Morgunblaðið - 23.09.2008, Qupperneq 34
6 2 3 9 7
1 6 4
7 4 6
8 6 4 7
2 9
4 7 1 3
2 7 8
8 3 2
5 9 4 7 1
8
3 1 9 4 5
5 1 3 7
8 3 4 9
7 3
9 3 6 2
9 6 2 4
1 4 8 2 3
4
6 5 8 3 7
4 3 2
9 4 8
8 4 6 1
9 5
3 8 1 6
8 1 2
7 8 3
9 2 5 1 4
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Sudoku
7 2 3 8 9 6 5 1 4
1 8 5 3 4 2 6 9 7
9 6 4 1 7 5 2 8 3
2 4 6 9 5 1 3 7 8
5 1 7 6 3 8 9 4 2
3 9 8 4 2 7 1 6 5
6 3 2 7 1 4 8 5 9
4 5 1 2 8 9 7 3 6
8 7 9 5 6 3 4 2 1
6 5 4 3 7 8 2 9 1
2 7 3 9 1 5 8 6 4
1 9 8 6 4 2 7 3 5
5 4 9 7 2 6 1 8 3
7 8 1 5 3 9 4 2 6
3 6 2 4 8 1 5 7 9
4 3 5 8 9 7 6 1 2
8 1 6 2 5 3 9 4 7
9 2 7 1 6 4 3 5 8
4 6 1 5 8 2 9 7 3
8 7 3 6 9 4 5 2 1
2 9 5 7 3 1 6 4 8
6 8 7 4 1 5 2 3 9
5 3 4 9 2 7 8 1 6
1 2 9 3 6 8 7 5 4
3 5 6 1 7 9 4 8 2
7 1 8 2 4 6 3 9 5
9 4 2 8 5 3 1 6 7
34 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er þriðjudagur 23. september,
267. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér
skilja, að ég er í föður mínum og þér í
mér og ég í yður. (Jh. 14, 20.)
Víkverji fór norður í land á dög-unum og uppgötvaði þá að
miklar breytingar eru að verða á
þeirri fjölförnu leið. Nýr vegur er
kominn um hraunið við Bifröst í
Borgarfirði og nú er ekki lengur ek-
ið um hlaðið við Hreðavatnsskála.
Ekki veit Víkverji hvað verður um
þann ágæta skála en með þessum
nýja vegi er ljóst að sjaldnar verður
stoppað þar en áður. Þegar svo kom-
ið er yfir Holtavörðuheiði blasa við
enn frekari breytingar. Brúarskál-
inn er horfinn með manni og mús og
nýr vegur kominn þar sem skálinn
stóð áður. Vegurinn er í tengslum
við nýjan stað undir Staðarskála
niðri á eyrunum, sem verður opn-
aður á næstu dögum. Fyrir víðförula
ferðamenn á þessum slóðum, líkt og
Víkverja, eru þetta mikil tímamót og
að sjálfsögðu notaði hann tækifærið
og fékk sér einn „sveittan“ Stað-
arskálaborgara með frönskum,
svona í kveðjuskyni við gamla skál-
ann. Hans verður saknað.
x x x
Fyrst við erum komin hálfa leiðnorður er rétt að koma ábend-
ingu á framfæri frá kunningja Vík-
verja, sem villtist á leið sinni gegn-
um Sauðárkrók á nýjan Þverár-
fjallsveg. Var hann að koma að
norðan og ætlaði að prófa nýja veg-
inn í fyrsta sinn. Ók í gegnum Krók-
inn en sá engar merkingar sem vís-
uðu honum réttu leiðina, enda
beygði vinur vor á sama stað og
gamla leiðin lá. Komst kunningi Vík-
verja fljótt í ógöngur þar sem búið
er að loka þessari leið fyrir bílum við
gömlu Gönguskarðsárbrúna. Fyrir
slysni rataði hann réttu leiðina út úr
bænum og upp á nýja veginn. Þarna
verður Vegagerðin eða bæjaryfir-
völd að gera betur, Víkverji sá það
líka sjálfur í sinni ferð að engar
merkingar eru t.d. komnar upp á
nýja hringtorginu neðan við steinull-
arverksmiðjuna.
Þó að ánægju- og fróðlegt sé að
aka um götur Sauðárkróks verða
ferðamenn á endanum að geta ratað
rétta leið úr bænum.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 skóflar,
4 frækinn, 7 veslast upp,
8 ásjóna, 9 vindur,
11 húsaskjól, 13 andvari,
14 tæla, 15 óbangin,
17 undur, 20 bókstafur,
22 tréð, 23 duftið,
24 ljúka, 25 híma.
Lóðrétt | 1 fýll, 2 kið-
lingarnir, 3 kyrrir,
4 snjókoma, 5 hefur í
hyggju, 6 brúkað, 10 fár-
viðri, 12 reið, 13 op,
15 ís, 16 kistan, 18 hök-
ur, 19 kona, 20 auk þess,
21 heiti.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hjásvæfan, 8 sýpur, 9 logns, 10 tíu, 11 tjara,
13 nánar, 15 fiska, 18 satan, 21 rek, 22 skott, 23 apans,
24 sannaðist.
Lóðrétt: 2 japla, 3 sorta, 4 ætlun, 5 angan, 6 ósæt,
7 ósar, 12 rak, 14 áma, 15 foss, 16 Skota, 17 artin,
18 skarð, 19 trafs, 20 næst.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
STAÐAN kom upp á Stórslemmu-
mótinu í Bilbao á Spáni sem lauk
fyrir skömmu. Vassily Ivansjúk
(2781) hafði hvítt gegn Teimour
Radjabov (2744). 35. Rg4! tryggir
hvítum einfalda leið að sigri. Ridd-
arinn er friðhelgur vegna máts
upp í borði: 35… fxg4 36. Df7+
Kh8 37. Df8+. Framhaldið varð:
35…Bc6 36. Rh6+ Kh8 37. Rf7+
Kg8 38. Dxb7 Bxb7 39. Rd6 Hc7
40. Rxb7 Hxb7 41. Hf3 Kf7 42.
Hd1 Re6 43. He3 Rg5 44. Hd6
Ha7 45. Hed3 Ke7 46. Kg1 Re4
47. Hc6 a5 48. h3 axb4 49. cxb4
og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Banvæn stunga.
Norður
♠8654
♥KG98742
♦–
♣85
Vestur Austur
♠Á1072 ♠93
♥Á10 ♥D53
♦KDG87 ♦6543
♣D4 ♣10932
Suður
♠KDG
♥6
♦Á1092
♣ÁKG76
Suður spilar 4♥.
Páll Valdimarsson vakti í suður á
sterku laufi og Sverrir Ármannsson í
vestur stakk inn einu grandi – skæru-
hernaður með tvo ósamstæða liti.
Ragnar Magnússon í norður átti sagn-
venju til að koma sínum spilum á fram-
færi, stökk í 3♦ til að yfirfæra í hjarta.
Páll sagði 3♥ og Ragnar lyfti í fjögur.
Tígulkóngur út.
Spilið er frá bikarúrslitaleik Eyktar
og Breka. Páll henti spaða í ♦Á og spil-
aði trompi á gosann. Aðalsteinn Jörgen-
sen í austur átti slaginn á ♥D og skipti
yfir í ♠9. Sverrir drap og bjó í haginn
fyrir spaðastungu með öðrum spaða.
Páll hélt áfram með hjartað og vörnin
tók fjórða slaginn með spaðatrompun.
Óheppilegt, en Páll hefði getað bjargað
spilinu með millileik. Ef hann tekur
♣ÁK kemur drottningin siglandi og þá
má henda síðasta spaða blinds í ♣G.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Samvinna mun borga sig. Þú finn-
ur þig best með þeim sem eru af sama
frumefni og þú, með hinum eldmerkj-
unum; ljónum, bogmönnum og hrútum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú heldur inni í þér tilfinningunni
sem þarf að komast út. Kvikmynd eða
bók gætu verið leiðin til að losa um hana.
Reyndu bæði að hlæja og gráta.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Allir vilja verja sitt svæði og þá
ríður á að sýna kurteisi, ekki síst á vinnu-
stað. Vertu hógvær og mjög var um þig.
Ekki taka of mikið hrós fyrir samvinnu.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þorðu að vippa þér inn í samræð-
ur fólks. Þú kastar ljósi sakleysisins á
hlutina og velviljuð forvitni þín getur híft
samtalið í skemmtilegar hæðir.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú þarft að færa fréttir sem óþægi-
leg viðbrögð verða við. Þetta er ekki auð-
velt, svo það besta sem þú getur vonað er
að það taki fljótt af. Drífðu þig svo út.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú dansar í takt við það sem gerist
í kringum þig, sérstaklega það sem er
fyrir ofan þig. Þú ert augljóslega leiddur
áfram af guðlegum krafti.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Vinnuumhverfið býður upp á nýja
möguleika. Veldu þann nýjasta og mest
spennandi, þótt þú sért ekki viss um að
ráða við hann. Bara að það verður gam-
an.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú verður að aftengja þig að-
stæðum sem skipta þig máli, þótt það sé
langt frá því sem þér finnst eðlilegt. Það
gerist ekkert. Slepptu og treystu.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Eins og sporðdrekanum finnst
þér furðulegt að þurfa að sleppa til að
geta fengið það sem þú vilt. Vertu áhuga-
samur en leyfðu útkomunni að ráða.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þegar þú gerir eitthvað í mál-
unum hverfur streitan og áhyggjurnar.
Þú ert ekki að bregðast við örlögunum,
heldur skapa þau. Fiskur reynist hjálp-
legur.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ert upptekinn við að láta
öðrum líða vel yfir framlagi sínu. Með
vinalegum orðum og hughreystingu legg-
urðu inn á tilfinningareikninginn þeirra
og kemst sjálfur í plús.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú verður sífellt meðvitaðri og
getur því gripið tækifæri sem þú hefðir
misst af fyrir bara mánuði. Íhugaðu að
breyta áhugamálinu í atvinnu.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
23. september 1922
Oddný Hannesdóttir, tæplega
90 ára, giftist Oddi Oddssyni,
74 ára. Hún var þá talin elsta
brúður á Íslandi. „Hafa þau
búið saman ógift um langt
skeið en eru nú farlama orðin
og fara á gamalmennahælið í
haust,“ sagði Morgunblaðið.
23. september 1943
Alþingi var afhent áskorun frá
270 kjósendum, svonefndum
lögskilnaðarsinnum, um „að
ganga ekki frá formlegum
sambandsslitum við Dan-
mörku“. Ekki var orðið við
þessum óskum.
23. september 1993
Nýr flugvöllur á Egilsstöðum
var formlega tekinn í notkun.
Brautin er 2.000 metra löng
og getur flugvöllurinn þjónað
sem varavöllur fyrir milli-
landaflug. Framkvæmdir
kostuðu 790 milljónir króna.
23. september 1994
Minnismerki var afhjúpað á
Öxnadalsheiði í tilefni þess að
allur þjóðvegurinn milli
Reykjavíkur og Akureyrar
hafði verið lagður bundnu slit-
lagi.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Vinkonurnar Steinunn Anna,
Díana Katrín og Steinunn Snædís
héldu tombólu og söfnuðu 2.538 kr.
sem þær gefa í söfnun fyrir Ellu Dís
Laurens.
Hlutavelta
BRAGI Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndar-
stofu, tók forskot á sæluna og hélt upp á afmæli
sitt á sunnudag, þegar börnin og eina barnabarnið
komu í heimsókn og sungu afmælissönginn. „Þau
glöddu mig með nærveru sinni,“ segir Bragi og
áréttar að því megi segja að afmælið sé í raun af-
staðið, að minnsta kosti hvað veislu varðar.
Alþýðusamband Íslands heldur ráðstefnu um
málefni barna í Norræna húsinu klukkan 13-16 í
dag og þar heldur Bragi erindi um barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna, ábyrgð foreldra og sam-
félags. Hann segir að það sé það eina sem hann
hafi ákveðið í tilefni dagsins. „Mér finnst það vel viðeigandi að halda
upp á afmælið með því að þoka málefnum barna inn í umræðuna,“
segir hann.
Á Barnaverndarstofu eins og á mörgum öðrum vinnustöðum er við-
veruklukka sem gefur frá sér afmælistóna, þegar viðkomandi skráir
sig inn á afmælisdegi sínum. Það getur því verið erfitt að leyna við-
burðinum. Bragi segir að á sínum vinnustað séu menn mismunandi
mikil afmælisbörn. „Sumir vilja helst fara með gólflistum í þeim efn-
um,“ segir hann, en bætir við að það geti vel verið að hann bregði út
af venjunni og mæti með silung og lax, sem hann hafi veitt í sumar og
látið reykja. „Mér finnst líklegt að í tilefni dagsins gefi ég þeim eitt-
hvað að smakka af aflanum.“ steinthor@mbl.is
Bragi Guðbrandsson er 55 ára í dag
Tók forskot á sæluna
Nýirborgarar
Reykjavík Sandra Bassí
fæddist 8. júní kl. 5.57.
Hún vó 4.560 g og var 55
cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Pálína Þorsteins-
dóttir og Brynjólfur Eyj-
ólfsson.
Akureyri Lárus Sólon
Biering fæddist 22. júlí kl.
23.39. Hann vó 4.215 g og
var 53 cm lengur. For-
eldrar hans eru Ottó Bier-
ing Ottósson og Hugrún
Ósk Hermannsdóttir.
Reykjavík Trausti Þór
fæddist 29. júní kl. 20.37.
Hann vó 3.950 g og var
54,5 cm langur. For-
eldrar hans eru Nína
Björk Jónsdóttir og Keith
Hayward.
Lausn síðustu Sudoku.Frumstig Miðstig Efstastig