Morgunblaðið - 26.11.2008, Qupperneq 10
10 FréttirHALLDÓR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008
Birna Einarsdóttir, bankastjóriNýja Glitnis, sá ástæðu til að
senda starfsmönnum bankans
tölvupóst vegna fréttaskýringar
Agnesar Bragadóttur í Morgun-
blaðinu sl. sunnudag. Í fréttaskýr-
ingunni kom fram að eigendur
Glitnis hefðu farið með fé bankans
sem sitt eigið og lánað milljarða á
milljarða ofan gegn litlum eða
engum tryggingum.
Birna segist ítölvupóst-
inum gera sér
fulla grein fyrir
hversu illa þessi
umræða, þ.e. um
gamla Glitni og
„ákveðin lána-
mál honum
tengdum“ fari í
starfsmenn Nýja Glitnis, „sem
stoltir unnu af hollustu fyrir sinn
fyrrverandi vinnuveitanda.“
Hún segir jafnframt, að augljóstsé að þagnarskylda hafi verið
brotin og „bankinn mun grípa til
viðeigandi aðgerða þar að lút-
andi.“ Ekki tíundar þó bankastjóri
Nýja Glitnis hvor bankinn ætli að
grípa til þeirra aðgerða, forverinn
eða sá sem nú starfar.
Af tölvupósti bankastjórans máráða, að starfsmönnum Nýja
Glitnis sárnar þegar blettur fellur
á þeirra gamla vinnuveitanda.
Þeir mega hins vegar ekki gleyma,
að núna starfa þeir hjá ríkisbank-
anum Glitni. Komi eitthvað mis-
jafnt í rekstri forverans í ljós ættu
þessir starfsmenn ríkisins að
leggja sig fram um að upplýsa
málið í stað þess að kveinka sér
undan meðferðinni á horfnum
banka.
Birna bankastjóri kveðst fagnaþví að fram fari rannsókn á
starfsemi gömlu bankanna og að-
draganda bankahrunsins. Hún
þarf að sýna það í verki með því að
einbeita sér að rekstri Nýja Glitnis
og hætta að syrgja forvera hans.
Birna Einarsdóttir
Birna gamla og nýja
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!
"
#$
# %
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
# %
#$
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
&
&
! &
&&!
&!
&!
*$BC
! " #
$% & ' %(
)
* &% & %(
+ , , #
*!
$$B *!
' #( $ %)
<2
<! <2
<! <2
'( * +,- .
CD! -
*
B
%(
! " - <7
. !
$%
+ , #
<
%( ! /
+ , . /0 11 % 2$ %* +
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
STAKSTEINAR
VEÐUR
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands dæmdi í gær tvo
menn, sem í öðru máli höfðu verið sakfelldir fyrir
líkamsárás, til að greiða árásarþola skaðabætur
vegna varanlegrar örorku og miskabætur.
Mennirnir tveir veittust að árásarþola í húsi á
Stokkseyri snemma að morgni nýársdags 2003 og
felldu hann í gólfið. Það hafði þær afleiðingar „að
hann hlaut eymsli yfir hægri augabrún og í brjóst-
holi, eymsli og mar á þumalfingri hægri handar,
mar á höfði upp af enni vinstra megin, mar við
vinstra augnalok og vægt glóðarauga og verki í
mjóbaki yfir spjaldhrygg og yfir bringubeini“.
Læknir sem fórnarlambið fékk til að meta af-
leiðingar árásarinnar taldi þjáningartímabil
mannsins vera fjóra mánuði og að hann hefði beðið
varanlegan miska vegna árásarinnar. Hann mat
því varanlega örorku vera 20%. Annar læknir var
dómkvaddur og mat hann varanlegan miska
mannsins 10% og varanlega örorku 5% ásamt
tímabili þjáninga upp á fjóra mánuði. Síðar voru
dómkvaddir tveir yfirmatsmenn, læknir og lög-
fræðingur. Þeir töldu varanlega örorku vera rétti-
lega metna 15%. Dómurinn ákvað að öllu athug-
uðu varanlega örorku vera 5%.
Hinir stefndu voru dæmdir til að greiða stefn-
anda 2.574.640 krónur vöxtum og dráttarvöxtum
frá 1. janúar 2003. Frá þeirri upphæð var dregin
greiðsla úr bótasjóði upp á 2.595.268 krónur 2.
febrúar 2006. Málskostnaður milli aðila var látinn
falla niður. Þá ákvað dómurinn að gjafsóknar-
kostnaður mannsins sem ráðist var á, samtals
1.561.752 krónur, að meðtöldum útlögðum kostn-
aði, skyldi greiðast úr ríkissjóði.
Ásgeir Magnússon héraðsdómari kvað upp
dóminn, meðdómarar voru læknarnir Magnús Páll
Albertsson og Yngvi Ólafsson.
Dæmdar bætur vegna árásar
Fórnarlambið leið þjáningar í fjóra mánuði og beið varanlegan miska og örorku
Eftir Steinunni Ósk Kolbeinsdóttur
Hvolsvöllur | Fræðslunetið hlaut
menntaverðlaun Suðurlands en
verðlaunin voru veitt á ársþingi
SASS á Hvolsvelli. Þetta er í fyrsta
skipti sem verðlaunin eru afhent.
Það var formaður mennta- og menn-
ingarmálanefndar SASS, Ingvar
Pétur Guðbjörnsson, sem afhenti
Ásmundi Sverri Pálssyni fram-
kvæmdastjóra Fræðslunetsins við-
urkenninguna sem var ásamt viður-
kenningarskjali, 200.000 kr.
Alls voru fjórar menntastofnanir á
Suðurlandi tilnefndar til verð-
launanna og var Fræðslunetið ein-
róma valið. Verðlaunin hlaut
Fræðslunetið fyrir frábæran árang-
ur við miðlun háskólanáms og efl-
ingu símenntunar á Suðurlandi eins
og stendur í viðurkenningarskjali. Í
þakkarræðu framkvæmdastjórans
kom fram að hann teldi viðurkenn-
inguna mikla og jákvæða hvatningu
fyrir starfsemina.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Gleði Ásmundur Pálsson hjá Fræðslunetinu fær verðlaunin frá Ingvari
Guðbjörnssyni, formanni mennta- og menningarmálanefndar SASS.
Fræðslunet Suðurlands
hlaut menntaverðlaun
Í HNOTSKURN
»Fræðslunet Suðurlands ermiðstöð símenntunar og
fullorðinsfræðslu og miðlun
háskólakennslu á Suðurlandi.
»Fræðslunetið var stofnað28. ágúst 1999, á degi sí-
menntunar.