Morgunblaðið - 26.11.2008, Side 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@mbl.is
VERÐI margra ára töf á því að reist verði fyrir-
hugað verslunarhúsnæði í miðborginni vegna
efnahagskreppunnar þarf hugsanlega að meta
hvort lagfæra eigi gömul og niðurnídd hús sem
víkja áttu fyrir nýjum byggingum, að sögn Ólafar
Örvarsdóttur, skipulagsstjóra Reykjavíkur-
borgar sem viðurkennir að hús sem neglt hafi
verið fyrir eða ekki gerð upp séu lýti á miðborg-
inni. Samkvæmt vinnureglum má ekki rífa húsin
fyrr en sýnt hafi verið fram á hvað koma eigi í
staðinn.
Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Samson Pro-
perties sem á tugi fasteigna við Skúlagötu, Hverf-
isgötu, Laugaveg, Vitastíg og Frakkastíg, telur
að fáir séu að fara byggja mikið upp í miðbænum
eins og staðan er nú. „Menn reyna í besta falli að
klára það sem þeir eru með í vinnslu,“ segir Ás-
geir. Aðeins tvö húsa Samson Properties á svæð-
inu eru auð, samkvæmt upplýsingum frá félaginu.
Ágúst Friðgeirsson hjá ÁF-Húsum ehf. sem á
fimm fasteignir við Laugaveg og Vatnsstíg segir
enn stefnt að því að byggja verslunarhúsnæði á
svæðinu með íbúðum fyrir ofan. „En auðvitað
gæti það breyst miðað við þróun mála. Útlitið er
ekki glæsilegt. Það er búið að halda manni í gísl-
ingu með fleiri hundruð milljónir króna í þrjú ár.
Ekki lækka skuldirnar við það. Náist ekki sam-
komulag við borgaryfirvöld um endurbyggingu á
þeim húsum sem eiga að halda sér á Laugaveg-
inum geri ég kröfu um að fá að byggja eftir gild-
andi deiliskipulagi en það miðast við að þessi hús
fari. Að sögn Ágústs eru þrjár fasteignir ÁF-
Húsa auðar, ein við Vatnsstíg og tvær við Lauga-
veg. „Það er neglt fyrir og við erum með daglegt
eftirlit með þessum húsum þar sem hústökumenn
höfðu hreiðrað um sig.“ Það er mat Ágústs að
nánast allar fasteignirnar séu ónýtar.
Skipulagsstjóri segir að verði engar fram-
kvæmdir um langa hríð sé eðlilegast að eldri hús
verði gerð upp og þeim komið í notkun. „Við vilj-
um ekki að bærinn sé skörðóttur. Það eru skiptar
skoðanir um hversu ónýt húsin eru. Ef menn ætla
ekkert að gera í mörg ár hlýtur alltaf að vera hag-
kvæmara að gera eitthvað fyrir húsin og koma
þeim í notkun. Byggingarfulltrúi þarf að meta
ástand húsanna í samvinnu við eigendur. Mörg
húsanna hafa ekki endilega verið keypt til niður-
rifs.“
Fáir að fara að byggja í miðbænum
Skipulagsstjóri segir hugsanlega þörf á að meta hvort gera eigi gömul niðurnídd hús upp
Eigendur húsa sem neglt hefur verið fyrir segja endurgerð ekki svara kostnaði
Í HNOTSKURN
»Jón Viðar Matthíasson,slökkviliðsstjóri á höf-
uðborgarsvæðinu, óttast að
menn leiti skjóls í auðum hús-
um þegar harðnar á dalnum.
Hann óttast að brunagildrur
séu enn margar.
»Samkvæmt skýrsluslökkviliðsstjóra frá því í
apríl síðastliðnum stóðu 57
hús auð í miðborginni og þar
um kring. Slökkviliðið fer í
eftirlitsferðir á um hálfs
mánaðar fresti.
»Húseiganda ber að haldahúsi sínu við og sjá til
þess að ekki stafi hætta af
því.
»Byggingarfulltrúi hefurheimild til þess að beita
dagsektum eða láta vinna
verkið og innheimta fyrir það
stafi hætta af húsum.
Morgunblaðið/Golli
Engin prýði Autt húsnæði við miðbæinn sem lítil prýði þykir að.
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
SAMKVÆMT upplýsingum frá
fjórum helstu bílafjármögnunarfyr-
irtækjunum hafa hátt í 20 þúsund
bíleigendur nýtt sér möguleika á að
frysta erlend bílalán síðustu tvo
mánuði. Er afborgunum af höfuð-
stól lána þá almennt frestað í fjóra
mánuði en lántakar greiða áfram
vexti.
Upplýsinga var aflað frá Avant,
SP Fjármögnun, Glitni Fjármögnun
og Lýsingu en fleiri aðilar hafa
einnig boðið upp á erlend bílalán.
Þessi fjögur fyrirtæki hafa þó átt
langstærstan hlut á markaðnum.
Bíleigendur hafa getað breytt
þessum greiðslum sér að kostn-
aðarlausu, nema að Lýsing hefur
tekið 7.000 króna gjald fyrir. Hefur
þetta verið helst verkefni fyrirtækj-
anna síðustu daga og vikur.
Lýsing er með um 23 þúsund
bílasamninga við 16 þúsund við-
skiptavini, þannig að sumir eru með
fleiri en tvo bíla á sínum vegum.
Að sögn Ingólfs Þorsteinssonar,
innheimtustjóra Lýsingar, hafa ríf-
lega 4.000 samningar verið frystir
síðustu tvo mánuði, þar af um 2.600
núna fyrir næsta gjalddaga í byrjun
desember. Frestur til að gera
breytingar á þeim gjalddaga var 21.
nóvember sl. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um áframhald á þessum
breytingum á lánum í erlendri
mynt. Ingólfur segir stöðuna vera
endurmetna fyrir gjalddaga í jan-
úar, eftir því hvernig gengi krón-
unnar þróast.
20-30% af heildinni
Að sögn Magnúsar Gunnars-
sonar, framkvæmdastjóra Avant,
hafa um fjögur þúsund bílalán verið
fryst. Spurður hvað það sé mikill
hluti af heildarfjölda bílalána hjá
Avant segir Magnús það vera um
þriðjung.
Samkvæmt upplýsingum frá
Glitni Fjármögnun hafa um fjögur
þúsund aðilar óskað eftir frystingu
á bílalánunum og er það um 20% af
heildarfjölda viðskiptavina.
„Við erum að tala um nokkur
þúsund bílalán,“ segir Haraldur
Ólafsson, markaðsstjóri SP Fjár-
mögnunar, um stöðuna en gefur
ekki upp nákvæmari tölu. Á bilinu
22-24 þúsund bílasamningar hafa
verið gerðir hjá fyrirtækinu, að
sögn Haraldar.
Morgunblaðið/Ómar
Bílalán Af um 80 þúsund samningum hjá fjórum stærstu fjármögnunarfyrirtækjunum hafa nærri 20 þúsund bílalán
verið fryst í næstum fjóra mánuði. Áfram eru greiddir vextir af lánunum og aðeins afborgunum slegið á frest.
Um 20 þúsund fryst
Lýsing endurskoðar afstöðu sína fyrir gjalddaga í janúar
Frysting bílalána helsta verkefni fjármálafyrirtækjanna
Í HNOTSKURN
»Um 4.000 bílalán hafa ver-ið fryst hjá hverju fyrir-
tæki fyrir sig, Avant, Lýsingu
og Glitni Fjármögnun
»SP Fjármögnun segir„nokkur þúsund“ hafa
fryst bílalánin.
»Frá fimmtungi upp í þriðj-ung lántakenda hafa nýtt
sér þennan möguleika til að
mæta hækkunum á erlendum
bílalánum.
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
OPINN fundur
fyrir sjóðsfélaga í
peningabréfa-
sjóði Landsvaka,
dótturfélags
Landsbankans,
verður haldinn
annað kvöld.
Fundurinn byrjar
klukkan 20 og fer
fram í íþrótta-
miðstöðinni í
Laugardal, þar sem ÍSÍ hefur aðset-
ur.
Að sögn Kristínar Helgu Kára-
dóttur, sem er meðal skipuleggj-
enda, hafa helstu stjórnendur sem
eru málinu viðkomandi verið boð-
aðir á fundinn. Ásmundur Stef-
ánsson, formaður bankaráðs Nýja
Landsbankans, Lárus Finnbogason,
formaður skilanefndar gamla
Landsbankans, Stefán Héðinn Stef-
ánsson, stjórnarformaður sjóðsins,
og Elín Sigfúsdóttir, forstjóri Nýja
Landsbankans eru þar á meðal.
Þingmönnum boðið að mæta
Einnig hefur Gísla Tryggvasyni,
talsmanni neytenda, verið boðið á
fundinn og öllum þingmönnum sem
gegna formennsku í þingflokkum.
Kristín Helga segir þá kröfu
verða setta fram á fundinum að tap
peningabréfasjóðsins verði rann-
sakað og að allt komi upp á borðið,
varðandi viðskipti í sjóðnum
skömmu fyrir hrun bankans. Þá vilji
sjóðsfélagar líka að rætt verði við þá
um úrbætur. Ýmislegt hafi verið
rætt í því samhengi, svo sem að fá
andvirði hins tapaða fjár greitt inn á
bundinn verðtryggðan reikning, að
fá skattaafslátt eða skuldajöfnun.
Hins vegar verði líklega rætt um
hina ósiðlegu, ef til vill ólöglegu
markaðsetningu sjóðsins. „Það er
hluti þess sem við viljum að verði
rannsakað,“ segir Kristín Helga. Yf-
ir 150 manns hafa nú skráð sig í hóp-
inn sem stendur fyrir fundinum.
Fundað um Lands-
vakasjóð á morgun
Kristín Helga
Káradóttir
NÝ HÁLENDISBÓK!
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
Einstök bók um
ævintýralegar
jöklaferðir um hávetur,
samskipti jeppamanna
og leiðir og landslag á
hálendinu.
Frábær bók handa
öllu áhugafólki
um hálendið og
fjallaferðir!