Morgunblaðið - 17.09.2008, Page 43

Morgunblaðið - 17.09.2008, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 43 Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is SVÍN hafa sjaldnast notið sannmælis í mann- heimum. Þau eru sögð skítug, gráðug og óstýrilát – en í bók George Orwells, Dýrabæ (Animal Farm), þá er þeirra helsti galli hve mennsk þau eru. Á bónda- bæ nokkrum fá dýrin loksins nóg af ofríki mannsins og gera byltingu undir forystu svínanna og stofna sósíalíska dýraparadís á býlinu. En þessi bylting étur börnin sín eins og byltingum er tamt og helsta ástæða þess er sú að svínin eru mörg hver fljót að svíkja hug- sjónir sínar og gefa sig valdagræðgi og spillingu á hönd – í stuttu máli þá eru þau fljót að verða mennsk. Mengaðar hugsjónir Bókina skrifaði sósíalistinn Orwell að mestu í spænsku borgarastyrjöldinni (en um reynslu sína þar skrifaði hann bókina Homage to Catalonia), en honum ofbauð hvernig Jósef Stalín, leiðtogi Sovétríkjanna, hafði skrumskælt og mengað fagr- ar hugsjónir sósíalismans þannig að fátt stóð eftir annað en harðstjórn, ritskoðun og Gúlagið. Hug- sjónirnar voru sviknar með yfirklóri og útúrsnún- ingum, í útgáfu Orwells var þetta ótvírætt; „Sum dýr eru jafnari en önnur.“ Hugmyndasmiðir byltinga Dýrin á býlinu búa ekki aðeins yfir mannlegum eiginleikum, þau búa yfir eiginleikum nokkurra lykilpersóna mannkynssögunnar rétt eins og Or- well minntist á í bréfum sínum. Old Major er hug- myndasmiður byltingarinnar og er byggður á Marx og Lenín, helsti skúrkur sögunnar er Napóleon sem er byggður á áðurnefndum Stalín og hans helsti andstæðingur meðal svínanna, Snowball, er byggður á Leon Trotskí sem var myrtur með ísexi í Mexíkó eftir að Stalín hafði hrakið hann frá Sovétríkjunum og reynt flest til þess að losna við hann. Hvað morðinginn var að gera með ísexi í Mexíkó að sumarlagi er svo önnur saga. Fyrrum eigandi býlisins, Hr. Jones, er svo byggður á síðasta rússakeisaranum, tsarnum Nikulási II. Ógnin að utan kemur frá nágranna- býli þar sem Hr. Fredericks ræður ríkjum og vís- unin í Hitler er skýr, enda kom bókin út undir lok heimsstyrjaldarinnar síðari. Loks má nefna hest- inn Boxer sem burðast með byrðar gervalls verka- lýðs heimsins á herðunum – og kvartar ekki. En þessi túlkun, jafnvel þótt hún sé að ein- hverju leyti frá sjálfum höfundinum komin, verður seint endanleg, enda eru bæði menn og dýr breysk í dag sem og þá. Þannig geta lesendur leik- ið sér að því að finna samnefnara Bush og Blair eða Saddams og bin Ladens í sögunni rétt eins og Orwell fann samnefnara meðal aðalpersóna sinnar samtímasögu. Eins mætti vel yfirfæra bókina á Ís- land, heimabæinn, bekkinn, vinnustaðinn eða fjöl- skylduna, enda á mannskepnan jafn erfitt með að standa með hugsjónum sínum hvar sem leitað er. Jafnasta dýrið Þrífarar Þrjú svín úr kvikmyndinni Animal Farm og hægra megin, talið að ofan, eru þeir Trotskí, Stalín og Lenín. Hver er staðgengill hvers? Glósubókin: Animal Farm Með Ádeila á spillingu og harðstjórn á seint eftir að falla úr gildi, auk þess sem bókin getur veitt lesendum dýpri skilning á mannkynssögunni. Eins má velta fyrir sér hvort í kjölfar um- hverfisvakningar síðari ára megi ekki leggja enn bókstaflegri skilning í bók- ina, er kominn tími á uppreisn gegn ofríki mannsins? Ámóti Kalda stríðið er löngu búið og endalaus upprifjun á gömlu styggu kommagrýlunni getur verið ansi þreytandi fyrir þá sem eru nógu ung- ir til þess að skynja þetta sem sagn- fræði frekar en samtíma þar sem heimurinn skiptist í hægri og vinstri. Með og á móti HIÐ íslenska bókmenntafélag gaf út Dýrabæ í þýðingu Jóns Sigurðssonar frá Kaldaðarnesi árið 1985. Þorsteinn Gylfason skrifaði formála og bókin er enn fáanleg í helstu bókabúðum. Bókin hefur verið þýdd á yfir 70 tungumál og hefur þýðing henn- ar oft sætt tíðindum í komm- únistaríkjum, ef hún hefur þá verið leyfð. Þýðingar BOB Dylan er mikill aðdáandi Animal Farm og skýrði lagið Mr. Jones eftir fyrrverandi eiganda býlisins, þrátt fyrir að lagið fjalli að öðru leyti lítið um bókina. Pink Floyd gerði hins vegar heila plötu, Animals, sem var innblásin af bókinni og annað bindi myndasöguseríunnar Fables nefnist Animal Farm og speglar söguna í mörgu. Þá snýr Charlton Heston út úr frægustu orðum bókarinnar í Planet of the Apes þegar hann segir að sumir apar séu jafnari en aðrir. Þá hafa dýr í hlutverki manna verið notuð til þess að varpa ljósi á mann- kynssöguna í verkum á borð við helfararmyndasöguna MAUS þar sem gyðingarnir eru mýs og nasistarnir kettir. Framhaldslíf í annarri list Hr. Dylan Bob Dylan er mikill aðdáandi Dýrabæjar. ORWELL fædd- ist árið 1903 og var skýrður Eric Arthur Blair. Hann átti við- burðaríka ævi, bjó meðal fátæk- linga í London og París, barðist í spænsku borg- arastyrjöldinni og dvaldi um tíma í Búrma og um þetta allt skrifaði hann merkar bækur. Hans verður þó alltaf fyrst og fremst minnst fyrir síðustu tvær bækur sínar, Animal Farm og 1984 – jafn- vel enn kröftugri ádeilu á alræð- isstjórnir en Dýrabær var. Frasar á borð við „Stóri bróðir er að horfa“ er notað frjálslega af mörgum sem aldrei hafa lesið bókina og jafnvel búnir til samnefndir raunveru- leikaþættir á borð við Big Brother, án þess að sjónvarpsframleiðendur virðist neitt sérstaklega meðvitaðir um kaldhæðnina. George Orwell Við hljóðnemann George Orwell var ævintýragjarn og hafði ríka réttlæt- iskennd. – að handriti Orwells var hafnað af Nób- elsskáldinu T.S. Eliot sem einnig starfaði við bókaút- gáfu? Hann hafði enga trú á að neinn myndi vilja lesa bók um talandi dýr. – að pólski Nóbelsverðlaunahöfundurinn Wladyslaw Reymont gaf út árið 1924 bókina Uppreisn (Bunt) sem einnig gerist á bóndabýli þar sem dýrin gera uppreisn? Reymont var að deila á upp- reisn bolsévika í Rússlandi og eftirmál hennar. Ekki er vitað hvort Orwell vissi af bókinni þegar hann samdi Dýrabæ. – að enski höfundurinn John Reed skrifaði eins konar fram- hald af bókinni fyrir fimm ár- um, Snowball’s Chance, við lít- inn fögnuð fjölskyldu Orwells og annarra aðdáenda? Þar snýr svínið Snowball aftur í Dýrabæ til þess að innleiða kapítalisma. Vissirðu … Engin dýr! Nób- elsverðlaunahöf- undurinn T.S. Eliot hafnaði bókinni. TVÆR myndir hafa verið gerðar eftir sögunni. Sú fyrri var tímamótamynd því að hún var fyrsta breska teiknimyndin til þess að fá alvöru dreifingu. Myndin er framan af nokkuð trú bókinni þangað til kemur að endalokunum, en þeim er óþarfi að kjafta frá hér. Seinna meir kom svo í ljós að það var CIA sem fjármagnaði myndina enda litu þeir á hana sem áróður gegn kommúnisma, einföldun sem Orwell hefði seint verið sáttur við. Árið 1999 kom svo út lítt séð leikin mynd (með raunsæjum dýrabrúðum í bland) þar sem Kelsey Grammer, Patrick Stewart, Ian Holm, Julia Louis-Dreyfus og Paul Sco- field meðal annarra tala fyrir dýrin en í eldri útgáfunni sá Maurice Denham um allar raddir og dýrahljóð og hlaut mikið lof fyrir. Kelsey Grammer „Ég er að hrýna, ég meina hlusta…“ Það getur verið erfitt að leika ýmist svín og sálfræðinga en hvernig ætli Frasier sálgreini svín? Kvikmyndaútgáfur SVARIÐ við spurningunni „hvað ertu að lesa núna?“ má í ótal tilfellum finna í bóka- listum skóla þessa lands, enda hundruð ef ekki þúsundir íslensku-, ensku- og bókmenntafræðikúrsa kenndar um land allt á hverjum tíma. En það er óþarfi að loka umræðu um þær bókmenntir allar inni í skólum landsins og því mun Morgunblaðið birta í vetur glósur blaðamanna um vel valdar bækur sem kenndar eru í skólum landsins. Glósubókin „Animal Farm er skemmtileg í kennslu því það er hægt að nálgast hana frá svo mörg- um hliðum. Hún er allt í senn: einföld barnasaga um uppreisn- argjörn dýr á bóndabæ, dæmisaga um breyskleika og mannlegt eðli og táknsaga um rússnesku bylt- inguna, einræði og ójöfnuð. Þegar vel tekst til fjallar kennslustund í Animal Farm ekki bara um ensku og bók- menntir, heldur líka sögu og heimspeki.“ Kennarinn Sigurður Páll Guðbjartsson „Sagan heillaði mig að vissu leyti. Ég hafði ekki hugmynd um hvernig málin höfðu verið í Sov- étríkjunum svo þetta var allt nýtt fyrir mér. Margar af þeim sögum sem við lesum í menntaskóla lít- um við á sem skyldulesningu en mér fannst gaman að lesa þessa bók og ég lifði mig inn í sög- una.“ Nemandinn Ásbjörg Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.