Morgunblaðið - 23.09.2008, Síða 11

Morgunblaðið - 23.09.2008, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 11 FRÉTTIR STJÓRN Kvenfélagasambands Ís- lands fagnar því að samið hefur verið við ljósmæður og yfirvofandi verkfalli þeirra afstýrt. Stjórnin segir í ályktun að störf ljósmæðra skipti máli fyrir velferð mæðra og barna og því mikilvægt að þau séu metin að verðleikum. Jafnframt vonast stjórnin til þess að þetta sé aðeins fyrsta skrefið í átt að leið- réttingu á þeim launamun sem enn er viðvarandi á milli kynjanna. Fagna samningi við ljósmæður 2.600 færri bifreiðar óku Ártúns- brekku og Sæbraut milli 7 og 9 í gærmorgun miðað við mánudaginn 15. september og er það marktæk- ur munur en í gær lauk evrópskri samgönguviku. Á lokadegi vik- unnar eru íbúar í 2000 borgum hvattir til að hvíla bílinn og nýta annan samgöngumáta eins og strætó, reiðhjól og göngur. „Við höfum ekki tekið þátt í bíllausa deginum í nokkur ár en ákváðum að hefja þátttöku aftur í [gær],“ segir Pálmi Freyr Randversson verkefnastjóri samgönguviku fyrir Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar. „Bíllausi dag- urinn fer hægt af stað en við von- umst til að þátttakan verði vaxandi á næstu árum,“ segir hann. Pálmi var ánægður með sam- gönguviku 2008, bæði hafi sam- göngumál verið ofarlega í um- ræðunni og einnig hafi nýtt sam- göngumannvirki verið opnað: forgangsakrein fyrir almennings- samgöngur. Morgunblaðið/Kristinn Margir hvíldu bílinn í gær Í DAG, þriðjudag, verður haldin ráðstefna í Þjóðmenningarhúsinu undir yfirskriftinni „Evran á Íslandi – hvort, hvenær og hvernig“ og mun ráðstefnan standa frá kl. 12.00- 15.10. Ráðstefnan er á vegum Háskólans í Reyjavík, Háskólans á Bifröst og viðskiptaráðuneytisins. Á meðal fyr- irlesara má nefna Peter Dyrberg, sérfræðing í málefnum Evrópu- sambandsins, sem veltir upp laga- legum möguleikum þess að taka upp evruna hér á landi, auk þess sem Eiríkur Bergmann Einarsson ræðir hvort evruvæðing sé kannski þegar farin af stað hér á landi. Einnig flytja fyrirlestra þeir Friðrik Már Baldursson og Emil B. Karlsson. Evran á Íslandi – hvort og hvenær? STUTT Icelandair Group keypti Gullfaxa Ranghermt var í blaðinu á þriðju- daginn í síðustu viku, í frétt um að Arngrímur Jóhannsson og Hafþór Hafsteinsson, eigendur Avion Air- craft Trading, hefðu keypt gamla CL-44-flugvél og hygðust afhenda Flugsafni Íslands stjórnklefann til varðveislu, að þeir hefðu einnig keypt Gullfaxa, fyrstu þotu Íslend- inga, á sínum tíma. Það var Iceland- air Group sem keypti Gullfaxa og gefur Flugsafninu stjórnklefann. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Fyrsti fjöldafram- leiddi rafbíllinn Í leiðara sl. föstudag var ranghermt að fyrsti fjöldaframleiddi rafbíllinn væri nú væntanlegur af færibandinu hjá Mitsubishi. Hið rétta er að fyrir sjö árum hófst fjöldaframleiðsla á indverska rafbílnum Reva og er hann meðal annars fáanlegur hér á landi. Beðist er velvirðingar á þess- um mistökum. Ráðhúsmarkaðurinn 31. okt. til 3. nóv. Rangt var farið með dagsetningar á Ráðhúsmarkaði Handverks og hönn- unar í blaðauka um heimili og hönn- un sl. föstudag. Rétt er að Ráðhúsmarkaðurinn verður haldinn dagana 31. október til 3. nóvember en ekki 5. til 8. október eins og sagt var í blaðinu. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT Eftir Birnu Önnu Björnsdóttur í New York bab@mbl.is JAFNRÉTTI kynjanna og stuðn- ingur við konur er lykilatriði í stefnu Íslands í þróunarmálum, bæði vegna þess að jafnrétti er grundvallar- mannréttindi og einnig þess að þeg- ar kemur að þróunarmálum og að því að uppfylla þúsaldarmarkmið SÞ, þá skiptir sköpum að jafnrétti kynjanna verði að veruleika og konur fái tæki- færi til að nýta það sem í þeim býr. Þetta kom fram í máli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráð- herra en hún var einn aðalræðu- manna á fundi sem UNIFEM hélt í gær í tengslum við Allsherjarþing SÞ um málefni kvenna í Afríku. Yfirskrift og aðalumræðuefni fundarins var hvernig unnt væri að fylgja því betur eftir að aðildarríki SÞ stæðu við sáttmála, sem tryggja eiga jafnrétti kynjanna og mannrétt- indi kvenna. Þær sem tóku til máls lögðu áherslu á að margt jákvætt væri að gerast í málefnum kvenna í Afríku, þar væru konur í síauknum mæli að komast í valdastöður og var því sérstaklega fagnað að eftir ný- liðnar kosningar í Rwanda væru konur nú í meirihluta þar í þinginu. Rosemary Museminali, utanríkis- ráðherra Rúanda, hélt ræðu á fund- inum og lýsti því hvernig lykilhlut- verk það sem konur gegndu í uppbyggingu samfélaga eftir borg- arastyrjöldina hefði eflt þær og styrkt og sýndi sig nú í því að þær væru í auknum mæli komnar í form- legar stjórnunar- og leiðtogastöður. Ingibjörg Sólrún lagði áherslu á það í ræðu sinni að konur í Afríku væru sterkar og hæfar og það væri „gríðarlega mikilvægt að þær fái að nýta hæfni sína og hæfileika á öllum sviðum þjóðfélagsins. Til að þetta geti gerst, þá verðum við að líta á konur sem gerendur í öllum aðstæð- um, ekki sem fórnarlömb,“ sagði hún. Þar sem atriði sem snúa að eft- irfylgni voru miðlæg á fundinum benti hún á, að það að „koma hlutum í verk væri almennt flóknara mál en að segja hvað ætti að gera“, og að þetta virtist eiga alveg sérstaklega við þegar jafnréttismálin ættu í hlut. Ingibjörg Sólrún lagði áherslu á að jafnréttismál væru ekki bara hluti af stefnu Íslands í þróunarmálum, heldur einnig lykilatriði í utanríkis- málastefnu landsins. „Þetta á sér- staklega við þegar kemur að friðar- gæslu og uppbyggingu eftir átök. Sem utanríkisráðherra hef ég lagt sérstaka áherslu á mikilvægi álykt- unar öryggisráðsins nr. 1325 um konur, frið og öryggi, en þessi álykt- un er tæki sem tryggir að konur á stríðssvæðum njóti verndar og rétt- lætis og þær séu gildir þátttakendur í friðarferlum og uppbyggingu sam- félaga í kjölfar styrjalda. Ályktun 1325 skiptir sköpum fyrir mörg Afr- íkuríki og ég tel mikilvægt að auka almenna vitund um þessa ályktun og sjá til þess að henni verði fylgt eftir.“ Alþjóðleg ráðstefna hérlendis Ingibjörg Sólrún tilkynnti að í desember yrði haldin alþjóðleg ráð- stefna á Íslandi um ályktun 1325 undir yfirskriftinni „Konur semja um frið“ þar sem lögð verður áhersla á aðgengi og þátttöku kvenna í form- legu og óformlegu friðarferli. „Yfirleitt er fyrst og fremst rætt um konur sem fórnarlömb styrjalda en það er löngu tímabært að líta á konur sem mikilvæga gerendur í því að koma á stöðugleika og byggja upp samfélög eftir stríðsátök þannig að koma megi á varanlegum friði,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Erfiðara að koma hlutunum í verk en segja hvað eigi að gera Utanríkisráðherra ræddi málefni kvenna í Afríku á fundi UNIFEM Morgunblaðið/Birna Anna Björnsdóttir Málefni kvenna Ingibjörg Sólrún og Rosemary Museminali, utanrík- isráðherra Rúanda, bera saman bækurnar á Unifem-fundinum. Miðvikudagurinn 24. september kl. 11.45 Rannsóknir og nýsköpun á tímum efnahagslægðar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, og Guðrún Nordal, formaður Vísinda- nefndar Vísinda- og tækniráðs, ræða um rannsóknir og nýsköpun á opnum fundi í Valhöll. Vísinda- og nýsköpunarnefnd Sjálfstæðisflokksins heldur fundinn og fundarstjóri er dr. Hafliði Pétur Gíslason, prófessor. Fimmtudagurinn 25. september kl. 17.00 Þau hlutu hæstu einkunn fyrir þjónustu! Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi og Sigríður Ólafsdóttir, ráðgjafi hjá Capacent Gallup, ræða árangur sveitarfélaganna þriggja sem öllum er stjórnað af sjálfstæðismönnum og komu best út í könnun Capacent Gallup um þjónustu við íbúa sveitarfélagsins, á opnum fundi í Valhöll. Sjálfstæðisflokkurinn heldur fundinn og fundarstjóri verður Ásdís Halla Bragadóttir. Föstudagurinn 26. september kl. 12.00 Hvor hefur forskot eftir landsfundina? Þórlindur Kjartansson, formaður SUS, Illugi Gunnarsson, alþingismaður, og Silja Bára Ómarsdóttir, stjórnmálafræðingur, tala um stöðuna í bandarísku forsetakosningunum í aðdraganda fyrstu kappræðnanna og nýliðna landsfundi flokkanna á opnum fundi í Valhöll. Landsamband sjálfstæðiskvenna heldur fundinn og fundarstjóri er Katrín Helga Hallgrímsdóttir, varaformaður LS. Allir velkomnir! Tölum saman Fjölmargir opnir fundir eru á vegum Sjálfstæðisflokksins í viku hverri. Á þessa fundi eru allir velkomnir. Nánari upplýsingar um fundina og flokksstarfið má finna á heimasíðu flokksins, www.xd.is eða í síma 515-1700.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.