Morgunblaðið - 17.09.2008, Qupperneq 40
40 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
SÝND Í KRINGLUNNI
Saga George Lucas heldur áfram
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
-TOMMI - KVIKMYNDIR.ISSÝND Í KRINGLUNNI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
- L.I.B. topp5.is/Fréttablaðið
SÝND Í ÁLFABAKKA
Stórbrotin ævintýramynd sem
allir ættu að hafa gaman af!SÝND Í ÁLFABAKKA
JOURNEY TO THE CENTER OF THE... kl. 5:50 3D - 8 3D - 10:10 3D LEYFÐ 3D - DIGITAL
DEATH RACE kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
DARK KNIGHT kl. 8:30 B.i. 16 ára
DARK KNIGHT kl. 5:40 - 8:30 B.i. 16 ára LÚXUS VIP
SVEITABRÚÐKAUP kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
TROPIC THUNDER kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
THE MUMMY 3 kl. 6 B.i. 12 ára
STAR WARS: C. W. kl. 5:50 LEYFÐ
WALL • E m/ísl. tali kl. 5:50 LEYFÐ
JOURNEY TO THE CENTER OF THE EARTH kl. 63D - 8:103D - 10:203D LEYFÐ 3D - DIGITAL
SMART PEOPLE kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
DEATH RACE kl. 10:10 B.i. 16 ára
GET SMART kl. 5:50 - 8 LEYFÐ
EIN FLOTTASTA ÆVINTÝRAMYND ÁRSINS
MEÐ ÍSLENSKU LEIKKONUNNI ANÍTU BRIEM Í EINU AF AÐALHLUTVERKUNUM.
DENNIS QUAID, SARAH JESSICA PARKER,
ELLEN PAGE, OG THOMAS HADEN CHURCH
Frábær gamanmynd frá
framleiðendum Sideways.
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG “HUGGULEGT GAMANDRAMAÍ ANDA JUNO OG SIDEWAYS”
-TOMMI, KVIKMYNDIR.IS
„...VEL LEIKIN OG ÓVENJU
VEL SKRIFUÐ GAMANMYND...“
„PAGE VINNUR LEIKSIGUR Í HVERRI MYND...“
-S.V. Morgunblaðið.
- H.G.G., POPPLAND-GUARDIAN
Þó að „Money“ hafi verið lagiðsem sló í gegn af The DarkSide of the Moon var „The
Great Gig in the Sky“ tvímælalaust
það eftirminnilegasta, annars veg-
ar fyrir magnaðan söngspuna Clare
Torry, en ekki síður fyrir und-
irspilið úr smiðju höfundar lagsins,
hljómborðsleikarans Rick Wright
sem lést í fyrradag.
Richard William Wright kynntistþeim Nick Mason og Roger
Waters í arkitektúrnámi í London
og tók þátt í að stofna með þeim
hljómsveit sem hét ýmsum nöfnum,
Sigma 6, Megadeaths, The Tea Set,
The Architectural Abdabs, The Ab-
dabs og The Screaming Abdabs.
Listaskólapilturinn Syd Barrett
slóst í hópinn og hann lagði sveit-
inni til nafnið The Pink Floyd eftir
bandarískum blúsurum, en síðan
týndist greinirinn.
Sveitin skar sig snemma úr fyrirfrumlega útfærslu á blús-
grunnuðu poppi, en þó Syd Barrett
og síðar Roger Waters og David
Gilmour hafi jafnan verið í sviðljós-
inu; Barrett fyrir frumlegar laga-
smíðar og Waters síðan fyrir laga-
smíðar sínar og texta og Gilmour
fyrir gítarleik, var Wright einn
helsti arkitekt hljómsins, eða svo
fannst manni í það minnsta þegar
við félagarnir sátum og greindum
„Echoes“ af Meddle í frumþætti.
Það lag, sem hverfist um hljóm frá
Wright, var og vendipunkturinn í
tónlistarsögu Pink Floyd – þegar
sveitin sagði skilið við súrrealíska
poppið sem einkenndi hana á Bar-
rett-árunum og tók stefnuna út í
geim.
Wright var sjálfmenntaður íhljóðfæraleik og þótti aldrei
mikill íþróttamaður á því sviði, en
hans aðal var hljómar en ekki
nótnafjöldi, hann lagði grunninn að
mörgum laga sveitarinnar, byggði
brýr og fyllti upp í eyður. Allmörg
laga Pink Floyd hefðu þannig
hljómað eins og hvert annað blúsað
rokklag ef Richard Wright hefði
ekki lagt hönd á plóg.
Á DVD-disknum Pink Floyd:London, 1966-1967 má þannig
heyra hve Wright var mikilvægur
sveitinni í árdaga, en þar er fyrsta
upptaka af „Interstellar Overdrive“
sem er nokkuð frábrugðin seinni
útgáfum; þeir Wright og Syd Barr-
ett eru í aðalhlutverkum, hrynparið
Nick Mason og Roger Waters þéttir
undir, en þeir fara á kostum Wright
og Barrett.
Aðal Pink Floyd framan af vareinmitt samspil hljómborðs og
gítars sem náði enn hærra þegar
David Gilmour gekk í sveitina, enda
var hann mun betri gítarleikari en
Barrett og með breiðari og betri
hljóm þó að ekki væri hann eins
hugmyndaríkur.
Áður er getið plötunnar mögn-uðu The Dark Side of the
Moon sem gerði sveitina heims-
fræga (þriðja mest selda plata sög-
unnar – menn keyptu þrjú eintök
þegar hún kom út; eitt til að spila,
eitt til að eiga og eitt til að grafa í
jörð fyrir komandi kynslóðir), en
fleira er eftirminnilegt á þeirri
merkilegu plötu en „The Great Gig
In The Sky“ og býsna margt tengist
hljómborðaspilinu. Á The Dark
Side of the Moon átti Richard
Wright þannig þátt í fimm lögum,
hann er tvisvar nefndur á næstu
skífu, Wish You Were Here, og síð-
an ekki söguna meir, en Roger Wat-
ers rak hann svo úr sveitinni þegar
The Wall, síðasta eiginlega Pink
Floyd-platan, var tekin upp.
Ekki ber mönnum saman umhvað olli, en ljóst var að
Wright átti í erfiðleikum með kók-
aín á þeim tíma, en einnig hafa
heyrst sögur af því að hann hafi
viljað láta bíða eftir sér og eins að
hann hafi einfaldlega ekki haft
neitt fram að færa. Það liggur þó
fyrir að á þessum tíma var Roger
Waters orðinn allsráðandi í sveit-
inni og The Wall var í raun hálf-
gerð sólóskífa hans (sagan hermir
að Waters hafi lagt fyrir félaga sína
tvö tilbúin verkefni: The Wall og
The Pros and Cons of Hitchiking og
boðið þeim að velja um hvort yrði
næsta Pink Floyd-skífa en síð-
arnefnda skífan kom út sem sóló-
plata Waters nokkrum árum síðar).
Wright sneri þó aftur í Pink Floyd sem hljómborðsleikari
og lagasmiður eftir að Gilmour tók
við sveitinni og lék með henni og
Gilmour í mörg ár eftir það og
samdi lög, nú síðast á sólóskífu
Gilmour og heimsreisu hans í kjöl-
farið.
Menn hafa mikið rætt það á net-inu undanfarna mánuði að
þeir Roger Waters og David Gilm-
our hafi léð máls á því að taka upp
þráðinn sem Pink Floyd að nýju og
halda í heimsreisu á næsta ári. Ekki
er gott að segja hvort af því verður
(eða hvort það hafi staðið til í raun)
en ljóst að sveitin verður ekki nema
svipur hjá sjón nú þegar Rick
Wright er allur.
arnim@mbl.is
Hljómborðsleikarinn hógværi
»Menn keyptu þrjú eintök af The Dark Side ofthe Moon; eitt til að spila, eitt til að eiga og eitt
til að grafa í jörð fyrir komandi kynslóðir.
Listaspírur Sú útgáfa Pink Floyd sem vann mesta sigra; Nick Mason, Rick Wright, Roger Waters og Syd Barret.
AF LISTUM
Árni Matthíasson
GAMANLEIKARINN Chevy
Chase vill að leikkonan Tina Fey
þjarmi enn betur að varaforsetaefni
repúblikana, Söruh Palin, en hún
gerði í þætti Saturday Night Live
um síðustu helgi. Chase sagði í við-
tali í þættinum Morning Joe að Fey
ætti að ganga frá Palin.
„Mér fannst hún leika hana ótrú-
lega vel og makalaust hvað hún var
lík henni,“ sagði Chase og að „hann
vildi gjarnan sjá hana ganga
lengra“. „Ég vil að hún gangi frá
þessari konu,“ bætti hann svo við og
sagði merkilegt að Palin væri í fram-
boði til varaforseta.
Ráðgjafi John McCain, forseta-
frambjóðanda repúblikana, Carly
Fiorina, er ósáttur við túlkun Fey á
Palin. Hún hafi dregið upp mynd af
afar grunnhygginni konu. Palin, aft-
ur á móti, var skemmt yfir þætt-
inum.
„Henni þótti þetta býsna fyndið,
sérstaklega í ljósi þess að hún brá
sér eitt sinn í gervi Tinu Fey á
hrekkjavöku,“ er haft eftir talskonu
Palin, Tracey Schmitt.
Úr þættinum Tina Fey (t.v.) sem
Sarah Palin og Amy Poehler í hlut-
verki Hillary Clinton, í þætti Sat-
urday Night Live laugardaginn sl.
Vill að Fey
gangi frá
Palin
Sarah Palin Chevy Chase