Morgunblaðið - 17.09.2008, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 41
/ SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI
-L.I.B.TOPP5.IS/FBL
-DV-S.V., MBL
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
SPENNA, HASAR OGTÖFFARASKAPUR
EINS OG ÞAÐ GERIST BEST
“DEATH RACE ER GERÐ Í ÞEIM
TILGANGI AÐ SKEMMTA...”
“POTTÞÉTT AFÞREYING...”
- S.V. - MORGUNBLAÐIÐ
"ALVÖRU STRÁKAMYND SEM KREFST
ÞESS EINUNGIS AÐ ÞÚ SLÖKKVIR Á
HEILANUM OGTAKIR VEL Á MÓTI HÖRÐU
OFBELDI, FLOTTU KVENFÓLKI OG
HEILMIKLUM TÖFFARASKAP"
-TOMMI - KVIKMYNDIR.IS
ATH. STRANGLEGA BÖNNUÐ
INNAN 16 ÁRA.
EKKI FYRIR BÍLVEIKA!
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, AKUREYRI OG SELFOSSI
MIRRORS kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
SVEITABRÚÐKAUP kl. 8 LEYFÐ
DEATH RACE kl. 10:10 B.i. 16 ára
„SVEITABRÚÐKAUP ER SNOTUR
MYND OG SKEMMTILEG,TEKUR
SIG EKKI HÁTÍÐLEGA OG ER
AUÐVELT AÐ NJÓTA.”
- B.S., FBL
- 24 STUNDIR
- S.V., MBL
THE ROCKER kl. 8 B.i. 7 ára
X-FILES: I WANT TO BELIVE kl. 10:10 B.i. 16 ára
SKRAPP ÚT kl. 8 B.i. 12 ára
DECEPTION kl. 10 B.i. 12 ára
STÆRSTA OPNUN Á ÍSLANDI FYRR OG SÍÐAR.
YFIR 68.000 MANNS
EIN BESTA MYND ÁRSINS!
-L.I.B.TOPP5.IS
-T.S.K - 24 STUNDIR
-ÁSGEIR J. - DV
SÝND Í ÁLFABAKKA
TROPIC THUNDER kl. 8 B.i. 16 ára
DEATH RACE kl. 10:20 B.i. 16 ára
SVEITABRÚÐKAUP kl. 8 LEYFÐ
THE STRANGERS kl. 10:20 B.i. 16 ára
MAMMA MIA Sýnd næst 19., 20., 21. sept. LEYFÐ
ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA!
SÝND Á AKUREYRI SÝND Í KEFLAVÍK SÝND Í KEFLAVÍK SÝND Í KEFLAVÍK SÝND Á SELFOSSI 19., 20., 21., SEPTEMBER -EmpireSÝND Í KEFLAVÍK
,,ENGINN [ÆTTI] AÐ GERA ÞAU
MISTÖK AÐ MISSA AF
SVEITABRÚÐKAUPI.”
- Þ.Þ., D.V.
eeee
- Ó.H.T., RÁS 2
PO
RT
hö
nn
un
/A
P
al
m
an
na
te
ng
sl
Ég er 100%
endurvinnanlegur
Mig langar
að endurvinna
þig
Endurvinnsla
– í þínum höndum
Það er í þínum höndum að ákveða hvaða úrgang þú ætlar að flokka og skila til
endurvinnslu. Vel gæti reynst að byrja smátt en bæta svo smám saman við eftir því sem
þú venst hugmyndinni. Í öllum sveitarfélögum er tekið á móti spilliefnum og langflest
þeirra taka við pappa, pappír og plasti til endurvinnslu.
Nánari upplýsingar og einföld ráð um endurvinnslu má sjá á
www.urvinnslusjodur.is/endurvinnsluvika
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
ALLIR gera það sem þeir geta.
Þetta er ekki staðhæfing blaða-
manns heldur yfirskrift sýningar
listamannatvíeykisins Ólafs Ólafs-
sonar og Libiu Castro, sem opnuð
verður í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsi, á morgun. Um leið
verður ýtt úr vör nýrri sýningaröð
safnsins í A-sal, þar sem ætlunin er
að kynna myndlist sem er á „einn
eða annan hátt unnin í tengslum
við samfélagið og íbúa þess og
leita uppi samband og samræður
út fyrir veggi safnsins,“ eins og
segir á vefsíðu safnsins.
Libia og Ólafur vöktu mikla at-
hygli á Manifesta myndlistarhátíð-
inni á Ítalíu í sumar þar sem þau
sýndu m.a. myndbandsverk sem
fjallar um erlent starfsfólk í
umönnunarstörfum og rannsökuðu
í verkum sínum flæði vinnuafls,
peninga og starfa í heiminum.
Mörg portrett mynda eitt stórt
Það er ekki auðvelt mál að ná
viðtali við tvíeykið svo skömmu
fyrir opnun sýningar, en það tókst
í þriðju tilraun. Það er Libia sem
svarar í farsíma Ólafs. „Við verð-
um með innsetningu í safninu sem
bætist í á meðan á sýningu stend-
ur, verk í þróun. Við verðum að
vinna hér í það minnsta fyrstu
þrjár sýningarvikurnar. Við höfum
komið upp upptökuveri á staðnum
og gerum „screen-test“-portrett af
fólki,“ útskýrir Libia. Með screen-
test á hún við myndbönd sem gerð
eru af leikurum til að átta sig á því
hvort þeir eru heppilegir í tiltekin
hlutverk, t.d. í kvikmyndum eða
auglýsingum. „Þetta eru viðtöl en
þó ekki í hefðbundnum skilningi
[...] við spyrjum fólk út í bakgrunn
þess og líf, stöðu þess í íslensku
samfélagi og tengingu við landið.
Við erum, að vissu leyti, að búa til
vettvangsportrett af samtímanum
hér á Íslandi. Við leitum til fólks
víðsvegar að úr þjóðfélaginu, með
ólíkan bakgrunn og stöðu, til þess
að góð heildarmynd náist af sam-
félaginu, því sem er að gerast.“
Heimild um hugarfar
Meðan á sýningu stendur verður
þessum viðtölum eða skjáprufum
einnig varpað á veggi utan safns-
ins og fleiri upptökum eða port-
rettum bætt við meðan á sýningu
stendur.
„Í næstu viku förum við að búa
til næsta hluta og við vitum ekki
hvernig lokamyndin verður. Áhorf-
andinn á möguleika á því að verða
hluti af heildarmyndinni og fylgj-
ast um leið með stórum hluta ferl-
isins,“ segir Libia. Verkið sé í raun
lifandi, félagslegur skúlptúr sem
hægt sé að fylgjast með í mótun.
Menn lýsi skoðunum sínum á ýmsu
er varðar íslenskt samfélag og eig-
in stöðu innan þess, auk þess að
ræða um sjálfa sig. Því sé port-
rettið í raun tvíhliða. Libia bendir
auk þess á að verkið verði heimild
um ákveðinn tíma í Íslandssögunni.
Heimild um hugarfar og samfélag.
Lifandi, félags-
legur skúlptúr
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Libia og Ólafur Tengja listina og samfélagið með innsetningu í Hafnarhúsi.
Ráðherra Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra er ein þeirra sem
dregið er portrett af á sýningunni Allir gera það sem þeir geta.
Ólafur og Libia ríða á vaðið í nýrri
sýningarröð í Hafnarhúsinu
Vefsíða listadúettsins:
www.olafur-libia.com
„NAFN sýningarinnar er tekið
úr samræðum Libiu og föður
hennar um hvatir og drifkrafta
tilverunnar (og fólks) til að lifa
af, án siðferðilegra eða sið-
rænna dóma. Kveikjan að sam-
ræðunum var mikið uppnám af
völdum fjölskyldumeðlims sem
þjáist af geðklofa og samfélags
sem er tregt til að viðurkenna
slíkan sjúkdóm til fulls og taka
á honum.“
„Líkt og fjölmargir aðrir lista-
menn síðustu tvo áratugina
hafa þau valið að láta fjöl-
breyttan hóp einstaklinga taka
þátt í listsköpun sinni. Þannig
fara þau þá leið sem franski
gagnrýnandinn og sýningastjór-
inn Nicolas Bourriaud hefur
nefnt „venslalist“ (relational
art) og lýsti þannig að það væri
„list sem finnur sér fræðilegan
sjóndeildarhring á sviði mann-
legra samskipta og í félagslegu
samhengi fremur en á grund-
velli framsetningar á óháðu og
einstöku táknrænu rými“
(1996). Þannig dvelja Libia og
Ólafur oft löngum stundum á
sýningarsvæðinu og vinna t.d.
með grenndarhópum, sam-
tökum aðgerðasinna, nýbúum
og farandverkamönnum, að
samskiptum og umræðum sem
stuðla að samfélagslegri sam-
heldni.“
Brot úr texta Hafþórs Yngva-
sonar, safnstjóra Listasafns
Reykjavíkur, um Ólaf og Libiu.
Fengið af vefsíðu safnsins.
Drifkraftur
tilverunnar