Morgunblaðið - 26.11.2008, Page 7

Morgunblaðið - 26.11.2008, Page 7
Fréttir 7INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008 Lífeyrisþegar athugið! Starfsfólk þjónustumiðstöðvar og umboða veitir ráðgjöf og leiðbeiningar varðandi útfyllingu og skil tekjuáætlunar. Laugavegi 114 | 150 Reykjavík | Sími 560 4400 | Grænt númer 800 6044 | www.tr.is | www.tryggur.is Tekjuáætlun þín stýrir greiðslunum –fyrir þig Tekjuáætlun 2009 Kennitala NAFN NAFN MAKA*ÁÆTLAÐARÁRSTEKJUR 2009 LEIÐRÉTT ÁÆTLUNUM ÁRSTEKJUR 2009 ÁÆTLAÐARÁRSTEKJUR 2009 LEIÐRÉTT ÁÆTLUNUM ÁRSTEKJUR 2009 1 Atvinnutekjur 1.1 Launatekjur 1.2 Reiknað endurgjald 1.3 Atvinnuleysisbætur 1.4 Hagnaður af atvinnustarfsemi 1.5 Iðgjald í lífeyrissjóð til frádráttar 1.6. Iðgjald í séreignasjóð til frádráttar 2 Lífeyrissjóðstekjur 2.1 Lífeyrissjóðstekjur 2.2 Séreignasparnaður 2.3 Uppbót á ellilífeyri frá RSK 3 Aðrar tekjur 3.1 Aðrar tekjur 3.2 Áætlaðar tekjur frá RSK 4 Fjármagnstekjur * Sjá bækling um tekjuáætlunvarðandi mikilvægi þess aðáætla tekjur maka Fjármagnstekjur hjóna ogsambúðarfólks skal skrásameiginlega 4.1 Vextir og verðbætur 4.2 Arður 4.3 Leigutekjur 4.4 Söluhagnaður Dagsetning Undirskrift Undirskrift maka (ef við á) TillögurTryggingastofnunarað tekjuáætlun Þínarbreytingar Skrá skalheildarupphæðfjármagnstekna Hér er hægt að skráathugasemdir vegnatekjuáætlunar Lífeyrisþegum hefur verið send tekjuáætlun 2009. Nú er hægt að skila tekjuáætlun rafrænt á tryggur.is með aðstoð veflykils rsk. Á tryggur.is er einnig hægt að gera bráðabirgðaútreikning. Það er fljótlegt, einfalt, öruggt og opið allan sólarhringinn! Ekki þarf að endursenda tekjuáætlun nema tekjur breytist. Eftirfarandi tekjur hafa m.a. áhrif á greiðslur almannatrygginga: · Atvinnutekjur · Fjármagnstekjur, t.d. söluhagnaður, arður og vextir · Lífeyrissjóðstekjur · Atvinnuleysisbætur Það er alltaf hægt að breyta tekjuáætlun aftur ef forsendur breytast. Þrátt fyrir óvissu um vísitöluhækkanir einstakra tekjutegunda er nauðsynlegt að skoða og leiðrétta tekjuáætlun eftir þörfum. Ef tekjur breytast er nauðsynlegt að senda leiðrétta tekjuáætlun til Tryggingastofnunar eða breyta á tryggur.is. „ÞAÐ er svo sem ekki mikið um þennan fögnuð hans að segja. Prestur Fríkirkjunnar í Reykjavík hefur undanfarin ár kosið að nýta útvarpsmessur með svipuðum hætti,“ segir Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, upp- lýsingafulltrúi Biskupsstofu, um prédikun Hjartar Magna Jóhannssonar fríkirkjuprests sl. sunnudag. Í henni fagnaði hann m.a. úr- sögnum úr þjóðkirkjunni. Steinunn Arn- þrúður segir jafnframt að hún telji ekkert nýtt hafa komið fram í máli Hjartar Magna í ár. „Það er hins vegar leitt að prestur sem vígður er af biskupi Íslands og starfaði lengi innan Þjóðkirkjunnar skuli nota tæki- færið til að tala með niðrandi hætti um boð- un starfssystkina sinna og segja hana „nið- urdrepandi tal um synd, iðrun, sekt og yfirbót“,“ segir Steinunn Arnþrúður og bætir við að prestar Þjóðkirkjunnar leitist við að boða fagnaðarerindið í predikunum sínum eins og þau viti sem sækja messu þangað. Hún bendir á að styrkur Þjóðkirkj- unnar sé m.a. sá að hún starfar um allt land. „Nú í desember verða á fjórða hundrað aðventukvöld og tónleikar í kirkjum lands- ins og milli sex og sjö hundruð messur um jólin. Það er fagnaðarefni að hugsa til allra þeirra mörgu, ungra og aldinna, sem þar leggja hönd á plóg. Þetta er vissulega sér- staða Þjóðkirkjunnar og sérréttindi,“ segir Steinunn Arnþrúður. sia@mbl.is Hjörtur Magni Jóhannsson Leitt að vígður prestur hnýti í starfsbræður Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir LÖGREGLAN ætlar að sviðsetja atburðarásina sem leiddi til dauða 38 ára karlmanns í sumarbústað í Grímsnesi aðfaranótt 8. nóvember. Það á að gera á næstu dögum til að fá frekari skýringar á því sem gerð- ist hina örlagaríku nótt, að sögn Ólafs Helga Kjartanssonar, sýslu- manns á Selfossi. Hann sagði að rannsókn miðaði vel en beðið er eftir endanlegri niðurstöðu krufningar. Fyrir liggur að annar tveggja karlmanna, sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald til 28. nóvember, hef- ur játað að hafa lent í átökum við þann sem lést. Hvorugur gæslu- varðhaldsfanganna hefur játað að hafa valdið þeim alvarlega höfuð- áverka sem leiddi til dauða manns- ins. Þeir liggja þó báðir undir grun, að sögn Ólafs Helga. Ekki liggur ná- kvæmlega fyrir hvernig banvæni áverkinn var veittur. Auk þess sem lést voru fyrr- nefndir tveir karlar, tvær konur og ársgamalt barn í sumarbústaðnum. Faðir barnsins yfirgaf bústaðinn síðla nætur örlaganóttina og tók barnið með sér. Konurnar voru báð- ar hnepptar í gæsluvarðhald en hef- ur verið sleppt. Þær eru í farbanni til 18. febrúar 2009. Fólkið er allt frá Litháen en bú- sett hér á landi. gudni@mbl.is Atburða- rásin sviðsett Hefur játað átök við mann sem lést LIÐ Íslands hafnaði í 64. sæti á Ólympíuskák- mótinu í Dresden í Þýskalandi í gær. Armenar urðu ólympíu- meistarar með 19 stig en ís- lenska liðið fékk 11 stig. Þetta er lakasti árangur liðsins á slíku móti frá upphafi, en skv. fréttavef Skáksambands Ís- lands hefur Ísland áður neðst hafn- að í 55. sæti, en það var árið 2000. Liðið tapaði 1½-2½ fyrir sveit Paragvæ í elleftu og síðustu umferð í gær. Stefán Kristjánsson náði 6 vinningum á mótinu, eini íslenski karlkeppandinn sem hækkaði í stig- um. Íslenska kvennaliðið sigraði sveit Úrugvæ í síðustu umferð kvenna- flokks og hafnaði í 60. sæti. Lenka Ptácníková, Guðlaug Þorsteins- dóttir og Hallgerður Helga Þor- steinsdóttir unnu en Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir tapaði. 64. sæti á Ól- ympíumóti Stefán Kristjánsson VERKEFNIÐ Karlar til ábyrgðar verður kynnt kl. 12 í dag í Háskól- anum á Akureyri. Þar mun einnig fara fram undirritun samnings um áframhaldandi samstarf við Jafn- réttisstofu. Karlar til ábyrgðar (KTÁ) er eina sérhæfða meðferðarúrræðið fyrir karla sem beita ofbeldi á heimilum hér á landi. Saga KTÁ hófst með ráðstefnu sem karlanefnd Jafnrétt- isráðs hélt árið 1994. KTÁ var síðan tilraunaverkefni á árunum 1998- 2002 en þá var því hætt sökum fjár- hagserfiðleika. Á því tímabili komu rúmlega sjötíu karlar í viðtöl hjá KTÁ. Verkefnisstjóri er Ingólfur V. Gíslason, lektor við Háskóla Íslands. Andrés Ragnarsson og Einar Gylfi Jónsson eru sálfræðingar verkefn- isins. Karlar til ábyrgðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.