Morgunblaðið - 23.09.2008, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 23.09.2008, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 41 / SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI - B.S., FBL - Þ.Þ., D.V. - 24 STUNDIR - S.V., MBL- Ó.H.T., RÁS 2 MIRRORS kl. 8 B.i. 16 ára SVEITABRÚÐKAUP kl. 8 LEYFÐ STEP BROTHERS kl. 8 - 10:10 B.i. 7 ára MAMMA MIA kl. 8 B.i. 16 ára DEATH RACE kl. 10:10 B.i. 12 ára TROPIC THUNDER kl. 8 B.i. 16 ára DEATH RACE kl. 10:20 B.i. 16 ára SVEITABRÚÐKAUP kl. 8 LEYFÐ THE STRANGERS kl. 10:20 B.i. 16 ára MAMMA MIA Sýnd næst 27. og 28. september LEYFÐ VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG 2 VIKUR Á TOPPNUM! SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SPENNA, HASAR OGTÖFFARASKAPUR EINS OG ÞAÐ GERIST BEST OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK SÝND Í KRINGLUNNI EIN FLOTTASTA ÆVITÝRAMYND ÁRSINS MEÐ ÍSLENSKU LEIKKONUNNI ANÍTU BRIEM Í EINU AF AÐALHLUTVERKUNUM. ATH. STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA. EKKI FYRIR BÍLVEIKA! -T.S. K. - 24 STUNDIR - S.V. - MORGUNBLAÐIÐ-TOMMI - KVIKMYNDIR.IS OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í KEFLAVÍK SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSI Sett upp í Reykjavík í samstarfi við Nýr hrífandi söngleikur Ólafs Hauks Símonarsonar frumsýndur 10. október. Forsala hefst á miðvikudag kl. 10 Tryggðu þér miða í síma 568 8000 eða á netinu: borgarleikhus.is Fyrstu sýningar: 10/10 kl. 20, 11/10 kl. 19, 11/10 kl. 22, 12/10 kl. 20, 14/10 kl. 20, 16/10 kl. 20, 17/10 kl 19, 18/10 kl. 19, 25/10 kl. 19, 26/10 kl. 20, 29/20 Geisladiskurinn í kaupbæti. Þeir 200 fyrstu sem kaupa miða í forsölu fá nýjan geisladisk með tónlistinni í kaupbæti. Útgefandi: Sena. Miðasala er í síma 568 8000 og á borgarleikhus.is Ég verð að segja að ég varð fyrir vonbrigðum með Svarta engla,“ segirGuðný Halldórsdóttir kvikmyndagerðarmaður, sem sá báða þættina í fyrrakvöld. „Þetta er svo tilgerðarlegt og mikill útúrdúr frá ís- lenskum raunveruleika, því við erum ekki með svona glæpi. Svo fannst mér þetta alltof margar persónur, og þetta var líka alveg eins og Mannaveiðar. Til dæmis var myndavélin alveg á hundrað, eins og var í tísku fyrir mörgum árum, svona mikil hreyfing á vélinni. Mér fannst við líka svolítið vera að stæla danska þætti, ég þekki ekki svona glæpi og hef ekki áhuga á þeim. Þannig að mér fannst þetta ósköp tilgerðarlegt.“ Guðný var þó ánægð með frammistöðu leikaranna. „Þeir eru allir orðnir svo vanir að leika fyrir mynda- vélar. En þeir voru reyndar sumir hverjir svolítið subbu- legir, miðað við að vera í löggunni.“ En stóð einhver leikaranna upp úr að mati Guðnýjar? „Já mér fannst Sólveig Arnarsdóttir rosalega góð. En mér fannst kar- akterarnir of margir og þetta er fullflókið. Fólk er líka orðið of grun- samlegt of fljótt. En sem sagt, mér fannst þetta endurtekning á Manna- veiðum og verið að kreista þetta út úr íslenskum raunveruleika sem er ekki til. Okkar morð eru frekar púkaleg.“ Aðspurð segist Guðný hins vegar hafa verið mjög ánægð með fyrsta þátt Dagvaktarinnar. „Mér fannst hann alveg frábær. Þessu er spýtt út úr íslenskum raun- veruleika og ég er svo mikið fyrir það. Mér fannst þetta bæði fyndið og skemmtilegt, og líka mjög vel tekið,“ segir Guðný og bætir því við að leik- ararnir hafi allir verið mjög góðir. „Þarna eru bara fáir karakterar, sem er að vísu búið að kynna fyrir manni í fyrra.“ Guðný ætlar að fylgjast með báðum þáttum næstu sunnudagskvöld. „Já já, ég reyni nú að fylgjast með öllu íslensku efni,“ segir hún að lok- um. Vondir englar, góð vakt Guðný Halldórsdóttir englar Árni Þórarinsson, blaðamaður og rithöfundur, sá bæði Svarta Engla ogDagvaktina á sunnudagskvöldið, og var mjög ánægður með báða þættina. „Sunnudagskvöldið var með albestu íslenskum sjón- varpskvöldum seinni ára, finnst mér. Tveir leiknir fram- haldsþættir, gjörólíkir, og tveir viðtalsþættir, einnig hvor með sínum bragnum, allir fjórir prýðilega gerðir og af stakri fagmennsku,“ segir Árni. „Svartir englar og Dagvaktin eru auðvitað rétt að byrja og ævinlega er hæpið að draga stórar ályktanir á frumstigi, því framvinda og lokahnykkur geta ráðið úr- slitum. Hitt virðist ljóst að þeir Óskar Jónasson og Sig- urjón Kjartansson ná góðum tökum á sakamálasögum Ævars Arnar Jósepssonar, enda með reyndustu og flinkustu fagmönnum okkar í miðlinum. Miklu skiptir einnig að vel takist til um skipun í hlutverk og leikhópurinn er skemmti- lega samsettur. Dagvaktin tekur upp þráðinn frá Næturvaktinni eins og ekkert hafi í skorist. Það er eitthvað við þetta makalausa persónugallerí, sem er í senn svo ekta og undur furðulegt, að ekki er hægt að kalla það annað en tragí- kómískan galdur. Það er tilhlökkunarefni að fylgjast með báðum þessum þáttum inn í veturinn og sérstakt fagnaðarefni hvernig bæði RÚV og Stöð 2 sækja nú fram með leikið efni sem fjallar um okkur Íslendinga, en ekki ameríska uppa eða götulýð, sem eiga við okkur jafn lítið erindi og ma- gahjáveita við þá sem eru hungurmorða. Maður bara tekur ofan og þakkar fyrir,“ segir Árni. Frábært sunnudagskvöld Árni Þórarinsson GAMANÞÁTTARÖÐIN 30 Rock hlaut í fyrrakvöld fern Emmy-verðlaun sem veitt eru fyrir sjónvarpsefni, þar af verð- laun fyrir bestu þáttaröðina. Aðalleikarar þáttanna, Alec Baldwin og Tina Fey, hlutu verðlaun fyrir bestan leik í gamanþáttum og auk þessi hreppti Fey verðlaun fyrir bestu skrif handrits að gamanþætti. Fey þakkaði í ræðu fyrir að vera í föstu starfi í „kalkúnaborgara- hagkerfi“ Bandaríkjanna og Baldwin bætti því við að hlutverkið í þáttunum væri sitt besta til þessa. Þættirnir John Adams hlutu flest verðlaun allra þáttaraða, fimm alls. Paul Giamatti og Laura Linney hlutu verð- laun fyrir hlutverk sín í þáttunum sem segja af öðrum forseta Bandaríkjanna og bera nafn hans. Glenn Close þótti best í aðalhlutverki dramatískrar þátta- raðar, fyrir Damages. Þá voru í fyrsta sinn veitt verðlaun besta raunveruleika- þáttar-stjórnandanum og hlaut þau Jeff Probst fyrir Survivor. Grínistinn Ricky Gervais veitti verðlaunahöfum leiðsögn í ræðuhaldi, sagði þeim að hafa ræðuna stutta og þá sérstaklega ef viðkomandi væri ekki leikari. Enginn vildi hlusta á framleiðanda. „Og ekki gráta, þetta eru bara verðlaun,“ bætti hann við. 30 Rock hlaut fern Emmy-verðlaun Grín Tina Fey og Alec Baldwin. Reuters

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.