Morgunblaðið - 23.09.2008, Side 13

Morgunblaðið - 23.09.2008, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 13 FRÉTTASKÝRING Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is MAKRÍLSTOFNINN fer heldur stækkandi samkvæmt niðurstöðum nýrrar úttektar. Stuðst var við rannsóknir frá mörgum þjóðum, m.a. frá Íslandi. Samkvæmt heim- ildum blaðsins hefur Íslendingum enn ekki verið boðið að koma að samningaborði varðandi stjórnun á makrílveiðum en í ár hafa Íslend- ingar veitt um 110 þúsund lestir af makríl, eða um fjórðung makrílafl- ans. Jákvæðar fréttir eru af útbreiðslu loðnuseiða sem var mun meiri í vist- fræðirannsókn í síðasta mánuði en undanfarin ár. Þá er norsk-íslenski síldarstofninn mjög sterkur. Fjórði uppsjávarfiskurinn sem íslenskir út- gerðarmenn hafa sótt í, kolmunninn, hefur hins vegar átt undir högg að sækja síðustu ár, auk þess sem út- breiðsla hans hefur færst austar. Ekki á vísan að róa Aðspurður segir Sveinn Svein- björnsson fiskifræðingur, að vissu- lega séu það jákvæðar fréttir að meira finnist af loðnuseiðum í ár en síðustu tvö ár. „Upphafið er að fá góðan seiðaárgang, en það er ekki á vísan að róa með það hvernig hann kemst af og hvort hann skilar sér inn í veiðina í fyllingu tímans,“ segir Sveinn. Meðan við stunduðum seiða- rannsóknir frá 1970-2003 var lítið eða ekkert samband á milli seiða- fjölda og stærðar í veiðistofni tveim- ur árum síðar. Hins vegar virtist okkur vera marktækt samband á milli stærðar hrygningarstofns og fjölda seiða,“ segir Sveinn. Síðustu sumur hefur kynþroska loðna fundist mun vestar en áður og er sú breyting rakin til hlýnunar sjávar. Í byrjun nóvember verður farið í loðnumælingar á vegum Haf- rannsóknastofnunar. Kolmunninn austar en áður Veiðar Íslendinga á kolmunna hófust að ráði árið 1998 og 2003 veiddu íslensk skip rúmlega hálfa milljón tonna af kolmunna og þá mest á Færeyjahryggnum suð- austur af landinu. Síðustu ár hafa göngur kolmunnans legið austar en áður, auk þess sem verulega hefur verið gengið á stofninn. „Lengi vel var ekkert samkomu- lag um veiðar á kolmunna og þegar ofveiðin varð ljós töldu menn sig ekki geta farið að ráðum fiskifræð- inga án þess að fá einhverja aðlög- un. Við erum í rauninni að súpa seyðið af því samkomulagi strand- ríkjanna að minnka veiðarnar hæg- ar en fiskifræðingar lögðu til,“ segir Sveinn. Ástand síldarstofna á Íslands- miðum virðist vera gott. Undanfarið hefur veiðst ágætlega af síld fyrir austan land og aflinn verið bland- aður. Algengt hefur verið að ís- lenska sumargotssíldin hafi verið allt að 30% í aflanum en stærsti hlutinn úr norsk-íslenska stofninum. „Samkvæmt niðurstöðum nýjustu rannsókna á norsk-íslenska stofn- inum er hann enn sterkur og hrygn- ingarstofninn um 12 milljónir tonna,“ segir Sveinn Sveinbjörns- son. Búist er við að mjög sterkur ár- gangur frá 2004 komi fljótlega inn í síldveiðar úr norsk-íslenska stofn- inum. Makrílstofninn enn á uppleið og loðnuseiði lofa góðu Morgunblaðið/RAX Möguleikar Makríll hefur verið í aðalhlutverki þegar rætt hefur verið um uppsjávarfiska síðustu mánuði, en mikið fannst af loðnuseiðum í leiðangri nýlega. Myndin er af loðnuskipi að veiðum skammt frá Vestmannaeyjum. Í HNOTSKURN »Makríll er skyldur tún-fiski og hefur verið mikil búbót fyrir íslenskar útgerðir í ár. »Kolmunni er þorskfiskurog gengur mun austar en hann gerði fyrir fáum árum. »Loðna er laxfiskur ogverður farið í loðnumæl- ingar fyrri hluta nóvember. »Síldarafli austur af land-inu undanfarið hefur ver- ið blandaður úr norsk- íslenska stofninum og ís- lensku sumargotssíldinni.                                                                          !!"#$%%& markaður efniviður til að meta vistfræðileg tengsl loðnustofnsins í ljósi þeirra umhverfisgagna sem safnast hafa. Á þessu varð þó ánægjuleg breyting hvað varðar loðnuárgang 2008,“ segir á heima- síðunni. „Þessi árgangur gæti leitt til stærri loðnustofns á komandi árum ef umhverfisaðstæður reynast hag- stæðar en ekkert er þó unnt að fullyrða um framvinduna að svo stöddu. Verði þróunin jákvæð að þessu leyti gæfist færi á að afla gagna um vistfræðileg tengsl ung- loðnu á næsta ári á mikilvægu skeiði í lífsögu fisksins.“ aij@mbl.is „HELSTA breytingin í lífríkinu frá árinu 2007 tekur til útbreiðslu og magns loðnuseiða á fyrsta ári. Um fjórum sinnum meira mældist af loðnuseiðum í ár en í fyrra. Loðnu- seiðin voru á víðáttumiklu svæði í sunnanverðu Íslandshafi og í minna magni við Austur-Græn- land.“ Þetta er meðal helstu niður- staðna í umfangsmikilli rannsókn á vistfræði Íslandshafs sem fór fram 6. ágúst til 2. september sl. á veg- um Hafrannsóknastofnunar á rannsóknaskipinu Árna Friðriks- syni undir stjórn Ólafs Karvels Pálssonar. Leiðangurinn er hluti af átaksverkefni Hafró til að auka skilning á vistkerfi Íslandshafs, með sérstöku tilliti til ástands loðnustofnsins. Magn dýrasvifs metið Í leiðangrinum var gögnum safn- að á 161 umhverfisstöð og 56 tog- stöðvum. Nýtt tæki var notað til að taka myndir af dýrasvifi og meta magn þess frá yfirborði niður á 200 m dýpi. Þessar rannsóknir hafa nú staðið í þrjú ár og hefur mjög umfangs- miklum gögnum verið safnað, sem varpa munu ljósi á byggingu og virkni vistkerfis Íslandshafs og leggja grunn að skipulegri, vist- fræðilegri vöktun þessa hafsvæðis á komandi árum, segir í frétt á heimasíðunni hafro.is. „Helsti annmarki rannsóknanna er að mjög lítið hefur fundist af loðnu á þessum árum og því tak- Gæti leitt til stækk- andi loðnustofns Morgunblaðið/Þorkell Við Miðbakka Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson í Reykjavíkurhöfn.                                        !"        #$ Íslensku Sjávarútvegssýninguna           ! %%%" &  '"    Official Freight Carrier Organiser Awards Sponsor International Publcation Official Airline    

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.