Morgunblaðið - 26.11.2008, Qupperneq 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008
ÁRLEG handverkssala Ljóssins,
endurhæfingar- og stuðnings-
miðstöð fyrir krabbameinsgreinda
og aðstandendur, verður haldin
nk. sunnudag, 30. nóvember, að
Langholtsvegi 43 í Reykjavík.
Markaðurinn verður opinn milli
kl. 10 og 15.
Þetta er þriðja árið í röð sem
Ljósið heldur handverksmarkað.
Þar verður m.a. hægt að fá jóla-
gjafir á góðu verði, m.a. margt
fallegt handverk, fallegar sér-
hannaðar peysur, auk þess sem á
staðnum verður kökubasar og
flóamarkaður.
Allur ágóði rennur beint til
Ljóssins.
Handverk
til styrktar
Ljósinu
STARFSMENN Sels, öldrunar-
deildar við Sjúkrahúsið á Akureyri
(FSA), mótmæla harðlega lokun
deildarinnar og hvernig að ákvörð-
uninni var staðið. Sjúklingarnir tólf
sem þar eru verða fluttir á Kristnes,
þar sem FSA rekur öldrunar- og
endurhæfingardeild.
„Við vorum kallaðar á fund í há-
deginu síðasta föstudag og sagt frá
því að Seli yrði lokað um áramót. Í
vikunni áður var okkur sagt að ekki
yrði um neinar uppsagnir að ræða,“
sagði Filippía Ingólfsdóttir, annar
trúnaðarmanna sjúkraliða á Seli, í
gær. Í ályktun sem starfsmenn Sels
samþykktu á fundi í fyrradag segir
að breytingarnar hafi í för með sér
fjöldauppsagnir og „verulega skerð-
ingu á þjónustu og gengur þvert á
það sem nú er brýnast að gera, stór-
efla velferðarþjónustuna og styrkja
öryggisnet fjölskyldnanna.“
Þar segir einnig: „Starfsmenn í
Seli skora eindregið á stjórnendur
FSA að draga ákvörðun sína til baka
um að loka Seli og flytja starfsemi
þess í Kristnes og leita annarra leiða
til hagræðingar í samstarfi og sam-
ráði við starfsfólk heilbrigðisþjón-
ustunnar, samtök launþega, fjölda-
hreyfingar sjúklinga, öryrkja, eldri
borgara og annarra aðila sem hags-
muna hafa að gæta varðandi gæði og
skilvirkni heilbrigðiskerfisins.“
skapti@mbl.is
Starfsfólk mótmælir lokun
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Síðustu jólin Búið er að setja upp jólaskraut við Sel - líklega í síðasta skipti.
Segja breytingarnar kosta fjöldauppsagnir „Veruleg
skerðing á þjónustu“ Skora á FSA að spara á annan hátt
ÍSLENSKIR neytendur hafa ekki
verið svartsýnni samkvæmt vænt-
ingavísitölu Gallup frá því að mæl-
ingar vístölunnar hófust árið 2001.
Vísitalan mælist nú 23,2 stig sem er
langlægsta gildi vísitölunnar frá
upphafi. Til samanburðar var vísital-
an 59,2 stig í síðasta mánuði og 116
stig á sama tíma fyrir ári síðan.
Þetta kemur fram í Morgunkorni
Glitnis.
Hæst fór væntingavísitalan í maí
2007 þegar hún var 154,9 stig. Þegar
væntingavísitalan mælist undir 100
stigum eru fleiri svarendur neikvæð-
ir en jákvæðir á stöðu og horfur í
efnahagslífinu. Vísitalan fór undir
100 stig í mars á þessu ári og hefur
haldið sig undir 100 stigum síðan þá.
Vístalan mælir mat neytenda á
núverandi aðstæðum í efnahags- og
atvinnumálum og væntingum til
ástandsins að sex mánuðum liðnum.
Þá eru allar undirvísitölur einnig í
langlægstu gildum sem sést hafa.
Mat á núverandi ástandi mælist nú
5,2 stig en mældist í september, fyr-
ir hrun bankanna, 72 stig. Þá eru
neytendur einnig afar svartsýnir á
framtíðina og meirihluti aðspurðra
telur að ástandið í efnahags- og at-
vinnumálum verði ennþá verra að
sex mánuðum liðnum.
Íslendingar
aldrei verið
svartsýnni
NÝR DAGUR – NÝ HUGSUN
Ráðstefna um tækifæri framtíðarinnar
Dagskrá
Fundarsetning
Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs
Ávarp
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra
Framsöguerindi
A New Future for Iceland: Re-inventing the country’s economy! – Adjiedj Bakas
Fyrir ungt fólk og framtíðina – Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ
Í túnfætinum heima – Sóley Elíasdóttir frumkvöðull
Heart Work – Mobilizing everyone’s energy to win – Claus Möller
Framtíðarlandið Ísland – Þór Sigfússon, formaður SA
Aðgangur ókeypis. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfangið utflutningsrad@utflutningsrad.is eða í síma 511 4000.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna og hina erlendu fyrirlesara er að finna á www.utflutningsrad.is.
Adjiedj Bakas Claus Möller
Mánudaginn 1. desember • Hilton Reykjavík Nordica • kl. 8.30–11.00
Adjiedj Bakas, framtíðarrýnir og forstjóri Trendwatcher,
og Claus Möller, stjórnendaráðgjafi og stofnandi Time Manager
International, munu horfa til framtíðar á tækifæri þjóðar á tímamótum
á ráðstefnu Útflutningsráðs Íslands fullveldisdaginn 1. desember.
Í erindum sínum munu þessir þekktu fyrirlesarar velta upp hinum ýmsu
möguleikum í atvinnulífinu og beina sjónum að þeim krafti sem býr í
íslensku þjóðinni.
Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • www.utflutningsrad.is