá og úlfinn í nýrri og skemmtilegri útfærslu SÝND SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI FRÁ BEN STILLER KEMUR EIN KLIKKAÐASTA GRÍNMYND ÁRSINS! -L.I.B.TOPP5.IS/FBL -DV -S.V., MBL Sýnd kl. 4, 6:30 og 9 -bara lúxus Sími 553 2075 Sýnd kl. 8 og 10 Sýnd kl. 4, 6, 8, og 10 eeee - Ó.H.T, Rás 2 eee - L.I.B, Topp5.is/FBL SÝND SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI Sýnd kl. 4 og 6 m/íslensku tali - H.J., MBL -T.S.K., 24 STUNDIR - L.I.B.,TOPP5.IS/FBL. -Þ.Þ., D.V. VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG EIN FLOTTASTA ÆVITÝRAMYND ÁRSINS MEÐ ÍSLENSKU LEIKKONUNNI ANÍTU BRIEM Í EINU AF AÐALHLUTVERKUNUM. Frábæra teiknimynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali M Y N D O G H L J Ó Ð -V.J.V.,TOPP5.IS/FBL -S.V., MBL-T.S.K., 24 STUNDIR 650 kr.- 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! ALL About Lulu segir frá pilti, William Miller, sem er utanveltu í fjölskyldu sinni; faðir hans og yngri tvíburabræður hans eru vaxtarræktarmenn af lífi og sál og eini bandamað- ur hans er móðir hans, sem hann líkist mest. Liður í hans uppreisn gegn vaxtarræktaræð- inu, kjötæðinu, á heim- ilinu er að piltur gerist grænmetisæta, en þegar móðir hans fellur frá verður það honum svo mikið áfall að hann dregur sig nánast alger- lega í hlé frá lífinu, hættir að tala og hættir að stækka. Þá verður það honum til lífs að faðir hans kvænist aftur því piltur eignast stjúpsystur, Lulu, og fellur gersamlega fyr- ir henni. Þráhyggjan eftir Lulu færir honum áhuga á lífinu að nýju en einangrar hann að vissu leyti líka því hún verður allsráðandi í lífi hans, allt snýst um Lulu og þegar Lulu bregst honum fer allt til fjandans. Þó All About Lulu sé um margt hefð- bundin þroskasaga er hún líka um margt óvenjuleg. Lífið á vaxtarræktarheimilinu er sérkennilegt, svo ekki sé meira sagt, og lýs- ingarnar af því er William fer með föður sínum á vaxtarræktarmót, Mr. Olympia, og hjálpar honum að búa sig undir mótið eru bestu sprettirnir í bókinni. Sérstaklega er gaman að sjá þeim bregða fyrir Frank Zane, Dany Padilla og hrokagikknum Arn- old Schwarzenegger. Annað er ekki eins vel heppnað; útvarps- ferill Williams er alltaf undirliggjandi en kemst aldrei almennilega í gang og eins er frásögnin af rússneska innflytjandanum með stóru draumana og pylsuvagninum hans ekki til að bæta söguna. Lulu er þó stjarnan, forvitnileg persóna sem er á hraðleið til glötunar að segja í gegnum sögna alla, brotakenndur persónu- leiki sem verður fyrir barðinu á flestum og þó mest þeim sem hún elskar. Óvenjuleg uppeldissaga All About Lulu eftir Jonathan Evison. Soft Skull Press gefur út. 340 bls. kilja. Árni Matthíasson BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. Dark Curse – Christine Feehan 2. The Book of Lies – Brad Meltzer 3. American Wife – Curtis Sittenfeld 4. Devil Bones – Kathy Reichs 5. The Guernsey Literary and Po- tato Peel Pie Society – Mary Ann Shaffer & Annie Barrows. 6. The Host – Stephenie Meyer. 7. The Gypsy Morph – Terry Brooks. 8. Silks – Dick Francis & Felix Francis. 9. The Story of Edgar Sawtelle – David Wroblewski 10. Smoke Screen – Sandra Brown New York Times 1. The Kite Runner – Khaled Hosseini 2. The Book Thief – Markus Zusak 3. A Thousand Splendid Suns – Khaled Hosseini 4. In Cold Blood – Truman Capote 5. The Forgotten Garden – Kate Morton 6. The Road Home – Rose Tremain 7. Frankenstein – Mary Shelley 8. Boy in the Striped Pyjamas – John Boyne 9.The Handmaid’s Tale – Margaret Atwood 10.Bones of the Hills – Conn Iggulden Waterstones’s 1. Appeal – John Grisham 2. Blonde Faith – Walter Mosley 3. Irresistable Inheritance of Wilberforce – Paul Torday 4. Book of the Dead – Patricia Cornwell 5. Protect and Defend – Vince Flynn 6. Deadline – Simon Kernick 7. Not in the Flesh – Ruth Rendell 8. Burnt House – Faye Kellerman 9. The Bone Garden – Tess Gerritsen 10. Critical – Robin Cook Eymundsson Eftr Árna Matthíasson arnim@mbl.is NEIL Stephenson er frægur fyrir sínar langlokur og nýjasta bók hans, Anathem, sem kom út 9. sept- ember sl., er þar engin undantekning, hátt í þúsund síður. Að því sögðu er litlu hægt að sleppa úr bókum hans því hann er að glíma við stórar spurningar, velta fyrir sér mannlegri þekkingu, endimörkum hennar og notagildi, segja eins konar vísindasögu og um leið frá glímunni við trúarbrögð sem hafna allri þekkingu. Stephenson beitir gjarnan tækni vísindaskáld- sagna þótt hann sé allajafna ekki langt frá raunveru- leikanum, í það minnsta ekki í síðustu bókum sínum. Þannig var Barrokk-sagnasafnið nánast sagn- fræðileg skáldsaga, en innan um staðreyndir var sitt- hvað sem ekki fékk staðist þegar Stephenson fannst sem hann þyrfti að sveigja land- og sagnfræðilegar staðreyndir að markmiðum sínum. Anathem gerist á veröld sem heitir Arb, en hana byggja mannverur sem eins hefðu getað búið hér á jörðu. Hann notar líka ýmislegt jarðneskt, aðallega þó hugmyndir helstu hugsuða mannkyns, til að smíða úr sögu sína, en skýtur inn framandlegum atriðum eins og kryddi hér og þar. Sögumaður bókarinnar er Fraa Erasmas, eins- konar munkur í þekkingarklaustri þar sem menn leita svara við spurningum sem snerta fræði sem flokkast nokkurn veginn undir stærðfræði, rökfræði, vísindi og heimspeki. Þeir búa einangraðir frá um- heiminum við frumstæðar aðstæður því yfirvöld ákváðu fyrir löngu að skilja á milli hugvísinda og raunvísinda. Málið er nefnilega að stjórnvöld vilja hægja á vísindunum, ekki láta hugvitið þróast svo hratt að þau nái ekki að hafa stjórn á því líkt og þau hafa stjórn á almenningi utan klaustranna með því að allur matur er smitaður geðdeyfðarlyfi, öll tækni til- tæk almenningi frekar frumstæð og engin menning til nema sölumenning að því er virðist. Innan hvers klausturs glíma menn við hugvís- indaleg vandamál, en við óvænta viðburði utan múr- anna stafar þvílík ógn af mannkyni að kalla verður til draumórafólkið – það er það eina sem bjargað getur því mannkyni sem byggir Arb. Sjálfur segist Stephenson vera að velta fyrir sér hugmyndum sem menn hafi glímt við í gegnum ald- irnar og þar á meðal togstreitunni milli meginlands- heimspeki og rökgreiningarheimspeki. Á köflum verður textinn torfkenndur því þegar heimspekingar taka flugið er erfitt fyrir aðra að fylgja þeim, en sagan er bráðspennandi þótt ótrúlegt megi virðast og Erasmas er dæmigerð Stephenson- hetja, sækist ekki eftir því að vera í sviðsljósinu en skorast ekki undan þegar á reynir. Þetta er eina af þeim bókum sem maður ætlar að skammta sér en rankar svo við sér á síðustu síðunum eftir að hafa set- ið heillaður fram á nótt. Anathem eftir Neal Stephenson. William Morrow gefur út. 935 síður innb. Forvitnilegar bækur: Glímt við stórar spurningar Heimspekileg spenna Orðbólga Rithöfundurinn Neal Stephenson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.