Morgunblaðið - 23.09.2008, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.09.2008, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN - kemur þér við Sérblað um heilsu fylgir blaðinu í dag                             !    " #     $  $  %&'  #  ( )# *%+%  ,     $ # #                                 !    "    #   %                &       '   (      )          '       (  %* + ,   --,  . /      '    '     '     '   -   0    *   *      $'* (      1 2            '  %              /           /  .  '  %  3  4   + /   5    '  *                  !" # $ % && Nágrannar dópsalans varir við mikla umferð Bróðir emírsins í Katar kominn í Kaupþing Selt.is ætlar sér stóra hluti á markaðnum Endurskoða lög um opinbera starfsmenn Segja slæmt að varð- skipin liggi við höfn Hvað ætlar þú að lesa í dag? NÝLEG launakönn- un SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu kom mönnum í opna skjöldu. Launamunur kynjanna hefur aukist um 3% og stendur núna í 17,2%. Er nema von að fólki bregði í brún. Þetta gerist á sama tíma og að völdum situr ríkisstjórn sem hefur heitið því í stjórnarsáttmála að gerð verði áætl- un um að minnka óútskýrðan kyn- bundinn launamun hjá ríkinu og stefnt að því að hann minnki um helming fyrir lok kjörtímabilsins. Núna eru góð ráð trúlega dýr. Augu almennings hvíla á ríkisstjórninni og spurt er til hvaða nothæfra ráða sú ágæta stjórn ætli að grípa. Er nema von að spurt sé. Almenningur í land- inu gerir kröfur um að gripið verði til aðgerða sem duga gegn misréttinu sem veður uppi. Hefur almenningur einhverja ástæðu til bjartsýni um að svo verði? Já, svo sannarlega. En nú veltur mikið á því að stjórnmálamenn beri kennsl á að tíminn er kominn og sanni svo ekki verður um villst að kjósendur höfðu rétt fyrir sér þegar þeir greiddu þeim atkvæði sitt í síð- ustu kosningum. Einstakt tækifæri Við lifum á sérstökum tímum. Þjóðin hefur um hríð lofað siðlitlum fjármálasprelligosum að stunda há- loftafimleika á kostnað almennings. Fólk er nú að vakna eftir flugferðina til þess eins að upp- götva að um algert blindflug var að ræða og að í flugstjórasæt- unum voru ærðir menn, vitstola af græðgi. Við eigum eftir að sjá það svartara, en þegar brennuvargar sam- félagsins hafa horfið á braut og skilið eftir sig sviðna jörð og fjöl- skyldur í sárum kemur að því að samfélagið vill sjá sanngirni og jafn- vægi. Kallað verður eft- ir réttsýni, réttlæti og skynsemi. Og þarna liggja tækifærin. Leiðrétting á launamuni milli kynjanna mun njóta víðtæks stuðning. Það væri grátlegt og aumkunarvert, ef helstu bar- áttujaxlar fyrir jafnrétti og kven- frelsi nýttu sér ekki það tækifæri til jafnréttis sem nú blasir við. Almenn- ingur er búinn að fá sig fullsaddan af sérgæsku, óréttlæti og ójafnrétti. Kjósendur munu nú kalla á aðgerðir og helstu forystukonur í ríkisstjórn- inni geta skrifað nafn sitt á spjöld sögunnar með því að segja „Svona gerum við ekki. Við líðum ekki þetta misrétti milli vinnandi kvenna og karla. Við höfum vald til breytinga, til þess vorum við kosnar og þessu verð- ur breytt. Núna!“ Hvað og hvernig? Launamunur kynjanna er alger- lega óásættanlegt ástand og eitt versta þjóðfélagsmeinið sem við bú- um við. Hvað sem menn segja og gera verður þessi munur aðeins leið- réttur með því að hækka laun kvenna til jafns við laun karla í sambæri- legum störfum. Það kostar peninga. Eitthvert hókus-pókus babl og blað- ur dugar ekki til. Hér þarf áþreif- anlegar aðgerðir. Því miður nýtti rík- isstjórnin ekki það góða tækifæri sem gafst í kjarasamningunum síð- astliðið vor en ekki er öll nótt úti enn. Forystukonur í ríkisstjórn eru í kjör- aðstæðum til að hrinda í framkvæmd aðgerðum um verulega aukið fjár- magn inn í stóru kvennastéttirnar innan ríkisgeirans. Þó að stóraukið fjármagn til þessara kvennastétta sé viðamikið verkefni er það vel fram- kvæmanlegt. SFR –stéttarfélag í al- mannaþjónustu hefur sett fram skýr- ar tillögur um hvernig má leiðrétta launamun kynjanna og hvernig megi viðhalda jafnvægi eftir að leiðrétt- ingin er komin fram. Það er bara spurning um hvort ríkisstjórnin og ráðherrarnir valda því hlutverki að vera stjórnmálaafl sem getur, þorir og vill. Stjórnin hefur nú tækifæri til að umbylta samfélaginu í átt til jafn- réttis. Geri stjórnin það ekki á hún það á hættu að verða minnst sem stjórn hinna glötuðu tækifæra. Það er spurning hvort tíminn sé ekki akk- úrat kominn og hvort ráðherrar geti, þori og vilji. Ríkisstjórn Íslands: getur hún, þorir hún, vill hún? Þórarinn Eyfjörð Eiríksson skrifar um laumamisrétti kynjanna » Það væri grátlegt og aumkunarvert, ef helstu baráttujaxlar fyr- ir jafnrétti og kvenfrelsi nýttu sér ekki tækifærið til jafnréttis sem nú blasir við. Þórarinn Eyfjörð Eiríksson Höfundur er framkvæmdastjóri SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu. ÞVÍ HEFUR verið slegið fram að æskunni sé sóað á börn því að þau hafi ekki forsendur til að njóta hennar. En ætli barnæskan sé sú paradís sem hún virðist stundum vera frá sjón- arhóli hinna fullorðnu? Ef marka má nýjustu rannsóknir á heilastarfsemi barna eru fyrstu tvö til þrjú árin mikilvæg- asti tími ævinnar þó svo að enginn muni eftir þeim. Á þessu tímabili er heilinn í hröðustum vexti og mestri mótun og þá verður til grunnur að sjálfsmyndinni. Mótun heilans gerist hins vegar ekki í tómarúmi heldur er þroski hans háður aðstæðum og reynslu sérhvers barns. Hagstæð- ustu skilyrðin verða til með því einu að foreldrar njóti barna sinna. Þegar þeir sinna börnum sínum af næmi og umhyggju, bregðast við þörfum þeirra og leika við þau upplifa börnin að þau skipti máli. Þá kennir reynsl- an þeim að aðrir láta þau sig varða og að hægt sé að bæta úr vanlíðan. Öll börn upplifa streitu af og til, þegar þau til dæmis þurfa að bíða eða tak- ast á við nýjar aðstæður, og auðvitað eru foreldrarnir misjafnlega fyr- irkallaðir. Aðalatriðið er að streitu barna sé haldið innan viðráðanlegra marka. Þetta eru mikilvægar for- sendur þess að börn byggi upp já- kvæða sjálfsmynd, þrói með sér getu til að láta sig líðan annarra varða og tileinki sér heilbrigð bjargráð þegar á móti blæs. Öðru máli gegnir um börn sem alast upp við vanrækslu, geð- heilsubrest foreldra eða ofbeldi á heimili. Viðvarandi kvíði eða ótti ungra barna, til dæmis vegna ónógrar svörunar, að- skilnaðar frá nánasta umönnunaraðila eða heimilisófriðar, getur valdið þeim ófyrirsjáan- legum skaða. Við lang- varandi álag bregst lík- ami barns við með því að framleiða skaðlegt magn af streituhorm- ónininu kortisól sem getur veikt tengingar á milli viðkvæmra taugabrauta, dregið úr vexti heilans, veikt ónæmiskerfið og minnkað þannig mótstöðuafl barnsins gegn sýkingum og lang- vinnum heilsufarsvandamálum. Í slíkum aðstæðum er hætt við að reynslan kenni börnum að öðru fólki sé ekki treystandi, sjálfsmynd þeirra verður neikvæð, þau skortir for- sendur til að setja sig í spor annarra og virða þar af leiðandi hvorki reglur né mörk samfélagsins. Þess vegna er svo ákaflega mikilvægt að ungum börnum sé sinnt af næmi og að streitu þeirra sé haldið innan viðráð- anlegra marka. Ef efla á geðheilsu barna þarf að huga að geðheilsu foreldra þeirra. Þó að fleiri komi að umönnun ungra barna hafa tengsl foreldra og barna algjöra sérstöðu vegna þess að til þeirra er stofnað á viðkvæmustu mótunarárum barnsins og þeim er viðhaldið í gegnum áralöng, oft ævi- löng, samskipti. Frá fæðingu er barn- ið algjörlega hjálparvana og háð for- eldrum sínum sem þurfa að bregðast við þörfum þess jafnt og þétt og draga úr vanlíðan þess á hvern þann hátt sem er viðeigandi hverju sinni, tuttugu og fjóra tíma á sólarhring, sjö daga vikunnar. Þetta reynir mjög á foreldra sem eru misjafnlega í stakk búnir til að setja þarfir annarrar manneskju í skilyrðislausan forgang. Allir foreldrar upplifa á köflum kvíða, reiði, vanmátt og hjálparleysi gagnvart börnum sínum. Þá skiptir sköpum að þeir geti reitt sig á aðra fullorðna manneskju sem hefur til þeirra jákvæða afstöðu, sýnir þeim skilning og hjálpar þeim að hugsa um það sem bjátar á. Margir foreldrar fá slíka hjálp í daglegu lífi frá maka, fjölskyldu eða vinum. Aðrir eru ekki svo lánsamir. Sjálfra þeirra vegna, en alveg sérstaklega barnanna vegna, er brýnt að þeim sé tryggður aðgangur að fagfólki sem gefur þeim rými til að hugsa um og melta upplifanir sínar, setja þær í samhengi og leita nýrra leiða í umönnun barnsins. Slík aðstoð þarf að vera foreldrum aðgengileg frá meðgöngu barnsins. Sérstaklega þarf að huga að foreldrum sem eiga slæma reynslu úr sínu uppeldi, skort- ir stuðning fjölskyldu, stríða við geð- röskun eða fíkn eða búa við lélegar heimilisaðstæður eða ofbeldi. Reynsla nágrannaþjóða okkar hef- ur sýnt að forvarnir af þessu tagi draga ekki eingöngu úr þjáningum viðkomandi fjölskyldna og styðja börn til heilbrigðis heldur margborga þær sig fjárhagslega fyrir samfélagið til lengri jafnt sem skemmri tíma. Hvaða máli skipta fyrstu árin ef maður man ekki eftir þeim? Sæunn Kjart- ansdóttir skrifar um uppbyggingu geðheilsu barna » Fyrstu tvö til þrjú árin eru mikilvæg- asti tími ævinnar. Ábyrgð foreldra er aldr- ei meiri en margir þurfa meiri og sérhæfðari stuðning en nú stendur til boða. Höfundur er sálgreinir. Sæunn Kjartansdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.