Morgunblaðið - 26.11.2008, Síða 6

Morgunblaðið - 26.11.2008, Síða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008 ostur.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA Ómissandi í veisluna! SAGT var frá fjármálaumsvifum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í Brennpunkt, fréttaskýringaþætti norska ríkissjónvarpsins (NRK), í gærkvöld. Fullyrt var að Davíð Oddsson seðlabankastjóri hefði átt við Jón Ásgeir er hann sagði að ís- lensku bankarnir hefðu lánað einum manni þúsund milljarða króna. Sagt var m.a. að Jón Ásgeir hefði beitt eignarhaldi sínu á fjölmiðlum til að reyna að hindra að fjallað væri um lystisnekkju hans. Rætt var við Jón Gerald Sullenberger í Flórída. „Áætlunin gekk út á að komast inn í bankana, ná tökum á þeim,“ segir Jón Gerald. „Það átti að tryggja að menn hefðu lykilmenn í bönkunum í vasanum og það tókst honum hérna.“ Jón Gerald segir að Baugsmenn hafi boðið aðstoðar- forstjórum Straums-Burðar- áss, Kaupþings og Glitnis í mikla veislu í Miami, flogið hafi verið með þá þangað og heim aftur. Talað er við Helga M. Gunn- arsson, yfirmann efnahagsbrotadeildar, sem segir fjárveitingu til stofnunarinnar að- eins vera brot af því fé sem Jón Ás- geir hafi notað til að verjast í Baugs- málinu. Lögreglan hafi síðustu árin ekki haft næga burði til að fara í saumana á fjármálaheimi Íslands. kjon@mbl.is NRK fjallar um Jón Ásgeir Yfirmaður efnahagsbrotadeildar segir hana ekki hafa haft burði til rannsókna Jón Ásgeir Jóhannesson VIÐSKIPTI með gjaldeyri virðast smám saman verða greiðari eftir því sem líð- ur frá hruni bankakerfisins í byrjun október. Algengt var á fyrstu vikunum eftir hrunið að Alþjóðahús fengi ábendingar um erlent fólk á Ís- landi sem átti í miklum erfiðleikum með að senda peninga úr landi, enda voru gjaldeyrisviðskipti svo til algerlega í lamasessi um tíma og fjölmargar greiðslur virtust gufa upp í millifærslum milli banka. Margir sem starfað hafa hér á landi hafa reglulega sent peninga til útlanda til fjölskyldna sinna í heimalandinu. Þar til fyrir viku Einar Skúlason, forstöðumaður Al- þjóðahúss, segist aðspurður ekki hafa fengið ábendingar um slík vandræði útlendinga í töluverðan tíma núna, líklega um viku. Hins vegar hafi slíkar ábend- ingar komið reglulega fram að því. Sér virðist ástand mála hvað þetta varðar því heldur farið að skána, þó svo að takmarkanir séu enn á þeim fjárhæðum sem hægt er að höndla með. onundur@mbl.is Einar Skúlason Gjaldeyris- flutningarnir auðveldari Í ÚRKOMUNNI sem féll í höfuðborginni í gær og vindhviðunum sem fylgdu í kjölfarið var gott að hylja höfuðið með hettu. Þó brugðu sumir veg- farendur í Austurstræti einfaldlega á það ráð að leita skjóls fyrir veðuröflunum í næstu verslun. Í dag er spáð kólnandi veðri eða allt að tíu gráða frosti og roki síðdegis. Þá er búist við snjókomu um tíma suðaustanlands og einnig á Norðurlandi og Vestfjörðum seint í kvöld. Kólnandi veður og snjókoma víða um land Morgunblaðið/Golli Hettan hlýjar ágætlega en inni er best að vera ADOLF Guðmundsson, for- maður Landssambands ís- lenskra útvegsmanna (LÍÚ), er afar ósáttur við þau vinnubrögð Samtaka at- vinnulífsins (SA) að efna til skoðanakönnunar meðal fé- lagsmanna um það hvort stefna beri að Evrópu- sambandsaðild, án þess að taka tillit til sjónarmiða full- trúa LÍÚ í stjórninni. Ein- hugur ríki um það í stjórn LÍÚ að íhuga úrsögn úr samtökunum. „Það liggur fyrir stjórnarsamþykkt hjá okkur frá því í haust á þá leið að ef samtökunum verði beitt í þessa veru segi LÍÚ sig úr þeim. Þetta er samþykkt sem þarf að leggja fyrir félagsmenn.“ Adolf segir að slíkur fundur yrði aldrei fyrr en á nýju ári. Fyrst þurfi að taka ákvörðun um slíkan fund í stjórn LÍÚ. Hitt liggi fyrir að sambandið líti svo á að innganga í ESB yrði álitin ógn við sjávarútveginn. Adolf gagnrýnir vinnubrögð SA. „Það er verið að fara í skoðanakönnun um það hvort það eigi að beita Samtökum atvinnu- lífsins í Evrópumálum. Við vorum ósátt við þau vinnubrögð, vegna þess að þetta var inni hjá stjórn samtakanna, þar sem því hafði verið frestað. Síðan er þetta tekið fyrir í fram- kvæmdastjórninni og keyrt þar í gegn. Fulltrú- ar okkar í stjórninni óskuðu eftir því að þetta yrði tekið upp þar aftur og afgreitt. Það var ekki fallist á það,“ segir Adolf og heldur áfram. „Við vildum koma þar að ákveðnum spurn- ingum. Það var búið að ljá máls á því en síðan var það ekki gert. Þannig að við höfum verið mjög ósáttir við þessi vinnubrögð. Við erum ekkert að skipta okkur af því hvort önnur aðild- arfélög hafi aðra skoðun á Evrópusambands- aðild heldur en við. Það er bara eðlilegt að það séu skiptar skoðanir um það. Okkur finnst það og það er stefna LÍÚ að það eigi hins vegar ekki að beita regnhlífarsamtökum eins og SA gegn hagsmunum aðildarfélaga.“ Hvað snerti afstöðu félagsmanna LÍÚ til ESB kveðst Adolf ekki vita um „neinn aðila innan LÍÚ sem vilji ganga inn í sambandið“. baldura@mbl.is LÍÚ íhugar úrsögn úr SA Félagsfundur skæri úr um hvort sambandið segi sig úr Samtökum atvinnulífsins Adolf Guðmundsson SKOÐANAKÖNNUN sem nú stendur yfir meðal aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífs- ins (SA) um Evrópumál er fyrst og fremst gerð til að kanna hvort stuðningur er fyrir því að SA beiti sér fyrir aðildarviðræðum við Evrópusambandið (ESB), að sögn Þórs Sig- fússonar, formanns SA. Í könnuninni eru að- ildarfyrirtæki SA einnig spurð um afstöðu sína til þess að evra verði tekin upp sem gjaldmiðill hér á landi. Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) hefur hótað úrsögn úr samtökunum verði SA beitt fyrir inngöngu Íslands í ESB. Þór sagði að það yrði missir að LÍÚ, léti sam- bandið verða af því að ganga úr SA. Hann sagði ljóst að meirihluti væri fyrir því innan SA að breyta afstöðu samtakanna til Evrópu- mála, að minnsta kosti til þess að hefja und- irbúning aðildarviðræðna. Það lægi fyrir að stærstu aðildarfélög SA, þ.e. Samtök iðnaðar- ins og Samtök verslunar og þjónustu, væru þessarar skoðunar. Framkvæmdastjórn SA hefði því ákveðið að undirbúa málið frekar með skoðanakönnun meðal félaga sinna. „Við erum fyrst og fremst að leita eftir því hvort félagsmenn hafi áhuga á að SA beiti sér fyr- ir málinu. Það er alls ekki verið að óska eftir umboði til að gera hvað sem er með ESB heldur fyrst og fremst að fara í aðildar- viðræður. Sjá í hvaða stöðu við erum og hvaða mögu- leika við höfum til að ná sem hagstæðustum samningum, ekki síst hvað varðar sjávar- útveginn. Það verður auðvitað stóra málið að reyna að ná sem hagstæðastri niðurstöðu fyr- ir íslenskan sjávarútveg,“ sagði Þór. Hann sagði það auðvitað skipta öllu hvað kæmi út úr mögulegum aðildarviðræðum við ESB. Þjóðin mundi svo taka afstöðu til aðildar- samnings með þjóðaratkvæði eða öðrum hætti. Niðurstaða könnunarinnar mun liggja fyr- ir og verða á dagskrá næsta stjórnarfundar SA um miðjan desember. gudni@mbl.is Kanna hug SA til viðræðna Þór Sigfússon Jón Ásgeir Jóhannesson sendi frá sér yfirlýsingu í gær í tilefni af þætti NRK og fordæmdi vinnubrögð stöðvarinnar. Hún styddist aðallega við Jón Gerald Sullenberger er „virðist deila þráhyggju“ varðandi Jón Ásgeir með Davíð Oddssyni seðla- bankastjóra. Rangt sé að einblína á skuldastöðu þeirra fyrirtækja sem hann fari fyrir. Eigið fé hluthafanna sé um 300 millj- arðar króna. „Þetta hlutafé get- ur átt verulegan þátt í því að treysta fjárhagslegan grundvöll íslensku bankanna og þar með íslensks efnahagslífs í náinni framtíð,“ segir Jón Ásgeir. „Deila þráhyggju“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.