Morgunblaðið - 23.09.2008, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.09.2008, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Dýrahald Ég heiti EÐAL-HUGI og er 8 vikna írskur setter. Er einn eftir úr 8 systkina hópi. Uppl. í síma 566-8366 og á www.hundahotel.is Heilsa Heilsuátak. Byggðu upp betri heilsu. Bókin fæst í bókabúðum. Bókaútgáfan Hólar Húsnæði í boði Falleg íbúð (68m2) til leigu í Keflavík. Hiti og rafmagn innifalið, 90þús á mánuði, 2mán. fyrirfram greiðsla, laus strax, vert að skoða. S: 8495810. Einbýlishús til leigu í Vesturbergi 160 fm, 6 herbergja einbýli til leigu. Laus 1. nóv. 2008. Verð: 200 þús. + hiti og rafm. Uppl. 639-7815. Sumarhús Sumarhús - orlofshús. Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Stórglæsilegt sumarhús til leigu Til leigu 97 fm sumarhús, þar af 25 fm milliloft. Húsið er staðsett í Brekkuskógi, um 15 mínútna akstur frá Laugarvatni. Þau gerast ekki mikið flottari! Heitur pottur. Sími 841 0265. Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Tómstundir Tilboð á þrívíddar klippimyndum, 30% afsláttur til mánaðarmóta. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600, www.tomstundahusid.is Fjarstýrðir bensínbílar í miklu úrvali. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600, www.tomstundahusid.is Óska eftir Óska eftir ódýrum eða ókeypis sturtuklefa Vantar ekki sturtubotn. Er í horn 80x80 cm. Má vera notaður en þarf að vera vel farinn. Fífa sími 697-6782 alfifa@gmail.com Viðskipti Skelltu þér á námskeið í netviðskiptum! Notaðu áhugasvið þitt og sérþekk- ingu til að búa þér til góðar tekjur á netinu. Við kennum þér nákvæmlega hvernig! Skoðaðu www.kennsla.com og kynntu þér málið. Þjónusta Myndatökur www.lgi.is Hitaveitur/vatnsveitur Þýskir rennslismælar fyrir heitt og kalt vatn. Boltís sf., símar 567 1130 og 893 6270. Byggingar Stálgrindarhús frá Kína Flytjum inn stálgrindarhús. Allar stærðir og ýmsir möguleikar. Traustur aðili. Blikksmiðja Gylfa ehf., 897-9161. blikkgylfa@internet.is Byggingavörur www.vidur.is Harðviður til húsbygginga. Vatns- klæðning, panill, pallaefni, parket o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði. Sjá nánar á vidur.is. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Málarar Málningarvinna Þaulvanur málari ætlar að bæta við sig verkefnum í sumar. Inni og úti. Vönduð og öguð vinnubrögð. Sann- gjarnt verð. Uppl. í síma 897 2318. Ýmislegt GreenHouse haust-vetrarvaran er komin. Verið velkomin að sækja frían bækling. Opið í dag, þriðjudag 13-19. GreenHouse, Rauðagerði 26. Glæsilegir handgerðir dömuskór úr leðri og skinnfóðraðir. Margar gerðir og litir. Stærðir: 36 - 41 Frábært verð 7.885 og 8.890.- Vandaðir herraskór úr leðri í úrvali. Skinnfóðraðir. Góð breidd. Verð: 10.850.- Misty skór Laugavegi 178 sími 551 2070 opið: mán - fös 10 - 18 lau 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf Bílar Toyota Avensis ‘02 vvti. Tilboð 840 þ. Ek. 108 þ., beinsk., dráttarkr. 6 hátalarar, fjarstýring í stýri, smurbók, nýskoðaður, listaverð er 1.030 þ. Sparneytinn og fallegur bíll. Uppl: 699-3181 / 588-8181. Einkamál Stefnumót.is "Þar sem Íslendingar kynnast". Ertu í makaleit? Leitar þú nýrra vina? Vant- ar þig dansfélaga? Ferðafélaga? Göngufélaga? Spjallfélaga? Nýttu þér vandaðan vef til að kynnast fólki á þínum forsendum. Stefnumót.is Vertu ævinlega velkomin/n. Þjónustuauglýsingar 5691100 Íbúð á Spáni til sölu Í Torrevieja, í góðu fjölbýli með lyftu, stutt frá strönd, 69 m², 2 svefnherb. Fullbúið eldhús m/glugga, stórar svalir í sólarátt. Allt innbú fylgir. Upplýsingar í síma 553 6520 og á Spáni enskumælandi í síma 0034 650779456. Verð 110 þús evrur. Möguleiki á skiptanlegum greiðslum. Til sölu Elskuleg föðursyst- ir mín er látin. Minningarnar streyma fram frá því fyrir löngu þegar ég var lítil stelpa. Fyrst minningar um komu Fann- eyjar frænku vestur á Ísafjörð í heimsókn til foreldra sinna og dóttur sem var búsett fyrir vestan. Minn- ingar um foreldra hennar sem töluðu af mikilli væntumþykju um dóttur sína í Reykjavík og börnin hennar. Minningin um frænku sem undir- rituð fór til um tíu ára aldur og var hjá í vikutíma vegna þess að þá Fanney Sigurbaldursdóttir ✝ Fanney Sigur-baldursdóttir fæddist á Ísafirði 4. nóvember 1924. Hún lést á líknar- deild Landakotsspít- ala 29. ágúst síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá Fella- og Hólakirkju 16. september. ákvað hún að halda af- mæli móður sinnar sem þá var 70 ára. Þá bjó Fanney frænka mín á Sjafnargötunni og var með íbúð fyrir sig og börnin sín og var ráðskona hjá hús- eigandanum. Í minningunni er þessi vika sem ég var hjá frænku minni sveipuð sólskini og skemmtilegheitum. Þegar fullorðnir ein- staklingar hugsa til baka til þeirra tíma sem þeir áttu er þeir voru börn eru ætíð góðar minn- ingar tengdar því að sólin hafi skinið skært þegar maður var barn. Þannig tilfinningar velta fram er ég huga um frænku mína og til tímans er ég hafði samskipti við hana sem barn að aldri. Barngóð var hún. Húmorinn hennar sem var svo skemmtilegur, hæfileikar til frá- sagnar af atvikum sem aðrir sáu ekki húmorinn í en frænka mín gat gert það að skemmtisögu. Ég sat hlustaði og hafði gaman af. Ég geri mér grein fyrir því að lífið var hins vegar ekki alltaf dans á rós- um hjá Fanneyju og fjölskyldu henn- ar. Hún eignaðist ung dóttur fyrir vestan, Ástu Dóru Egilsdóttur. Fór suður, gifti sig og eignaðist þrjú börn, þau Petrínu Margréti, Þór- veigu Huldu og Jón. Missti manninn sinn frá börnunum þegar þau voru ung. Fanney frænka mín þurfti því oft að hafa mikið fyrir hlutunum. Þannig er lífið að það eru ekki allir sem fara í gegnum langa ævi með gullskeið í munni. Hins vegar er að mínu mati mælikvarðinn á líf manns, börnin manns og afkomendur það sem maður skilur eftir sig og hvernig manneskja maður er. Það er í mót- læti sem á manninn reynir! Fanney frænka mín fengi medalíu fyrir dugnað og elskulegheit gagn- vart afkomendum sínum og lífinu. Í mars sl. hélt undirrituð ásamt systrum sínum afmælisfagnað fyrir móður þeirra á mínu heimili. Þar mætti frænka mín orðin mjög veik og sagði við mig: Peta mín, ég var ákveðin í að koma þó að ég þurfi að nota mína síðustu orku í að koma á þitt heimili. Það fór ekki fram hjá mér að það var farið að styttast í ferðina miklu hjá henni. Nú ylja þessi orð og væntumþykja streymir fram yfir að hafa átt þessa frænku. En um leið söknuður yfir því að tek- inn skyldi vera frá mér tími til að njóta meiri samvista við hana í gegn- um árin. Vegna fjölskyldurifrildis sem enginn hefur einu sinni þörf til að vita um hvað snerist. Ég vil senda börnum frænku minnar og öllum afkomendum inni- legar samúðarkveðjur. Megi minn- ingin um merkilega konu lifa. Þín frænka, Petrína. Fanney var einhver sú besta manneskja sem ég hef kynnst. Næm og blíð og ávallt glaðlynd. Segjandi okkur sögur meðan hún sat og prjón- aði. Hún var mér sem amma og fyrir það vil ég þakka. Fanney var heldur ekki eigingjörn á ömmuhlutverkið og eitt sinn þegar Lóa Aðalheiður kallaði hana ömmu sagði Fanney að það væri í góðu lagi því hún gæti vel verið amma allra sem það vildu. Elsku Hulda, Gunni, Davíð, Hall- ur, Billi og aðrir aðstandendur, ég votta ykkur samúð mína og þakka fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast Fanneyju. Hlynur Hallsson. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bil- um - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.